31.03.1955
Neðri deild: 68. fundur, 74. löggjafarþing.
Sjá dálk 997 í B-deild Alþingistíðinda. (1215)

183. mál, húsnæðismál

Einar Olgeirsson:

Herra forseti. Þá er komið fram það frv. hæstv. ríkisstj., sem Alþingi nú hefur raunverulega beðið eftir frá því það kom saman aftur í febrúar. Þetta mál hefur í blöðum ríkisstj. verið, meðan það var í undirbúningi, túlkað sem eitt hennar allra þýðingarmesta stefnumál, og í stjórnarsamningnum, sem hæstv. félmrh. vitnaði í, segir, að með slíkum lögum sem hér hafa verið undirbúin hafi verið meiningin að leggja grundvöllinn að því að leysa þetta vandamál til frambúðar. Nú hefur hæstv. ráðherra lýst því, að að vísu sé þetta tilraun til þess að leysa málið til frambúðar, þótt hins vegar sé aðeins tryggt, að þessi tilraun verði í gangi næstu tvö ár. Það fyrsta, sem er eðillegt að ræða í sambandi við þetta mikilvæga stefnumál ríkisstj., er þess vegna, hvort rétt sé stefnt, hvort sú stefna og sú tilraun, sem ríkisstj. vill að sínu leyti reyna að gera til þess að leysa úr þessu erfiða viðfangsefni, sé rétt. Ég vil taka undir það, sem hæstv. ráðherra sagði, bæði um það stórvirki, sem unnið hefur verið það sem af er þessari öld hér á Íslandi í að húsa okkar land, og eins hitt, hve brýn þörfin sé til þess, að þarna sé haldið áfram með þeim stórhug og samfelldum átökum sem hafa mest orðið. Það, sem við nú þurfum að gera upp fyrir okkur, er, hvort sú stefna, sem ríkisstj., eftir því sem hér var þegar lýst, eftir mikla samninga og margs konar erfiðleika hefur komið sér niður á, sé rétt.

Ég vil þá í fyrsta lagi koma inn á þá spurningu, þegar afstaða er tekin til stefnu í húsnæðismálunum: Að hverju viljum við stefna í þessum málum? Eigum við að gera húsnæðið og húsaleiguna algerlega háða öllum þeim sveiflum, sem eiga sér stað á peningamarkaðinum, og þar með líka öllu því braski, sem á sér stað í venjulegu auðvaldsskipulagi, eða eigum við að reyna að halda húsnæðismálunum og þar með húsaleigunni utan við allt slíkt brask, utan við allar sveiflur á þeim venjulega efnahagslega markaði með því að búa til með lögum þannig sérstök skilyrði hvað snertir byggingar íbúðarhúsa, meðferð þeirra og leigu, að ríkinu takist þannig að halda þeim utan við allar sveiflur peningamarkaðsins? Mönnum kann máske að finnast, að um þessar tvær stefnur geti ekki verið að ræða. En það er þó svo. Og þessar tvær stefnur hafa raunverulega tekizt á í okkar þjóðfélagi fram að þessu.

Ég ætla að taka það fyrst fyrir, hvað það mundi þýða, ef við gætum haldið húsbyggingum, leiguhúsnæðis eða eigin húsnæðis, utan við allan venjulegan peningamarkað. Það mundi þýða, að við gætum þá haldið húsaleigu almennt lágri, að við gætum á því sviði unnið á móti dýrtíð. Ég skal nefna dæmi, svo að menn skilji betur, hvað ég á við. T.d. hér í Reykjavík hefur verið gerð sú ráðstöfun, að allar lóðir utan Hringbrautar hafa orðið eign bæjarsjóðs Reykjavíkur. Allar þessar lóðir eru leigðar út og leigðar venjulega með tiltölulega vægu verði. Innan Hringbrautar eru mestmegnis einkalóðir í einstaklingseign. Þessar lóðir í einstaklingseign kosta núna svo að skiptir hundruðum millj. kr., þó að raunverulega hafi aldrei verið lögð nein vinna í þessar lóðir, heldur er það braskverðmæti, sem hefur skapazt með þróun bæjarins. Þessar lóðir verða þess vegna, eignarréttur þeirra og afgjaldið til eigendanna, smám saman gífurlegur baggi á sjálfu atvinnulífi þjóðfélagsins. Við höfum haldið lóðunum, sem eru utan Hringbrautar hér í Reykjavík, utan við braskið, utan við þau venjulegu lögmál efnahagslífsins með því að láta þær vera eign bæjarins. Við höfum hins vegar látið lóðirnar innan Hringbrautar lenda inni í þessu braski, verða lögmálum viðskiptalífsins í auðvaldsskipulaginu að bráð með þeim afleiðingum, sem við öll þekkjum. Það eru möguleikar fyrir ríkisvaldið í þjóðfélaginu að ráða um svona hluti. Ríkisvaldið getur ráðið því, hvort slíkum ákveðnum félagslegum fyrirbrigðum svo að segja er haldið utan við þessa hringiðu eða hvort það er látið lenda inni í henni. Hér á Íslandi hefur á undanfarinni hálfri öld hvað eftir annað verið reynt að gera ráðstafanir til þess að halda íbúðarhúsabyggingunum og þar með lausn húsnæðismálsins utan við þessa hringiðu peninganna og markaðsins. Það var gerð slík tilraun bæði í sambandi við byggingar- og landnámssjóðinn og síðar byggingarsjóð sveitanna og alveg sérstaklega hvað kaupstaðina snertir í sambandi við verkamannabústaðina og löggjöfina þar um. Það var sett löggjöf um, að svo skyldi verða séð um af ríkisins hálfu, að til þess að byggja verkamannabústaðina skyldu fást lán með 2% vöxtum til 42 ára, þ.e. lán, sem raunverulega voru ekki og aldrei hafa verið í samræmi við það lögmál, sem gildir hér á peningamarkaðinum. Það hafa alltaf verið miklu hærri vextir og ekki verið hægt að fá svona löng lán á þeim opinbera peningamarkaði. Ríkisvaldið vildi þannig á sínum tíma, fyrir 25 árum, stuðla að því, að haldið væri utan við sveiflur markaðsins þessari viðleitni til þess að bæta úr húsnæðisþörfinni, húsnæðismálin hvað þetta snerti væru tekin út úr, svo að segja, lögmáli hins kapítalíska þjóðfélags og um þau sköpuð sérstök löggjöf og tryggð framkvæmd þeirrar löggjafar með sérstökum fjárframlögum og sérstökum skilyrðum í lögunum. Samtímis þessu fylgdu svo upphaflega þau skilyrði, að þær íbúðir, sem þannig fengjust til afnota, handa verkamönnum í þessu tilfelli, skyldu ekki mega lenda inni í því venjulega braski, að það skyldi ekki mega selja þær á sama hátt og aðrar íbúðir. Framlag ríkisins og aðstoð ríkisins átti að miða að því að forða þessum íbúðum frá því að lenda nokkurn tíma í allri þeirri hringiðu, sem smám saman hækkar húsaleiguna eins gífurlega og raun ber vitni um. Sömu ráðstafanir var reynt að gera með lögunum um útrýmingu heilsuspillandi íbúða og allri þeirri löggjöf, sem þá var sett í eitt kerfi, með lögunum um verkamannabústaði, samvinnubústaði og önnur lög, sem þá voru gerðir sérstakir kaflar í þeim stóra lagabálki.

