19.04.1955
Neðri deild: 74. fundur, 74. löggjafarþing.
Sjá dálk 1064 í B-deild Alþingistíðinda. (1228)
183. mál, húsnæðismál
Fram. meiri hl. (Jóhann Hafstein):
Herra forseti. Síðasti ræðumaður furðaði sig á fjarveru hæstv. ríkisstj. við umr. um þetta mál og að hún skyldi ekki hafa hlýtt á mál manna hér í gærkvöld eða fram á nótt. Ég verð að segja fyrir mitt leyti, að þegar hugsað er til þeirra umræðna, sem hér hafa farið fram um þetta mál af hálfu hv. stjórnarandstæðinga, þá hefur ríkisstj. farið lítils á mis við að vera ekki viðstödd þær umr. Það má heita stórfurðulegt, að í máli jafnumfangsmiklu og vandasömu og það frv. er, sem hér liggur fyrir, fóru umræður sannast að segja svo á við og dreif í gærkvöld hjá hv. stjórnarandstöðu að oft og tíðum var ekki í langan tíma hægt að gera sér grein fyrir, um hvaða mál þessir hv. þingmenn voru að ræða. Þegar málið er þannig í pottinn búið, þá fara, eins og ég sagði, þeir ekki mikils á mis, sem ekki hlýða á málflutninginn.
Hv. 1. landsk., sem hafði framsögu fyrir minni hl. fjhn., var þó sá af hv. þingmönnum, sem hélt sér helzt við efnið og gerði grein fyrir ýmsum till., sem minni hl. hefur flutt í þessu máli. Hann hóf mál sitt á því og reyndar kom að því oftar í ræðu sinni, að þetta frv. væri eiginlega ávöxturinn af tveggja ára rifrildi innan ríkisstjórnarinnar og húsnæðismálanefndar um þetta mál. Ég hafði lagt áherzlu á það, að mikil eining hefði ríkt við undirbúning málsins og áhugi hjá þeim aðilum, sem að málinu hefðu unnið, bæði ríkisstjórn, bönkum og húsnæðis- , málanefnd. Eins og hv. þingmönnum er kunnugt, þá var húsnæðismálanefndin ekki skipuð fyrr en á miðju sumri, og starf hennar hófst ekki að neinu ráði fyrr en á s.l. hausti, svo að lengri tíma en þá mánuði, sem liðnir eru siðan, getur varla verið um að ræða rifrildi innan hennar. En þvert á móti hefur ekki verið því til að dreifa. Sannleikurinn er sá, að ég held, að það sé miklu farsælla fyrir þingmenn yfirleitt að temja sér að festa fremur sjónir við það, sem menn eru sammála um í málunum, heldur en sundurþykkjuna og sundurlyndið þeirra á milli, og allra sízt ættu menn að reyna að búa til einhverjar uppspunnar sögur um sundurþykki og sundurlyndi á milli þingmanna. Það er áreiðanlega nóg af því út af fyrir sig, þó að það séu ekki búnar til uppspunnar sögur um slíkt.
Ég lagði áherzlu á það í minni ræðu og geri það enn, að ég hef ekki við undirbúning þessa máls orðið var við annað en mjög samstilltan áhuga innan beggja stjórnarflokkanna. Um leið og ég segi þetta, verð ég að segja það, að orð mín, sem ég sagði áðan, gætu náttúrlega að vissu leyti alveg eins náð til vissra aðila í stjórnarherbúðunum, því að mér sýnist, að það fari mjög mikið fyrir því hjá öðru stjórnarblaðinu, tímanum, undanfarna daga í forustugreinum sínum að miklast yfir því, hvað Framsfl. umfram hinn stjórnarflokkinn eigi mikinn þátt í lausn hinna stærri mála, alveg sérstaklega þessa húsnæðislánamáls, sem hér er nú á dagskrá, raforkumálanna, sem leyst voru á s.l. þingi, og reyndar fleiri mál til tekin.
