28.04.1955
Efri deild: 75. fundur, 74. löggjafarþing.
Sjá dálk 1100 í B-deild Alþingistíðinda. (1246)

183. mál, húsnæðismál

Haraldur Guðmundsson:

Herra forseti. Því er ekki að leyna, að velflestir alþm. og allur almenningur í þessu landi mun hafa beðið með allmikilli eftirvæntingu eftir því, að fram yrði lagt á Alþ. till. eða frv. frá hæstv. ríkisstj. varðandi húsnæðismálin eftir þá yfirlýsingu, sem var gefin af hæstv. ríkisstj. um það leyti, sem hún tók við völdum. Hinu er ekki heldur að neita, að ýmsir voru orðnir talsvert langeygðir, þótti biðin alllöng eftir því, að þessar till. kæmu fram, sem nú hafa verið lagðar hér fyrir hv. Alþ. Ég er því miður hræddur um, að ég verði einnig að bæta því við, að þessar till. hafi orðið miklum þorra landsmanna veruleg vonbrigði, þegar þær loksins sáu dagsins ljós.

Það er alveg fullkomlega rétt, sem hæstv. félmrh. (StgrSt) sagði í ræðu sinni áðan, að ástandið í húsnæðismálunum í landinu er þannig, að óhjákvæmilegt er að gera allstórtækar ráðstafanir, ef ekki á að vera áframhaldandi voði fyrir dyrum í þessum efnum, ef svo mætti segja. Það sannaði augljóslega sú ýtarlega grg., sem hæstv. ráðh. hefur látið fylgja þessu frv.

Ég vil líka taka það fram strax, að miðað við það ástand, sem er í þessum efnum í dag, þegar mikill þorri þeirra, sem eru að reyna að koma sér upp húsum, á í ekkert annað hús að venda en lán á svörtum markaði með þeim kjörum, sem þar eru algeng, ef þeir sjálfir hafa ekki því meiri fjárráð eða eru studdir af vina- eða kunningjafólki, er þó ofur lítið skref í áttina stigið til umbóta með þessu frv., sem hér er lagt fram. En ég get ekki annað en endurtekið það, sem ég fyrr sagði, að þeir, sem hafa búizt við ráðstöfunum af hálfu hæstv. ríkisstj., sem eru til verulegrar frambúðarúrbótar í þessu efni, hafa án efa orðið fyrir vonbrigðum, þegar þetta frv. var lagt fram.

Fyrst er nú það um frv. að segja, að það er í raun og veru ekki annað en tveggja ára áætlun í þessu efni og þó fullkomlega viðurkennt, að þessi tvö ár séu eiginlega ekki nema byrjun á þeim aðgerðum, sem þurfi að gera. Þetta veðlánakerfi, sem talað er um að byggja hér upp, stendur eða fellur eftir því, hvert fjármagn er þarna til umráða, en það er ekki nema tveggja ára áætlun fyrir hendi og ekki gert ráð fyrir meiri útgáfu bankavaxtabréfa, sem ég skal víkja að síðar, heldur en 200 millj. kr. eða tilsvarandi lánveitingum á annan hátt.

Það er því augljóst, að þetta er engin lausn á þessum vandræðum. Ég mundi vilja líta á þetta sem tilraun, tveggja ára tilraun, sem svo væri ætlunin að byggja á áfram.

Um einstök ákvæði frv. skal ég ekki vera fjölorður að þessu sinni. Ég heyrði á hæstv. ráðh., að hann gerði ráð fyrir, að málið yrði athugað vel í hv. fjhn., sem væntanlega fær það til athugunar, og mér skildist á honum, að hann væri fullkomlega til viðræðu um það, ef gerðar yrðu breytingar á frv., og það þótti mér vænt um að heyra.