Hæstv. félmrh. kom inn á það í sinni ræðu, að þetta hefði ekki verið af raunhyggju gert. Það fer eftir því, hvernig við lítum á þessi mál. Þessi viðleitni, sem kom fram með því að tryggja bændum lán til bygginga með 2% vöxtum og til langs tíma, tryggja verkamönnum lán með 2% vöxtum til langs tíma, tryggja bæjunum lán allt upp í 85% af verðmæti íbúðanna, ef þeir væru að útrýma heilsuspillandi íbúðum, herskálum og slíku, — öll þessi löggjöf studdist við raunhyggju. Og hún studdist við alveg ákveðna stefnu. Hún studdist við þá stefnu, að Alþ. og ríkisstj. ætluðu sér að ráða, hvaða stefna ríkti í þjóðfélaginu á þessu sviði, ætluðu sér að taka íbúðarhúsabyggingarnar út úr hringiðu brasksins og setja á sérstakan grundvöll, sem ríkið skapaði, — grundvöll, sem stæði óhaggaður fyrir hvaða sveiflum og bylgjugangi sem ætti sér stað í þjóðfélaginu fyrir utan. En til þess að slíkt gæti átt sér stað, varð að vernda þessa viðleitni með mjög ströngum lögum. Þessi viðleitni og þessi stefna byggðist á raunhyggju. En hún byggðist á raunhyggju, sem markast af þeirri stefnu, að mennirnir geti sjálfir ráðið yfir fjármagninu og þess sveiflum, að mennirnir geti sjálfir, þjóðfélagið sjálft, í þessu tilfelli Alþ., markað stefnuna í þessum málum og geti beygt fjármagnið undir sinn vilja, a.m.k. hvað snertir þennan hluta af etnahagslífi þjóðfélagsins, hvað snertir íbúðarhúsabyggingar og húsnæðismál.

Hin stefnan, að láta undan þeim kröfum einkafjármagnsins og fjármagnsins almennt í þjóðfélaginu að fá að gína yfir húsnæðismálunum líka, að fá að soga húsabyggingarnar inn í allt sitt brask, - þessar tilhneigingar hafa verið ríkar í þjóðfélaginu í kringum okkur, og þessar tilhneigingar hafa veríð í baráttu við þessa heilbrigðu félagsmálastefnu frá upphafi, — baráttu, þar sem braskstefnan eðlilega hefur verið mjög sterk, vegna þess að hún var í samræmi við lögmál þjóðfélags, sem var að komast hér á í ríkari og ríkari mæli með hverjum áratugnum sem leið, í samræmi við auðvaldsþjóðfélagið og allar þess tilhneigingar. Við skulum muna það, að byggingar- og landnámssjóðurinn upphaflega og öll þau lög, sem síðan hafa verið sett viðvíkjandi íbúðunum í sveitunum, nú seinast byggingarsjóður sveitanna, og eins lögin um verkamannabústaði var allt saman framkvæmt af flokkum, sem þá á ýmsan hátt vildu skapa aðstöðu hér í þjóðfélaginu, sem væri óháð lögmálum auðvaldsþjóðfélagsins. Þessi stefna byggðist sem sé á raunhyggni, en hún byggir ekki á því að beygja sig fyrir peningamarkaðinum og beygja sig þar með fyrir peningamönnunum og þeirra vilja. Hins vegar varð alltaf að koma þessari stefnu í gegn í meiri eða minni baráttu við bankana og fjármagnið í þjóðfélaginu, og það var erfitt. Fjármagnið og bankarnir og þeirra stefna hafa unnið á í viðureigninni við þetta. — Ég sá alveg á bak við það, sem hæstv. félmrh. sagði, þegar hann lýsti samningunum við bankana, að ríkisstj. hefði verið óljúft að gripa til nokkurra þvingunarlaga gagnvart bönkunum. Það hefur löngum gengið svo hjá okkur á Alþ., að menn hafa heldur kosið að reyna að semja við þá, og það er ákaflega skiljanlegt. En það vill nú því miður oft verða svo, að við náum ekki árangri í þessum málum án þess að beita allhörðu við fjármagnsstofnanirnar og lögmál fjármálalífsins sjálfs.

Ég vil til þess að benda mönnum á, að sú stefna, sem ég er hér að tala um, sé ekki neitt óraunhæf eða óhugsandi í venjulegu auðvaldsþjóðfélagi, aðeins benda á, hvaða stefna er ofan á sem stendur í Danmörku hvað þetta snertir. Í Danmörku er sem stendur lánamálum til húsnæðismála háttað á eftirfarandi hátt: Hver sá, sem vill byggja sér hús eða íbúð, getur fengið í hvaða veðlánabanka sem er lánað út á 40% af kostnaðarverði hússins með 4% vöxtum til 40 ára. Þetta fær hann í hvaða banka sem er. Enn fremur getur hann fengið — til viðbótar við þessi lán upp á 40% kostnaðarverðsins — 57% kostnaðarverðsins lánað hjá ríkinu. Og ríkið lánar þessi 57% af kostnaðarverðinu með 21/2 % vöxtum og það í upp undir 100 ár. Með þessu móti getur hver maður í Danmörku, sem vill byggja, fengið lán, sem nemur 97% af kostnaðarverði íbúðarinnar, með vöxtum, sem eru frá 21/2% til 4% og lánstími frá 40 til 100 ár. Eins og menn munu skilja, eru auðvitað þessi lán í algerri andstöðu við venjulegt markaðsverð peninga í Danmörku og venjulega lánsfjárskilmála. Það er verið af hálfu ríkisstjórnarinnar dönsku að reyna að skapa þarna þá aðstöðu, að húsnæðismálin sogist ekki inn í braskið, húsnæðið verði ódýrt fyrir verkamenn og aðra þegna þjóðfélagsins og húsnæðisútgjöldin verði litill hluti af venjulegum útgjöldum fjölskyldu. Það mun vera í Danmörku um 120 danskar krónur á mánuði, þ.e. upp undir 300 kr. ísl. á mánuði, sem menn þurfa að reikna sér í þessum húsum. En um leið er með þeirri löggjöf, sem tryggir mönnum þessi lán, hindrað, að þessar íbúðir geti farið í brask. Það er hindruð raunveruleg sala á þeim. Það er tryggð eins konar erfðaíbúð, ef svo mætti kalla, í sambandi við þetta fyrirkomulag á húsnæðismálunum. Ég vil aðeins geta þessa — það er svipað fyrirkomulag í Svíþjóð líka — til þess að menn sjái, að það er um það að velja, líka í auðvaldsskipulagi eins og hér hjá okkur, að fara sérstaka leið í húsnæðismálunum með sérstökum og að ýmissa áliti allharðvítugum ráðstöfunum gagnvart fjármálalífinu, en um leið mjög góðum ráðstöfunum gagnvart fólkinu. — [Fundarhlé.]

