25.04.1955
Neðri deild: 77. fundur, 74. löggjafarþing.
Sjá dálk 1082 í B-deild Alþingistíðinda. (1238)
183. mál, húsnæðismál
Einar Olgeirsson:
Herra forseti. Hv. 1. landsk. þm., sem var framsögumaður fyrir hv. minni hluta fjhn., sagði við 2. umr. þessa máls, að það væri á þessu frv. hæstv. ríkisstj. íhaldssvipur, og meinti auðsjáanlega þar með, að þetta frv. bæri mjög greinilega með sér svipinn af því afturhaldi, sem meir og meir virðist einkenna Sjálfstfl. í hans afstöðu og hann eftir þessu frv. að dæma meira og meira er að draga Framsfl. með sér í.
Ég hef flutt hér á þskj. 614 nokkrar brtt. við þetta frv., og ég vildi eiginlega segja um þær brtt., máske í ofur lítið annarri merkingu en hv. 1. landsk. þm., að það væri raunverulega íhaldssvipur á mínum till., en íhaldssvipur í þeirri merkingu, að í öllum þeim till.; sem ég flyt á þskj. 614, er held ég mér sé óhætt að fullyrða ekki ein einasta till., sem hefur ekki verið í lögum það sem af er þessari öld. Mínar brtt. ganga aðeins út á eitt, og það er að fá að halda í l. því, sem sett hefur verið í l. á einum eða öðrum tíma, það sem af er þessari öld, m.ö.o., að þær endurbætur, sem hafa verið samþ. á síðustu 20–30 árum, fái að haldast í l. áfram. Ég er m.ö.o. að gera till. um, að í staðinn fyrir að afnema smátt og smátt þær endurbætur, sem menn hafa barizt fyrir og fengið inn í löggjöf, haldi menn nú þessum endurbótum í löggjöfinni. Og ég verð að segja, að það er nú orðið anzi hart, ef ég og minn flokkur, sem ekki höfum verið kenndir við íhald, verðum að fara að berjast fyrir því að taka upp þær till., sem meira að segja íhaldsflokkur, sem þá hét Íhaldsflokkur og var það, Framsfl. og ég tala ekki um Alþfl. eða Sjálfstfl. og Sósfl. saman hafa sett í löggjöf á undanförnum áratugum. Það er orðið anzi hart, þegar við verður að fara að beita okkur alveg sérstaklega fyrir því að fá að halda þessum hlutum í löggjöf þjóðarinnar, en út á það ganga þó þessar till., sem ég er með. Enn fremur felst annað í þessum brtt., og það er það, að með þeim er þetta frv. ríkisstjórnarinnar, sem hér liggur fyrir, eiginlega sett á sinn stað í heildarlöggjöfinni um húsnæðismálin.
Eins og menn hafa veitt eftirtekt, þá fer frv. ríkisstj. fram á að fella III. kaflann út úr l. um opinbera aðstoð við byggingu íbúða í kaupstöðum og kauptúnum. Ég verð að segja, að ég er orðinn ákaflega leiður á þeirri löggjöf, bara hreint lögfræðilega séð, sem gengur út á það að fella úr gildi ákveðna kafla úr l., láta aðra kafla standa og láta löggjöfina þannig smám saman verða þannig völundarhús, að sá almenni maður botnar varla í því, í staðinn fyrir að hafa löggjöf sem allra aðgengilegasta. Ég sé, að sérstaklega einn af hæstv. ráðh. hefur haft alveg sérstaklega mikla tilhneigingu til þess, sem kallað er nú á lagamáli að „kodifísera“ á þennan hátt, taka saman í einn lagabálk þá hluti, sem fyrir eru, og reyna að laga þetta að nokkru leyti, sem sé hæstv. dómsmrh. Rannverulega er ég þess vegna með þeim brtt., sem ég flyt fram, að taka saman í einn lagabálk og setja þar með líka núverandi frv. ríkisstj. á sinn stað í slíkum lagabálki, sem nú þegar er til. En breytingarnar, sem ég geri á þessum lagabálki, eru raunverulega aðeins þær að koma þarna aftur í gildi þeim l., sem áður hafa verið um þetta, og skal ég nú, eins stutt og ég get, fara út í þær breytingar, sem felast í þessum brtt. mínum,
Í fyrsta lagi set ég þarna á undan elna sérstaka gr. um rétt íslenzkra ríkisborgara til þess að fá að byggja sér íbúð, og þar með líka um skyldu, sem lögð er á herðar byggingarnefnd í kaupstöðum og kauptúnum að leyfa slíkar byggingar og mæla út lóðir handa mönnum. Ég vil minna menn á, að frá því að kauptún og kaupstaðir voru myndaðir á Íslandi og fyrstu áratugina þar á eftir var það réttur, sem hver einasti maður hafði, sem flutti til kaupstaðar eða kauptúns, að fá útmælda lóð. Það var réttur, sem danskt konungsvald gaf okkur hér á Íslandi og hét hverjum einasta manni, sérstaklega þó þeim mönnum, sem iðn vildu stunda, að geta fengið útmælda lóð til þess að byggja sér hús á, og hann fékk þessa lóð gefins. Þetta voru sjálfsögð mannréttindi á þessum tíma. Ég vil bara undirstrika þetta, að á þeim tímum, sem ekki var einu sinni neitt lýðræði til á Íslandi, ekki þau almennu lýðréttindi, ekki sá almenni leynilegi kosningarréttur, þá var þessi réttur til. Maður, sem settist að í einum kaupstað eða kauptúni, fékk útmælda lóð og það gefins til þess að byggja sér hús á. Þessum rétti hafa menn verið sviptir, þannig að nú er það meira að segja svo, að þó að menn borgi leigu eftir þá lóð, sem þeir fá í einum kaupstað eða kauptúni, þá þurfa þeir að ganga á eftir alls konar skriffinnum í stjórn viðkomandi bæjar eða kaupstaðar, bíða eftir því stundum jafnvel árum saman að fá útmældar lóðir.