Ég verð t.d. að segja um einstök atriði frv., að mér finnst seilzt um hurð til loku, ef á að stofna þessa húsnæðismálastjórn, sem gert er ráð fyrir í 1. gr. frv. og á fleiri stöðum, — tveggja manna húsnæðismálastjórn, útnefnda af hæstv. ríkisstj., sennilega einn úr hvorum flokki, og svo viðbótarmaður frá Landsbankanum, sem á ekki að taka þátt í lánveltingum. Þessi stjórn á svo að hafa yfirumsjón og hrinda í framkvæmd umbótum í byggingarmálum. Það er vissulega ærið starf, og þarf vel að velja og vanda til þeirra manna, sem eiga að koma því í framkvæmd, svo að það hrífi nú strax, um leið og þessar byggingar hefjast. Þriðji maðurinn, frá Landsbankanum, á ekki að sinna neitt lánveitingum, þannig að þeir væru aðeins tveir um að úthluta lánunum. Þó er gert ráð fyrir því, að þessi húsnæðismálastjórn skuli hafa samráð við ýmsa aðila, sem upp eru taldir í 2. gr., og er ekki nema gott um það að segja.

Ég verð að segja, að mér finnst þessir stjórnarhættir ákaflega bögglingslegir á allan hátt, og þykist ég þá viðhafa um það mjög snoturt orð eftir atvíkum. Að því er lánveitingarnar snertir, finnst mér nú satt að segja, að jafnefnaðir og við nú erum af bönkum og bankastjórum, þá ætti að mega láta lánaúthlutunina og lánaafgreiðsluna vera hjá einhverjum af þeim stofnunum, sem fyrir eru, t.d. veðdeild Landsbankans eða einhverri annarri stofnun, ef hentara þætti. Að því er forstöðu í umbótum í byggingarmálum snertir, þá held ég, að við ættum að reyna að byggja á því, sem fyrir er, eins og reyndar í lánveitingunum sjálfum, þar sem er húsameistari ríkisins, Iðnaðarmálastofnunin, sem hefur þetta sérstaklega til athugunar, og fleiri mætti til taka, sem væru sjálfsagðir aðilar í þessu máli, enda skildist mér á hæstv. ráðh., að hann væri fullkomlega til viðræðu um að athuga, hvort ekki mætti finna heppilegra fyrirkomulag á stjórninni á þessum málum öllum, svo að ég skal ekki orðlengja um það.

Þetta frv. er samið af mjög fróðum mönnum og lærðum, og það er þannig úr garði gert, að það er engan veginn auðvelt að sjá, hvað mikið nýtt fé er ætlazt til að komi til byggingarframkvæmda, ef allt gengur elns og til er ætlazt. Það er mér, eftir að hafa lesið það nokkurn veginn sómasamlega, enn þá nokkur ráðgáta. Það segir að vísu, að veðdeildinni skuli heimilt að gefa út bankavaxtabréf á tveimur árum, allt að 200 millj. kr., sem á að vera stofninn í þessu veðlánakerfi, en ekki þó svo að skilja, að jafnan séu lánin greidd með þessum bréfum eða andvirði þeirra, heldur á að telja fé, sem kemur frá öðrum aðilum en t.d. veðdeildinni, með í þessu kerfi, þó að þau lán séu veitt eins og venjuleg skuldabréfalán á svipaðan hátt og verið hefur til þessa.