Herra forseti. Ég hafði nokkuð reynt að skýra þá stefnu, sem ég álit að væri heppilegast að reka viðvíkjandi húsnæðismálunum í þjóðfélaginu, og sýnt fram á, að mögulegt væri að reka hana líka, þótt í auðvaldsþjóðfélagi væri, og nefnt þar sérstaklega dæmi um frá Danmörku og Svíþjóð.

Það er rétt, að við því næst reynum að gera okkur nokkra grein fyrir og komum þá inn á þá efnahagslegu hlið í þessum málum, sem snýr að einstaklingnum, hvað sé eðlilegt að þjóðfélagsþegninn verði að greiða af sínum tekjum í húsaleigu, annaðhvort til sjálfs sín sem eiganda íbúðarinnar eða til annarra, sem hann leigir hjá. Þegar við ætlum, eins og þessu frv. er ætlað af hálfu ríkisstj., að leysa húsnæðisvandamálið til frambúðar, þá verðum við að geta gert okkur nokkra hugmynd um, hvað eðlileg aðstaða einstaklingsins sé í þeim efnum og hvaða kröfur hann megi gera til þjóðarbúsins í þessu efni. Við skulum þá fyrst athuga, hvað okkar þjóðfélagsheild, okkar þjóðarbú þarf að ætla sér mikinn hluta af sínum þjóðartekjum á ári til þess að byggja nýtt íbúðarhúsnæði og til þess að viðhalda því gamla án þess að gjalda nokkurn gróðaskatt til eins eða annars. Ég vil stilla þessum reikningi þannig upp: Ef okkar þjóðarbú ætlar að byggja á ári, eins og ríkisstj. reiknar með í sinni greinargerð, 1050 íbúðir, og við skulum segja, að hver íbúð kosti 150 þús. kr., eins og ríkisstj. reiknar hér með líka, þá mundi það þýða um 157 millj., sem þjóðarbúið þarf að leggja fram á ári til þess að byggja 1050 nýjar íbúðir á 150 þús. kr. hverja. Miða ég þá við það sama sem hæstv. félmrh. talaði um, þ.e. frekar litlar íbúðir, sem sé miðaðar við almenningshæfi. Þá er í öðru lagi rétt að áætla, hvað okkar þjóðarbú þarf að ætla sér á ári í raunverulegt viðhald á öllum húseignum, sem fyrir eru. Ég geng út frá, að ef maður reiknar 1% í viðhald af öllum þeim húseignum, sem fyrir eru, þá sé það mjög hátt. Brunabótamat alls íbúðarhúsnæðis, sem nú er til á Íslandi, mun vera í kringum 4000 millj., eða 4 milljarðar. Það mundi þýða, að 1% í viðhald á öllum þeim húsum, sem nú eru til á Íslandi, mundi vera um 40 millj. kr. Og það er eingöngu þetta tvennt, sem þjóðarbúið þarf að ætla sem sitt framlag til að auka og viðhalda íbúðarhúsnæðinu, annars vegar 157 millj. kr. til þess að byggja 1050 íbúðir á ári og hins vegar 40 millj. kr. til viðhalds. Það þýðir 197 millj. kr., eða við skulum segja um 200 millj. kr.; það, sem okkar þjóðarbú sem ein heild þarf að leggja fram á ári til eins margra íbúða og ríkisstj. reiknar með og til viðhalds á þeim íbúðum, sem fyrir eru, mundi vera um 200 millj. kr. á ári. Ef við reiknum þarna með heldur fleiri íbúðum, að það væri nauðsynlegt að byggja meira en 1050 íbúðir á ári, eins og við sósíalistar höfum oft haldið fram, ef við reiknum t.d. með, að það væri nauðsynlegt að byggja 1200 íbúðir á ári á sama verði, þá mundi koma út úr þessari samlagningu 225 millj. kr. Það þýðir með öðrum orðum, að okkar þjóðarbú þarf að leggja fram sem heild 200–225 millj. kr. á ári af sínum sameiginlegu tekjum til þess að byggja nýtt og til þess að viðhalda því gamla. Hvað þýðir þetta í prósentum af okkar þjóðartekjum? Nú eru okkar þjóðartekjur mál, sem nokkuð er deilt um hvað sé, og ég skal ekki staðhæfa hér neitt nákvæmlega um það, það hafa mér fróðari menn ekki orðið sammála um, — en ef við reiknum með t.d. 3000 millj., sem ekki mun vera fjarri lagi, þá mundi það þýða, að með 1050 íbúða byggingu væri það sama sem 6.6% af þjóðartekjunum, eða með 1200 íbúðum væri það sama sem 7.5%. M.ö.o. getur þjóðin sem heild komizt af með til að leggja til nýrra íbúða og viðhalda þeim gömlu 7.5% af sínum þjóðartekjum. Og þó að við vildum gera ráð fyrir, að við þyrftum að byggja fleiri íbúðir og dýrari íbúðir og að okkar þjóðartekjur væru minni en þessar 3000 millj., sem ég hér hef slegið fram, þá býst ég við, að niðurstaðan af þessu yrði alltaf sú, að um 10% af þjóðartekjunum og alls ekki meira væri nægjanlegt til alls, sem þyrfti að byggja í viðbót af húsum á Íslandi og til þess að viðhalda þeim gömlu. Þetta mundi þýða, að svo framarlega sem íbúðarhúsabyggingar á Íslandi væru framkvæmdar án þess, að í sambandi við þær skapaðist nokkur gróði handa nokkrum manni, enginn gróði handa byggingarvörukaupmönnum, enginn gróði handa neinu fyrirtæki, sem tæki að sér að byggja, enginn gróði handa neinum, sem lánuðu fé til slíks, ef þetta væri allt saman rekið með það eitt fyrir augum að vinna þetta sem þjóðarþarfir, þá ætti þjóðfélagið í raunverulegan kostnað ekki að þurfa að reikna sér meira en 10% af þjóðartekjunum til að standa undir hinum nýju íbúðum og viðhalda þeim gömlu. Það ætti jafnframt að þýða, að það eðlilega fyrir hvern og einn verkamann og fyrir hans fjölskyldu að borga í húsaleigu, svo framarlega sem hann borgar ekki gróða til neins aðila, neinnar yfirstéttar í þjóðfélaginu, ætti að vera 10% af launum hans. Og þetta er mjög þýðingarmikið atriði að reyna að komast að sameiginlegri niðurstöðu um, því að þetta mundi vera sú viðmiðun, sem okkur bæri að miða við, þegar við annars vegar ætluðum að gera mönnum mögulegt að eignast hús sjálfir án þess að vera að láta einhverja aðila græða á þeim eða hins vegar þegar við værum að reyna að finna grundvöll fyrir sanngjarnri og réttri húsaleigu, húsaleigu í húsum, sem byggð væru með því móti, að enginn gróðaskattur væri lagður þar á til neinnar yfirstéttar. En hvert er nú ástandið, sem meginhluti verkamanna á við að búa í dag viðvíkjandi þessum málum? Dagsbrúnarverkamaður, sem hefur 3000 kr. á mánuði fyrir 8 tíma vinnu, þarf í mjög mörgum tilfellum að borga 800 kr., 1000 kr., 1200 kr. jafnvel upp í 1500 og 1600 kr. á mánuði fyrir íbúð og það jafnvei fyrir íbúð, sem er ekki stærri en tveggja eða þriggja herbergja. M.ö.o.: Mjög mikið af verkamönnum verður sem stendur að borga þriðjunginn og upp í helminginn af sínum launum í leigu fyrir íbúð.