Það er náttúrlega sjálfsagt, eins og tekið er hér fram, að bæjarstjórn getur vísað manni á rétt til að byggja sér hús, þó að hún mæli fyrir lóð, þar sem er ætlazt til þess, að byggð séu hús, sem séu t.d. þrjár hæðir eða meira, og hefur hann rétt til þess að byggja í slíkri samstæðu og þarf þá bara að koma sér saman við nokkra aðra um að hagnýta slíka lóð þannig. Auðvitað er gefið mál, að það geta ekki allir fengið lóðir undir einbýlishús í nútímaborg. En það að geta fengið leyfi til þess að byggja sín hús á lóð, jafnvel þó að menn verði að eiga þá lóð með fleirum, er réttur, sem menn þurfa að hafa. Legg ég til að byrja lögin á ákvæði um réttindi manna til þess að byggja sér hús og til þess að eignast hús. Það er raunverulega undarlegt, að það skuli þurfa að ákveða slíkt og að þurfa skuli að taka þannig upp í löggjöf nú á tímum það, sem að nokkru leyti var réttur manna fyrir 100 árum, og endurnýja þannig viss réttindi, sem dönsk stjórn á Íslandi veitti okkur, en íslenzk stjórn hefur raunverulega neitað okkur um. — Ég held þess vegna, að menn ættu að geta fallizt á það að samþ. þessa 1. gr.
Þá er viðvíkjandi I. kaflanum, sem ég legg til að komi þarna um verkamannabústaði. Hann er að öllu leyti, nema í tveim atriðum, eins og nú er í lögum. Og þessi tvö atriði, sem þarna eru öðruvísi, eru í fyrsta lagi í 4. gr., um tekjurnar. Þar stendur í 3. undirlið: „Ríkissjóður leggur árlega í sjóðinn helminginn af tekjuafgangi ríkisins af einkasölu á tóbaki.“ Það eru nú rúmlega 30 ár síðan það var sett í löggjöf, að tekjur ríkisins af einkasölu á tóbaki skyldu skiptast í tvennt, annar helmingurinn skyldi renna til verkamannabústaðanna, til byggingarsjóðs verkamanna, og hinn skyldi renna til byggingarsjóðs sveitanna. Þetta var í löggjöf, og þegar tóbakseinkasalan upprunalega er sett á, þá er hún sett á og alþm. eru fengnir til þess að greiða henni atkv. á þeirri forsendu, að með því að taka þennan gróða til ríkisins af tóbakseinkasölunni, þá séu þeir að vinna það góða verk að leggja grundvöll undir byggingarnar fyrir verkamenn og fyrir bændur. Svo er þetta á krepputímanum nokkru seinna afnumið. En það á bara ekki að láta það haldast uppi, að svona sé alltaf farið að. Það er svo að segja hver einasti nýr skattur, sem á er lagður, alltaf lagður á með þessum forsendum. Það á að vinna gott verk með þessu. Síðan er það góða verk meira eða minna látið niður falla rétt á eftir, en skattinum er haldið og notaður sem almennur skattur fyrir ríkissjóð. Alveg sama var á sinn hátt með söluskattinn, þegar hann var lagður á til þess að tryggja það, sem átti að greiða í uppbót á fiskinn. Svo er fiskverðstryggingin felld burt og skattinum haldið. Mín till. fer bara fram á að setja þetta aftur í l., sem var í l. fyrir 20 árum og við settum í l. meira að segja um það leyti, sem kreppan var að byrja hérna á Íslandi, og fannst þá rétt. Mér finnst, að við ættum að geta komið okkur saman um að setja þetta í l. nú aftur, og svo framarlega sem það er gert, því að tóbakseinkasalan gefur af sér rúmar 40 millj. kr. nú, þýðir það náttúrlega 20 millj. kr. til verkamannabústaðanna. Ef það sama er gert viðvíkjandi byggingarsjóði sveitanna, þá þýðir það 20 millj. kr. til þeirra. M.ö.o.: Það er þarna ekki um neina ógurlega róttæka till. að ræða hjá mér. Það er bara um till. að ræða, sem meira eða minna íhaldssamur meiri hl. hér á Alþ. samþ. fyrir rúmum 20 árum og gerði þá að l. En þetta vildi ég taka upp aftur, setja þessa endurbót inn í l. á ný, og þá um leið leysa þau vandamál, sem verið hafa viðvíkjandi tekjuspursmálunum í þessu efni, á mjög einfaldan hátt.
Svo er hitt atriðið, sem ég legg til að breyta. Það er í sambandi við byggingarfélögin í f-lið eða 5. gr. á bls. 2, þar sem stendur: „Í Reykjavík mega þó vera tvö byggingarfélög verkamanna, og skulu félög þau, sem nú starfa þar, öðlast viðurkenningu og njóta réttinda samkvæmt lögum þessum.“
Eins og mönnum er kunnugt, var Byggingarfélag alþýðu hið upphaflega byggingarfélag, sem starfaði hér í Reykjavík, og byggði verkamannabústaðina vestur í bænum. 1939 var það félag útilokað frá því að geta fengið að starfa áfram og nýtt félag myndað. Hér er lagt til, að bæði þessi félög fái að starfa, fái að halda áfram og þetta gamla byggingarfélag alþýðu, sem var brautryðjandafélagið og á 25 ára afmæli í næsta mánuði, fái að halda áfram að vinna að því með sömu kjörum og önnur byggingarfélög verkamanna að byggja fyrir verkamenn hér í Reykjavík. Ég býst ekki við, að það sé neinn þm., sem á sæti á þingi nú, sem lengur stendur með því, sem gert var 1939, þegar Byggingarfélag alþýðu var útilokað, þannig að ég vildi leyfa mér að vonast til þess, að menn geti nú fallizt á að gera þessa breytingu.
Þá er næsti kaflinn, sem hjá mér er II. kaflinn, um byggingarsamvinnufélög. Hann er tekinn upp eins og var. Á því er engin breyting.
