18.04.1955
Neðri deild: 73. fundur, 74. löggjafarþing.
Sjá dálk 1048 í B-deild Alþingistíðinda. (1224)

183. mál, húsnæðismál

Karl Guðjónsson:

Herra forseti. Þegar ríkisstj. sú, sem nú situr, kom fram á sjónarsviðið, búin sínu bezta skarti, í upphafi sinnar tilvistar, þá voru það einkum þrjár perlur, sem hún taldi sig bera og væru skartgripir miklir og ættu að verða til góðs fyrir þjóð þá, sem hún ætlaði þá að stýra, og þannig vaxnar, að þær ættu að koma þjóðinni til nota hið allra bráðasta.

Hið fyrsta af þessu mun hafa verið það, að hún lofaði því að gera verzlunarhætti landsmanna frjálsari og með öðrum hætti en þeir höfðu þangað til verið.

Við, sem sátum hér á síðasta þingi, munum kannske eftir því frv., sem ríkisstj. lagði fram um þessi atriði, og frelsið fólst aðallega í því, að í upphafi frv. stóð: „Frjáls skal vera innflutningur til landsins“ o.s.frv. En þegar farið var að athuga þetta frv., þá voru það meira að segja stuðningsmenn ríkisstj. sjálfrar, sem skömmuðust sín svo fyrir þessi orð og fundu, að þau voru í svo hrópandi ósamræmi við það, sem frv. annars miðaði að, að þeir þurrkuðu þau út, og það var dálítið táknrænt fyrir það mál, sem ríkisstj. taldi skarta svo mjög.

Annað málið, sem ríkisstj. ætlaði að punta upp á þegna sína með, var gerbreyting á skattalögunum, sem átti að verða með þeim hætti, að það yrði ósköp auðvelt að lifa í þessu landi fyrir sköttunum.

Jú, við fengum líka á síðasta þingi að sjá framan í það, sem ríkisstj. hafði upp á að bjóða í þeim efnum. Hún lagði hér fram raunar mörg frv. um skatta. Eitt þeirra taldi hún þó bera af. Það var um tekjuskatt og eignarskatt, og það færði þann skatt svolítið niður hjá íbúum landsins mörgum hverjum, en þó varð lækkunin, að minnsta kosti í krónutölu, hvergi svo, að miklu gæti numið, nema hjá stórgróðafélögunum.

Efndirnar á þeim tveim loforðum voru þess vegna ærið langt frá því, sem maður hefði getað ætlað að til stæði eftir þeim loforðum, sem gefin höfðu verið.

Þriðja perlan, sem hún taldi sig eiga, var sú, að hún ætlaði að breyta svo löggjöf landsins, að húsnæðisvandamálin gufuðu upp, að því er manni skildist, eins og dögg fyrir sólu, þegar þeir pappírar kæmu fyrir Alþ. og fengju þar sína afgreiðslu.

Við urðum að bíða lengi eftir þeim pappír. Það leið af hennar fyrsta starfsár, og það leið langt fram á það næsta, en loksins kom frv. hennar um húsnæðismálin. Það var dálítið táknrænt, að þegar sá ráðh., sem með þau mál fer, hæstv. félmrh. (StgrSt), kom hér upp í þennan ræðustól til að mæla fyrir því frv., þá var áhugi ekki meiri en svo hjá þeim þm., sem séð höfðu framan í þetta blað, að hér voru langflestir stólar auðir og áheyrendapallar þingsins, sem voru þéttsetnir um þáð bil, sem málið var tekið á dagskrá, nær tæmdust, þegar ráðh. ætlaði að fara að tala um þennan sérstaka dýrgrip ríkisstjórnarinnar.

Það væri líka synd að segja, að þetta húsnæðisfrv. ríkisstj. væri að nokkru með þeim hætti, að það geti talizt líklegt til að leysa úr þeim vandamálum, sem þjóðin á við að stríða.

