31.03.1955
Neðri deild: 68. fundur, 74. löggjafarþing.
Sjá dálk 1015 í B-deild Alþingistíðinda. (1217)

183. mál, húsnæðismál

Emil Jónsson:

Herra forseti. Það er vissulega rétt, sem segir í grg. þessa frv., að húsnæðismálið er eitt af meiri háttar félagslegum vandamálum þjóðarinnar. Þetta er félagslegt vandamál vegna þess, að það hefur ákaflega mikla þýðingu fyrir alla íbúa þjóðarinnar, hvernig þeirra húsnæðisaðbúð er. Það orkar ekki einasta á þeirra heilsufar og þeirra líkamlegu vellíðan, heldur hefur það líka önnur og meiri áhrif. Það orkar á þá, ef ég svo má segja, sálrænt, hvernig þeir búa, hvort þeir búa við algerlega óviðunandi húsnæðisskilyrði eða hvort þeir búa í sæmilegri íbúð. Það er þess vegna vissulega þýðingarmikið atriði, hvernig fyrir þessum málum er séð og hvernig hugsað er af hálfu hins opinbera að leysa þetta vandamál, svo að allir þjóðfélagsþegnarnir geti þar sæmilega við unað.

Þetta húsnæðisvandamál skiptist greinilega í æði marga hluta. Ég vildi fyrir mitt leyti segja, að það skiptist í fyrsta lagi í þrjá mjög aðgreinda og sjálfstæða hluta, sem verður að leysa hvern út af fyrir sig. Fyrsti hlutinn er sá, hvernig byggt skuli, rannsókn byggingarefna, skipulag bæjarhluta, útvegun hagkvæmra íbúðateikninga, endurskoðun byggingarsamþykkta. Í 2. gr. frv. er fram tekið, að allt þetta skuli tekið fyrir til rannsóknar og yfir það skuli vera sett sérstök stjórn, sem hafi með höndum, eins og þar segir, yfirstjórn allrar leiðbeiningarstarfsemi um byggingarmál.

Það er vissulega þýðingarmikið, að byggingarframkvæmdirnar séu gerðar á þann hátt, að þær séu „praktískar“ fyrir þá, sem eiga að nota íbúðirnar, og að þær séu ekki heldur of dýrar og ríði þeirra fjárhag á slig.

Í 1. gr. þessa frv., sem hér liggur fyrir, er gert ráð fyrir, að sett skuli á stofn sérstök húsnæðismálastjórn, sem heyri undir félmrn. Þessi húsnæðismálastjórn á í fyrsta lagi að hafa yfirstjórn þessarar leiðbeiningastarfsemi, eins og ég sagði áðan. Þar fer náttúrlega ákaflega mikið eftir því, hvernig þetta verk fer húsnæðismálastjórninni úr hendi. Það er ekki nóg að setja þetta á pappír, það hefur verið gert áður. Um mörg þessara atriða, sem hér hafa verið nefnd, hafa verið sett l., samþ. um þau þáltill. og ýmislegt fleira, en sannast sagna hefur það, sem út úr því hefur komið, ekki alltaf svarað til óskanna og verið eins og menn höfðu búizt við, þegar ákvæðin voru sett. Það hefur t.d. verið samþ. hér á Alþ., að útvega skuli teikningar af íbúðarhúsum, tæknirannsóknir eru hér hafðar um hönd, hyggingarsamþykktir eru undir eftirliti skipulagsnefndar bæja, og ýmislegt annað hefur verið gert af þessum atriðum, sem nefnt er í kaflanum að nú eigi að heyra undir húsnæðismálastjórnina, án þess að það hafi út af fyrir sig valdið nokkurri byltingu í þessum málum. Það má segja það kannske, að nokkuð hafi þokað fram á við í þessum málum öllum, en nokkuð, sem úrslitum hefur valdið, hefur þó ekki komið út úr því.