Með þeim lánskjörum, sem gengið er út frá í þessu frv. á 150 þús. kr. íbúð og sömu lánskjörin miðuð við alla upphæðina, — það er hægt náttúrlega að reikna það dálítið mismunandi eftir því, hvaða kjör eru á þeim helmingi, sem ekki kæmi undir þetta frv., — þá mundi samt sem áður koma út, að t.d. Dagsbrúnarverkamaður mundi þurfa að greiða með þeim kjörum, sem hér er áætlað, frá þriðjungnum upp í helminginn af sínum tekjum á mánuði í húsaleigu — til sjálfs sín að vísu og með því móti smám saman eignast íbúðina, sem sé á 25 árum. En það er auðséð, að meira að segja það felur í sér, að hann borgar á þeim tíma mjög mikinn gróða til ýmissa aðila, sem fá með núverandi skipulagi tækifæri til þess að græða á því, að verkamaðurinn búi í húsi eða sé, að eignast hús, allt frá byggingarvöruverzlunum og til okraranna.

Það hefði verið æskilegast að ráðast á móti þeirri tilhneigingu, sem nú er til staðar í þjóðfélaginu að græða á þeim aðilum, sem eru að koma upp húsi yfir höfuðið á sér, og bannfæra gersamlega gróðamöguleikana af húsnæðismálunum og íbúðarhúsabyggingunum. Þetta er ekki gert með þessu frv. Mér sýnist heildarstefnan í þessu frv. vera raunverulega sú að gefast upp fyrir gróðaþorstanum, sem er að gagnsýra þjóðfélagíð, að gefast upp fyrir okrurunum, sem græða á íbúðarhúsabyggingunum, að reyna að blíðka þétta okraravald og elta það, reyna að segja við það: Mínir góðu, kæru okrarar, viljið þið nú ekki heldur láta mig fá peningana ykkar fyrir 7%, og ég skal gefa þér skattfrelsi og ég skal veita þér fleiri hlunnindi, og þú verður góður borgari, ef þú gerir þetta, en hættu nú bara að okra. — Það er auðséð, að sú nefnd, sem hefur undirbúið þetta frv., hefur sjálf gengið út frá því, að það væri mikið um okurkjör í þessum efnum nú sem stendur í þjóðfélaginu. Á sjöttu bls. í greinargerðinni stendur, með leyfi hæstv. forseta: „Einkaaðilar, sem nú lána til húsbygginga með okurkjörum, eiga þá ekki lengur aðgang að 1. veðrétti. Um leið verða tiltölulega vaxtahá skattfrjáls skuldabréf hagkvæmari kaup fyrir þá en áður, þar sem þeim stendur til boða — í bezta tilfelli — aðeins 2. veðréttur, á eftir tiltölulega háu 1. veðréttar láni.“ M.ö.o.: Nefndin, sem undirbýr málið, gerir sér sjálf ljós hin almennu okurkjör núna og að það þurfi að segja við þessa okrara: Þið getið fengið hérna háa vexti, þið getið fengið hérna skattfrelsi, þið getið fengið að fela peningana ykkar, hví í ósköpunum viljið þið nú heldur vera að okra og eiga jafnvel á hættu að komast undir lögin? Ég held, að það eigi að taka fastari tökum en nefndin leggur til á fjármagninu, ekki sízt vegna þess að allt fjármagn, sem til er í þessu þjóðfélagi, er undir yfirráðum þessarar stofnunar. Það er þessi stofnun, sem ræður öllum bönkum landsins, ræður seðlaútgáfunni og getur sjálf ráðstafað fjármagninu, svo framarlega sem hún gerir sig ekki að leiksopp í hendi fjármagnsins í stað þess að vera herra þess.

Mér sýnist, að með þessu frv. sé gefizt upp fyrir okurstefnunni, fyrir gróðaþorstanum, sé haldið áfram að láta húsnæðismálin sogast inn á þann almenna peningamarkað, verða braskínu að bráð, láta húsleigjendurna og húseigendurna verða að gjalda sinn skatt til gróðans og gróðamyndunarinnar, láta þjóðfélagið líka hvað húsnæðismálin snertir komast inn undir alræði peningavaldsins. Það getur engum blandazt hugur um það, að verð húsnæðis í þjóðfélaginu skapast fyrst og fremst af vaxtagreiðslum. Það eru vaxtagreiðslurnar, sem fyrst og fremst ráða því, hvort húsaleiga í einu þjóðfélagi er lág eða há, og vextirnir, sem ákveðnir eru í þessu frv., sem á að leysa þessi vandamál til frambúðar eða a.m.k. reyna það, eru 7%, — vextir, sem voru fyrir nokkru á Íslandi á takmörkum þess leyfilega.

Ég álít þess vegna, að það sé illa farið, að hæstv. ríkisstj. skuli ekki hafa treyst sér til þess að halda áfram að reyna að þroska þá vísa, sem fyrir voru og bentu í aðra átt, eins og byggingarsjóði sveitanna og verkamannabústaðanna og lögin um útrýmingu heilsuspillandi íbúða. Ég fagna því hins vegar, að það skuli, hvað það tvennt fyrrnefnda snertir, sem ég minntist á, ekki vera gerð tilraun til þess að eyðileggja það með þessum lögum. En í staðinn fyrir að reyna nú að færa það fyrirkomulag, sem ríkir um verkamannabústaðina og byggingarnar í sveitunum, inn á það almenna fyrirkomulag um íbúðarhúsabyggingar í kaupstöðunum, er hér farin sú leið að henda húsnæðismálunum svo að segja í heild inn á þann lánsfjármarkað, beygja þessa brýnu þörf manna fyrir húsnæði undir þau lögmál, sem þar eru, og tryggja samt bara næstu tvö árin heldur skárri, heldur öruggari en það eymdarástand, sem við eigum nú við að búa, — því að það skal ég fyllilega viðurkenna, þótt ég muni gagnrýna margt í þessu frv. og þess stefnu, að þá er ýmislegt í því, sem er stór bót frá því ægilega eymdarástandi, sem almenningur á við að búa í augnablikinu í þessum efnum, þó að ég álíti hins vegar bæði stefnu þess og einstök stór atriði í framkvæmd þess vera röng. Og þá skal ég koma nánar inn á einstök atriði í þessu frv. eftir þennan almenna formála um stefnu þess.

Í I. kaflanum, sem heitir: Um húsnæðismálastjórn og veðlán til íbúðabygginga, er auðséð, að eitt aðalatriðið í sambandi við þetta mál er þessi húsnæðismálastjórn, sem hér á að setja á laggirnar. Og hvernig er hún nú?

