01.03.1955
Neðri deild: 54. fundur, 74. löggjafarþing.
Sjá dálk 1159 í B-deild Alþingistíðinda. (1424)
92. mál, ættaróðal og erfðaábúð
Frsm. (Jón Pálmason):
Herra forseti. Þetta frv., sem hér liggur fyrir á þskj. 406, hefur nú gengið í gegnum hv. Ed. og verið þar breytt einu atriði í því að tillögu hv. landbn. þeirrar d. Þetta atriði er það, að þeir hafa fellt eina setningu úr 1. gr. um það, að ef ekki náist samkomulag á skiptafundi um viðtakendur á óðalsjörð eða ættarjörð, þá ráði meiri hluti.
Landbn. hefur talað um þetta og fellst á að ganga að frv. eins og það liggur fyrir, og verður þá framkvæmdin þannig, að ef ekki kemst á samkomulag á skiptafundi, hvort sem það eru einkaskipti eða opinber skipti, sker skiptaráðandi úr því, hver skuli njóta réttarins. Eins og menn vita, þá getur hvort tveggja átt sér stað, að það séu einkaskipti og það séu opinber skipti, en mestar líkur eru til o,g hér um bil alveg víst, að ef ekki næst samkomulag á einkaskiptafundi, fara skiptin í opinber skipti, þegar þannig stendur á. En ég vil taka það fram, svo að það geti ekki valdið neinum misskilningi, að þar sem talað er um samkomulag, er eingöngu átt við það, að það samkomulag sé reynt á skiptafundi.
Að öðru leyti sé ég ekki fyrir n. hönd ástæðu til að fjölyrða um þessa breyt. hv. Ed.