05.05.1955
Efri deild: 81. fundur, 74. löggjafarþing.
Sjá dálk 903 í B-deild Alþingistíðinda. (1050)

3. mál, ríkisborgararéttur

Bernharð Stefánsson:

Herra forseti. Það er aðeins út af fyrirspurnum hæstv. dómsmrh., sem ég kvaddi mér hljóðs. Mér er vel kunnugt um það, að Stephan G. Stephansson var ekki Stetánsson, þó að hann skrifaði sig það, en Gylfi Þ. Gíslason alþm. er ekki Gíslason, heldur Þorsteinsson, og svo er um fleiri menn búsetta á Íslandi. Ég veit ekki, hvort það er nokkur afleiðing þess, að Stephan G. Stephansson flutti til Ameríku, að hann skrifaði sig á þann veg, sem hann gerði, því að menn hafa gert alveg nákvæmlega það sama heima á Íslandi og það miklu fleiri menn en Gylfi Þ. Gíslason. — Að fara að lesa upp hér þau nöfn, sem hæstv. ráðh. nefndi og ég er nú búinn að gleyma, hvaða liðir voru, á ég ekki við. Ég er ekki lærður í tungumálum. Á hinn bóginn efast ég ekkert um það, að hæstv. ráðh. getur lesið þetta.