Þá er III. kaflinn, sem er hjá mér 28. gr. og næstu gr. þar á eftir, um útrýmingu heilsuspillandi íbúða. Þar tek ég aftur upp þá gömlu kaflafyrirsögn, sem var um þetta áður, en nú hljóðar á nokkuð annan hátt í núverandi lagabálki, og ég legg þarna til, að við höfum þann hátt á um þennan kafla, sem var í upphafi. Þegar þessi kafli var settur í l. 1946, var þetta eitt það róttækasta og stórvirkasta, ef það væri framkvæmt, sem gert hafði verið í íslenzkri löggjöf hvað húsnæðismál snertir, enda þá líka nauðsynlegt að taka harðar á og vinna stærra verk en nokkru sinni áður, til þess að hægt væri að útrýma alveg sérstaklega herskálaíbúðum í Reykjavík. Núna liggur það fyrir í till. ríkisstj. að afnema þennan kafla, fella hann niður, og því er ég algerlega á móti, eins og ég hef áður lýst. Ég álít, að þessi kafli eiga að standa áfram alveg eins og hann var upphaflega með þeirri skyldu á herðum ríkisins að aðstoða viðkomandi bæjarfélög, jafnvel með 75% lánum, til þess að koma því í gegn að afnema alveg herskálabyggingarnar. Það er engum efa hundið, að þetta er hlutur, sem ekki er nein „fantasía“. Þetta er hlutur, sem er vel framkvæmanlegur. Það er ekki nema nokkuð á annað hundrað millj. kr., sem það mundi kosta að byggja í staðinn fyrir allar braggaíbúðirnar hér í Reykjavík nú, og á annað hundrað millj. kr. er ekki meira en og ekki alveg það, sem venjulegur tekjuafgangur hefur verið á tveim árum hjá ríkissjóði. Það er ekki nóg, m.a. af þeim mönnum, sem þetta frv. flytja og þetta frv. styðja, hjá hæstv. ríkisstj., að tala um, hvílíkur smánarblettur herskálaíbúðirnar séu, en fást ekki til þess að gera þá raunhæfu hluti, sem þarf til þess að útrýma þeim tafarlaust.
Ég efast ekki um, að ef Reykjavíkurbær fengi kost á því að fá svona aðstöðu til lána eins og hann fengi með því, að kaflinn um útrýmingu heilsuspillandi íbúða væri settur í fullt gildi aftur, þá mundi hann hagnýta það tafarlaust. Reykjavíkurbær sýndi það 1946 með byggingu Skúlagötuhúsanna, að hann var reiðubúinn að hagnýta sér þessa aðstöðu. Skúlagötuhúsin voru öll byggð samkvæmt þeim réttindum, sem veitt voru eftir l. um útrýmingu heilsuspillandi íbúða, og þau voru fyrst stöðvuð, þegar það var fellt úr gildi hér á Alþ., að bæirnir hefðu þann rétt, með því bráðabirgðaákvæði, sem þá var samþ. um, að bæirnir hefðu ekki þennan rétt, nema veitt væri sérstakt fé til þess á fjárlögum. Ég man eftir, þegar sú bráðabirgðabreyting var samþ., sem frestaði framkvæmd þessara l., að flestir þm. Sjálfstfl. í Reykjavík greiddu atkv. með okkur sósíalístum á móti þeirri bráðabirgðabreytingu og jafnvei fleiri, hv. þm. N-Ísf. (SB), ef ég man rétt, og fleiri menn, sem voru algerlega á móti því að svipta bæina þessum rétti. Þess vegna er það gefið, að ef við eigum að vinna þetta verk, þá er það áreiðanlega það bezta, sem við getum gert, að láta þessi l. gilda.
Þarna er því um að ræða frá minni hálfu að láta löggjöf standa, sem samþ. var fyrir 9 árum, samþ. var þá af Sjálfstfl., Alþfl. og Sósfl. sem stjórnarflokkum. Það er þess vegna ekki um að ræða þarna nýja löggjöf, heldur aðeins að halda endurbót, sem áður er samþ., á sama hátt og var viðvíkjandi verkamannabústöðum og byggingarsjóði sveitanna með tekjunum af tóbakseinkasölunni og annað slíkt.
Svo legg ég til, að komið sé á nýjum kafla, sem heiti: „Um veðlán til íbúðabygginga“ — og þar tek ég raunverulega upp þá hluta úr frv. hæstv. ríkisstj., sem mér þykir við eiga og horfa til framfara. M.ö.o.: Með III. kaflanum í mínu frv. verður raunverulega II. kaflinn í frv. ríkisstj. óþarfur, því að hann fer aðallega fram á að afnema l. um útrýmingu heilsuspillandi íbúða, en með IV. kaflanum í mínum brtt. tek ég það upp úr I. kaflanum í ríkisstjórnarfrv., sem mér þykir framför að. Ég kalla það: „Um veðlán til íbúðabygginga“ — og þar er ákveðið í þeirri gr., sem þá yrði í þessum lagabálki 39. gr., að komið skuli á fót almennu veðlánakerfi til íhúðabygginga undir yfirstjórn veðdeildar Landsbanka Íslands.