Ég held, að mönnum geti ekki um það blandazt hugur, sem til þekkja, og ég geri ekki ráð fyrir heldur, að það verði vefengt, að í þessu máli er það svo, að það er enginn einn af ráðherrum ríkisstjórnarinnar, sem umfram aðra á heiður skilið fyrir framgang þess, ekki heldur í sambandi við lausn raforkumálanna á s.l. þingi, og ég segi það engan veginn til lasts þeim hæstv. ráðh., sem þessi mál falla nú undir, félmrh. í þessu tilfelli og landbrh. í sambandi við raforkumálin á s.l. þingi. — Þetta er nú mál út af fyrir sig, og ef hæstv. ráðherrum Framsfl. finnst það vera líklegt til þess að vaxa af, að stjórnarblaðið æ ofan í æ sé að gera þá meiri af málum, sem þeir hafa ekki mikið umfram aðra aðila í stjórninni haft af að segja, þá er það þeirra mál. Ég fyrir mitt leyti álít, að það sé ekki stórbrotin mynd af stjórnarsamstarfi, sem gefur að líta í sambandi við slík skrif.
Í sambandi við það, sem hér hefur verið víkið að, skal ég aðeins nefna nokkur atriði.
Í sambandi við útlánaaukninguna hefur hv. þingmönnum hér mörgum hverjum úr stjórnarandstöðunni fundizt lítið til þessa frv. koma og það í raun og veru einskis virði. Sérstaklega hafa þeir lagt áherzlu á það, hvernig í ósköpunum menn eigi að fara að hagnýta sér lán ekki nema 70–100 þús. kr. út á íbúðir, þegar byggingarkostnaðurinn sé miklu meiri, og að öllu þessu athuguðu sé slík lánastarfsemi lítils eða einskis virði.
Ég sagði í ræðu minni hér í gær, að það, sem menn yrðu að gera sér grein fyrir, væri það ástand, sem við fram til þessa höfum búið við, og hvaða úrbætur felast í því máli, sem hér er um að ræða, frá því. Langveigamesta atriðið í því er, að hér er lagður grundvöllur að því að leysa þetta mál til frambúðar með því, að sett er á laggirnar veðiánakerfi, sem tryggt er fé til næstu tvö árin, eins og segir í grg., en vonir standa til að haldið geti áfram og ekki aðeins í sama mæli og stofnað er til þess, heldur af sjálfu sér aukizt og vaxið í framtíðinni. Þessu hefur ekki verið til að dreifa á undanförnum árum, heldur aðeins smávægilegar bráðabirgðaúrlausnir í sambandi við lánsfjármálin til íbúðabygginga.
Í grg. þessa frv. er vikið að því, að það séu a.m.k. 40 millj. kr. á næstu 2 árum, sem telja megi aukið fé til íbúðabygginganna. Það hefur verið vefengt og m.a. vegna þess, að 20 millj. hafa á s.l. ári verið tryggðar til smáíbúðalánadeildarinnar, en hverfi nú á þessu ári inn í þetta nýja lánakerfi. Sannleikurinn er sá, að það liggur ekki neitt fyrir um framhald þess lánsfjár. Lánadeild smáíbúða var útvegað fé af hæstv. núverandi og fyrrverandi ríkisstj., 10 millj. kr. árið 1953 og 20 millj. kr. 1954, með því móti, að Landsbankinn lánaði gegn þeim skilyrðum, að bundnar yrðu jafnháar upphæðir af mótvirðisfé í bankanum, þangað til þessi lán yrðu greidd. En það liggur ekkert fyrir um það, að hægt hefði verið að fara þessar sömu leiðir áfram, svo að eins og málið horfir við núna, er það augljóst, að með þessu móti er tryggt 40 millj. kr. nýtt lánsfé til íbúðabygginganna. En vegna þess að hæstv. ríkisstj. hafði ekki á s.l. þingi unnizt tími til þess að leggja fram þetta frv., sem nú liggur fyrir, var á því stigi málsins látið sitja við þá bráðabirgðaúrlausn að afla heimildar til 20 millj. kr. lántöku fyrir smáíbúðalánadeildina, og gekk ríkisstj. síðan í að útvega þetta fé.
