13.10.1954
Neðri deild: 3. fundur, 74. löggjafarþing.
Sjá dálk 63 í B-deild Alþingistíðinda. (140)

33. mál, búseta og atvinnuréttindi

Dómsmrh. (Bjarni Benediktsson):

Herra forseti. Þetta litla frv. er flutt til þess að fella úr lögum ákvæði, sem hér voru alllengi og voru nauðsynleg, meðan vinir vorir Danir höfðu jafnrétti á við okkur hér á landi, og þurftu þá að vera til þess að veita Íslendingum raunverulega a.m.k. nokkurn forrétt eða tryggja það, að ekki væri hægt af öðrum að neyta hér slíkra atvinnnréttinda sem frv. fjallar um. Þá var sem sé eðlilegt ekki aðeins að krefjast búsetu til atvinnuréttinda hér á landi, eins og á að gera áfram samkv. frv., þar sem þess hefur verið krafizt, heldur einnig, að nokkur undanfarandi búseta hefði átt sér stað, í þessu tilfelli eitt ár. Við vitum, að enn þá róttækara ákvæði er í sjálfri stjórnarskránni varðandi neyzlu sumra borgaralegra réttinda. Þau ákvæði eru auðvitað orðin með öllu úrelt nú, en ekki er hægt að afnema þau nema með stjórnarskrárbreytingu, og hafa þessi lög því engin áhrif varðandi þau pólitísku réttindi.

Tilefni þess, að frv. er borið fram nú, er það, að einn mætur og þekktur Íslendingur, sem hefur getið sér góðan orðstír í starfi erlendis, vill flytja hingað heim, en þá kemur í ljós, að hann getur ekki fyrsta árið sem hann býr hér stundað þá atvinnu, sem hann hafði hugsað sér, og hefur því legið við borð, að hann hætti við heimkomu sína. Slíkt er auðvitað með öllu ástæðulaust og beinlínis til ills, og varð því að ráði að semja þetta frv., sem ég vona að fái greiðan framgang, og vil ég leggja til, að það gangi til 2. umr. og hv. allshn.