18.04.1955
Neðri deild: 73. fundur, 74. löggjafarþing.
Sjá dálk 1040 í B-deild Alþingistíðinda. (1223)
183. mál, húsnæðismál
Lúðvík Jósefsson:
Herra forseti. Þá er nú sennilega hægt að balda áfram umræðum um þetta mikilvæga mál, sem hér er á dagskrá, þó að nú sé sýnilegt, að það eigi að verða næturumræður. Nú er þegar búið að ljúka því versta af, búíð að greiða atkvæði um nokkur mál, sem á dagskránni eru, og þá geta menn eflaust með góðri samvizku farið heim að sofa, — þeir, sem ekki þurfa að sitja hér yfir umræðum um hin meiri mál. En þetta er svo sem orðið þekkt fyrirbæri hér, að þegar stórmál eru til umræðu, — mál, sem hafa tiltölulega litla umræðu fengið hér í þinginu, þá er allajafna hallað svo til, að þetta er tekið fyrir og að umræðurnar skuli fara fram svo að segja um hánótt. Ég hefði nú svo sem ekki í þessu tilfelli talið það neina ofraun fyrir þá, sem þarna áttu hlut að máli, þó að þeir hefðu þurft að bíða hérna eitthvað fram eftir nóttunni til þess að taka þátt í atkvgr. um þessi mál, sem nú var skotið hér inn á milli, jafnvel þó að það hefði kostað þá að þurfa að vera hér nokkuð við þessar umræður um eitt af stærstu málunum, sem hér liggja fyrir þinginu núna. En hvað um það, nú er búið að ljúka þessu af, og þeir geta allir farið heim að sofa, sem hafa ekki neinar áhyggjur af því að þurfa að ræða þetta mál. En frá hálfu ríkisstj. virðist það vera svo, einnig um þetta mál, að hún vill hafa umræðurnar frá sinni hálfu sem allra, allra minnstar.
Það var athyglisvert, að þegar framsöguræðan frá meiri hl. þeirrar n., sem hefur haft um þetta mál að fjalla, var hér flutt, þá var hún svo stutt sem hún gat frekast verið og komið eins litið inn á málið sjálft og mögulegt var, og ég spái því, að svo muni fara, að frsm. og aðrir fulltrúar ríkisstj. muni verða hér litið á ferðinni í nótt í sambandi við umræður um þetta mál.
En það eru ýmis atriði þessa mikilvæga máls, sem ég vildi gjarnan vekja hér máls á og það að nokkru leyti vegna þess, að ég kann að hafa nokkra sérstöðu í sambandi við lausn þessara húsnæðisvandamála.
Mér sýnist um það frv., sem hæstv. ríkisstj. leggur hér fram til lausnar húsæðisvandamálunum og hún hefur sagt að ætti að leysa húsnæðisvandamálið til allrar frambúðar, að aðaleinkenni á þessu frv. séu þau, að gert er ráð fyrir að setja á fót sérstaka húsnæðismálastjórn. Þessi húsnæðismálastjórn á framvegis að hafa með að gera svo til allar ákvarðanir viðvíkjandi öllum lánum til byggingar íbúðarhúsa. Það á sem sagt að reyna að koma á því skipulagi, að tveir menn, fulltrúar stjórnarflokkanna, búsettir auðvitað hér í Reykjavík, eigi að fá algera yfirstjórn yfir öllum íbúðarhúsabyggingum í landinu. Þeir menn, sem vilja byggja sér íbúðarhús norður á landi, austur á landi eða vestur á landi, geta ekki fengið lán til slíkra framkvæmda, nema þeir sendi teikningar af sínum fyrirhuguðu húsum og alla greinargerð yfir bygginguna til nm. hér suður í Reykjavík, og það eru þessir tveir herrar hér, sem eiga að úrskurða um það í hverju einstöku tilfelli, hvort lán má veita úr þessu lánakerfi til þessara húsbygginga úti á landinu. Að sjálfsögðu eiga svo allir, sem búa hér í næsta nágrenni, einnig að leita til þessara tveggja manna um úrskurð um það, hvort þeir geta verið hæfir til þess að fá lán úr þessum lánasjóði.