Þetta eru ekki heldur neitt sérstaklega róttækar till. hjá mér. Raunverulega fara þessar till. aðeins fram á að setja aftur í l. það, sem var í l. sumpart fyrir 50, sumpart fyrir 30–40 árum. Þegar veðdeild Landsbankans var sett á stofn, þá var það hennar hlutverk að sjá um þau almennu veðlán til íbúðabygginga, þ.e. til hins almenna borgara, þess, sem ekki hafði alveg sérstaka kröfu á því, að það opinbera hjálpaði honum, við skulum segja eins og þeir menn, sem nú búa í herská]unum, eða þeir menn, sem eru verkamenn og hafa það litlar tekjur, að þeir koma inn undir verkamannabústaðina. Með veðdeild Landsbankans var upphaflega verið að skipa þannig málum, að sá almenni borgari, sem átti ekki alveg sérstaka kröfu á aðstoð frá því opinbera, gæti fengið þarna eðlilegan aðgang að láni til bygginga. Og ég vil segja það sérstaklega við þá yngri þm., sem muna kannske ekki aftur í tímann fyrir 1930, að það þótti alveg sjálfsagður hlutur, að minnsta kosti í öllum þeim bæjum á Íslandi, sem ég hef dvalið í meira eða minna, ef einn maður réðst í það að byggja, að hann gæti fengið víxillán í hvaða banka eða sparísjóði sem hann fór í út á sína byggingu, meðan hann var að byggja hana, og að víxlarnir væru settir yfir í veðdeild, þegar hann væri búinn að byggja.
Ég vil aðeins taka þessa hluti fram vegna þess, að nú á tímum finnst mönnum það yfirleitt orðið alveg sérstök náð, að menn fái lán til þess að byggja íbúðarhús, — að menn þurfi helzt ekki aðeins að geta byggt það fyrir eigin peninga án þess að fá nokkra víxla á meðan, heldur jafnvel að menn þurfi að geta komið sér sérstaklega vel við stjórnarflokkana í landinu til þess að fá aðra eins náð og það að fá að byggja fyrir framtíðina hús, sem kemur til með að standa 2–3 aldir. Þá var enn þá það heilbrigður hugsunarháttur í þessum hlutum, að ef einn maður vildi leggja það á sig og hafði einhverja aðstöðu til þess að geta byggt sér hús, þá þótti sjálfsagt, að þjóðfélagið aðstoðaði hann og veitti honum lán til þess.
Þessi kafli í mínum brtt. fer þess vegna raunverulega fram á að gera veðdeildina aftur að því, sem hún einu sinni var, og á vissan hátt miðar frv. ríkisstj. að því sama. Á vissan hátt er það innihald í frv. ríkisstj. að koma veðdeildinni aftur í gang. Hins vegar hefur ríkisstj. lætt því inn í sitt frv. að setja svo að segja aðra stjórn yfir hana, þessa svokölluðu húsnæðismálastjórn. Þann hluta úr stjfrv. felli ég alveg burt. Ég legg þarna til, að þetta veðlánakerfi sé, að svo miklu leyti sem það snertir veðdeild Landsbankans, undir stjórn Landsbankans, eins og verið hefur tilgangurinn og í framkvæmd meðan veðdeild Landsbankans á annað borð starfaði.
Ég skal nú ekki fara sérstaklega mikið út í þær einstöku breytingar. Þegar hv. þm. líta yfir þetta, þá munu þeir sjá, að meginið af því, sem hæstv. ríkisstj. er með í sínu frv. í I. kaflanum, er tekið þarna upp, öll ákvæði viðvíkjandi 200 millj. kr., viðvíkjandi A- og B-flokkunum, viðvíkjandi öllum þeim ákvæðum, sem hún hefur um bankavaxtabréfin, líka ákvæðin um, að smám saman skuli lánadeild smáibúðanna renna inn í þetta veðlánakerfi, þegar hennar sérstaka hlutverki væri lokið, og annað slíkt, aðeins sé strikað út það, sem sérstaklega snertir húsnæðismálastjórnina sem slíka.
Þó er ein breyting, sem ég hef gert í þessum efnum, og hún er, að á eftir því, sem í frv. ríkisstj. er 6. gr., um aðalútlánareglurnar, komi ný grein, sem hjá mér er 8. brtt., að á eftir 6. gr. komi ný gr., sem verði 43. gr. og hljóði svo, með leyfi hæstv. forseta:
„Eftirtaldir aðilar skulu sitja fyrir lánum til bygginga samkvæmt reglum þessa veðlánakerfis:
1) Barnafjölskyldur.
2) Ungt fólk, sem stofnar til hjúskapar.
3) Fólk, sem býr í heilsuspillandi húsnæði, er ekki verður útrýmt samkvæmt III. kafla þessara laga.“
Þetta ákvæði, sem ég set þarna inn um, hverjir skuli sitja fyrir lánum, er ekki í núverandi frv. hæstv. ríkisstj., en það er í l., sem hæstv. núverandi ríkisstj. eða þeir stjórnarflokkar, sem nú sitja að völdum, hafa sjálfir sett. Þetta ákvæði er orðrétt tekið upp úr lagakaflanum um smáíbúðalánin, sem enn þá er í gildi. Og nú vil ég vekja eftirtekt hv. þm. á því, að lagakaflinn um smáíbúðalánin er einn kafli laganna um opinbera aðstoð við byggingar í kaupstöðum og kauptúnum. Í þeim kafla er þetta ákvæði um, hverjir skuli sitja fyrir. Þegar lagakaflinn um smáibúðalán er settur, þá þykir sjálfsagt að hafa þetta ákvæði, að barnafjölskyldur skuli vera þarna fyrstar, ungt fólk, sem stofnar til hjúskapar, og það fólk, sem býr í heilsuspillandi húsnæði, en fær ekki aðstoð eftir þeim lögum.