Ég fyrir mitt leyti er í vafa um það, hvort sú húsnæðismálastjórn, sem hér er gert ráð fyrir að skipa og aðallega á að hafa með höndum lánveitingar samkvæmt síðari greinum þessa frv., sé allra heppilegasti aðilinn til þess að hafa með höndum yfirstjórn þessara mála. Það á einn maður úr þessari húsnæðismálastjórn að vera skipaður af Landsbanka Íslands. Tveir hinir verða vitanlega, eins og nú horfir, skipaðir þannig, að annar verður skipaður af Sjálfstfl. sem hans sérstaki fulltrúi og hinn af Framsfl. sem sérstakur fulltrúi þess flokks. Hvort þessum þrem mönnum, einum frá hvorum flokkanna, pólitísku fulltrúunum og fulltrúa bankanna, tekst að hafa þá yfirstjórn þessara mála, sem æskileg er og nauðsynleg, það leyfi ég mér mjög að efast um. Ég hefði haldið, að yfirstjórn þessara mála, leiðbeiningastarfseminnar fyrir húsbyggjendur, væri betur komin hjá einhverjum öðrum aðila, sem hefði á þeim raunhæfa þekkingu og fullkomna yfirsýn yfir þær þarfir og þá hluti, sem þar þyrfti að gera, heldur en að húsnæðismálastjórnin, eins og hún þarna er hugsuð, verði sett til þess að hafa yfirstjórn málanna. Að vísu sker reynslan náttúrlega úr, hvernig þetta verður, en mér virðist þó, að þetta atriði geti mjög orkað tvímælis og að því hefði verið betur fyrir komið á annan veg.

Annað atriðið, sem allt veltur eiginlega á í byggingarstarfseminni, er það, hvernig fé er útvegað til bygginganna, hversu greiðan aðgang menn eiga að því fé og með hvaða lánskjörum það er veitt, bæði vaxtafótur og til hve langs tíma og annað slíkt. Það hefur verið tekið fram hér í þessum umræðum og er tekið fram í grg. fyrir frv., að í þessum efnum hafi á undanförnum árum ríkt hin mesta ringulreið, og er það vissulega satt og rétt. Ég álít það vera einn höfuðkost frv. að gera tilraun til að safna á eina hönd þessum lánveitingum í skipulagsbundna starfsemi, sem veitir lán eins og þarna er heitið, allt að 2/3 kostnaðar, eða 100 þús. kr. á íbúð sem hámark, en forðast eða reyna að losna alveg við þá mjög ófullkomnu, sundurlausu og dýru lánastarfsemi, sem hér hefur átt sér stað að undanförnu.

Ef menn hafa ætlað sér að byggja á undanförnum síðastliðnum árum, hefur sannast sagna ekki verið í mörg hús að venda með útvegun lána. Ég veit, að svo hefur það verið þar sem ég þekki bezt til, t.d. í Hafnarfirði. Þar hefur sparisjóður staðarins venjulega getað veitt 1/5 kostnaðarverðs eða 20% af byggingarkostnaði sem 1. veðréttar lán, og ég ætla, að á þeim stað hafi flestir, sem byggt hafa, fengið þá aðstoð, en þar út yfir hefur eiginlega hvergi verið neitt fast land undir fótum. Menn hafa leitað fyrir sér, þar sem þeir hafa talið einhverjar líkur vera, fengið stutt lán með kannske allháum vöxtum og sumir meira og sumir minna, eftir því sem þeir hafa haft samböndin til, en allt hefur þetta verið svo sundurlaust og svo erfitt, að menn hafa oft og tíðum komizt í vandræði með að ljúka þeim byggingum, sem þeir hafa byrjað á. Ef það tekst, sem í frv. er gert ráð fyrir, að hægt verði að lána 2/3 hluta byggingarkostnaðar út á hverja íbúð með 1. veðrétti og þeim kjörum, sem frv. gerir ráð fyrir, þá álít ég vera mikið unnið.

Að vísu er hámark sett á þessi lán, 100 þús. kr., þannig að gera má ráð fyrir, að það hrökkvi ekki til í nándar nærri öllum tilfellum til þess að greiða 2/3 byggingarkostnaðarins, því að það er lítil íbúð og ófullkomin í dag, sem kostar ekki nema 150 þús. kr. Ég teldi nær sanni að ætla, að sæmileg þriggja herbergja íbúð, sem er raunverulega það minnsta, sem menn geta komizt af með, mundi kosta nær 200 þús. kr. og í sumum tilfellum yfir þá upphæð heldur en 150 þús. kr., eins og hér er raunar gert ráð fyrir og lagt til grundvallar, þegar hámarkstalan er sett, 100 þús. kr. á hverja íbúð. En allt um það, þó að þetta takist ekki að fullu, þá er með þessu, sem þarna er stofnað til, mikið unnið að mínu viti.