Mér sýnist, að þessi húsnæðismálastjórn, eins og ákvæðin um hana eru sett upp í frv., mundi þýða það í framkvæmd, að í húsbyggingarmálunum í landinu er verið að koma á í stórum atriðum sama kerfinu og nú hefur gilt um skeið í öllum innflutningsmálum, og reynslan í þeim efnum er nú orðin flestum kunn. Reynslan er sú í stuttu máli, að menn úti á landsbyggðinni telja með öllu ókleift að taka þátt í innflutningsverzlun. Reynsla þeirra er sú, að það er slíkur eltingarleikur að liggja hér yfir þeim nefndum og ráðum suður í Reykjavík, sem eiga að kíkja í hvert plagg í sambandi við allan innflutning til landsins og veita þar öll leyfi, stór og smá, að það þykir með öllu ókleift fyrir menn, sem eiga heima úti á landi, að taka þátt í innflutningsverzlun, á meðan þetta kerfi er ríkjandi, enda hefur smám saman sótt í það horfið, að öll innflutningsverzlun verður í höndum fyrirtækja, sem eru búsett hér í Reykjavík, þar sem viðkomandi menn hafa fulla aðstöðu til þess að liggja yfir þessum nefndum dag út og dag inn. Sumir telja eflaust þetta skipulag gott, að það sé ágætt að einskorða þetta allt við Reykjavík, hér eigi þetta allt að fara fram, hér verði þetta bezt rekið, og ef til vill vilja menn dæma eftir þessari reynslu, að það fari líka bezt á því í sambandi við allar húsbyggingar í landinu, að. þær fari í gegnum svipað kerfi og þetta. Sem sagt, ef einhver maður úti á landi, í þorpi eða í sveit, vill ráðast í að byggja sér hús, þá er slíkt þjóðfélagslegt stórvandamál að úrskurða um það, hvort hann geti fengið úr opinberum sjóði nokkrar prósentur að láni af heildarkostnaði hússins, hvort hann geti t.d., ef hann vill byggja sér hús upp á 200 þús. kr., fengið að láni 60 eða 70 þús. kr., að það verði að senda óteljandi plögg, fylla út alls konar skýrslur og senda í sérstaka nefnd hér suður í Reykjavík, sem á að úrskurða um það, hvort þeir geti yfirleitt komið til greina með að fá leyfi til að byggja þetta hús eða fá lán í þessu skyni.
Ég er alveg sannfærður um það, að reynslan af þessu kerfi mundi leiða í ljós, að menn úti á landsbyggðinni, sem eiga óhægt um vík að komast í gegnum þetta skipulagskerfi, mundu smám saman gefast upp í þessum efnum. Þeir mundu auðvitað fá, eins og algengt er, fyrstir nei eða sagt, að skýrslan hafi verið vitlaust útfyllt eða að eitthvað hafi vantað upp á formið, teikningin vitanlega úti á landi ekki nægilega fullkomin. Þetta er sent heim, fyrst einu sinni og svo aftur, og þannig verður mönnum smám saman gert ókleift að geta athafnað sig á eðlilegan hátt, nema þá helzt að taka sér á hendur ferð suður til Reykjavíkur til þess að glíma þar við þessa stofnun.
Sú húsnæðismálastjórn, sem þetta frv. gerir ráð fyrir og allt snýst um í frv., er auðvitað miðuð við það, að stjórnarflokkarnir hafa fengið reynslu af því, t.d. í innflutningsmálunum, í verzlunarmálunum, að það gefur þeim feiknarlega mikið pólitískt vald að geta sett sína trúverðugustu menn, t.d. formenn stjórnmálafélaganna hér í Reykjavík, yfir slíkt framkvæmdabákn eins og þetta. Reynslan hefur sýnt, að það eru ákaflega margir menn, t.d. í sambandi við verzlunarmálin eða innflutning á vörum, sem eru tilbúnir að vera þeim flokkum, sem yfir þessu ráða, þægir og góðir og liðugir og jafnvel mjúkir við kosningasjóði þeirra, ef á þarf að halda, og þetta gefur þeim ákaflega mikið pólitískt vald, og þeim hefur yfirleitt þótt, að þessar stofnanir fyllilega borguðu sig. Nú á svo að láta þetta m.a. ná til allrar lánastarfsemi til húsbygginga í landinu.