Það hefur verið vitnað hér í stjórnarsamning ríkisstj., þegar hún settist að völdum í sept. 1953. Það má segja, að fyrstu efndirnar varðandi lánsfjármálið til íbúðabygginga á því sviði hafi verið þessi 20 millj. kr. lánsheimild 1953, en í öðru lagi það frv., sem nú liggur hér fyrir.
Því var haldið fram bæði af hv. 9. landsk. þm. (KGuðj) og 11. landsk. (LJós), að þetta frv. væri eiginlega lánakerfi fyrir Reykvíkinga, það væri verið að draga þessi mál, lánsfjármálin, meira til höfuðstaðarins með „sentraliseraðri“ yfirstjórn hér, og fundu þeir þessu mikið til foráttu. Sannleikurinn er sá, að samkv. þessu frv. geta þær lánsstofnanir, sem úti á landi eru, eins og sparisjóðir og útibú bankanna, lánað beint í samræmi við reglur þessa frv., alveg eins og þær hafa gert fram að þessu, eða meira, ef þær óska. En það er hins vegar gert ráð fyrir, að þær geti einnig keypt bankavaxtabréf veðdeildarinnar og lánin þannig gengið í gegnum veðdeild Landsbankans og þó með þeirri viðbót, að sparisjóðirnir eigi þá um leið kost á því, ef þeir kjósa heldur að kaupa bankavaxtabréf veðdeildarinnar, að ráðstafa um leið, hverjir í byggðarlagi viðkomandi sparisjóðs skuli fá þau lán, sem veðdeildin lánar. En það skiptir mestu í sambandi við þetta, þegar því er haldið fram, að hér sé um að ræða lánakerfi fyrir íbúa Reykjavíkur, að með því að bankarnir hafa bundizt í það að kaupa svo og svo mikið af bankavaxtabréfum af veðdeild Landsbankans og leggja nýtt fé til íbúðalánanna umfram það, sem verið hefur, þá er beinlínis verið að flytja sparifé, sem leggst til hér í Reykjavík, út um landsbyggðina. Þegar sú staðreynd er höfð í huga, þá sjá menn, hversu fjarstæðukenndar ásakanir það eru, að hér sé verið að stofna eitthvert sérstakt lánakerfi fyrir íbúa Reykjavíkur umfram það, sem verið hefur.
Því er sem sagt haldið fram, að hér sé um enga úrlausn að ræða. Sannleikurinn er sá, að hér eru verulegar úrbætur frá því, sem áður hefur verið, og ef t.d. sveitarstjórnir aðrar á landinu hefðu brugðið við eins og bæjarstjórnin í Reykjavík, þá sjá menn strax, hvaða þýðingu frv. eins og þetta hefur. Bæjarstjórn Reykjavíkur hófst handa um að undirbúa áætlun um útrýmingu heilsuspillandi húsnæðis, eftir að fyrirheit vorn gefin af hæstv. ríkisstj. um að leysa lánsfjármálin til íbúðabygginga til frambúðar, og 13. apríl 1954 voru samþ. ályktanir hér að lútandi í bæjarstjórn Reykjavíkur og þá við það miðað, að takast mætti að útrýma öllum herskálaíbúðum hér á næstu 5 árum. Það, sem svo hefur gerzt, meðan ríkisstj. hefur undirbúið sitt mál, er það, að hafizt var handa um byggingu, í fyrsta lagi skipulagningu raðhúsahverfis fyrir innan Bústaðavegshverfið þegar í stað fyrir um 200 íbúðir á ýmsan hátt ódýrari en íbúðir hafa verið fram að þessu og t.d. með þeirri nýjung að koma þar upp sameiginlegu upphitunarkerfi, þannig að þá mætti í þessu hverfi hagnýta heita vatnið á þeim tíma árs, þegar það er nægjanlegt fyrir hendi, þó að um köldustu mánuðina yrði að kynda með olíu í þessu byggðarhverfi. Á s.l. hausti var svo ákveðið að undirbúa áfram framkvæmdir á þessum sama grundvelli, og nú ekki alls fyrir löngu hefur bæjarráð boðið út til viðbótar 98 íbúðir í þessu sama raðhúsahverfi og ákveðið að hefjast handa um byggingu tveggja blokkbygginga með 48 íbúðum. Þessar ákvarðanir bæjarstjórnar Reykjavíkur, sem gerðar hafa verið meðan þetta mál var í undirbúningi, þýða það, að þegar er hafizt handa um og verið að undirbúa byggingu á 151 íbúð, sem beinlínis er ætlað það hlutverk að koma í staðinn fyrir heilsuspillandi íbúðir og þá fyrst og fremst herskálaíbúðir í höfuðstaðnum.