Ég hef verið að leitast við að gera mér grein fyrir því, hve mikið nýtt fé kæmi í raun og veru inn til byggingarframkvæmda, ef þetta frv. verður að l., umfram það, sem verið hefur, ef þær forsendur, sem það er byggt á, reynast réttar. Um þetta er nokkrar upplýsingar að finna í grg. á bls. 10, og eiginlega skilst mér á henni, að ekki sé um að ræða af nýju fé, sem hugsað er í þetta, nema rösklega 40 millj. kr. hvort árið, að viðbættum þeim 3 millj. kr., sem gert er ráð fyrir að ríkissjóður leggi fram sem framlag til að útrýma heilsuspillandi íbúðum. Þessar 40 millj. kr. skilst mér eigi að koma frá bönkunum, þ.e.a.s. Landsbankinn tryggir sölu bréfa fyrir þessa upphæð, þessar 44 millj. kr. Ég hef nú orðað þetta svo fallega, að þetta væri nýtt fé, og það mundi mega telja það það, ef bankarnir hefðu undanfarin ár gersamlega verið lokaðir fyrir byggingarlánum. Ég veit það vel, að það er talið, að svo hafi verið. Það hefur verið að minnsta kosti ógreitt um inngöngu fyrir þá, sem leitað hafa eftir slíkum lánum í bönkunum. En ég hygg, að það sé engin goðgá, þó að ég segi það, að stöku menn munu hafa átt þar innhlaup og þess ekki verið gætt svo grandgæfilega, að peningar, sem þar hafa verið lánaðir, hafi ekki gengið til byggingarlána, að ekki hafi flotið þar með nokkrar millj. kr. Frá þessum 40 eða 44 millj. kr. er því alveg óhætt að draga nokkrar millj. kr., sem bankarnir þrátt fyrir það, sem sagt hefur verið, hafa veitt til byggingarlána árlega undanfarin ár. (Gripið fram í.) Nei, en það er náttúrlega hætt við því, að þeir telji sig nú friða samvizkuna með því að fylla þetta upp. En ef fjárhagurinn er þannig, að bankinn geti veitt þetta til viðbótar, þá er það gott. En ég verð að segja, að af þessum 40 millj. kr. er áreiðanlega nokkur upphæð, ég skal ekki segja um hve há, sem áður hefur verið veitt og ég get vel hugsað að bankarnir telji sig síður þurfa að veita, eftir að þeir leggja þessar ákveðnu upphæðir fram til byggingarmálanna.

Verðbréfakaup opinberra tryggingarfélaga eru áætluð 4 millj. kr. Mér er ekki alveg til fulls kunnugt um, hverjir hlut eiga þarna að máli, en þykist þó renna nokkurn grun í, hvaðan meginhluti þessarar upphæðar eigi að koma. Það mun vera rétt, að lítið af þessu fé; sem þarna er um að ræða, hefur verið veitt til íbúðabygginga, þó er það nokkuð. En það hefur þá verið veitt til annarra hluta, sem ríkisstj. hefur verið annt um, og mun þess vegna ekki geta vænzt þess að fá það fé til slíkrar starfsemi sem áður hefur verið studd á þennan hátt.

Útlán sparisjóða og aðrar slíkar lánveitingar eru áætlaðar 20 millj. kr., og mér er sagt, að það muni vera byggt á þeim upphæðum, sem bankarnir eða sparisjóðirnir undanfarið hafa lánað í þessu skyni og þar sé í raun og veru um enga viðbót að ræða.

Það sama er um þær 20 millj. kr., sem gert er ráð fyrir að aflað sé hjá lífeyrissjóðum og öðrum slíkum stofnunum. Ég hygg, að ef þessi upphæð er fáanleg, sem ég hef nú miklar efasemdir um, þá muni undanfarin ár langmestur hluti af því fé hafa einmitt gengið til íbúðabygginga, þannig að þar sé um sáralitla eða enga viðbót að ræða.

Byggingarsjóður verkamanna breytist ekki. Framlög bæjarsjóða, ef þau kæmu til viðbótar á móti framlagi ríkissjóðs til að útrýma heilsuspillandi íbúðum, yrðu þá 3 millj. kr.

Mér telst svo til, að það sé ákaflega ólíklegt, að nýtt fé til framkvæmda samkv. þessum l., þó að tryggð sé salan á þessum 200 millj. kr. í bankavaxtabréfum á tveimur árum, geti farið nokkuð fram úr 40 millj. kr., og þá er einhver hluti af því, sem yrði sjálfsagt til þess að draga úr öðrum lánum til svipaðra eða hliðstæðra framkvæmda.

Nú er ekki því að leyna, að eins og ástandið er, eins og ég sagði í upphafi míns máls, þá er þetta þó nokkur léttir frá því, sem verið hefur til þessa, þó að það sé gersamlega ófullnægjandi til að ná því marki, sem hæstv. ríkisstj. vill stefna að. Hæstv. ráðh. upplýsti t.d., að það þyrfti að byggja 1000–1100 íbúðir á ári til þess að bæta úr þeirri þörf, sem nú er alveg augljós og fyrir hendi, og sér þá hver maður, hversu skammt hrekkur það fé, sem hér er um að ræða, þó að við teljum allar 100 millj. kr., jafnvel þó að ýmsir geti nokkurt fé lagt fram úr eigin sjóði.