Auðvitað er það augljóst mál, að það er engin nauð, sem rekur til þess að ætla að hafa þetta úthlutunarkerfi fyrir landsbyggðina. Ef menn telja, að það sé óhjákvæmilegt að hafa einhverja úthlutun í sambandi við þessar lánveitingar, vegna þess að það muni allt of margir biðja um lán til íbúðarhúsabygginga, miðað við það fé, sem er fyrir hendi til þess að ráðstafa í þetta, þá er það líka gefinn hlutur, að það mun eingöngu verða í sambandi við þá, sem eru hér í Reykjavík og næsta nágrenni. Það má búast við því, að héðan frá Reykjavík og næsta nágrenni berist ákaflega margar beiðnir um lán úr þessum sjóði, og það kann að vera, að það reynist nauðsynlegt að takmarka eitthvað á hverju ári, hverjir geta fengið lán hér til bygginga. Ef það er svo, að menn óttast þetta, þá sýnist mér, að það ætti að vera nægilegt að láta þessa úthlutunarnefnd, þessa tveggja manna nefnd ríkisstj., úrskurða um það, hverjir hér í Reykjavík og nágrenni ættu að verða lánanna aðnjótandi í hvert skipti, en sleppa m.a. húsbyggingum úti á landsbyggðinni alveg við þetta úthlutunarkerfi, — að í frv. yrðu þá sett ákvæði, sem tryggðu það, að þeir úti á landi, sem vilja byggja sér hús þar og geta lagt fé fram á móti þessum lánum, hafi skýlausan lagarétt til þess að fá þau lán, sem lögin annars gera ráð fyrir, og að þessi húsnæðismálastjórn hafi þar ekkert orð um að segja.
Ég mun á síðara stigi málsins flytja brtt. um þetta efni, og ég vil þá gjarnan, að það fái að koma skýrt fram hér, hvort þeir mörgu fulltrúar hér á Alþ., sem telja sig jafnan málsvara byggðarlaganna úti á landi og tala hér æði oft um það, að það þurfi að rétta hag þeirra, sem þar búa, og gæta jafnvægis í byggð landsins, telja vera höfuðnauðsyn á því að setja einhverjar skorður við því, að fólk úti á landi geti fengið þessi tiltölulega lágu lán til þeirra húsabygginga, sem menn vilja ráðast þar í. Það er alveg augljóst mál, held ég, að ef slík tillaga verður felld, þá er það ekki vegna þess, að menn búist við því, að svo mikið verði beðið um lán til íbúðahúsabygginga úti á landi, að þeir séu hræddir við það, heldur er það vegna hins, að stjórnarflokkarnir vilja hafa hin pólitísku tök á því, hverjir eiga að fá þessi lán hverju sinni. Þeir vilja geta sýnt mönnum í framkvæmd, að það eru þeir, sem eiga að ráða því, hvort það er Pétur eða Páll, sem kann að eiga að fá lánin, sem um er sótt. Það er þá aðeins vegna pólitískrar íhlutunar, en af hinni ástæðunni getur það ekki verið, að þeir búist við því, að utan af landsbyggðinni berist svo mikið af lánbeiðnum, að ekki verði eðlilega hægt að sinna þeim.
Annað meginatriðið, sem fram kemur í þessu frv., næst á eftir þessari húsnæðismálastjórn, er hið svonefnda veðlánakerfi, að rætt er um það, að koma skuli á einu samfelldu veðlánakerfi í sambandi við allar íbúðarhúsabyggingar í landinu, og er þá stefnt að því, að bankar landsins safni saman fé með útgáfu vaxtabréfa, að þeir beiti sér fyrir því að fá sparisjóði úti á landi og annars staðar til þess að kaupa þessi bankavaxtabréf og verða þátttakendur í þessu lánakerfi, fái jafnvel lífeyrissjóði til þess að leggja líka fram fé í þessu skyni, en minnst á að koma frá ríkinu sjálfu í beinum framlögum til þessa lánakerfis.