En þá er þriðja atriðið og ekki það ómerkasta, og það er, hvernig á að bjarga hinum, sem geta ekki staðið undir þeim lánskjörum, sem hér eru tilfærð, og kannske enn hærri lánskjörum á þeim hluta byggingarkostnaðarins, sem fæst ekki á þennan hátt, hvað á að gera til þess að bjarga þeim. Um það þegir frv. svo gersamlega, og það gerir það raunar aðeins að því er tekur til frv. sjálfs, því að í grg. er sagt skýrum stöfum, að það sé ekki ætlazt til, að með þessu frv. sé greidd gata þeirra manna, sem geta ekki undir þessum kostnaði staðið. Í grg. á bls. 5 standa þessi orð, með leyfi hæstv. forseta: „Frá þjóðhagslegu sjónarmiði er það að sjálfsögðu langheilbrigðast og affarasælast fyrir afkomu þjóðarinnar í heild, að neytandinn greiði kostnaðarverð þessarar þjónustu eins og annarrar. Um leið er það bezta tryggingin fyrir því, að nægilegt framboð verði á húsnæðisþjónustunni, að neytandinn borgi fullt verð fyrir hana.“ Þarna er raunverulega sagt, svo að ekki verði um villzt, að það er ekki í frv. gerð tilraun til að hjálpa þeim, sem geta ekki borgað fullu verði íbúðina með þeim núverandi kostnaði, sem er á þessum íbúðum.

Við skulum aðeins gera okkur grein fyrir, hvað þetta þýðir. Ef íbúðin kostar í kringum 200 þús. kr., þá má það heita vel sloppið með þeim lánskjörum, sem hér er gerð grein fyrir í frv. á 100 þús. kr., að hann borgi fyrir þær 8 þús. kr. á ári, og á hinum 100 þús. kr., að hann borgi kannske eitthvað örlítið minna af þeim, ef hann hefur átt eitthvað af því sjálfur, við skulum segja 4–5 þús. kr., þannig að kostnaðurinn verði í heild 12–13–14 þús. kr. á ári, og þá er að spyrja: Hafa verkamenn og láglaunamenn, eins og launakjör þeirra eru í dag, möguleika til að greiða þetta verð fyrir íbúðirnar? Ég held varla. Launakjörin eru í dag þannig, að verkamaðurinn hefur 3000 kr. á mánuði, og ef hann á að borga 1000–1200 kr. fyrir íbúðina sína, þá verður litið eftir í allar aðrar þarfir. Ýmsir opinberir starfsmenn hafa ekki miklu hærri laun og sumir lægri, þannig að þeir geta ekki notfært sér þau hlunnindi, sem í frv. felast um útvegun lána, einfaldlega vegna þess, að þeir hafa ekki ráð á því.

Í nágrannalöndum okkar, þar sem ég þekki bezt til, er gert ráð fyrir, að hæfileg útgjöld í húsaleigu séu um 1/5 til 1/s af tekjunum. Samkvæmt því mætti maður, sem hefur 3 þús. kr. mánaðartekjur, ekki borga meira en 500–600 kr. á mánuði. Hér er, eins og frá frv. er gengið, ekki möguleiki til, að ég get séð, að komast hjá því að eigandinn, ef hann hefur ekki átt því meira til af peningum, þegar hann hóf bygginguna, þurfi að borga að minnsta kosti 10–12 hundruð kr. á mánuði. Þetta tel ég höfuðgallann á frv.

Aðstoð hins opinbera við íbúðarhúsabyggingar annars staðar, þar sem ég þekki til, hefur fyrst og fremst miðað að því að gera tekjulágu fólki mögulegt að eignast sómasamlega íbúð. Það er ekki gert með þessu frv. Það, sem gert er með þessu frv., er að geru þeim kleift, sem einhver fjárráð hafa, þegar þeir stofna til byggingarinnar, eða hafa verulega hærri laun heldur en verkamenn, að eignast íbúð yfir höfuðið. Um hina er ekki hugsað. Eina tilraunin til þess að gera þessu fólki fært að eignast þak yfir höfuðið af hálfu hins opinbera eru lögin um verkamannabústaði. Þar er, eins og kunnugt er, farið þannig að, að með aðstoð ríkis og bæja er byggingarsjóðum verkamanna gert kleift að lána fé með lægri vöxtum en sjóðirnir fá sitt fé fyrir eða þurfa að borga fyrir þá peninga, sem þeir taka sjálfir að láni. Með þessu móti hefur verið hægt að lækka útgjöld þessara manna, sem njóta aðstoðar verkamannabústaðalaganna, það mikið, að það getur orðið samrýmanlegt þeirra núverandi tekjum.