Hvað gerir hæstv. ríkisstj., þegar hún mína er að flytja sitt frv.? Hún er raunverulega að leggja niður kaflann um smáíbúðalán, hún er raunverulega að fella hann úr gildi. Hann hefur að vísu lagagildi áfram, en hann verður ekkert annað en bókstafur, vegna þess að eftir því sem mér skilst, þó að það sé ekki alveg greinilegt af frv., þá hef ég a.m.k. skilið það þannig eftir frv. ríkisstj., að það eigi ekki að veita lán úr lánasjóði smáíbúðanna, eftir að frv. ríkisstj. væri komið hér fram, og ef það er misskilningur hjá mér, þá vildi ég mjög óska eftir því, að það væri leiðrétt. Ég hef skilið það þannig, að kaflinn um lánadeildina og lánasjóð fyrir smáíbúðirnar, þó að hann standi í lögum áfram, verði ekki framkvæmdur eftir þetta. Það, sem sérstaklega virðist benda á það, er ákvæðið í frv. ríkisstj. í 4. gr., b-lið, að eignir lánadeildar smáíbúða skuli renna í varasjóð hins almenna veðlánakerfis, jafnóðum sem þær eru greiddar. En reglurnar, þ.e.a.s. þær siðferðislegu reglur um, hvernig skyldi úthluta lánunum úr lánasjóði smáíbúða, eru ekki yfirteknar í frv. ríkisstj., og það, sem ég geri með minni brtt., er að taka þessi fyrirmæli um, hverjir skuli sitja fyrir lánunum, og færa úr núgildandi lögum, þar sem þau eru í kaflanum um lánadeild smáíbúða, og inn í þetta frv. ríkisstj. á þann stað, sem ég ætla þeim. Fyrst hæstv. ríkisstj. og núverandi stjórnarflokkar álitu, að þeir þyrftu, þegar þeir settu lögin um smáíbúðirnar, að mæla svo fyrir, að barnafjölskyldur, ungt fólk, sem stofnar til hjúskapar, og fólk, sem býr í heilsuspillandi húsnæði, en verður ekki aðnjótandi hjálpar eftir III. kaflanum, ættu að setja fyrir um lánin úr smáíbúðadeildinni, þá virðist vera sjálfsagt, að þetta fólk eigi líka að sitja fyrir þessum lánum úr veðdeildinni, en þetta er fellt niður hjá ríkisstj. Þessi siðferðislegu fyrirmæli, sem bundin voru í lögunum um smáíbúðirnar, eru gerð að tómu pappírsgagni með því að láta þau vera þar. Ég mundi gera þau lifandi áfram með því að setja þau inn í þann kafla, sem ríkisstjórnarfrv. hlyti í mínum brtt., og ég vil leyfa mér að vonast til þess, að þetta geti hæstv. ríkisstj. fallizt á, ef það er ekki beinlínis meiningin hjá henni að sleppa því réttlæti, sem hún sjálf áleit nauðsynlegt að setja í lög í sambandi við lagafyrirmælin um smáíbúðirnar. Ef hún álítur bókstaflega ekki, að það eigi nú að taka upp tómt handahóf í þessum hlutum og kannske meira eða minna pólitíska hlutdrægni, þá finnst mér, að hún eigi að geta fallizt á að láta hennar eigin gömlu lagafyrirmæli um smáíbúðirnar gilda um hennar nýju lög. Þess vegna vil ég alveg sérstaklega vonast til þess, að menn geti orðið við því að samþykkja 8. till. í mínum brtt.
Síðan legg ég til, að 8. gr. í núverandi frv. stjórnarinnar sé felld niður. Og hvað snertir 9. gr. og það, sem þar er um alla leiðbeiningarstarfsemina, og líka það, sem er í sambandi við 2. gr., þá legg ég undir veðdeild Landsbankans að vinna að þessu. Það er ekki nema eðlilegt, á sama hátt og við skulum segja teiknistofa Búnaðarbankans vinnur að slíku fyrir sveitirnar, að veðdeild Landsbankans fari að vinna að þessu fyrir fólk almennt í bæjunum, þegar sú veðdeild á annað borð á að verða aftur eitthvað meira en nafnið tómt. Ég held líka, að það sé sannarlega gott að fá henni það verkefni í hendur.
Nú hef ég tekið eftir því, að hv. 1. landsk. og tveir aðrir hv. þm. með honum hafa gert þá brtt. við frv. ríkisstj., að í staðinn fyrir að húsnæðismálastjórn annist um þessa hluti, þá geri Iðnaðarmálastofnunin það. Það er að vísu atriði, sem kæmi til greina líka, en mér finnst það liggja ákaflega nærri, á sama hátt og okkur hefur þótt rétt að hafa teiknistofu fyrir landbúnaðinn í sambandi við lánin til íbúðarhúsabygginga í sveitum, að við höfum slíka teiknistofu og slíkar ráðleggingar í sambandi við sjálfa veðdeild Landsbankans. Ég er satt að segja stundum dálítið hræddur við það, hvað mikið af ríkisstofnunum er sett upp á hinum ýmsu sviðum, sem svo að segja — ég vil kannske ekki nota orðið keppa hvor við aðra, en a.m.k. eru þannig inni á verksviði hvor annarrar, að hreinasta ringulreið hlýzt af. A.m.k. við sósíalistar erum vanir að tala þannig um ríkisbúskap, að hann eigi þó að vera til þess að skipuleggja vissa hluti, þegar allt sé í glundroða hjá einstaklingunum. En það er nú svo hjá okkur með ríkisbúskapinn á Íslandi, að það virðist stundum vera full ástæða til þess að fara að skipuleggja hann, enda er nú komið svo, að eitt af aðalverkefnum einnar nýrrar nefndar, sem nú var ákveðið að flytja till. um á Alþ., var bókstaflega að samræma starfsemi ákveðinna ríkisfyrirtækja og ríkísstofnana, m.a. rannsóknarstofnana, þannig að það væru ekki margar ríkisrannsóknarstofnanir á sömu sviðunum, sem væru að rannsaka það sama, jafnvel kannske á einn eða annan hátt að keppa hver við aðra og ef til vill líka þá að þvælast hver fyrir annarri.
Ég held þess vegna, að við ættum að fara að gera þetta einfaldara en þarna er gert ráð fyrir. Veðdeild Landsbankans var sá aðili, sem upphaflega átti að sjá um að lána til íbúðarhúsabygginga á Íslandi, og mér finnst ákaflega eðlilegt að reyna að láta þessa veðdeild sjá um að vinna þetta verk líka, að hafa þarna ýmsar leiðbeiningar með höndum. Meginið af því, sem horfir til framfara í frv. hæstv. ríkisstj. og hún ætlar húsnæðismálastjórninni að beita sér fyrir, hef ég sett þarna yfir á veðdeildina, líka t.d. að beita sér fyrir því, að innlánsstofnanir komi á samningsbundnum sparnaði til íbúðabygginga eða kaupa á íbúðum. Það virðist satt að segja ekki liggja nær neinum öðrum en Landsbankanum og þá kannske sparisjóðunum í samstarfi við hann að reyna að beita sér fyrir því og gefa mönnum sem hagkvæmasta aðstöðu til þess að geta sparað og safnað til þess að byggja sér íbúð.