Í 1. gr. er svo mælt fyrir, að í húsnæðismálastjórn skuli sitja 3 menn, sem ríkisstj. skipar til 6 ára. Í 8. gr. er mælt svo fyrir, að húsnæðismálastjórn ákveður, hverjum veita skuli Á-lánin úr veðdeildinni, og það eru aðallánin í þessu efni, því að hver maður, sem fær A-lán, á rétt á að fá B-lán. Í bréfi Landsbankans til ríkisstj., sem hæstv. félmrh. las upp og prentað er í grg., stendur á bls. 10 í grg., 5. tölul. í bréfi Landsbankans, svo hljóðandi, með leyfi hæstv. forseta: „Ríkisstj. mun sjá svo um, að Landsbankinn eigi ætíð einn fulltrúa í húsnæðismálastjórn, en ekki skal sá fulltrúi þó greiða atkvæði um einstakar lánveitingar.“ Í skýringunum við 8. gr. er enn fremur tekið fram, ef þetta skyldi ekki vera nægilega skýrt frá hálfu Landsbankans, með leyfi forseta: „Í fyrsta lagi er ekki gert ráð fyrir því, að fulltrúi bankans í húsnæðismálastjórn taki þátt í ályktunum hennar um það, hverjir skuli hljóta lán, ef umsóknir eru fleiri en unnt er að sinna.“ M.ö.o.: Í sambandi við þessa húsnæðismálastjórn rekum við okkur á það, að það eru engar reglur settar í þessum lögum, hverjir skuli ganga fyrir um að fá húsnæði. Það eru engar reglur í þessum lögum um það, að forréttindi hafi t.d. barnmargar fjölskyldur, fjölskyldur, sem hafa búið í herskálum, fjölskyldur, sem að einhverju leyti vegna fátæktar eða slæms efnahags yfirleitt þyrftu sérstaklega á því að halda að njóta þó þess stuðnings, sem þessi lög kynnu að verða fram yfir þau almennu okurkjör, — engar reglur, ekkert eftir þörf, efnahag eða slíku, heldur virðist hér eiga að innleiða í löggjöf beinlínis, að þetta skuli fara eftir velþóknun valdhafanna.

Ég hef nokkrum sinnum hér á þessum stað átalið eitt fyrirbrigði, sem tíðkazt hefur undanfarið í sambandi við smáíbúðalánin. Það var sú aðferð, sem tekin var upp af hæstv. ríkisstj. þegar úthluta skyldi smáíbúðalánunum, að fela það ekki bönkunum, heldur útnefna 2 menn, annan þáverandi formann framsóknarfélagsins í Reykjavík og hinn þáverandi formann sjálfstæðisfélagsins í Reykjavík, og það rétt fyrir kosningar, í að úthluta smáíbúðalánunum, og mér er kunnugt um og fleirum er kunnugt um, hvernig þau lán hafa verið notuð, hvernig rekin hefur verið vægðarlaus mútustarfsemi, vægðarlausar tilraunir til kaupa og sölu á mönnum og atkvæðum í sambandi við þau lán. Það hefur þess vegna bæði af mér og öðrum verið deilt harðlega á það skipulag, og ég bjóst satt að segja við, að í frv., sem ríkisstj. legði fram, mundi hún þó reyna að sýna einhvern lit á því að hafa nokkrar réttlátari reglur og reyna einhvers staðar að nálgast eitthvert réttlæti í úthlutuninni á íbúðunum, þegar til kæmi, en ekki gera pólitíska hlutdrægni að lögbundnu kerfi á Íslandi. Ég þyki almennt ekki vera góður í garð Landsbankans, en ég hef þó hvað eftir annað lagt hér til, að Landsbankanum væri falið að sjá um úthlutun lánanna til smáíbúðanna, og ég sé, að nú hefur þó a.m.k. átt að fara inn á það, að Landsbankinn ætti fulltrúa í þeirri nefnd, sem ætti að sjá um húsnæðismálastjórnina, og ég veit, að í þeirri stofnun eru margir menn, sem trúa mætti til algerrar samvizkusemi til að breyta sem heiðarlegir embættismenn í sambandi við eins vandasöm mál og úthlutun íbúðalána, þannig að óhætt væri að fela slíkri stofnun stjórn á þeim málum, sem snerta það, hverjir skuli fá íbúðalán, enda svo til ætlazt með lögum, sem nú eru í gildi um veðdeild Landsbankans, að bankastjórn Landsbankans sjái um slíkt. En ég sé, að hæstv. ríkisstj. hefur frá upphafi viljað setja undir lekann, hún hefur viljað koma til vegar, þó að það væri ekki hægt að útiloka óhlutdræga embættismenn Landsbankans frá því að sitja í húsnæðismálastjórn, að þá mætti það undir engum kringumstæðum koma fyrir, að óhlutdrægur embættismaður gæti skakkað leikinn á milli tveggja pólitískra útsendara, tveggja ólíkra flokksfulltrúa. Þess vegna er Landsbankinn látinn gefa yfirlýsingu um, að hans fulltrúi skuli ekki taka þátt í atkvæðagreiðslum um, hverjir skuli fá íbúðalán, og venjan er þó sú, að þegar 3 menn eru í nefnd, þá er þriðji maðurinn hugsaður í nefndinni til þess að hafa oddaatkvæði. Hér er oddaatkvæðið tekið burt, til þess að eingöngu skuli geta ráðið pólitísk hrossakaup.

Þetta á að gerast um lán, sem úthlutað verður 1955, þ.e. á þessu ári, og lán, sem úthlutað verður 1956, þ.e. á næsta ári. Á tveim árum fram að næstu kosningum eiga fulltrúar Framsfl. og Sjálfstfl., tveggja stjórnarflokka, máske áfram fyrrverandi formaður framsóknarfélags í Reykjavík og fyrrverandi formaður sjálfstæðisfélags í Reykjavík, að sjá um þessa hluti. Ég verð að segja það, að mér finnst óskammfeilnin færast upp í bekkinn, þegar á að fara að lögbinda það spillingarkerfi, sem þessir stjórnarflokkar hafa verið að innleiða hér á Íslandi að undanförnu, og mér finnst það koma úr hörðustu átt, þegar það eru jafnvel til ráðherrar, sem stundum kunna að minnast á hlutleysi ríkisvaldsins, en eru að gera ríkisvaldið að beinu spillingarkerfi, mútukerfi í þjónustu stjórnarflokkanna í þessu sambandi. Fyrr á tímum þótti sjálfsagt að reyna að halda því fram, að ríkisvaldið væri það vald, sem svifi yfir stéttunum og tæki jafnt tillit til allra og allir skyldu vera jafnir fyrir. Hér eru gerðar sérstakar ráðstafanir til þess, að menn verði ekki jafnir fyrir þessum lögum, að menn hafi ekki jafnan rétt til þessara lána, enda eru dæmin um framkvæmdirnar í þessu efni deginum ljósari. Þetta er þess vegna auðsjáanlega undirbúningur að beinum, stórfelldum kosningamútum, stærri en þeim, sem framkvæmdar voru í sambandi við smáíbúðalánin við síðustu kosningar. Og ég vil sérstaklega segja það til Framsfl., að ég vil vara hann við að fallast á þessa stefnu og halda henni áfram. Ef hann ætlar að fara að keppa við íhaldið um mútukerfi á Íslandi, þá liggur hann undir í þeirri samkeppni. Hann sér það nú þegar, hvort sem hann vill líta til Vestur-Ísafjarðarsýslu eða hvaða annars staðar sem hann vill, ef á að fara að keppa um mútur og hver getur boðið í, þá er peningavaldið hér í Reykjavík nægilega sterkt til þess að kaupa upp menn og nógu mikið af mönnum, svo framarlega sem það á að fara að verða aðalatriðið í undirbúningi kosninga á Íslandi að múta fólki og gera mönnum mögulegt að ná fram rétti sínum eða hagsmunum einvörðungu með því að sýna pólitíska þægðarsemi eða selja sína sannfæringu. Ef menn ætla að standa á móti því peningavaldi, sem er að gagnsýra þjóðfélagið, þá er í þessu efni það eitt til að þora að berjast fyrir því, að það sé ekki peningavaldið, sem ræður í þessum efnum, og að menn hafi í þjóðfélaginu jafnan rétt án tillits til þess, hver þeirra sannfæring er.