Þessi lög hafa gert ákaflega mikið gagn, það sem þau hafa náð, en gallinn hefur aðeins verið sá, að þau hafa náð of skammt, þannig að fjárráð byggingarsjóða verkamanna hafa verið miklu minni en æskilegt hefði verið og nauðsynlegt hefði verið, til þess að þeir gætu uppfyllt þetta hlutverk, sem þeim var í upphafi ætlað að vinna, að útvega láglaunafólki góðar íbúðir fyrir lítið fé.

Ef verkamaður með 3000 kr. mánaðartekjur á að greiða 1000–1200 kr. á mánuði í húsaleigu, þá hlýtur það að verða eitt meðal annars til þess, að hann verður að krefjast hærri launa. Hann getur ekki komizt af með þau laun, sem honum eru skömmtuð í þjóðfélaginu, og þá húsnæðisgreiðslu, sem hann á þennan hátt verður að inna af hendi. Þetta gerir það óhjákvæmilegt fyrir hann að krefjast hærri launa til þess að geta borgað húsnæðið og þó lifað að auki, sem vissulega er nauðsynlegt líka, svo að maður komist vægt að orði, að hann hafi eitthvað meira en til þess að borga fyrir sitt húsnæði.

En hvernig hefur nú verið búið að verkamannabústaðasjóðunum síðustu árin? Það hefur verið búið þannig að þeim, að lán til þeirra hafa bókstaflega talað verið stöðvuð. Ég veit ekki, hverjum það er að kenna eða hvort það er yfirleitt neinum opinberum aðilum að kenna, en útkoman hefur orðið sú, að verkamannabústaðasjóðirnir hafa ekki getað starfað. Þeir hafa svo að segja engin lán getað veitt síðustu árin, vegna þess að þeir hafa ekki haft yfir neinu fé að ráða. Mér finnst það fyrst og fremst vanta í þetta frv., að nokkrum hluta þess fjár, sem hér er gert ráð fyrir að úthluta, sé varið til verkamannabústaðasjóðanna, svo að þeir geti aftur tekið upp þá starfsemi, sem þeir höfðu áður uppi og tókst í mörgum tilfellum með ágætum, svo að menn búa víða á landinu að því, þó að víðast sé það í of smáum stíl, en á þó nokkrum stöðum er það þó mjög veruleg hjálp. Ég skal t.d. nefna það, að í Hafnarfirði höfum við byggt af þeim um 1000 íbúðum, sem í bænum eru, í kringum 100 íbúðir í verkamannabústöðum eða 1/10 hlutann, og þegar það er komið upp í þá tölu, þá fer að muna um það, hvað sem við kann að bætast. Þessi starfsemi hefur þó á síðastliðnum árum alveg stöðvazt vegna fjárskorts byggingarsjóðsins.

Það vita allir, sem þessi mál hafa kynnt sér, að húsnæðisútgjöld þeirra manna, sem í verkamannabústöðum búa, eru á engan hátt sambærileg við húsnæðisútgjöld neinna annarra manna í þjóðfélaginu; þau eru svo miklu lægri. Það er vegna þess, að með þeim styrk, sem ríki og bær leggja til byggingarsjóðanna, er sjóðunum gert kleift að lána sitt fé fyrir viðráðanleg kjör, sem menn geta þess vegna notfært sér, þó að þeirra tekjur séu ekki háar.

Í þessu frv. er að vísu látið liggja að því, með óákveðnu orðalagi þó, að það sé möguleiki til þess að lána byggingarsjóðum sveitanna og byggingarsjóðum verkamanna. Í grg. er einhvers staðar frá því skýrt, að ríkisstj. hafi ákveðið að ráðstafa 12 millj. kr. á ári af þessu fé, sem hér er til umráða, þessum 100 millj., til byggingarsjóðs sveitanna, en það er ekkert, engar tilsvarandi upplýsingar í grg. um það, að ákveðið hafi verið að verja nokkru fé til byggingarsjóða verkamanna. Mér hefði nú sannast sagna ekki þótt það nema sanngjarnt, að hæstv. ríkisstj. hefði ákveðið, um leið og hún ákvað í frv. að veita þetta fé til byggingarsjóðs sveitanna, að veita ekki lægri upphæð, svo að maður fari vægt í sakirnar, til byggingarsjóða verkamanna í kaupstöðum. Ég vil vona það, að við meðferð málsins hér í þessari hv. d. verði þetta atriði tekið til athugunar, og ef hv. n., sem fær málið til meðferðar, kemur ekki með einhverja till. í þá átt, þá hygg ég, að ég muni koma með brtt. um það, að þessu verði slegið föstu, því að ég álít það einna nauðsynlegasta atriðið í allri opinberri aðstoð við húsahyggingar, að það séu gerðar ráðstafanir til þess, að þeir, sem minnstar tekjurnar hafa, fái líka möguleika til þess að eignast húsnæði, sem sé — eða kalla megi — sómasamlegt húsnæði og með viðráðanlegum kjörum eftir þeim tekjum, sem þeir hafa.