Það hefur að vissu leyti dregið úr hraðanum í framkvæmd Reykjavíkurbæjar, að málið hefur þurft meiri undirbúning en gert var ráð fyrir. En eins og þessi mál horfa nú við, þá gerir bæjarstjórn Rvíkur ráð fyrir því að geta fullkomlega hagnýtt sér það, sem hér er boðið upp á, lánveitingarnar annars vegar og styrkveitingarnar hins vegar til útrýmingar heilsuspillandi íbúðum, til þess m.a. að ná því marki, sem að er stefnt, að útrýma þeim á næstu fimm árum. Það er meira um vert, að sveitarstjórnirnar og bæjarstjórnirnar hafi hug á því að gera sér grein fyrir því, sem er unnið á Alþingi, og hagnýta það eftir föngum, heldur en að rísa hér upp hver á fætur öðrum til þess að miklast yfir því, að einskis virði sé það, sem um er að ræða, þegar það verður þó ekki hrakið, að verið er að veita nýtt fjármagn. sem nemur milli 40 og 45 millj. kr. á ári, inn í íbúðarhúsabyggingar og öðrum þræði að koma nýju heildarskipulagi á þessi mál.
Ef við lítum yfir farinn veg, þá sjáum við, að þrátt fyrir það að á undanförnum árum hafi verið svo mjög í ólestri íbúðarlánamálin eins og margsinnis hefur verið vikið að og aðalfasteignalánastofnunin í þessu efni, veðdeild Landsbankans, verið raunverulega óstarfhæf, þá hefur samt sem áður við þau skilyrði verið byggt gífurlega mikið, og það hefur verið byggt meira af íbúðum í Rvík á undanförnum áratug, síðustu 10 til 20 árin, en til þess að mæta þeirri fólksfjölgun og því aðstreymi, sem hingað hefur orðið til bæjarins. Þetta er staðreynd, sem rétt er að menn reyni að gera sér grein fyrir og festa sér í minni, því að enda þótt þetta sé rétt, þá er samt sem áður við mikinn húsnæðisskort að etja í höfuðstaðnum, og það er m.a. vegna þess, að betri efnahagur hefur leitt til þess, að menn hafa stækkað við sig íbúðir frá því, sem áður var, og tekið til eigin þarfa stærra og betra húsnæði en þeir höfðu áður. Þetta leiðir af þeirri velmegun, sem almenningur hefur búið við á undanförnum árum, og þeim bætta efnahag, sem þjóðin á þessum síðasta áratug hefur tileinkað sér. Það hefur þess vegna verið við margþætta örðugleika að etja, sérstaklega í höfuðstað landsins og nágrenni, í sambandi við húsnæðisskortinn, ekki aðeins hið mikla aðstreymi fólksins og miklu fólksfjölgun þar af leiðandi, heldur einnig hitt, að almenningur hefur gert meiri kröfur til íbúðarhúsnæðisins, og það á öllum sviðum og m.a. í byggingarfélögum þeirra, sem lægst eru launaðir, byggingarfélögum verkamanna, því að íbúðirnar í þeim flokkum, sem byggingarfélög verkamanna hafa hér og annars staðar byggt