Ég vil alvarlega vonast til þess, að það takist að breyta þessu ákvæði í meðferð þingsins á þessu máli, að það ákvæði verði þó a.m.k. tekið þarna inn, að allir þessir 3 menn greiði atkvæði um, hverjir skuli fá lán, að Landsbankinn eigi þó þarna einn fulltrúa til þess að ákveða um það. Ég veit, að mörgum mun finnast, að það sé ekki farið fram á mikið réttlæti af hálfu stjórnarandstöðunnar hér á Alþingi, þó að óskað sé eftir því, að Landsbankinn, þar sem allir bankastjórar eru skipaðir af stjórnarflokkunum, fái þó nokkru að ráða um, hverjir skuli fá íbúðalán.

Ég vil þess vegna leyfa mér að vonast til þess og hef meðfram þess vegna mælt svo þung orð sem ég hef mælt hér, að þessu atriði fáist breytt og þrátt fyrir það að Landsbankinn hafi verið látinn afsala sér atkvæðisrétti í bréfinu, sem hér er prentað með, þá sé og verði það ákveðið þannig hér í þinginu, að allir þessir þrír menn hafi þar atkvæðisrétt. Mér finnst það vera það allra minnsta, sem stjórnarflokkarnir geta veitt almenningi, að þó að þeir hafi þarna tvo beina pólitíska fulltrúa, þá geti þó Landsbankinn haft þarna þriðja fulltrúa sinn til þess að greiða atkvæði líka til þess að vega salt á milli þeirra. Mér finnst það ekki vera stórt að gera kröfu til þess, að þessi litli snefill af réttlæti fái að koma með inn í þetta frv.

Þá skal ég láta útrætt um húsnæðismálastjórnina og kem nú að því, sem er stærsta efnahagslega atriðið í þessu frv., þ.e. bankavaxtabréfin. Með þessum bankavaxtabréfum er ákveðið hvað A-lánin snertir, að af þeim skuli vera 7% og þau skuli vera til 25 ára. Ég vil aðeins strax taka það fram, að ég álít þessa prósenttölu allt of háa, en ég skil alveg, af hverju hún markast. Hún markast af því, að ríkisstj. vill fara þarna í samkeppni um þann frjálsa peningamarkað. Ég vil hins vegar benda ríkisstj. á, að henni er ekki þörf á þessu, ef hún vill beita sínu valdi. Seðlaútgáfan er léð Landsbankanum af Alþingi. Seðlaútgáfan, þær tvö til þrjú hundruð millj. kr., sem nú eru seðlavelta á Íslandi, er fjármagn, sem Alþingi getur ráðstafað, ef það vill. Alþingi getur sagt við Landsbankann: Af þessum tvö til þrjú hundruð millj. kr., sem ég leyfi þér að hafa í veitunni sem seðlaútgáfu, krefst ég þess, að svona og svona mikið sé notað til þess að lána til íbúðarhúsabygginga. — Ríkið sem slíkt hefur engar tekjur af seðlaútgáfunni sem stendur. Ríkið getur hvenær sem það vill krafizt tekna af seðlaútgáfunni. Það getur hvenær sem er gert ráðstafanir til þess, að t.d. svo og svo mikill hluti af seðlaútgáfunni skuli notast á þann hátt, sem ríkið mælir fyrir, og af seðlaútgáfunni eru nú engir vextir borgaðir, — í hæsta lagi getum við hugsað okkur seðlakostnaðinn, hann svarar kannske 1/4 % eða eitthvað slíkt, — þannig að ef við aðeins viljum beita því valdi, sem við höfum á Alþingi, þá getum við sett okkar skilyrði þarna, og það hefur verið gert áður, þegar okkur hefur þótt liggja mikið við, var m.a. gert í sambandi við lögin um stofnlánadeild sjávarútvegsins.

Svo er farið inn á nýja leið í íslenzkum efnahagsmálum, eftir því sem mér er bezt kunnugt um, með till. um B-lánin, að B-lánin, sem séu þó ekki yfir 40 millj. kr., skuli vera bankavaxtabréf með vísitölukjörum, þannig að binda megi greiðslu afborgana og vaxta vísitölu framfærslukostnaðar. Þetta er mjög merkilegt nýmæli, og það er engum efa bundið, að með því má færa bæði mörg rök og móti því sömuleiðis.

Ég skil vel, hvað vakir fyrir hæstv. ríkisstj. með þessu og ekki að ófyrirsynju. Sparifjáreigendur hafa mikið kvartað undan því gífurlega öryggisleysi, sem þeir hafa átt við að búa, og þarna á sem sé að gera tilraun til þess að verðtryggja það sparifé, sem menn vildu leggja fram til þess að kaupa þessi B-bréf. Hins vegar mundi það þýða, að þeir, sem tækju þessi B-lán, mundu verða að greiða þau aftur þannig, að þau hækkuðu í hlutfalli við vísitölu framfærslukostnaðar. Það þýðir, að maður t.d., sem fyrir 15 árum hefði tekið slíkt 10 þús. kr. lán, yrði að endurgreiða það kannske miðað við tifalt verðmæti nú.