Ríkisstj. hafði skipað nefnd til að athuga málið. Sú nefnd var fjölmenn, og hún hefur raunar unnið töluvert starf. Sumt af því, sem hún hefur athugað og látið uppi álit á, virðist vera ekki óskynsamlega ályktað um. Þannig hefur nefndin áætlað, hver væri íbúðaþörf íslenzku þjóðarinnar, og komizt að raun um, að það mundi þurfa að byggja á næstu árum að minnsta kosti um 900 íbúðir árlega, til þess að skaplegt gæti talizt, miðað við aukningu þjóðarinnar og það, sem til þarf að leysa úr þeim vandamálum á fáum árum, sem nú eru þannig, að þau eru með öllu óhafandi á því stigi, sem þau nú eru.

Við, sem höfum fjallað um þetta mál í fjhn., höfum ekki orðið sammála um, hvernig afgreiða beri þetta frv. Það væri synd að segja, að málsvarar ríkisstj. í þeirri nefnd hefðu sýnt á sér nokkurn ánægjublæ yfir þessu frv., en þeir gengu að því eins og grautnum sínum að gera skyldu sína við ríkisstj. og skrifa það á pappír, að þeir legðu til, að frv. yrði samþ. óbreytt. Við hv. 1. landsk. (GÞG) höfum hins vegar ekki getað á það fallizt að mæla með slíku, því að það væri einungis að gera nýja pappíra um húsnæði Íslendinga, en hreint ekki hitt, að bæta þar úr, svo að neinu geti numið. Í okkar nál. er það rækilega rökstutt, að íbúð af meðalstærð, eins og þær gerast nú hér um slóðir, mundi kosta meira en fjórðung milljónar, mundi kosta um 262 þús. kr., þegar miðað er við 350 m3 íbúð. Vextirnir, sem gert er ráð fyrir að á slíkum lánum verði, nema svo háum fjárhæðum, að á 25 árum er ekki einasta nægilegt að láta þann, sem húsið byggir, eða þann, sem húsið kaupir, borga það einu sinni, heldur verður hann látinn borga það meira en tvisvar sinnum, þannig að fyrir 262 þús. kr. íbúð borgar hann á 25 árum, með þeim vaxtakjörum, sem ríkisstj. telur hæfileg, 557500 kr. Það sjá allir, að það er engin lausn á okkar húsnæðisvandamálum að gera þeirri kynslóð, sem byggir íbúð, sem standa á í heila öld, kannske margar aldir, að borga hana tvísvar sinnum og meira en það á einum aldarfjórðungi. Það er ekki lausn á málinu. — Þeir, sem vildu verða allra lítillátastir og byggja þær minnstu íbúðir, sem hugsanlegt er að hér muni tíðkast í framtíðinni, og byggðu sér 200 þús. kr. íbúð, verða á 25 árum að borga íbúðina með 424818 kr. En forsvarsmenn ríkisstjórnarinnar reyna að halda því fram, að hér sé um raunhæfa lausn málsins að ræða. Það eru ekki ráðherrarnir; ég skal taka það fram, að undir þeirri umræðu, sem hér hefur farið fram um þetta alvarlega mál, hafa þrír ráðherrar aðeins látið sjá sig á hlaupum í deildinni og enginn þeirra staðið hér við meira en 2 mínútur. Þannig er áhugi þeirra fyrir málinu; þeir sem sagt mega eiga það, þeir skilja það, að hér er ekki um neitt það að ræða, sem þeir geta stært sig af.

Árið 1947 urðu nokkur straumhvörf í íslenzkum stjórnmálum. Það má heita, að þá hafi veríð gersamlega skipt um stjórnarstefnu á Íslandi. Sú stjórnarstefna, sem ríkt hafði þá um skeið, hafði gert ýtarlegar tilraunir til þess að koma lifnaðarháttum Íslendinga á hærra menningarstig og búa íslenzku þjóðinni betri lífskjör en áður höfðu tíðkazt. Þessu er hætt með myndun ríkisstj. á öndverðu ári 1947.

