15.11.1954
Efri deild: 17. fundur, 74. löggjafarþing.
Sjá dálk 55 í B-deild Alþingistíðinda. (122)
6. mál, prentfrelsi
Frsm. (Guðmundur Í. Guðmundsson):
Herra forseti. Lög þau, sem gilda um prentfrelsi og útgáfu prentaðs máls á Íslandi, eru orðin æði gömul. Þau er að finna í tilskipun, sem út var gefin 9. maí 1855 og lögleiddi dönsk lög fyrir Ísland.
Það liggur í augum uppi, að slík löggjöf er orðin í fyllsta máta úrelt, þegar litið er á allar þær breytingar, sem orðið hafa á útgáfu og útgáfustarfsemi prentaðs máls á Íslandi, frá því að þessi tilskipun var út gefin. Er því brýn þörf á því, að gerðar verði ráðstafanir til þess að endurskoða í heild þessa gömlu löggjöf og undirbúa aðra nýja, sem meira er hæfð að þeim háttum, sem nú ríkja í sambandi við útgáfu prentaðs máls.
Í grg. fyrir því frv., sem hér liggur fyrir, er frá því skýrt, að af hálfu menntmrn. hafi þegar verið gerðar ráðstafanir til þess að endurskoða gildandi lagafyrirmæli um prentfrelsi. Það er að sjálfsögðu talsvert mikið verk að endurskoða þessi lög og ganga fullkomlega frá þeim, til þess að hægt sé að leggja þau fyrir Alþingi. Og að því er fram kemur í grg. frv., þá er ljóst, að það mun enn taka nokkurn tíma að ljúka þessari endurskoðun. Hins vegar hefur það komið í ljós nú á seinustu árum eða kannske seinustu missirum aðeins, að talsvert hefur borið á því, að hafizt hefur verið handa um útgáfu tímarita og ritlinga, sem hafa haft að flytja þannig lagað efni, að útgefendur hafa veigrað sér við að láta nafns síns við getið, en samkv. l. um prentfrelsi hefur þeim verið slíkt heimilt. Annars staðar, þar sem slík rit sem þessi hafa verið á ferðinni, hafa yfirvöldin talið sér skylt að gera ráðstafanir til þess að reyna að draga úr útgáfu þeirra og a.m.k. gera ráðstafanir til þess, að allur almenningur gæti vitað, hvaðan slík rit væru komin. Hér á landi hefur slíkt ekki verið hægt, vegna þess að lögin um prentfrelsi hafa ekki leyft það.
Þessu frv., sem hér liggur fyrir, er ætlað það verkefni að skylda útgefendur allra rita, og eru þá ekki sízt höfð í huga þessi tímarit, sem ég minntist á áðan, til þess að láta sín getið á ritinu sjálfu, til þess að almenningur megi um það vita, frá hverjum slík rit eru komin.
Það er að sjálfsögðu hið mesta nauðsynjamál, að slík löggjöf sem þessi verði sett, og þessum tímaritum hefur nú í seinni tíð farið svo fjölgandi á Íslandi og verið svo mikið um þau, að það er ekki rétt að bíða eftir því, að heildarlöggjöf um prentfrelsi komi, með að setja ákvæði eins og þessi, heldur virðist eðlilegt, að gerðar séu ráðstafanir þegar í stað til þess að skylda útgefendur þessara tímarita til að segja til sin, þannig, að almenningur viti, að hverjum hann á að snúa sér, og að úr þessum tímaritum mætti þá draga, ef menn veigruðu sér við að bera ábyrgð á þeim.
Þetta er sú hugsun, sem liggur til grundvallar þessu frv., og allshn., sem hefur fengið málið til athugunar, er sammála því, sem fram kemur í grg. frv., viðurkennir þörfina fyrir það og telur, að hér sé haldið inn á rétta braut. N. leggur þess vegna einróma til, að frv. verði samþ. óbreytt eins og það liggur fyrir.