Ég er ekki nógu vel að mér til þess að segja fyrir um, hvernig svona nýmæli mundi verka í okkar þjóðfélagi. Ég skil vel þá löngun ríkisstj. að vilja reyna að skapa sparifjáreigendum nokkru meira öryggi en nú er. En ég vil benda á eina staðreynd í þessu sambandi, sem að vísu er ákaflega grimm og hörð, en mikilvæg. Öll þróun í mannfélaginn, og sérstaklega þróunin síðustu tvö–þrjú hundruð árin, eftir að framfarir mannkynsins fóru að verða örari, hefur hvað efnahagsmálin snertir haft það í för með sér, að skuldaskrár hafa raunverulega meir og meir verið eyðilagðar, að skuldir, sem hafa hvílt á húsum, framleiðslutækjum, jörð eða hvaða verðmæti sem er, hafa smám saman orðið að engu. Þær hafa verið strikaðar út með ýmsu móti. Verðgildi peninganna fellur í gegnum aldirnar. Eyðilegging skuldaskránna er fyrirbrigði, sem gengur fyrir sig með mismunandi hraða í þjóðfélaginu, og þessi hraði stafar að sumu leyti eða stendur að sumu leyti í beinu hlutfalli við framfarir þjóðfélagsins. Örar efnahagslegar framfarir, ör uppbygging í þjóðfélaginu eyðileggur þessar gömlu skuldaskrár. Þetta er raunverulega hart og grimmt lögmál lífsins, lögmál framkvæmdanna gagnvart þeim kröfum, skuldakröfum, lánardrottnakröfum, sem hvíla á framkvæmdunum og verðmætunum. Ef þetta hefði ekki gengið svona, þá hefðu þær gömlu skuldakröfur orðið þannig þyngsli, að það hefði þjakað allri þróun þjóðfélagsins. Engu að siður er það alveg gefið, að ef þessi þróun er svo ör, að menn fara ekki að þora að eiga peninga vegna þess, þá er þjóðfélagið í vissum voða, og að finna samræmi þarna í, það er sá stóri vandi. Ég sé, að með þessum tillögum, sem hér er verið að gera, á að ganga mjög langt í þessum efnum. Ég veit ekki, hvort þetta heppnast. Ég veit ekki, hvort — þó að það séu kannske margir, sem vildu lána upp á þessi býti — það yrðu eins margir, sem þyrðu að taka þessi lán. Ég efast um það. Hér í þessum lögum er ekkert ákveðið um vextina á B-lánunum, ekki neitt, og það er á vissan hátt illa farið. Ég hafði eiginlega búizt við því, að minnzt yrði að einhverju leyti á, hvað ríkisstj. hefði haldið að þeir vextir mundu verða. Ég skil, að það er dálítið erfitt að ákveða það fyrir fram, en það er alveg gefið, að eigi þetta að koma að nokkru haldi, skapa nokkurt öryggi fyrir lántakendur, þá yrðu þeir að vera mjög lágir, enda skilst mér eftir lögunum, að þeir muni sjálfir líka vera dreifðir í hlutfalli við framfærsluvísitöluna. Og svo kemur eitt atriði í þessu sambandi, sem er allerfitt „júrediskt“ atriði, og það er, að þarna er ákveðið að það skuli greiða þetta með vísitölu framfærslukostnaðar. Vísitala framfærslukostnaðar hefur verið ákaflega breytilegt hugtak á síðustu áratugum á Íslandi, og þegar á að gefa út skuldabréf, sem byggja á þeirri vísitölu, þá er ég hræddur um, að það þurfi að taka þetta miklu nákvæmar fram en hérna er gert, ef það á að vera nokkurn veginn öryggi fyrir bæði þá, sem lán veita og lán taka. Við vitum, hvers konar ráðstafanir eru gerðar til þess að gera vísitölu framfærslukostnaðar raunverulega allt aðra en hún yrði, ef þróun þjóðfélagsins væri látin hafa sinn gang, og slíkar ráðstafanir er náttúrlega hægt að gera áfram. Hér er miðað við vísitölu framfærslukostnaðar, sem byggir á grundvellinum frá 1939. Við skulum bara hugsa okkur, að sá grundvöllur héldist alla næstu áratugi, meðan ætti að borga þessi bréf, en samtímis héldi álíka þróun áfram í þjóðfélaginu og núna hefur verið, en ríkisstj. tæki bara upp á því að borga alltaf niður þessa liði, eins og að sumu leyti hefur verið gert á undanförnum árum Þetta mundi náttúrlega gefa alveg rammskakka mynd af því, sem verið væri að reyna að gefa mönnum núna. Ég gæti trúað og vildi skjóta því að hæstv. ríkisstj. og þeirri n., sem fær þetta til meðferðar, hvort það væri ekki a.m.k. öruggara fyrir báða aðila að miða þarna við vísitölu kaupgjaldsins heldur en framfærsluvísitöluna, en ég mundi gjarnan vilja heyra álit mér fróðari manna um þennan hlut. Ég býst við, að í nokkrum löndum hafi þetta verið prófað, og væri mjög gott að fá að vita nánar, hvernig það hefur þar gefizt.

Í þessari 3. gr. er enn fremur ákveðið, að þessi bankavaxtabréf skuli vera skattfrjáls, þau skuli vera undanþegin eignarskatti, þau skuli vera útsvarsfrjáls, og þannig á að halda áfram að veita lánveitendunum mjög mikil fríðindi. Maður veitir því ósjálfrátt eftirtekt, að eigendum peninganna eru sköpuð fleiri og fleiri fríðindi með hverjum lögum sem nú eru samþykkt, skattfrelsi, háir vextir og annað slíkt, en skapendum verðmætanna, þeim raunverulegu framleiðendum og þá fyrst og fremst verkamönnunum er íþyngt að sama skapi með þeim háu vöxtum, sem verið er að lögleiða, og með þeim fríðindum, sem verið er að veita peningamönnunum.

Þá er í 6. gr. rætt um lánaupphæðina, og það virðist almennt gengið út frá, eins og líka hæstv. félmrh. skýrði frá, að þær íbúðir, sem fyrst og fremst ætti að styðja hér að, að kæmust upp, væru íbúðir, sem kostuðu í kringum 150 þús. kr., og ég er nú hræddur um, að það þurfi að gera allharðvítugar ráðstafanir viðvíkjandi byggingarvörukaupmönnum og fleirum, ef við eigum að fá mjög mikið af góðum, mannsæmandi íbúðum á því verði. Það stendur í b-lið 6. gr., að lánaupphæðin megi nema 2/3 hlutum af verðmæti íbúðarinnar, þó ekki yfir 100 þús. kr. út á hverja íbúð, en í c-liðnum stendur, að lán til hverrar íbúðar skuli að jafnaði vera um 70 þús. kr., A-lánin 50 þús. kr., B-lánin 20 þús., — lántökugjald 1%; það virðist vera að verða alveg fast ákvæði hjá bönkunum og nú vera leidd í lög slík gífurleg „provision“ eins og það er. 70 þús. kr. lán yrði þá að öllum líkindum það venjulega í þessum efnum. Ég er hræddur um, að þetta hámark, 100 þús., yrði frekar undantekning. Það þýðir, að menn fá með þessu 70 þús. kr., 50 þús., sem menn eiga að endurgreiða á venjulegan máta, og 20 þús., sem menn verða að endurgreiða með hækkandi vísitölu, og ef það eru eignalausir menn, sem eiga að leggja í þetta, þá vantar menn 80 þús. upp í 150 þús. kr. íbúð. M.ö.o.: Þó að — eins og nefndin kemst að orði — okrararnir séu reknir burt frá 1. og 2. veðréttinum, þá er því miður hætta á, að ýmsir neyddust til að leita til þeirra með þann þriðja og fjórða, ef þeir þá vildu lána út á þann veðrétt. En mér sýnist, að sú nefnd, sem hefur undirbúið þetta mál, og þar með hæstv. ríkisstj. sjálf, hafi gert ráð fyrir þeim undarlega hlut við samningu þessa frv., að menn hefðu sjálfir yfirleitt næga peninga til þess að leggja fram það, sem á vantaði. Í grg. frv. stendur á bls. 5, með leyfi hæstv. forseta:

„Í flestum tilfellum, þar sem húsnæði vantar, er um fólk að ræða, sem getur greitt af tekjum sínum sem svarar húsaleigu af nýju húsnæði. Þar sem svo er ástatt, verður að líta svo á, að um sé að ræða eftirspurn, sem geti greitt fullt verð fyrir þjónustuna. Það, sem vantar, er þá fjármagn, sem hægt sé að festa til langs tíma, en ekki það, að neytandinn þurfi styrks með.“