Hvernig var ástand í lánamálum til húsbygginga á þeim tíma, þegar þessi straumhvörf verða í íslenzkum stjórnmálum? Það má vera, að þá hafi verið nokkuð þröngt um lán á almennum markaði, en þau lán, sem fengust, voru með nokkuð öðrum kjörum en nú tíðkast. Lífeyrissjóðir, eins og lífeyrissjóður ríkisstarfsmanna, lífeyrissjóður barnakennara og vafalaust nokkuð margir fleiri lífeyrissjóðir lánuðu þá yfirleitt út til húsbygginga sjóðfélaga með vöxtum, sem námu 4–41/2%. Slík lán voru þá oftast veitt til 20 ára. Það þýðir, að af lánunum voru tekin á 20 árum nálægt 50% í álag á nafnupphæð lánsins.

Allar ríkisstj., sem myndaðar hafa verið síðan þetta skeði, hafa látið í veðri vaka og sumar skrifað það efst á sína stefnuskrá, að þær væru til þess myndaðar að ráða bug á dýrtíð í landinu og kveða niður þá alvarlegu hluti, sem dýrtíð eru samfara.

Í lánamálum hefur það skeð síðan, að þegar þau lánskjör, sem ríkisstj. leggur nú til að tekin verði upp, verða orðin almenn í lánakerfi til íbúðabygginga, þá er álagið á nafnverð þeirra lána, sem veitt eru í þessu skyni, á 25 árum eitthvað á milli 112 og 113%.

Við, sem skipum minni hl. fjhn. í þessari d., höfum lagt til allmargar breytingar á frv. Okkur er þó ljóst, að þó að þær væru allar samþ., þyrfti frv. samt ýmissa umbóta við, til þess að það mætti teljast verulega gott og líklegt til að sinna sínu hlutverki í byggingarmálum þjóðarinnar.

Við höfum í fyrsta lagi miðað okkar till. að nokkru við það, að við þessa umr. málsins geti það komið fram, hverju ríkisstj. og hennar fylgjendur á Alþ. eru til með að taka með skynsemi, yfirvega og hafa það, sem réttast reynist. Þannig höfum við t.d. ekki gert sérstakar breytingar um vaxtafót lánanna og teljum, að afstaða okkar í því máli byggist að nokkru á því, hvernig þeirri brtt. að tryggja byggingarsjóði verkamanna aukið starfsfé verður tekið. Verði þeirri till. okkar ekki sinnt, þá er greinilegt, að ríkisstj. kemur að mestu í veg fyrir áframhaldandi starfsemi þess sjóðs, og þar með er það líka fullvíst, að jafnvel hinir fátækustu, sem þarfnast þess að koma yfir sig húsnæði, eiga ekki í önnur hús að venda með aðstoð til þess en í hið almenna lánakerfi, sem þetta frv. gerir ráð fyrir, en áður hefur verið rækilega sýnt fram á það, bæði í grg. okkar í minni hl. fjhn. og sömuleiðis í ræðum um málið, einkanlega ræðu hv. frsm. minni hl., 1. landsk. þm. (GÞG).

Mér er það einnig ljóst, að til þess að löggjöf sem þessi geti komið þjóðinni að verulegu gagni, þarf að hafa nokkra hönd í bagga um það, hvert lánin eru veitt. Hv. síðasti ræðumaður, 11. landsk. þm. (LJós), gerði rækilega í ræðu sinni grein fyrir því, að eins og úthlutunarkerfi lánanna er varið, þá er þetta fyrst og fremst lánakerfi, sem kemur að haldi — að svo miklu leyti sem það kemur nokkrum að haldi — þeim, sem búa 5 höfuðstað landsins. Hann rakti prýðilega og réttilega, hvernig það verður með algerlega óeðlilegum hætti, að menn þeir, sem búa í fjarlægð frá höfuðstaðnum, verða að útfylla hvert plaggið á fætur öðru og senda það í von og óvon um það, hvort þeim hefur tekizt að útfylla það eins og kontóristar í Reykjavík hafa ætlazt til. En slíkt getur auðvitað oft orkað tvímælis, og það mun vera margur maðurinn, sem sótt hefur um smáíbúðalán, en hefur þurft að endurnýja sínar sendingar af skrifuðu máli nokkrum sinnum, áður en lánið var honum veitt.

