17.12.1954
Neðri deild: 38. fundur, 74. löggjafarþing.
Sjá dálk 1150 í B-deild Alþingistíðinda. (1374)

136. mál, skemmtanaskattur

Frsm. (Páll Þorsteinsson):

Menntmn. þessarar hv. d. barst í dag frv. það, sem hér liggur fyrir, frá menntmrn. með tilmælum um, að n. tæki málið til flutnings. N. hefur orðið við því að bera málið fram. Hér er einungis um að ræða framlengingu á ákvæðum, sem gilt hafa undanfarin ár, og er þörfin sú sama fyrir þetta fé og verið hefur.

Þótt einstakir nm. áskilji sér rétt til þess að hafa óbundnar hendur við afgreiðslu málsins, þá vil ég vænta þess, að málið fái fljóta og góða afgreiðslu hér í deildinni.