Mér virðist þessi afstaða hafa ákaflega mikið markað þetta frv., að gera ráð fyrir, að menn hafi yfirleitt nægar tekjur til þess að greiða húsaleigu eins og hún yrði með 7% vöxtum, 1% lántökugjaldi, 1/4% aukagjöldum og máske að einhverju leyti okurvexti af 80 þús. kr., sem menn yrðu að fá þarna í viðbót, eða þá að menn væru það efnaðir, að þeir gætu lagt slíkt fram. Mér virðist ekki vera hugsað um, að það séu láglaunamenn eða verkamenn a.m.k., láglaunamenn meðal þeirra, sem geti í ríkum mæli hagnýtt sér þessi þó litlu fríðindi, sem þarna á að veita mönnum. Mér virðist vera gert ráð fyrir því, að það sé betur stæði hlutinn af verkamönnum og millistéttum, sem hér sé fyrst og fremst verið að hugsa um. Við verðum að muna eftir því, eins gott og er að stefna að því, að menn eigi sína eigin íbúð, að það þarf þá líka að miða lánskjörin og lánstímann við það, að menn kikni ekki undir því að eignast eigin íbúð, að menn meira að segja á atvinnuleysistímum og krepputímum þurfi ekki að selja þessar íbúðir jafnvel fyrir „slikk“, vegna þess að í þeim hafi menn fest allt það, sem þeir yfirleitt eiga af sparifé, og geti tapað því með því. Mér finnst of mikið miðað við það, að þessi lög væru ekki fyrst og fremst til að hjálpa þeim, sem fyrst og fremst eru hjálparþurfi.

Þá er II. kafli þessa frv. um útrýmingu heilsuspillandi íbúða. Mér sýnist nú satt að segja aðalatriðið í þeim kafla vera afnám laganna, — þó að það standi formlega í næsta kafla á eftir, — afnám á III. kafla laganna frá 1952, um opinbera aðstoð við byggingar íbúðarhúsa í kaupstöðum og kauptúnum, — þess kafla, sem fjallar um útrýmingu heilsuspillandi íbúða.

Ákvarðanir eða lagafyrirmælin frá 1946 um útrýmingu heilsuspillandi íbúða hafa alltaf verið þyrnir í augum fjármálavaldsins hér í Rvík, og það var þess vegna snemma byrjað á því, strax 1947, að fella þau í framkvæmd úr gildi. Nú á að drepa lagabókstafinn líka. Um leið er svo sagt, að 3 millj. kr. skuli ríkið leggja fram, ef sveitarfélög leggi fram samsvarandi. 3 millj. kr. frá ríkinu er raunverulega allt, sem ríkið ætlar að leggja fram, skilst mér, eftir þessum lagabálki. Það hefur þó ekki þótt mikið, þegar ráðstafanir hafa verið gerðar og ráðstafað hefur verið tekjuafgangi fjárlaga, þó að jafnvel 20 millj. kr. færu í einn stað, eina lánsstofnun eða slíkt. En þegar um það er að ræða að útrýma heilsuspillandi íbúðum, og það sérstaklega íbúðum eins og braggahverfunum, sem hæstv. félmrh. fór hér alveg réttum og vel sögðum orðum um, þá eru 3 millj. látnar duga, 3 millj. frá ríkinu og 3 millj. frá — við skulum segja — Reykjavíkurbæ eða þeim öðrum aðilum, sem þarna gætu lagt fram á móti. Hér í Reykjavík munu vera yfir 500 slíkar íbúðir, sem þyrfti að útrýma og það strax. Það þyrfti að byggja sem sagt yfir 500 fjölskyldur, og við skulum reikna, svo að maður reikni eins og ríkisstj., með næstu fimm árum, þótt það sé alllangur tími, of langur tími. Ef það ætti að byggja 150 þús. kr. íbúðir, 100 íbúðir á ári, þá væri það fyrir 15 millj., sem þyrfti að byggja á ári, en með þessu móti væru ekki til nema 6 millj. upp í það, þannig að það er auðséð, að meira að segja sú litla áætlun, sem þarna virðist felast á bak við, er ekki framkvæmd með þessu móti. Lélegasta húsnæðinu, — húsnæðinu, sem hæstv. ráðh. sagði réttilega að væri okkur til skammar og þeim, sem í því búa, til armæðu og hörmunga, — yrði ekki útrýmt einu sinni á næstu fimm árum með þessu. Ég held, að þarna yrði að gera betur. Ég held, að sú nefnd, sem fær þetta til meðferðar, ætti í fyrsta lagi að hækka þessa fjárhæð, og hún ætti í öðru lagi að milda ofur lítið ákvæðin. — Ég vil vekja eftirtekt á, hvernig þau eru, með leyfi hæstv. forseta: „Nú leggur sveitarfélag fram fé til íbúðabygginga í því skyni að útrýma heilsuspillandi íbúðum, annaðhvort sem óafturkræft framlag eða lán, og skal ríkissjóður þá leggja fram jafnháa fjárhæð á móti, allt að 3 millj. kr. á ári næstu fimm árin, að því tilskildu, að sveitarfélagið sjái um, að hið ónothæfa húsnæði verði tekið úr notkun, enda greiði ríkissjóður ekki framlag sitt, fyrr en því ákvæði er fullnægt. Sem sagt, fyrst eftir á, þegar búið sé að byggja þetta allt saman og búið sé að jafna braggana við jörðu, þá greiði ríkissjóður sitt framlag. Það á að lána ríkinu þetta á meðan. Annars er venjulega, meira að segja í þessum lögum, ákvæði um, að jafnóðum sem byggt er, þá skuli þó lagt fram lán í því skyni að gera byggingarnar mögulegar.

Ég hef nú sagt álit mitt á þessu frv., deilt á höfuðstefnu þess, tekið fram, hvað ég áliti hneykslanlegt í því og beinlínis þyrfti að breyta hér í meðförum þingsins. Þótt ég hafi að vísu ekki gert mér miklar vonir um frv. ríkisstj., þá hafði ég samt búizt við skárra en þessu. Engu að síður verð ég að viðurkenna, að miðað við það hræðilega ástand, sem nú er búið við í þessum málum, þá yrði ýmislegt til bóta í þessu frv. Ég vil vonast til þess, að það gæti náðst samkomulag við meðferð málsins í þinginu að gera á því þær endurbætur, að það hneykslanlegasta í því yrði afnumið, nokkuð af því, sem til bóta er, yrði gert betra, þó að ég hins vegar geti ekki gert mér vonir um, að höfuðstefnunni verði breytt. Þeirri höfuðstefnu þess, sem markast af hagsmunum peningavaldsins í Reykjavík, markast af því að draga húsnæðisþörfina inn í allt gróðabrallið, gera nauðsyn manna á því að fá húsnæði að leiksopp fyrir braskið og peningavaldið, verður vafalaust ekki breytt, nema til komi ný stjórn í okkar landi, stjórn, þar sem peningavaldið ræður ekki lengur.