Mér sýnist, að eins og þetta lánakerfi á að byggjast upp, þá miði það einnig í þá átt að draga verulega fjármagn úr byggðarlögum úti á landi og sameina það í þetta sameiginlega lánakerfi, sem síðan á að vera undir raunverulegri stjórn tveggja manna hér suður í Reykjavík og eðli málsins samkvæmt hlýtur að verða varið að langmestu leyti til íbúðarhúsabygginga hér, þar sem þrengst er nú fyrir dyrum á margan hátt í húsnæðismálunum. Ég óttast því það, eins og þetta lánakerfi er sett upp, að það miði enn að því að draga fjármagn utan frá landsbyggðinni og að það fjármagn verði lagt að verulegu leyti undir úthlutunarvald fámennrar nefndar hér suður í Reykjavík.
Þá er þriðja atriðið í sambandi við þetta frv., sem mjög stingur í stúf við það, sem áður hefur þekkzt í sambandi við opinbera aðstoð við byggingarmál. Nú er hér byggt á því í þessu frv., að vaxtakjör þessa lánakerfis skuli vera um 7%, en lánstími er ráðgerður 25 ár. Almennt hefur það verið svo, að þær lánsstofnanir, sem þó hafa verið til fyrir opinbera tilhlutan og á tímabili störfuðu nokkuð í sambandi við byggingarmál, veittu lán með miklu hagstæðari kjörum en þetta frv. gerir ráð fyrir.
Ég vék nokkuð að því hér fyrr í dag, hvað svona háir vextir í sambandi við íbúðarhús þýddu í raun og veru. Ég benti þar á, að það er varla hægt að hugsa sér, að áhvílandi lán á meðalibúð geti verið minni en 150 þús. kr., eins og nú er komið byggingarkostnaði. Svona háir vextir af 150 þús. kr. láni jafngilda rúml. 900 kr. á mánuði hverjum bara í vaxtagreiðslu af þessu íbúðaláni.
Ég held, að raunveruleg húsaleiga í meðalstórri íbúð verði a.m.k. eins há og frsm. minni hl., sem talaði hér á undan mér, minntist á, þar sem hann gerði ráð fyrir, að búast mætti við því, að húsaleigan í meðalíbúð yrði röskar 1800 kr. á mánuði. Ég hygg, að ef tekið er fullt tillit til þeirra gjalda, sem einnig þarf að greiða af íbúðinni umfram vexti og afborganir, — en á íbúðunum hvíla vitanlega ýmis önnur gjöld; og alltaf verður að reikna nokkuð með viðhaldskostnaði, — þá megi reikna með því, að ekki muni kosta minna en 2000 kr. á mánuði að búa í meðalstórri íbúð, sem byggð yrði samkv. þessum lánakjörum.
Svona gífurlega háir vextir hljóta því að þýða mjög háa húsaleigu, sem aftur á móti hlýtur að kalla á hátt verðlag í landinu almennt og m.a. hafa áhrif á kanpgjald. Að þessu leyti til er sá vaxtafótur, sem byggt er á í þessu frv., þannig, að hann er mjög varhugaverður, hlýtur að hafa þannig afleiðingar hér í þjóðfélaginu, að ekki er þar séð fyrir endann á.
Fjórða atriðið í þessu frv. er svo lítill kafli í sambandi við heilsuspillandi húsnæði, og verður þó að segjast, að það er allra mjóslegnasti kaflinn í þessu frv. Þar er gert ráð fyrir því, að þau miklu fríðindi, sem hafa verið bundin í lögum, þó að þeim hafi verið frestað frá ári til árs, og bæjarfélög og sveitarfélög áttu að njóta í þeim tilgangi að útrýma heilsuspillandi húsnæði, falli endanlega úr gildi, en í staðinn komi ákvæði aðeins um einar 3 millj. kr. frá hálfu ríkisins, en hver maður hlýtur að sjá, að það nær harla skammt.
Þessi atriði, sem ég hef minnzt á, sýnast mér vera aðalatriðin í þessu húsnæðismálafrv.