Þá held ég að ég geti látið útrætt um IV. kaflann í mínum brtt., sem er allt það úr frv. ríkisstj., sem horfir til framfara. En þó er ein breyting, sem ég á eftir að minnast á, og það er, að þegar ég ræði um lánin, þá geri ég í staðinn fyrir 7% ársvexti ráð fyrir 4% ársvöxtum. Það er ekki heldur neitt sérstaklega róttækt í sambandi við lán til íbúðabygginga að leggja til að hafa 4% ársvexti. Það eru vextir, sem lengst af, það sem af er öldinni, hafa þótt eðlilegir með þá hluti, og löngum, þegar átti að gera sérstakar ráðstafanir, eins og viðvíkjandi byggingu fyrir verkamenn og bændur, þá voru vextirnir settir niður í 2 og 21/2 %. Það er engin ástæða og er alveg forkastanlegt að láta undan þeim þrýstingi, sem nú er á peningamarkaðinum, og fara að færa vextina af lánum til íbúðabygginga upp í 7%. Ef látið er undan þessum brasktilhneigingum, sem eru að heltaka þjóðfélagið í kringum okkur, og ef farið er að gera það að atriði í löggjöf að setja vextina til íbúðabygginga upp í 7%, þá er verið að skapa slíka drepandi aðstöðu hvað snertir húsnæðið í framtíðinni og þá húsaleigu, sem menn verða að borga, hvort sem menn búa í eigin húsnæði eða ekki, að það kemur til með að verða einn aðalþátturinn í því að stórauka alla dýrtíð og skapa þess vegna harðari og harðari kaupdeilur. Það hefur aldrei gerzt á þessari öld, frá því að við fórum að hafa með það að gera á Alþingi að skipta okkur af vöxtum og ráða þeim að einhverju leyti hjá ríkisstofnunum, að það væri látið á þann hátt undan þrýstingnum `á peningamarkaðinum sem nú er verið að gera. Það hafa verið háir vextir hér á Íslandi oft, það hafa verið vextir, sem hafa farið upp í 9 og 91/2%, eins og ég hef minnzt áður á, og það meira að segja vextir í sambandi við togaraútgerðina og annað slíkt. En á þeim tímum hélzt það í lögum, að vextirnir af byggingunum til verkamannabústaðanna og fyrir byggingarsjóð sveitanna væru ekki nema 2%. Það er eðlilegur hlutur, að bæði verkamenn og bændur standi á móti því, að vextirnir séu hækkaðir á þennan gífurlega hátt, sem nú er gert. En svo framarlega sem það væri einhver heil brú í hugsunarhætti atvinnurekenda hér á Íslandi, þá mundu þeir beita sér á móti þessu líka, vegna þess að húsnæðið er samkvæmt reynslunni hér venjulega upp undir þriðjungurinn af því, sem verkamaður verður að borga til þess að geta lifað. Og það, hvað húsnæðið er dýrt, markast fyrst og fremst af því, hve vextirnir til íbúðabygginga eru háir. Með því að setja vextina 7% er þess vegna verið að skapa hér dýrtíð í landinu, gera okkar atvinnuvegum erfiðara fyrir að keppa erlendis og knýja þannig á um bæði kauphækkanir og aðrar þær ráðstafanir, sem ríkissjóður verður að gera til þess að borga niður dýrtíðina í landinu. Hækkunin hjá ríkisstjórninni á vöxtunum til íbúðarhúsabygginganna er með hennar vitlausustu framkvæmdum og sýnir betur en flest annað, hvílík hringavitleysa öll hennar fjármálastefna er, enda upprunnin og fyrirskipuð hvað þessa vaxtahækkun snertir af þeim mönnum, sem hafa haft yfirumsjónina með okkar fjármálum frá því að Marshalllánin fengust. Með því að taka erlendis lán, sem verður að greiða 5% vexti af, hefur ríkisstj. svo að segja bundið sig á þann klafa að hækka alla vextina hér innanlands. Hún þurfti þessa að vísu ekki hvað einn hlut snerti, hún þurfti ekki að gera þetta hvað mótvirðissjóðinn snerti. Þar gat hún ráðið vöxtunum sjálf. En henni var sagt það, eins og stendur að lesa í bók dr. Benjamíns Eiríkssonar, sem fylgdi með gengislækkunarfrv., að það væri svo til ætlazt af gefendunum, að vextirnir úr mótvirðissjóði yrðu hafðir það háir, að þeir yrðu til þess að hækka yfirleitt vextina í landinu, og nú er þetta að koma fram, afleiðingarnar af þessari vitlausu pólitík. Og þeir eru aðeins eitt þáttur og táknrænn fyrir þá stefnu að gera peningunum og eigendum þeirra í hvívetna nógu hátt undir höfði, en taka ekkert tillit til þarfa mannanna, að heimta það, að af íbúðunum og lánunum til þeirra séu borgaðir 7% vextir, en leggja þeim mönnum, sem í íbúðunum eiga að búa, óbærilegar byrðar á herðar. Þess vegna er mín till um að breyta í 4% þeim vöxtum, sem hæstv. ríkisstj. leggur til í sínu frv. að séu 7%, ein höfuðbreytingin á frv. ríkisstj. hjá mér, en um leið er þessi till. um 4% í þessu efni raunverulega aðeins um að færa aftur í gildi það, sem einu sinni gilti um vaxtakjör af lánum úr veðdeildinni.
