06.05.1955
Efri deild: 82. fundur, 74. löggjafarþing.
Sjá dálk 1124 í B-deild Alþingistíðinda. (1254)

183. mál, húsnæðismál

Frsm. meiri hl. (Bernharð Stefánsson):

Herra forseti. Ég mun ekki tala hér langt mál að þessu sinni frekar en ég gerði í gær, er ég hafði framsögu fyrir meiri hl. n. um þetta mál.

Út af ræðu hv. 4. þm. Reykv. (HG) get ég vísað til ræðu hæstv. félmrh. (StgrSt), sem hann hefur nýlokið við, um öll almenn atriði. Ég verð þó aðeins að minnast á það, sem hv. 4. þm. Reykv. vék að mér og minni framsöguræðu. Hann sagði, að það mundi vera oflof hjá mér um frv. og smiði þess, að þetta væri stærsta átak, sem nokkurn tíma hefði verið gert í byggingarmálum þjóðarinnar. Ég nefndi nú fleira en frv. Ég sagði, að frv. og þær ráðstafanir, sem hæstv. ríkisstj. hefði gert í sambandi við það, væru stærsta átakið, sem gert hefði verið hingað til í byggingarmálum þjóðarinnar. Eða getur hv. 4. þm. Reykv. frætt mig og aðra um það, hvenær hafi verið tryggðar 200 millj. kr. alveg sérstaklega til bygginga um næstu tvö árin? Ég hygg, að það hafi ekki verið t.d. á þeim árum, þegar þessi hv. þm. var félmrh. Hér á árunum voru samþ. ýmis l. að vísu, — ég man ekki svo eftir þeim öllum, — en það var sá galli á þeim mörgum, að það var bara pappír — orð, sem ekki voru framkvæmd.

Frá hendi meiri hl. n. verð ég að segja það, að meiri hl. hefur ekki tekið brtt. á þskj. 748 sérstaklega til athugunar, eftir að þær komu fram. Samt sem áður hafa þau atriði, sem þar um ræðir, a.m.k. flest, komið til umræðu í fjhn., áður en hún klofnaði, því að hv. 4. þm. Reykv. á sæti á fjhn. og hreyfði þar þessum atriðum og lagði sérstaka áherzlu a.m.k. á eitt þeirra, sem hann flytur nú brtt. um. Og í því, að meiri hl. tók ekki undir hans munnlegu till. í n. og leggur til í sínu nál., að frv. verði samþ. með þeirri einu breytingu á 1. gr., sem meiri hl. gerir till. um, liggur vitanlega afstaða til till. frá hv. 4. þm. Reykv., að meiri hl. leggur að sjálfsögðu til, að þær till. verði felldar.

Þessar brtt. hv. þm. finnst mér ekki það veigamiklar, að hans stóra ræða og miklu harmatölur um það, hvað frv. væri ófullkomið og gagnslítið, geti samrýmzt till. hans, því að eftir ræðu hans að dæma hefði mátt búast við miklu stórfelldari brtt. en hv. þm. hefur gert.

Þessar brtt. hans eru eiginlega í tveim flokkum. Að sumu leyti eru það formsbreytingar, og hinn flokkurinn er svo auknar kröfur til fjárframlaga fram yfir það, sem í frv. er.

1. brtt. lýtur að formsbreytingu og fleiri till., sem sé að afnema þá húsnæðismálastjórn, sem frv. gerir ráð fyrir, og félmrh. fari með stjórn húsnæðismála, sérstakri stofnun verði falin hin tæknilega hlið, en ríkisstj. skipi eftir tilnefningu bankanna 5 manna nefnd til þriggja ára í senn til að ákveða lánveitingar samkv. lögunum.

Þessi breyting og þær till., sem að henni lúta, eru ekki eins mikil efnisbreyting og hv. 4. þm. Reykv. vildi vera láta. Í síðustu málsgr. 2. gr. frv. stendur:

„Við lausn þessara mála skal húsnæðismálastjórn leita eftir samkomulagi við þá aðila, sem hafa sérþekkingu á þessum málum, svo sem atvinnudeild háskólans, húsameistara ríkisins, Iðnaðarmálastofnun Íslands, byggingarnefndir,

skipulagsstjóra ríkisins, teiknistofu landbúnaðarins, byggingarvöruverzlanir og framleiðendur byggingarefnis og íbúðarhluta.“

Hv. þm. færði þau rök í þessu efni, að það mundi varla vera á færi þessarar n. að hafa sérþekkingu til þess bæði að úthluta lánunum og hafa forgöngu um tæknileg atriði. Hér er gert ráð fyrir, að n. einmitt hafi samráð við marga aðila um tæknileg atriði, og sýnist mér alveg eins vel gengið frá því í frv. og í till. hv. þm.

Um þær till., sem lúta að auknum fjárframlögum til vissra greina þessara mála, er það að segja, að það væri að vísu gott að geta orðið við þeim kröfum. Það má alltaf færa rök fyrir því, að þörf sé á fé til nauðsynlegra framkvæmda, en gallinn er bara sá, að það rignir ekki peningum í ríkissjóð ofan úr himninum. Ríkissjóður samanstendur af því fé, sem landsmenn greiða. Greiðslugeta þeirra er takmörkuð, og þess ber að gæta, að það er ekki einasta til ríkissjóðsins, sem landsmenn verða að greiða, heldur til bæjar- og sveitarfélaga ekki svo litla upphæð. Þar af leiðandi verður því miður oft að takmarka fjárframlög, sem hægt er þó að viðurkenna, ef nóg fé væri fyrir hendi, að væru æskileg.

