29.04.1955
Neðri deild: 81. fundur, 74. löggjafarþing.
Sjá dálk 907 í B-deild Alþingistíðinda. (1087)
187. mál, togarinn Valborg Herjólfsdóttir
Karl Guðjónsson:
Herra forseti. Ég hef ásamt öðrum nefndarmönnum í hv. fjhn. þessarar deildar lagt til, að þetta frv. verði samþ. En eins og getið er um á nál., hef ég nokkrar aths. að gera við þau vinnubrögð, sem fram hafa farið um sölu þessa skips.
Í fyrsta lagi má upplýsa það, að þetta skip hætti veiðum í nóvembermánuði s.l., fór þá í viðgerð til Reykjavíkur, kom úr viðgerðinni í desembermánuði, lá siðan fullbúið til veiða að kalla má í eitthvað á fjórða mánuð, og það er ekki fyrr en seinustu dagana í marzmánuði, sem skipið fer úr höfn hér í Reykjavík til hinna nýju eigenda á Norðurlandi. Allan þann tíma, sem skipið liggur og er í fullkomnu standi til þess að hefja veiðar, byggist kyrrstaða þess á því einu, að eigendaskipti á skipinu voru í vændum eða höfðu farið fram.
Ríkisstjórn á Íslandi ætti að hafa það að markmiði, að framleiðsla íslenzkra atvinnutækja gæti orðið sem mest, en ég sé ekki annað en að ríkisstj. hafi með vinnubrögðum sínum í þessu máli farið alveg öfugt að, hún hafi tekið þetta skip, en eins og við vitum, eru togararnir einhver afkastamestu framleiðslutæki; sem Íslendingar eiga, úr umferð svo mánuðum skiptir og það á þeirri árstíð, sem mest er aflavon. Þar af leiðandi hlýtur það að þýða, að íslenzkur þjóðarbúskapur hefur orðið fyrir búsifjum, sem eru þungar, að þannig skuli hafa verið farið með þetta ágæta framleiðslutæki, að það hefur ekki getað starfað.
Þá vil ég einnig vekja athygli hv. þd. á því í sambandi við meðferð þessa máls, að að því er kemur til löggjafar fer ríkisstj. eins að og hún gerir í mörgum málum og ég tel mjög ámælisvert. Hún ber ekki málin undir Alþingi, fyrr en Alþingi á þess kost eingöngu að samþ. eða hafna hlut, sem þegar hefur gerzt. Nú liggur þetta frv. fyrir til afgreiðslu, enda þótt málið sé afgreitt fyrir mánuði. Þætti mér vænt um, ef sá hæstv. ráðherra, sem hér er staddur í deildinni, fjmrh., vildi gefa þingdeildinni skýringu á því, hvernig á því stendur, að þetta lagafrv. kemur fram svona seint, og sömuleiðis, ef hann vildi gefa Alþingi skýringu á því, hvernig á því stendur, að ríkisstj. og flokksbræður hennar, sem fara með stjórn bæjarmála í Vestmannaeyjum, voru svo ákaflega seinir að semja um kaup á skipinu, og hvaða nauðsyn kunni að hafa borið til þess, að skipið stundaði ekki veiðar svo langan tíma sem ég hef áður greint. Ég álít, að Alþingi eigi að gera þá kröfu til ríkisstj. fyrst og fremst, að hún liðki til og leggi sig fram um það, að íslenzk framleiðsla geti orðið sem mest má verða á hverjum tíma, en ekki hitt, að hún geri sér leik að því að taka íslenzk stórvirk framleiðslutæki úr umferð svo og svo lengi, eins og hér hefur raun á orðið.
Ég tjái frv. sem slíku samþykki, enda þótt það sé vafasamt, að ríkisstj. flytji þannig framleiðslutæki til í landinu eins og hér hefur gert verið. Hitt væri miklu eðlilegra, að þegar byggðarlög þurfa á því að halda að fá togara, þá gengist ríkisstj. fyrir því, að byggt yrði nýtt skip til þeirra þarfa, heldur en að svo sé að farið sem hér er gert. Ég tel, að á þessu stigi málsins sé ekki fært annað en samþ. þau kaup, sem fram hafa farið í þessum efnum, og mun ekki standa gegn því, að frv. verði samþ. En ég leyfi mér að óska skýringar ríkisstj. á þeim vinnubrögðum, sem hér hafa farið fram, og sömuleiðis leyfi ég mér sem alþm. að mótmæla því, að slík vinnubrögð verði í framtíðinni viðhöfð, heldur óska ég þess, að ríkisstj. leggi sig fram um það, að íslenzk framleiðsla geti á hverjum tíma orðið sem mest.