Enn fremur er það ótækt, þegar lán eru veitt út á land, að þá skuli viðkomandi lántakandi þurfa að hafa umboðsmann í höfuðstað landsins til þess að taka við þessu fé fyrir sig, en ekki er annað sýnilegt af frv. þessu en að þeirri reglu, sem fylgt hefur verið hjá lánadeild smáíbúða í þessu efni, eigi að halda áfram eins og hún hefur gilt.

Lánsstofnanir þjóðarinnar og allir möguleikar til þess að flytja fé á milli staða eru nú með þeim hætti, að þetta verður að teljast alger óþarfi.

Það er sömuleiðis rétt, sem hv. síðasti ræðumaður hefur haldið fram, að ef það lánakerfi, sem hér stendur til að koma á fót, verður nothæft að einhverju leyti og notað mestmegnis í Reykjavík, þá gagnar það ekki þjóðinni með þeim bezta hætti, sem verið gæti. Þegar ríkið setur á fót stofnun eins og þá, sem hér er ráðgert að gera, þá ber ríkinu að sjálfsögðu að taka tillit til þess, hvernig þetta getur bezt gagnað framleiðslukerfi þjóðarinnar.

Nú er sú sorglega raun á í höfuðborg landsins, að óvíða á landinu og líklega hvergi er framleiðsla eins lítil á hvern íbúa og í höfuðborginni, og það er því miður fátt, sem bendir til, að það hlutfall muni raskast í þá átt, að framleiðslan hjá Reykvíkingum fari vaxandi, miðað við aðra þegna þjóðarinnar. Þess vegna væri skynsamlegt að taka upp í svona kerfi, að lánin skyldi veita með tilliti til þess, hvar þau kæmu bezt að gagni framleiðslu landsmanna.

Ég vil í þessu sambandi benda á það, að nú er a.m.k. einn staður á landinu, þar sem ríkið leggur þegar í mikinn kostnað til þess að koma upp fiskihöfn, það er vestur á Snæfellsnesi, vestur í Rifi. Ef vel tekst til með þá hafnargerð, sem menn vona, þá kemur þar höfn, sem liggur mitt í auðugum fiskimiðum, og það er líklegt, að þar gæti á skömmum tíma risið upp framleiðslubær, — ekki bær, þar sem settust að auðmenn og aðrir ónytjungar, heldur framleiðslubær, sem vert væri fyrir íslenzka ríkið að eiga sinn þátt í að gæti byggzt á skömmum tíma. Ég nefni þetta aðeins sem dæmi. Þessi staður er einmitt þannig, að þar er nú ákaflega lítil byggð og mundi þurfa mjög mikið að byggja, bæði af íbúðarhúsum og öðrum húsum, til þess að hann geti á skömmum tíma orðið stór líður í framleiðslukerfinu, eins og ég tel allar líkur benda til að hann eigi eftir að verða, þótt það kunni að verða að gerast á löngum tíma, ef ríkið gerir engar ráðstafanir til þess að haga fjárframlögum sínum og lánveitingum úr þeim stofnunum, sem það ræður yfir, með tilliti til íslenzkrar framleiðslu.

Það eina, sem í rauninni er gert í þessu frv. til þess að tryggja það, að hluti af þessu fé fari raunverulega út á landsbyggðina, eru þær 12 millj., sem ákveðið er að eigi að renna í byggingarsjóðinn, þ.e.a.s. í þann byggingarsjóð, sem lánað er úr til bygginga í sveitum. Ég vil nú leyfa mér í sambandi við ræðu hv. 1. landsk. þm., frsm. minni hl., að taka það fram, að ég held, að hann hafi ekki meint það, sem hann sagði um þetta atriði, eins og hugsanlegt væri að taka það.

Það hefði mátt skilja orð hans svo, að það væri nú kannske það, sem ríkisstj. þyrfti mest að skammast sín fyrir, að hafa ákveðið þetta framlag til byggingarsjóðs sveitanna. Hann mun hafa átt við það, að eftir að hún hafði gert það, þá hefði hún átt að sjá sóma sinn í því að tryggja álíka fjárhæð til byggingarsjóðs verkamanna. Og það skulum við líka vona að hún geri.