Aðaláherzluna lagði hv. þm. á byggingarsjóð verkamanna, bæði meðan frv. var til umr. í n. og eins nú í ræðum sínum, og vill setja inn í frv., að skylt sé að lána byggingarsjóði verkamanna og byggingarsjóði 12 millj. kr. hvorum árlega næstu 5 ár. En í 7. gr. frv. stendur: „Heimilt er að lána byggingarsjóði og byggingarsjóði verkamanna af fé því, sem veðdeild Landsbanka Íslands hefur til útaána samkv. 5. gr. Slík lán skulu veitt sem A-lán og B-lán.“ Hér er að vísu engin upphæð nefnd. Það mun vera afráðið að velta byggingarsjóði, þ.e.a.s. byggingarsjóði sveitanna, 12 millj. kr. á ári í næstu tvö ár, en ekki afráðið, hvað mikið af þessu fé verður látið til byggingarsjóðs verkamanna. Það kann vel að vera, að það verði 12 millj. kr., ef á því þykir þörf og fé að öðru leyti fyrir hendi, sem ekki þarf að nota til annars í þessu efni. Ég skal ekki segja um það, en þetta verður að meta á hverjum tíma. En í frv. sjálfu er byggingarsjóði verkamanna ekkert gert lægra undir höfði en byggingarsjóði sveitanna.

Annars er samanburður hv. þm. á kjörum sveitamanna og kaupstaðabúa í þessu efni töluvert einhliða, og þar nægir ekki að tala um byggingarsjóð verkamanna. Það er talið, að það sé afráðið að verja 12 millj. kr. á ári til byggingarsjóðs sveitanna, eða 24 millj. kr. af þessum 200 millj. kr., en allt hitt féð á að ganga til kaupstaða og kauptúna, svo að mér sýnist, að það þurfi ekki í sambandi við þetta mál að telja eftir, þó að jafnvel byggingarsjóður fengi 12 millj. kr. á ári í tvö ár, og þar með á auðvitað að láta til byggingarsjóðs verkamanna.

Út af brtt. hv. þm. við 13. gr. er það að segja, eins og hæstv. ráðh,. benti á, að hér er auðvitað um a.m.k. helmingi meira fé að ræða en í frv. stendur, því að ætlazt er til, að jafnmikið komi á móti frá bæjar- og sveitarfélögum, og þegar þess er gætt, að helzt er að skilja svo, að þetta verði næstum því styrkur, þá verð ég að segja, að það er ekki svo lítið fé, sem þarna er veitt.

Hv. þm. varði nokkrum hluta ræðunnar til þess að skýra frá, hvernig þessu væri fyrir komið í öðrum löndum, sem hann þekkti til, Norðurlöndum, Bretlandi og í Mið-Evrópu, og þar væri það alls staðar þannig, að mönnum væri skipt í flokka, þeim væri hjálpað mest, sem verst væru staddir, og öðrum minna. En þegar hann var að lýsa þessu, þá fannst mér í raun og veru hann bara vera að lýsa því, hvað hér er gert á Íslandi og hér á að gera samkv. þessu frv. Ég fann ekki muninn á því. Það á að veita fé til þess að útrýma heilsuspillandi íbúðum, og það má ætla, þó að það kunni ekki að vera undantekningalaus regla, að þeim, sem verst eru stæðir, búa í slíkum íbúðum, á að hjálpa, svo að mér skilst, að jafnvel alveg eignalausir menn geti komizt í sæmilegar íbúðir. Svo er byggingarsjóður verkamanna, sem lánar fé með mjög góðum kjörum og á áfram að gera það samkv. þessu frv. og samkv. því frv., sem samþ. var hér fyrir nokkru um breytingar á l. um byggingarsjóð verkamanna. Þar var lítilfjörleg vaxtahækkun að vísu í samræmi við það, sem almennt hefur orðið í landinu, en þó eru vextir það lágir, að það mega teljast ákaflega góð lánskjör eftir sem áður í byggingarsjóði verkamanna, og svo hitt, að menn geta þar fengið há lán, meira en helmingi hærri lán en t.d. bændur fá til íbúðarhúsabygginga hjá sér, eins og hæstv. ráðh. vék að. Ég sé því ekki annað en að það hafi sumpart verið framkvæmt hér á Íslandi á undanförnum árum og sérstaklega þegar þetta frv. verður að l., þá verði þessi mál framkvæmd á ákaflega svipaðan hátt og hv. 4. þm. Reykv. lýsti að gert væri í þeim löndum, sem hann þekkti til.

Hv. þm. var með útreikninga, hvað mikið af tekjum manna færi í byggingarkostnað, jafnvel þó að þeir byggðu með lánum úr byggingarsjóði verkamanna; það yrði allmikill hluti. Hann miðaði við Dagsbrúnarkaup og 8 tíma vinnu, en það mun nú hafa verið svo á undanförnum árum og ekki bein ástæða til að halda, að það breytist, að ég hygg, að flestir Dagsbrúnarmenn hafi unnið meira en 8 tíma á dag og fengið þar af leiðandi töluvert miklu hærri tekjur en eftir þessum útreikningi. Og sannleikurinn er sá, það þekki ég af eigin raun, að hver maður á sæmilegum aldri með fulla heilsu líður ekkert tjón af því, þótt hann vinni t.d. 10 tíma á dag, og flestir þeir, sem eru að koma yfir sig húsi, mundu vera fúsir til að leggja það á sig og leggja þá það aukafé í byggingarkostnaðinn.

Ég vil ekki tefja tímann með því að hafa þessi orð fleiri, — það þýðir ekki að vera að rekja ræðu hv. 4. þm. Reykv. lið fyrir lið, — en enda með því, sem ég hef sagt áður, að meiri hl. fjhn. ræður til að samþ. frv. óbreytt að öðru leyti en því að samþ. brtt. á þskj. 727.