24.02.1955
Neðri deild: 52. fundur, 74. löggjafarþing.
Sjá dálk 1192 í B-deild Alþingistíðinda. (1517)
129. mál, Brunabótafélag Íslands
Skúli Guðmundsson:
Herra forseti. Það eru aðeins örfá orð.
Hv. 3. þm. Reykv. segir, að við séum hér að berjast fyrir hagsmunum tryggingarfélags, sem heitir Samvinnutryggingar.
Það, sem við erum hér að berjast fyrir, er það, að tryggingarnar verði frjálsar, frjálsar fyrir alla húseigendur, þeir megi tryggja sínar húseignir þar, sem þeim sýnist hagkvæmast á hverjum tíma. Þetta segir hv. 3. þm. Reykv. að sé að berjast fyrir hagsmunum Samvinnutrygginga. Ég vil vekja athygli á því, að þarna liggur þá fyrir játning frá honum um það, að þetta fyrirtæki sé þannig rekið, að viðskiptin hljóti öll að fara til þess, ef menn geta farið hér frjálsir ferða sinna.