Ég hef hér að nokkru víkið að þeim ófullkomleik, sem á till. okkar í minni hl. fjhn. má finna. Ég vænti þess, að það verði ekki til þess ætlazt af okkur, sem höfðum um það bil 2 daga til þess að semja okkar till., að þær till. séu í öllu eins ýtarlegar og ákjósanlegast hefði verið. Ekki sízt tel ég að við getum borið höfuðið hátt, þó að svo kynni að vera, ef við berum okkur saman við þær till., sem ríkisstj. leggur fram eftir að hafa haft þessi mál á prjónunum hátt á annað ár, því að fyrir þær till., sem hún leggur fram, ætti hver ríkisstj. að blygðast sín, — og ég hef að vísu viðurkennt það, að okkar ríkisstjórn er ekki svo alls varnað, að hún virðist þó gera það.

Embættismannabákn það, sem á að úthluta fé þessu til einstaklinga, er sama kerfið sem tekið hefur verið upp við smáíbúðalánin, þ.e.a.s., að forkólfar stjórnarflokkanna tveir eiga að úthluta þessu. Þeir eiga að sitja í Reykjavík, en vafalaust hafa þeir meira og minna leynilega umboðsmenn víðs vegar úti um landið.

Þetta telja stjórnarflokkarnir sjálfsagt vera afgreiðslu, sem þeim sé sæmandi, og þeir telja sig vafalaust hafa pólitískan ávinning af henni. En ég vil segja hæstv. ríkisstj. og hennar fylgismönnum það, að þegar formaður sjálfstæðisfélagsins í einu þorpi gengur um á milli manna og segir: Heyrðu mig, þú ættir nú að líta við hjá mér, ef þú þarft að fá meðmæli til þess að fá smáíbúðalán, — þegar hann gengur á milli manna í einu þorpi, þar sem mikið er byggt, og ýmsir glepjast til þess að leggja leið sína til hans og senda sínar umsóknir í gegnum hann til þeirra, sem úthlutunina eiga að annast, þá getur hugsazt, að einhver pólitískur ávinningur sé að því. En þegar að hinu kemur, að fjöldamargir slíkra manna fá synjun, þótt þeir eigi hús í smiðum og uppfylli öll þau skilyrði, sem telja má að lögin um þessi atriði setji, en sá hinn sami formaður sjálfstæðisfélagsins flytur sinn útikamar inn í húsið hjá sér og fær sjálfur út á það smáibúðalán, þá er hinn pólitíski ávinningur af þessum vinnubrögðum farinn að verða dálítið vafasamur. En þetta dæmi, er ég hef nefnt, vil ég taka fram að er raunverulegt.

Það væri þess vegna synd að segja, að þriðja perlan, sem ríkisstj. lætur skína, beri af hinum, þótt það hafi að vísu ekki verið af miklu að bera. Sannleikurinn er sá, að íbúðamál Íslendinga hafa hvergi verið leyst svo að viðhlítandi sé, nema þar sem fólkið hefur gert samtök um það að þverbrjóta öll lög og allar reglur ríkisstj. Þar er ekki húsnæðisskortur, en hann er nær alls staðar annars staðar.

Ríkisstj. ætlar enn að halda áfram á þeirri braut að setja l., sem eru þess eðlis, að þau eru fremur til hindrunar en til þess, að árangur geti náðst í þeim efnum, sem hér er um að ræða, en það ætti íslenzk ríkisstj. að vita, að Íslendingar eru ekki þess háttar fólk, að þeir láti að eilífu eina vesæla ríkisstj. gera grín að sér, henda skop að þeim málum, sem mest kreppa að fjölda heimila. Það væri þess vegna hyggilegast fyrir ríkisstj. sjálfa að standa ekki í vegi gegn því, að það værilappað svo upp á þetta fóstur hennar, að það gæti heitið með einhverri mynd, en ekki alger vanskapningur, þegar Alþ. afgr. það.