Þá er næst till. mín um V. kaflann í þessum lagabálki, um lánadeild smáibúðarhúsa. Um það vildi ég gjarnan fá skýringu frá hv. frsm. málsins, hvort það er ekki rétt skilið hjá mér, að með þessu frv. ríkisstj. sé ætlazt til þess, að lánadeild smáíbúðarhúsa hætti sinni starfsemi og það sé hætt með þessi lágu lán, sem voru veitt samkvæmt henni. Mér skilst það eiginlega alveg ótvírætt liggja í 4. gr. stjórnarfrv., b-liðnum, þar sem ákveðið er, að eignir lánadeildar smáíbúða, þegar greiddar hafa verið hennar skuldir, skuli renna í varasjóð hins almenna veðlánakerfis. (Gripið fram í.) Ég skil alveg tilgang ríkisstj. með þessu, og hann er á vissan hátt lofsverður. Hún lítur svo á, að það sé of lítið, sem lánadeild smáíbúðarhúsanna veitir, þessar 20–30 þús. kr. og þar í kring, og þar sem þau lán, sem á að lána úr veðdeildinni eftir frv. ríkisstj., eiga að verða miklu hærri, eða allt að 40 þús. kr. og þar yfir, þá sé það svo stór endurbót, að það sé ekki nema eðlilegt.
En það er eitt í þessu, sem ég vildi þó benda á og hef gert þarna brtt. um. Jafnhliða því, sem þetta veðlánakerfi nú kemst á, og ég gerði till. þarna um, að það væri ofur lítið hærra en miðað er við hjá ríkisstj., þá held ég, að það verði samt allmargir, sem ekki komast að í þessu veðlánakerfi. Ég er því miður hræddur um það. Ég er því miður hræddur um, að þrátt fyrir þá aukningu á útlánunum, sem á með þessu að tryggja og er það lofsverða í sambandi við lög ríkisstj., þá verði samt margir settir hjá. Þess vegna legg ég þarna til, að lánadeild smáíbúðarhúsanna — og lögin um hana standa hvort sem er líka áfram eftir till. ríkisstj. — fái að starfa næstu 5 ár, fái sem sagt að starfa og fái þarna ofur lítið framlag á ári, 2 millj. kr., þannig að þó að lánin úr henni séu ekki stór, þá haldi þetta samt áfram. Ég held áreiðanlega, að það gæti orðið mörgum til hjálpar. Hins vegar er alveg rétt stefna í heild með því að koma veðlánakerfinu í sæmilegt horf að láta þessa lánadeild smáíbúðarhúsanna smám saman hverfa úr sögunni.
Þetta er sú eina brtt., sem ég annars geri á sjálfum lögunum.
VI. kaflinn hjá mér er að mestu leyti sá sami og er í núverandi lagabálki um aðstoð við byggingu íbúðarhúsa. Það er aðeins upphafið, sem er öðruvísi, að innflutningur á byggingarefni skuli vera frjáls, svo fremi að innflutningur á nokkrum vörum sé frjáls. Ég álit, að ef víð á annað borð þykjumst hafa efni á að hafa frjálsa verzlun um nokkra hluti, þá eigum við að leyfa byggingarefninu að koma þar undir; þá eigum við að leyfa að flytja inn byggingarefnið og sjá um, að það sé nægilegt flutt inn af því. Á hvern hátt ríkisstj. framkvæmir slíkt, því ræður hún. Það, sem ég á við með að gera frjálst, er, að menn geti fengið nægilegt af þessu byggingarefni, bankarnir taki að sér að sjá um, að við eigum gjaldeyri til þess. Við vitum, að það útlenda efni í byggingar á Íslandi er ekki meira, ef reiknað er með verði þess f.o.b. erlendis, en 15–20% af andvirði íbúðar. Á meðan okkar fólk er til í að vinna eins og það vinnur við að koma upp íbúðum, vinna þannig, að það eru, hvenær sem fólkið fær að verða frjálst að því að byggja, raunverulega unnin stórkostleg afrek í því að byggja íbúðarhús, það er byggt mikið, jafnvel í eftirvinnu hjá fólki, sem vinnur á daginn, jafnvel í vinnu á helgidögum, vinnu í sumarleyfum, fólk þrælar sér þannig út við að byggja íbúðarhús og það íbúðarhús, sem það er ekki bara að byggja fyrir sjálft sig í augnablikinu, heldur eiga að notast fyrir margar næstu kynslóðir, þá er það þó eitt það minnsta, sem það opinbera getur gert, að leyfa og sjá svo um, að nægilegt byggingarefni sé til, á meðan það opinbera á annað borð þykist fært nm að leyfa, að á nokkrum hlut sé frjáls innflutningur. Þegar rætt er um hér í þinginu og fluttar hér meira að segja af heilum nefndum till. um að gefa frjálsan innflutning á bilum og bílamergðin samt þannig fyrir, að manni blöskrar að sjá alla þá nýtízku lúxusbíla, sem flækjast eftir götunum hér í Reykjavík, þá finnst mér það næstum því hart, að það skuli þurfa að vera að tala um, að það sé eðlilegt, að innflutningur á byggingarefni sé það mikill og það frjáls, að hver maður geti verið öruggur með að geta fengið að kaupa byggingarefni. Jafnframt er í þessum tillögum mínum, og þó að miklu leyti er þetta nú svipað því, sem fyrir er, að svo framarlega sem innflutningur sé takmarkaður á öllum vörum, þá sé hann þannig takmarkaður á byggingarefninu, að sá félagsskapur, sem menn mynda um innflutning byggingarefnis, þeir sem sjálfir eru að byggja, fái fyrst og fremst innflutningsleyfi. Sem stendur vitum við að ástandið er þannig, að hæstv. ríkisstj. úthlutar raunverulega einkaleyfi til þriggja innflytjenda um innflutninginn á aðalbyggingarefni, og meðal þeirra innflytjenda eru ekki