En þegar þessi húsnæðismál eru rædd, þá er ekki óeðlilegt, að nokkuð sé farið inn á að rifja upp eða rannsaka, hverjar eru í rauninni orsakirnar fyrir þeim húsnæðisvandræðum, sem hér er verið að glíma við. Ég held, að það verði varla um það deilt, að hér, þar sem húsnæðisvandræðin eru langsamlega mest, í Reykjavík og nágrenni, hefur raunverulega verið byggt allmikið á undanförnum árum, og ég tók eftir því, að frsm. meiri hl., hv. 5. þm. Reykv. (JóhH), komst svo að orði, að hann sagði: Mér hefur verið byggt gríðarlega mikið á undanförnum árum. En samt sem áður er nú þessu þannig varið, að þó að hér hafi verið byggt griðarlega mikið og þó að hér hafi á nokkrum árum risið upp ný bæjarhverfi, þá eru húsnæðisvandamálin tilfinnanlegust hér, og þá sýna allar skýrslur það, að hinum heilsuspillandi íbúðum fækkar ekki í Reykjavík. Eftir skýrslu, sem frsm. minni hl. las upp í ræðu sinni áðan, sýndi hann fram á, að það hefur beinlínis fjölgað þeim fjölskyldum í Reykjavík, sem búa í hernámsbröggum eða öðru heilsuspillandi húsnæði.
Þegar þetta liggur fyrir, þá er eðlilegt, að menn spyrji um það, hverjar eru raunverulega orsakirnar fyrir því, að húsnæðismálin eru eins mikið vandamál hér í Reykjavík og þau eru. Og ég hygg, að það verði varla um það deilt, að orsakirnar er að finna í því, að hingað til Reykjavíkur stendur látlaus fólksstraumur utan af landsbyggðinni. Reykjavík hefur á undanförnum árum og næsta nágrenni hennar tekið meira en við allri þeirri fólksfjölgun, sem orðið hefur í landinu. Það eru sem sagt fólksflutningarnir til Reykjavíkur, sem hér eru þyngstir á metunum, það er það jafnvægisleysi í landinu, sem þýðir stanzlausan flótta fólks utan af landsbyggðinni hingað suður. Það er mín skoðun, að meðan svo er látið til ganga, að þetta jafnvægisleysi helzt við, eða jafnvel er með vissum ráðstöfunum aukið á þetta jafnvægisleysi, þá muni þetta húsnæðisvandamál vera hér til staðar um langan tíma enn hér í Reykjavík. Það sem sagt sýnir sig, að þó að á stuttum tíma væru byggð hér 1000 hús, þá er reynslan sú, að jafnmargir búa eftir sem áður í bröggunum, og það sem verra er kannske, að reynslan sýnir, að það er næstum alltaf sama fólkið, sem eftir er í bröggunum, þó að sé í sífellu verið að byggja ný hús.
Ég held því, að langsamlega stærsta orsökin fyrir húsnæðisvandræðunum hér um slóðir sé þetta jafnvægisleysi, sem oft er talað um, í byggð landsins. Hitt er svo aftur annað jafnstórt atriði, að gera sér grein fyrir því, hvernig stendur á þessu jafnvægisleysi, hvað þarf að gera til þess að reyna að koma í veg fyrir þetta jafnvægisleysi og þar með glíma nokkuð við orsökina að þessum herfilegu húsnæðisvandræðum, sem óneitanlega eru hér fyrir hendi.
Það er mín skoðun, að verði nú horfið að því ráði, sem margt bendir til, að ráðast einfaldlega í að byggja nokkuð af íbúðum hér í Reykjavík, þó vitanlega alveg ónóg, en gera engar frekari ráðstafanir, þá muni útkoman verða sú, að það þýðir í stórum dráttum að flytja ákveðinn skammt af mönnum utan af landi til viðbótar til Reykjavíkur, en að það verði álíka margir eftir sem áður í húsnæðisvandræðum hér í borginni.