á undanförnum árum, hafa stöðugt farið stækkandi. Íbúðirnar hafa stöðugt stækkað, eru bæði stærri og betri þægindum búnar, og á þetta alveg eins við í þessu sambandi um þá lægst launuðu og aðra borgara þjóðfélagsins. En í sambandi við aðstöðu verkamanna og þeirra lægst launuðu til þess að hagnýta sér þetta lánsfé, sem hér er upp á boðið, þá get ég naumast skilið það, að menn eru stöðugt að tala um, að þetta séu of dýr lán, ekki til lengri tíma en 25 ára og með þessum vöxtum, fyrir þá, sem hafa lægst launin, vegna þess að þessi lán eru ekki fyrst og fremst ætluð þeim, sem eru lægt launaðir, heldur eiga þeir að fá að njóta þeirra sérstöku kjara, sem byggingarsjóður verkamanna býður upp á. Og í einni grein þessa frv. er beinlínis ákveðið, að byggingarsjóður verkamanna geti fengið aukið starfsfé gegnum þetta veðlánakerfi, og verkamenn eiga þess vegna að hafa aðgang að honum. Það, sem ber að leggja áherzlu á til þess að gefa þeim betri aðstöðu en verið hefur til þess að fá hagkvæm lán til sinna íbúðabygginga, er að auka lánsfé byggingarsjóðs verkamanna og tryggja betur en verið hefur, að aðganginn að þeim sjóði hafi fyrst og fremst verkamennirnir sjálfir og þeir, sem ]ægst eru launaðir. Það fær þess vegna ekki staðizt sú gagnrýni, sem stöðugt er haldið hér fram, að þetta séu of óhagstæð lán, sem hér er um að ræða, fyrir þá, sem lægst hafa launin, vegna þess að þeir eiga aðgang og þeim er beinlínis ætlaður aðgangur að öðru lánakerfi en hér er um að ræða.
Hv. 2. þm. Reykv. varði allmiklu. af ræðutíma sínum í að vitna í fyrri ræður mínar hér á þingi um lánsfjármálin og sérstaklega það, að ég og fleiri þingmenn Sjálfstfl. höfðum flutt á þingi 1952 frv. til laga um eflingu veðdeildar Landsbankans, og að það hefði verið nokkuð annar tónn í mér og okkur öðrum sjálfstæðismönnum þá heldur en nú. — Við fluttum okkar frv. um það á þinginu 1952, að ríkisstj. yrði heimilt að taka að láni 30 millj. kr. eða jafnvirði þeirrar fjárhæðar í erlendri mynt til þess að efla veðdeild Landsbankans. Ég fyrir mitt leyti álit, að sú tilraun okkar til þess að efla veðdeildina þá hafi m.a. átt sinn þátt í því lánsfé, sem fyrir tilverknað ríkisstj. og þings fékkst til lánadeildar smáíbúða og árin 1953 og 1954 nam samtals 36 millj. kr. En í því frv., sem hér liggur fyrir, er einmitt gert ráð fyrir því að efla stórum og opna að nýju veðdeild Landsbanka Íslands, og er henni þess vegna með lögum veitt heimild til að gefa út bankavaxtabréf, samtals allt að 200 millj. kr., eins og nánar er tilgreint í 3. gr.