Ég vildi því telja, að það yrði annað atriðið í verkefni n. hér að rannsaka til fyllstu þrautar ásamt hæstv. ríkisstj., ef hún vill leggja þar hönd að, hvort ekki væri unnt að auka nokkuð við þetta fé, þ.e.a.s. tryggja meira viðbótarfé en gert er með þessu frv. til byggingarframkvæmdanna.

Um lánskjörin mun ég ræða síðar, en aðeins benda á það, að með þeim lánskjörum, sem þetta frv. gerir ráð fyrir, er alveg augljóst, að það er ofvaxið getu alls þorra launastéttanna í landinu að eignast húsnæði með þessum kjörum. Ég sé að vísu, að gert er ráð fyrir því í grg., að það sé hægt að byggja íbúð nokkurn veginn við hæfi fyrir í kringum 150 þús. kr. Ég er alveg fullviss um það, að hér í Reykjavík a.m.k. er þetta ekki hægt, nema miklu stórfelldari árangur verði af starfi húsnæðismálastjórnar en ég leyfi mér að gera mér vonir um, þó að ég geri mér vonir um nokkurn árangur af því. Ég held, að það sé ómögulegt að koma upp slíkri íbúð sem hér er gert ráð fyrir í Reykjavík, eins og nú er, fyrir minna en 200 þús. kr. eða eitthvað yfir 200 þús. kr.

Ef við svo lítum á vextina eina, sem samkv. þessu frv. eru 71/4%, þá nemur vaxtagreiðs]an ein af kostnaðarverði hússins, miðað við 200 þús. kr., milli 14 og 15 þús. kr. á ári, eða um 1200 kr. á mánuði, ef miðað er við, að af öllu kostnaðarverðinu, 200 þús. kr., séu reiknaðir þeir vextir, sem gert er ráð fyrir í frv.

Nú skal ég játa það, að ástæða er til að vona, að ýmsir gætu lagt einhvern hluta fram, mismunandi mikinn af kostnaðarverði hússins, og væri kannske ekki lífsnauðsyn að reikna af þeim vexti og sízt svona háa, en á móti því kemur, að hér er ekki reiknaður einn eyrir fyrir sköttum af eignunum, viðhaldi eða afborgunum af lánunum.

Ég fæ ekki betur séð en að greiðslurnar fyrir þessar íbúðir, mánaðarlegar greiðslur, hljóti að verða öllum þorra launastéttanna — láglaunafólks — gersamlega um megn, þannig að þessi almennu ákvæði frv. komi eingöngu að notum þeim hluta fólksins í landinu, sem hefur náð vissu tekju- og eignamarki, sem liggur hærra en hjá öllum þorra almennings í landinu. Þeir einir geta risið undir þessu, annaðhvort gegnum mánaðargreiðslur eða fyrir að þeir hafa safnað sér nokkru fé, sem þeir geta lagt í byggingarnar.

Þá kem ég að því, sem mér virðist í raun og veru höfuðeinkenni þessa frv. Höfundar þess loka gersamlega augunum fyrir því, sem hefur, að því er ég bezt veit, verið aðalatriðið í öllum opinberum byggingarframkvæmdum í nágrannalöndum okkar á síðustu árum, — því atriði, að það er nauðsynlegt að sjá þeim stéttum þjóðarinnar, sem við lágar tekjur búa, fyrir lánum með sérstökum kjörum til þess að eignast þak yfir höfuðið. Það er skylda hins opinbera að dreifa greiðslunum af þessum lánum á svo langan tíma sem fært þykir og að taka þátt í vaxtagreiðslum af þeim að einhverju leyti, til þess að kostnaður íbúðanna geti samsvarað þeim launakjörum, sem almenningur býr við. En fram hjá þessu meginatriði í byggingarlöggjöf annarra þjóða er gersamlega gengið í þessu frv. Íbúarnir eiga að greiða „kostnaðarverð“, svipað og sagt er í grg. Þeir eiga að lúta sömu lögum í fjárhagsmálum og aðrir borgarar þjóðfélagsins, borga það, sem það kostar, þegar búið er að leggja á það fulla vexti og skamman greiðslutíma.