Þá eru í þessu frv. nokkur nýmæli, eins og t.d. það, að gefin skuli út vaxtabréf, sem eru bundin með vísitölugreiðslu. Þetta nýmæli hefur það ég veit — og ég held áreiðanlega — aldrei verið reynt hér á landi fyrr. Þetta er náttúrlega viss uppörvun fyrir þá, sem fé eiga og vilja tryggja það á góðum vöxtum, að fá auk vaxtanna tryggingu fyrir því, að þeir fái það endurgreitt með sams konar uppbótum og vísitala á greiðsludegi gefur til kynna. En fyrir þann, sem lánið tekur, hlýtur þetta auðvitað að þýða tilsvarandi kvöð, þannig að hann verður um leið að taka á sig þá skuldbindingu að greiða þennan hluta lánsins með þeirri umframgreiðslu, sem vísitalan á gjalddaga gefur tilefni til. Þetta ásamt þeim háu vöxtum, sem hér er farið fram á, gerir það enn ótryggara fyrir þá, sem lág laun hafa, að taka lán úr sjóðnum.

Um lánveitingarnar almennt, þ.e.a.s. þessa 100 millj. kr. lánveitingu, sem safnað er saman a.m.k. að forminu til á einn stað og sett undir eina stjórn, er það að segja, að þessi upphæð er náttúrlega ekki öll — og langt frá því öll — nýtt fé til íbúðarhúsabygginga. Verulegur hluti af þessu fé er fenginn frá sparisjóðum og lífeyrissjóðum, en báðir þessir aðilar hafa lánað á undanförnum árum mjög verulegt fé til húsabygginga. Og án þess að ég hafi kynnt mér það mál sérstaklega, þá geri ég ráð fyrir því, að þeirra útlán á undanförnum árum hafi ekki verið miklu minni í þessu skyni en hér er gert ráð fyrir, eða í kringum 20 millj. kr. frá hvorum aðila árlega. Þegar svo tillit er tekið til þess fjár, sem varið hefur verið upp á síðkastið til smáíbúðanna, þá verður aukningin, sem hér er um að ræða, ekki meiri en kannske 15–20–25 millj. eða eitthvað þess háttar. Ég þori ekki að nefna ákveðnari tölu, vegna þess að mér er ekki alveg kunnugt um, hvað þessir aðilar hafa áður greitt, en ég hygg, að það fari ekki fjarri sanni að vera svipuð upphæð og hér er gert ráð fyrir að sparisjóðirnir og lífeyrissjóðirnir veiti, og þó mætti segja mér það, að þeir hefðu veitt kannske öllu hærri upphæðir, a.m.k. sparisjóðirnir, en í frv. er gert ráð fyrir.

Að vísu er náttúrlega möguleiki fyrir sparisjóðina til þess að halda áfram með sína lánastarfsemi á svipuðum grundvelli og verið hefur að undanförnu, þó að þessi festing á þeirra fé sé gerð með frv., en ég hygg, að þeir muni nú kannske sumir a.m.k. draga sig inn í skelina, þegar þessar kvaðir hafa verið á þá lagðar.

Ég skal ekki, m.a. vegna þess að nokkuð er liðið á nótt og við erum hér á annarlegum fundartíma, fara miklu lengra út í að ræða þetta frv. En það, sem fyrir mér var aðalatriðið, er það, að bætt verði inn í það, áður en það verður gert að l., einhverjum þeim ákvæðum, sem geri það kleift fyrir þá, sem lægstu tekjurnar hafa, að njóta þeirra fríðinda, sem í frv. felast, og ég sé ekki, að það verði á annan hátt betur gert en að tryggja það, að verulegur hluti af því fé, sem hér er til umráða, verði notaður til þess að lána byggingarsjóðum verkamanna, og ég teldi það ekki vansalaust, ef því væri slegið föstu, um leið og þetta frv. er borið fram, að byggingarsjóðir sveitanna fengju hér ákveðinn hluta eða 12 millj., ef ekki væri um leið slegið neinu föstu um sams konar fyrirgreiðslu fyrir byggingarsjóðum kaupstaðanna.