Þetta held ég að sé nákvæmlega í samræmi við það, sem við fluttum á sínum tíma hér í þinginu, þingmenn Sjálfstfl. Og rétt fyrir kosningarnar 1953 skrifaði ég einmitt um þessi lánamál í sama anda og vil leyfa mér aðeins að vitna til niðurlags greinar um þau í Morgunblaðinu 11. júní 1953. Þar segir, með leyfi hæstv. forseta:
„Það, sem mest skortir nú á í lánsfjármálunum til íbúðabygginga, er að samræma lánsfjárgetu þjóðarinnar og gæta réttlætis og jafnvægis í byggingarmálunum til sjávar og sveita og milli þegnanna innbyrðis. — Varðandi byggingar í kaupstöðum og kauptúnum verður að efla almenna lánastofnun til íbúðabygginga, og er það hægast að endurskapa veðdeild Landsbankans. — Það verður að endurskoða þær reglur, sem gilda um lífeyrissjóði og eftirlaunasjóði, og að rannsökuðu máli að veita því, sem sparast og aflögu er, til byggingarlána í heilbrigðan farveg. — Hér bíður mikið verkefni þings og stjórnar.“
Ég hygg, að mjög sé í samræmi einmitt við þær skoðanir, sem þarna eru fram settar, sú efling á veðdeild Landsbankans, sem hér er lagt til að gerð verði.
Hv. stjórnarandstæðingar hafa að vísu miklað það mjög fyrir sér, að það eigi að setja samkv. 1. gr. sérstaka húsnæðismálastjórn og hún eigi að ráða útlánunum. Gera þeir mjög mikið úr því, að það sé mikil hætta á pólitískri misbeitingu valdsins hjá þessari húsnæðismálastjórn, og þeir um það. En ég verð fyrir mitt leyti að álíta, að þrír menn, sem skipaðir eru með þeim hætti, sem segir í þessu frv., til þess að gegna hlutverki húsnæðismálastjórnar, ættu síður en svo að vera óhæfari til þess að gegna því hlutverki á heiðarlegan og sómasamlegan hátt en þeir, sem nú velta útlánin úr veðdeild Landsbankans. En að öðru leyti er það veðdeildin, sem á að hafa alla forgöngu um öflun lánsfjárins og alla starfræksluna á hendi.
Það er þess vegna í fyllsta samræmi við það, sem bæði ég og aðrir þm. Sjálfstfl. hafa haldið fram, hvernig meginatriði þessa frv. eru. Hitt er svo staðreynd, eins og ég sagði strax í upphafi máls míns, að þegar um jafnumfangsmikil mál er að ræða og þessi, þá getur menn vissulega og hefur nokkuð greint á um það, í hvaða form skyldi skipa málunum, og því hefur verið lýst hér, að sumar tillögur húsnæðismálanefndar gerðu ráð fyrir öðru formi þessa máls en það nú er komið í. Einnig geta menn að sjálfsögðu lengi deilt um það, að slík löggjöf eins og þessi sé ekki fullnægjandi, og er sannast að segja erfitt að fóta sig á því, hvenær orðin sé fullnægjandi aðstaða manna til lánsútvegunar í sambandi við íbúðabyggingar. En það, sem veigamest er og skiptir máli í þessu sambandi, er, að hér er um stórvægilega framför að ræða frá því, sem verið hefur. Það má ætla, eftir að þetta frv. verður orðið að lögum, að almenningur eigi kost á verulega ríflegri lánum en menn hafa átt kost á fram að þessu, allt að 100 þús. kr., og með þessu frv. er stofnað til nýs veðlánakerfis, sem ætla má að geti náð þeim tilgangi að koma þessum málum á heilbrigðan grundvöll og koma þannig í veg fyrir þann mjög svo óheilbrigða svarta markað, sem átt hefur sér stað í sambandi við lánsfjármál til íbúðarhúsabygginga, eins og bæði ég og aðrir hv. þm. hafa vikið að. Og þegar þetta er haft í huga, þá furðar mig á því, að þingmenn skuli koma hér upp í ræðustólinn og telja einskis virði það, sem stofnað er til með frv. slíku sem hér er á ferðinni.