Orsakirnar að þessum jafnvægisskorti eru án efa margar. Hér í Reykjavík er yfirgnæfandi meiri hluti af fjármagni þjóðarinnar. Hér eru aðalbankarnir, og þeir hafa hagað fjármálapólitík sinni þannig, að hér vilja bankarnir helzt binda sitt fjármagn, en þeir eru mjög tregir til þess að ráðstafa sínum fjármunum til framkvæmda úti á landsbyggðinni. Slíka ráðstöfun á fjármagni telja þeir ákaflega vafasama, en það er nú einu sinni svo, að á eftir fjármagninu leitar fólkið. Þar sem peningunum er ráðstafað í framkvæmdir og til athafna, þangað hlýtur fólkið að leita. Peningapólitíkin frá hálfu bankanna og frá hálfu ríkisvaldsins á því ábyggilega sinn drjúga þátt í því, að fólksstraumurinn heldur áfram til Reykjavíkur utan af landsbyggðinni.
Eins og ég minntist nokkuð á hér áðan, þá hefur einnig verið unnið mjög skipulega að því á undanförnum árum að koma hér fyrir í Reykjavík nærri allri innflutningsverzlun landsmanna. Hingað til Reykjavíkur verður að flytja svo að segja alla vöru, sem flytja þarf til landsmanna. Hér er hún sett í land. Hér er henni skipað aftur út í skip. Hér fer sem sagt fram skattlagning með gífurlegri aukavinnu í sambandi við þetta fyrirkomulag, að allar vörur eru keyptar hingað inn, og hér verður að vera miðstöðin fyrir dreifingu á þessum vörum út um allt land. Þetta er annar mjög stór þáttur í því, að fólkið dregst til Reykjavíkur og Reykjavík fær þessa yfirburði yfir aðra staði á landinu. Hingað til Reykjavíkur eru látnar liggja svo að segja allar skipaleiðir að landinu, og það þykir ekki orðið fært að annast hinn stærri rekstur annars staðar frá en héðan frá Reykjavík. Meira að segja Eimskipafélag Íslands, sem notið hefur sérstakra skattfríðinda frá hálfu ríkisins, rekur öll sín skip ákaflega einhliða með tilliti til Reykjavíkur. Það tilheyrir algerri hendingu úti á landsbyggðinni, ef þau skip flytja vörur þangað. Við úti á landi sjáum að vísu skip Eimskipafélagsins alltaf annað slagið, en það er ákaflega athyglisvert, í hvaða erindagerðum þau koma, þegar þau koma í okkar byggðarlög. Þau eru ekki að koma þangað með neinar vörur; þau koma þangað til þess að fylla sig af vörum til þess að sigla með á erlendan markað. Þau vilja sem sagt gjarnan hirða okkar útflutningsvöru, fá að annast flutninginn á henni frá framleiðslustöðum úti á landi, fá að annast flutninginn á framleiðsluvörunum á erlendan markað, hafa gott af þeim, en hafa hins vegar minna fyrir þeim. Þessi rekstur skipafélaganna er líka einn þátturinn í því að verka á það, að Reykjavík vex í sífellu, en staðirnir úti á landi fara yfirleitt minnkandi.
Svo má minna á það enn fremur, að fyrir atvík, sem ríkisvaldið er ráðandi um, hefur hér í námunda við Reykjavík verið unnið að ákaflega fjárfrekum framkvæmdum, sem veitt hafa miklum peningastraum í hendur manna, sem hér hafa verið. Hernámsvinnan öll hér á Suðurnesjum hefur vitanlega aukið við tekjur manna hér um slóðir mjög mikið, og í þeim efnum hafa hlutföllin skekkzt afar mikið á milli þeirra, sem hér búa, og hinna, sem búa úti á landi.
