22.02.1955
Neðri deild: 51. fundur, 74. löggjafarþing.
Sjá dálk 1186 í B-deild Alþingistíðinda. (1511)
129. mál, Brunabótafélag Íslands
Skúli Guðmundsson:
Herra forseti. Aðalágreiningurinn, sem fram hefur komið í þessu máli, er um það, hvort húseigendur eigi að hafa frelsi til þess að brunatryggja hús sín þar, sem þeir telja sér bezt henta, eða ekki. Ég hef hlýtt á ræður fyrsta flm. frv., hv. þm. Ak. (JR), og hv. frsm. allshn., en ekki heyrt þar nein frambærileg rök til stuðnings því, að nauðsynlegt sé að grípa fram fyrir hendur manna í þessum efnum. Að vísu heyrði ég frsm., hv. 3. þm. Reykv., nefna það, að hægt mundi að ná hagstæðari tryggingarsamningum með því að semja um mikið í senn. En ég hefði haldið, að hv. 3. þm. Reykv. gæti séð ýmsa annmarka á því að veita sérstöku tryggingarfélagi eða bæjar- og sveitarfélagi einkaaðstöðu á viðskiptasviðinu, hvort sem um er að ræða tryggingar eða t.d. kaup og sölu á vörum. Ég tel, að með þessari ábendingu hafi hann alls ekki sannað yfirburði þeirrar haftastefnu, sem mótuð er í frv., fram yfir frjáls tryggingarviðskipti.
Hér á landi eru margir bifreiðaeigendur. Skylt er að hafa bifreiðarnar tryggðar, en hverjum einstökum bifreiðaeiganda er í sjálfsvald sett, hjá hvaða tryggingarfyrirtæki hann vátryggir bifreið sína. Þetta þykir þannig gefast, að ekki hafa komið fram tillögur um að hverfa frá því fyrirkomulagi. En hvers vegna má ekki hafa sama hátt á með húsatryggingarnar? Hér vantar frambærilegar skýringar frá flm. frv. og þeim allshn.-mönnum, sem mæla með því, að frv. verði samþykkt óbreytt. Því vil ég leyfa mér að spyrja hv. þm. Ak., sem er fyrsti flm. frv., og hv. 3. þm. Reykv., frsm. allshn., hvers vegna má ekki hafa húsatryggingarnar frjálsar eins og t.d. bifreiðatryggingarnar. Hvers vegna?