24.02.1955
Neðri deild: 52. fundur, 74. löggjafarþing.
Sjá dálk 1187 í B-deild Alþingistíðinda. (1513)

129. mál, Brunabótafélag Íslands

Jónas Rafnar:

Herra forseti. Það eru aðeins nokkur orð. Í sambandi við brtt. frá hv. 1. þm. Árn. vil ég segja, að tilgangurinn er alveg augljós, sem sé sá að reyna að koma í veg fyrir, að samningar takist á milli sveitarfélaganna og Brunabótafélags Íslands. Því eins leggur hann til, að fresturinn verði sem skemmstur. Ég sé ekki út af fyrir sig neina hættu í því, þó að báðir samningsaðilar hafi góðan tíma til þess að athuga sinn gang og semja um þessi mál.

Það stendur nú svo á, að ég sá um daginn afrit af samningi, sem Samvinnutryggingar hafa gert við sveitarfélag úti á landi. Í þessum samningi stendur, með leyfi hæstv. forseta: „Samningur þessi gildir í 5 ár, frá 15. okt. 1955, en sé honum ekki sagt upp með 6 mánaða fyrirvara, miðað við lok samningstímans, framlengist hann um 5 ár í senn.“ Samvinnutryggingar hafa því talið nauðsynlegt, að þær hefðu 6 mánaða fyrirvara í sambandi við samninga um þessar tryggingar. Það er því engin goðgá, þó að Brunabótafélag Íslands hafi einhvern svipaðan tíma, þeir aðilar, sem koma til með að semja við félagið, hafi einhvern svipaðan umhugsunarfrest um það, hvort eigi að gera samninginn eða ekki. Í þessu sambandi má einnig minna á það, að ég held, að varðandi brunatryggingar hér í Reykjavík hafi verið um töluvert lengri fresti að ræða en farið er fram á í sambandi við Brunabótafélag Íslands, og ég held, að í sambandi við þá samninga hér í bænum, sem gerðir hafa verið, hafi verið allt að eins árs uppsagnarfrestur.