Ríkisvaldið hefur líka verið alveg óspart á að hlaupa undir bagga, af því að alltaf hefur verið talinn nokkur „business“ í því að hlaupa undir bagga, ef útvega hefur þurft fé til meiri háttar framkvæmda hér í Reykjavík. Í því efni má minna á það, að þegar byrjað var að taka lán samkvæmt Marshalllögum, þá var ákveðið að ráðast í byggingu síldarverksmiðja hér fyrir sunnan. Að vísu voru þá gildandi lög í landinu um það, að t.d. á Austurlandi ætti að byggja síldarverksmiðju. Það var skylda að gera það. Ríkisvaldinu blöskraði það ekki að troða yfir þau lög og neita að framkvæma þau, neita að láta byggja verksmiðju á Norðausturlandi, en á sama tíma var rokið til þess að veita af Marshallfé um 30 millj. kr. til þess að byggja Örfiriseyjarverksmiðjuna, sem aldrei hefur farið í gang, til þess að láta yfir 20 millj. kr. í síldarverksmiðjuskipið Hæring og allálitlega fjárhæð í þriðju verksmiðjuna hér í Reykjavík, á Kletti. Sem sagt, á einu og sama ári var brugðið þannig við, þegar mönnum hugkvæmdist að fara að byggja síldarverksmiðju hér í Reykjavík, að þá var beinlínis af fé hins opinbera ráðstafað stórum fjárhæðum til þess að byggja þrjár síldarverksmiðjur fyrir Reykjavík. — Mætti nefna mörg fleiri dæmi, sem öll hníga að því, að fjármagn landsmanna hefur verið staðsett í ríkara hlutfalli hér í Reykjavík en annars staðar á landinu, en þetta hefur orðið þess valdandi, að jafnvægisleysið hefur sífellt orðið meira og meira á milli
Reykjavíkur og landsbyggðarinnar. En eins og ég benti á, þá er það einmitt þetta jafnvægisleysi, sem er meginorsök þess, hversu húsnæðisvandamálin eru tilfinnanleg og erfið úrlausnar hér í Reykjavík.
Þá er enn eitt atriði, sem ég vildi minna á í þessu efni. Þannig er því háttað yfirleitt úti á landsbyggðinni, að þau störf, sem menn vinna þar við, eru að yfirgnæfandi meiri hluta framleiðslustörf. Þar hafa langflestir tekjur sínar af útgerð eða sjósókn eða vinnslu á sjávarafurðum eða þá af landbúnaði. Þar er rekinn tiltölulega lítill iðnaður, lítil verzlun og lítil önnur almenn þjónusta. En nú er það líka vitað, að afkoma framleiðsluatvinnuveganna hefur verið hin lélegasta í sambandi við allan rekstur í landinu. Mikill hluti útgerðarinnar hefur um tíma tapað og tapar allmiklu fé. Þeir menn, sem unnu við bátaflotann í allmörg ár, gátu aldrei fengið kaup sitt greitt einu sinni. Þar var svo framkvæmd skuldaskilaaðgerð, og mörg fyrirtæki og aðilar úti á landi töpuðu þar stórfé vegna þess, hve hagur þessarar útgerðar var tiltölulega lélegur. Það verður sem sagt án efa ekki um það deilt, að afkoma framleiðsluatvinnuveganna hefur alltaf verið miklu lélegri en t.d. afkoma hér hjá iðnrekstri í Reykjavík, verzlun í Reykjavík, skipafélögum og öðrum slíkum, sem hér halda uppi allumfangsmiklum rekstri.
Þessi atriði, sem ég hef nú minnzt svolítið á, eru öll þess eðlis, að ef það væri unnið að lausn á þessum málum, þá mundi draga nokkuð úr þessum jafnvægisskorti, sem nú er á milli Reykjavíkur annars vegar og landsbyggðarinnar hins vegar. Og ef það tækist að jafna þar nokkuð metin, þá mundi úrlausn húsnæðismálanna hér í Reykjavík ekki verða eins erfið og hún hefur reynzt vera á undanförnum árum.
Ég held því, að ef á raunhæfan hátt ætti að reyna að leysa þessi miklu vandamál, — því að ég dreg ekki í efa, að þeir eru margir hér í Reykjavík, sem þurfa á nýju húsnæði að halda og búa við óforsvaranleg kjör í þeim efnum, — þá þarf að reyna að snúa sér skipulega að því að bæta afkomuskilyrðin úti á landi og koma í veg fyrir þennan stanzlausa flótta á fólki frá landsbyggðinni og hingað til Reykjavíkur. Sé þetta ekki gert jafnhliða, þá þýða ráðstafanir til þess að byggja ný hús í Reykjavík í raun og sannleika hið sama og að flytja enn þá fleiri menn hingað suður.