Þetta frv., mundi ég segja, kemur að verulegum notum þeim mönnum í þjóðfélaginu, sem hafa yfir visst lágmark tekna og eigna. Þeim er það mikið hagræði. Þeim, sem eru undir því lágmarki, er gersamlega um megn að nota sér það góða, sem í þessu frv. felst. Við höfum hér lög og höfum lagt nokkurt fé fram til þess að hjálpa einmitt þeim mönnum, sem lægstar hafa tekjur, til þess að fá húsnæði með viðráðanlegum kjörum. Það eru t.d. byggingarsjóður sveitanna og byggingarsjóður verkamanna í kaupstöðum. Þar er viðurkennt það félagslega sjónarmið, sem ekki er viðurkennt á nokkurn hátt í þessu frv. Í grg. þessa frv. er það tekið fram, að ríkisstj. hafi ákveðið að ráðstafa, hvort árið af þessum tveimur, sem áætlunin tekur til, 12 millj. kr. til byggingarsjóðs sveitanna, viðurkennandi með því, að þau lánskjör, sem ætluð eru þeim, sem fá lán samkvæmt þessu frv., þegar það verður orðið að lögum, séu gersamlega óviðunandi fyrir þá menn, sem eru svo settir, að þeir eiga samkvæmt eldri lögum rétt til lána úr byggingarsjóði sveitanna. Þess vegna eigi að taka af þessum ca. 100 milljónum 12 milljónir frá, sem á að veita byggingarsjóðnum með þeim kjörum, sem í þessu frv. segir, og hann aftur að lána út með lægri vöxtum til þeirra, sem eiga rétt til lána úr honum, af því að þeim mönnum sé um megn að nota sér vaxtakjör og lánskjör þessa frv. En svo furðulega bregður við, að hinum hliðstæða sjóðnum, byggingarsjóði verkamanna í kaupstöðum, sem er stofnaður alveg í sama tilgangi og byggingarsjóður sveitanna, til þess að veita láglaunastéttunum möguleika á því að eignast húsnæði með viðráðanlegum kjörum, er ekkert ætlað sérstaklega af þessu fé. Ef ástæða er til að taka frá 12 millj. kr. handa byggingarsjóði sveltanna, sem hann geti svo lánað út með lægri kjörum en þetta frv. gerir ráð fyrir, þá fæ ég ekki séð, hví ekki er alveg sjálfsagt og eðlilegt, að slíkt hið sama sé einnig gert með byggingarsjóð verkamanna í kaupstöðum. Fjárþörfin er sízt minni þar, hún er enn þá brýnni. Og það er víst, að mikill þorri þeirra manna, sem eru á biðlista hjá byggingarfélögum verkamanna, getur ekki notað sér óbreytt lánskjör þau, sem ákveðin eru í þessu frv. Þau eru þeim um megn. Eigi því að veita þessum mönnum hjálp, þá verður það ekki gert á annan hátt en þann, að tryggt sé a.m.k. ákveðið lágmark af fénu, er renni til byggingarsjóðs verkamanna, sem síðan láni það aftur út til byggingarfélaganna og þau til sinna meðlima og vaxtamunurinn sé þá greiddur af þeim tekjum, sem þessir sjóðir hafa. Ég vildi mega vænta þess, ef hæstv. ríkisstj. ræðir við n. um frv. í heild sinni, að þá vilji hún einnig fallast á, að þetta atriði verði tekið til athugunar og reynt að mæta þeim sjálfsögðu og eðlilegu óskum, sem þarna koma fram.

Ég skal svo láta þetta nægja nú við þessa umr. Ég leyfi mér að vona, einmitt eftir framsöguræðu hæstv. ráðh., að það megi lánast að betrumbæta þetta frv. í meðferð málsins hér á þessu þingi, og greiði því atkv. með því til 2. umr. og n. með venjulegum hætti.