nein af þeim samtökum, sem þeir menn hafa myndað, sem eru að reyna að koma sér upp húsum sameiginlega. Það eru aðeins tveir heildsalar og svo SÍS, sem fá þennan innflutning. Ég held, að það væri þörf á að gera þarna verulegar breytingar. Þegar ríkisstjórn á annað borð hefur með innflutning á byggingarefni að gera, þá þarf hún að sjá um, að álagningin á byggingarefnið sé svo að segja aðeins rétt fyrir kostnaði. Það á ekki að vera gróðafyrirtæki að selja mönnum byggingarvöru, þegar menn eru að vinna fyrir framtíðina eins mikið og sjálfa sig og eru að bæta úr eins brýnni þörf og hér er hjá okkur á því, að byggt sé. Yfirleitt er það stefnan, sem skilur í afstöðunni til íbúðarhúsabygginga milli okkar og hæstv. ríkisstj., að hæstv. ríkisstj. vill gera þá starfsemi að byggja íbúðarhús undirorpna öllum gróðaþorstanum í þjóðfélaginu, öllum gróðaþorsta auðmannastéttarinnar, og gera þannig húsbyggingarnar að féþúfu, bæði fyrir eigendur peninganna með háum vöxtum og fyrir þá, sem flytja inn byggingarefnið og græða á því. Þessa hluti þarf að afnema. Það þarf að koma því aftur í það horf, sem eitt sinn var, að starfsemin að því að byggja íbúðir yfir fólkið væri starfsemi, sem ekki væri hægt að græða á, það væri ekki hægt að græða á því að lána peninga til slíks, að ríkið sæi um, að fyrir það fé, sem veitt væri til slíkra hluta af þjóðfélaginu, væru það lágir vextir, frá 2% upp í 4%, að það væri ekki gróðavegur, m.ö.o., ríkið beitti sjálft því valdi, sem það hefur á fjármálasviðinu, bæði með seðlaútgáfunni og öðru, til þess að tryggja, að menn gætu fengið lán með þetta lágum vöxtum til íbúðarhúsabygginga, og eins hitt, hvað snertir innflutning byggingarefnis, að ríkið skipti sér af þessu á þann hátt, að það tryggði, að það væri ekki verið að gera þann innflutning að féþúfu fyrir nokkra einstaklinga, sem ríkisstj. hefði velþóknun á, væri tekið inn í svo að segja helmingaskiptafélag ríkisstj., heldur væri reynt að sjá til þess, að þeir aðilar, sem væru að byggja, samtökin, sem þar stæðu að, gætu sjálf skipulagt með sér félagsskap um innkaup á þessu og gætu sjálf fengið þannig innflutninginn á byggingarefninu í sínar hendur.
Þetta er sá stóri stefnuágreiningur, sem er í sambandi við afgreiðsluna á frv. ríkisstj.: Á að gera byggingu íbúðarhúsa undirorpna þeim lögmálum gróðans, sem ríkja í því frjálsa viðskiptalífi, eða á að setja sérstaka löggjöf um íbúðarhúsabyggingarnar, eins og alltaf hefur verið leitazt við að gera á þessari öld, með lögunum um verkamannabústaði, með lögunum um byggingarsjóð sveitanna, með lögunum um útrýmingu heilsuspillandi íbúða, og undanskilja þá starfsemi að byggja íbúðarhús þeim almennu lögmálum viðskiptalífsins, skapa þar aðra vexti, aðrar aðstæður en þær, sem ríkja í því frjálsa viðskiptalífi? Spurningin er þetta m.ö.o.: Á auðvaldið og þess viðleitni til að gera allt sér undirorpið til gróða, gera sér allt að féþúfu, að fá að ríkja á sviði íbúðarhúsabygginganna skefjalaust og ótakmarkað, eða ætlar Alþingi og ríkið að grípa þarna inn í og gera þá starfsemi að byggja íbúðarhús að véi, þar sem þessi gróðalöngun og gróðaþorsti fær ekki að drottna? Þetta er það, sem skilur á milli þeirra brtt., sem ég hér flyt, og stefnunnar í frv. ríkisstj.
Þess vegna tók ég þetta ráð, að taka saman í eitt í mínu frv. alla þá endurbótalöggjöf, sem samþykkt hefur verið frá upphafi vega í þessum efnum á Íslandi, sem sé setja ekkert annað þarna inn í en það, sem fyrir 20–30 árum hefur verið lög á Íslandi. Það er ekkert annað í mínum brtt., aðeins það ákvæði að taka upp aftur það, sem fellt hefur verið niður, m.ö.o. að reyna að halda í það bezta, sem samþ. hefur verið í okkar húsnæðismálalöggjöf, og láta ekki þurrka það út, skapa það á ný inn í löggjöfina, ef það hefur verið þurrkað út. Þess vegna mætist raunverulega í afstöðunni til minna brtt. annars vegar og ríkisstjórnarfrv. hins vegar spurningin um það: Eigum við með afgreiðslu húsnæðismálanna hér á Alþingi að reyna að standa á tindi þess bezta, sem Alþingi hefur áður afrekað í sinni löggjöf um húsnæðismál, eða eigum við að gefast upp fyrir þrýstingi gróðalýðsins og gera húnæðismálastarfsemina undirorpna gróðaþorsta hans, með öllum þeim afleiðingum, sem það kemur til með að hafa fyrir framtíðina með hækkandi húsaleigu og versnandi dýrtíð? Þess vegna vil ég nú leyfa mér að vona, að hv. þm. geti fallizt á að samþykkja mínar brtt., halda þar með öllu því, sem til framfara er í frv. hæstv. ríkisstj., en endurnýja þau gömlu ákvæði, sem voru í sambandi við húsnæðislöggjöfina að öðru leyti, og sjá þannig um, að Alþingi hafi engu glatað af því bezta, sem það áður hefur sett í lög til þess að bæta úr eða hjálpa fólkinu í viðleitni þess til að leysa erfiðasta vandamálið okkar, byggingu á mannsæmandi íbúðum.