Ég vil minna á það í þessu efni, að við sósíalistar höfum flutt á undanförnum þingum frumvörp um að veita allmikið fjármagn til uppbyggingar á atvinnulífi úti á landi. Þau hafa ekki fundið náð fyrir þeim, sem hér ráða. Þau hafa ekki fengið afgreiðslu á undanförnum þingum. Þau hafa verið látin liggja í n. Og enn þá virðist sú n., sem sett var af hæstv. ríkisstj. til þess að koma með till., sem áttu að tryggja jafnvægi í byggð landsins, fara sér heldur rólega og koma ekki með neinar till. Hins vegar er nú komið fram þetta frv. ríkisstj., sem ég geri ráð fyrir að mundi mjög einhliða verða til þess, þótt að litlu leyti sé, að auka á húsbyggingar hér einkum í Reykjavík, en jafnvel í ýmsum greinum að torvelda húsbyggingar úti á landi og auka enn við flótta manna utan af landsbyggðinni hingað suður.
Ég vildi, að þessar athugasemdir mínar kæmu hér fram í sambandi við lausn húsnæðisvandamálanna. Ég vil þó taka skýrt fram, að þessi orð mín þýða það ekki á neinn hátt, að ég sé á móti því, að glímt sé við hið mikla vandamál, sem er húsnæðisvandamálið hér í Reykjavík og húsnæðisvandamálin í landinu yfirleitt. Ég geri mér fyllilega ljóst, að það þarf að leysa þennan vanda, en það er allt of einhliða litið á þetta vandamál að ætla aðeins að efna til nokkurra nýrra húsbygginga, þó að reynslan hafi sýnt, að eftir lifa jafnmargir menn og sízt færri í óhæfu húsnæði, þrátt fyrir allar þessar byggingar, og menn horfa upp á það, að þetta stafar af því, að fólkið þyrpist til Reykjavíkur úr þorpunum úti á landi.
Það er svo aftur annað mál, hvort það er í eðli sínu æskilegt, að þessi þróun haldi áfram, að byggðin úti á landi dragist saman og byggt verði yfir alla landsmenn hér í Reykjavík. Mín skoðun er sú, að það sé ekki affarasælt fyrir þjóðina sem heild. Ég gerði það einu sinni í sambandi við mitt eigið byggðarlag að veita því nokkuð athygli, hvernig væri með brottflutning manna úr því byggðarlagi og hingað suður til Reykjavíkur. Þessi athugun mín leiddi í ljós, að þegar um það bil 90 menn af hverjum 100 í mínu byggðarlagi unnu, á meðan þeir voru þar, að sjávarútvegi og framleiðslustörfum, sem ég ætla að séu þjóðinni mjög dýrmæt, en rétt í kringum 10% af fólkinu þar lifðu á föstum launum í sambandi við einhverja þjónustu, þá fór það svo, að þessi hlutföll snerust með öllu við, þegar þetta sama fólk hafði tekið sig upp og flutt hingað suður. Þá var útkoman sú, að það voru 10 á móti hinum, sem voru komnir í alls konar þjónustustörf og störf þess eðlis, sem ekki flokkast undir framleiðslustörf, en aðeins einn á móti 10 hélt áfram hinum beinu framleiðslustörfum. Ég hygg, að þessi athugun sé nokkuð almennt dæmi um, að hinn látlausi flutningur manna utan af landsbyggðinni hingað til Reykjavíkur þýði það, að framleiðsla þjóðarinnar fari minnkandi og það muni ganga heldur lakar en áður að halda uppi góðum lífsskilyrðum í landinu, ef slíku heldur áfram. Því held ég, að það beri að vinna sem allra fyrst og skipulegast að því að koma í veg fyrir þennan flótta utan af landsbyggðinni hingað suður, og ég held, að einmitt þær ráðstafanir verði einna drýgstar, einna stórvirkastar í þá átt að leysa hin eiginlegu húsnæðisvandamál, sem Reykvíkingar eiga við að búa, og ég held, að ef tækist að stöðva fullkomlega flóttann utan af landi, þá mundi lausn húsnæðisvandamálanna hér verða miklu auðveldari viðfangs og þá sæi maður einhvern tíma fyrir endann á því, að Reykvíkingar gætu flutt úr þeim mörgu íbúðum, sem nú eru taldar ekki mannabústaðir, en þeir búa í.