24.02.1955
Neðri deild: 52. fundur, 74. löggjafarþing.
Sjá dálk 1192 í B-deild Alþingistíðinda. (1518)

129. mál, Brunabótafélag Íslands

Emil Jónsson:

Herra forseti. Þessar umr. eru nú að mínu viti orðnar allkyndugar, þar sem hv. þm. V-Húnv. heldur því fram, að það sé eingöngu fyrir því barizt af hálfu hans og hans fylgismanna, að brunatryggingar í þessu landi megi vera frjálsar, þ.e.a.s., að. hver maður megi tryggja sínar húseignir þar, sem hann óskar, án þess að vera með í heildartryggingu síns hreppsfélags eða koma þar fram í hinni sameiginlegu heild.

Ég vil aðeins út af þessu spyrja hann og þá, hvað því veldur, að afurðasölulögin voru sett á sínum tíma.

Við skulum fara til baka 20 ár aftur í tímann, þegar bændum var bannað að verzla hver einn út af fyrir sig, þegar það var talið hyggilegra, að þeir ættu að vera með í samsölum, bæði um sölu mjólkur, kjöts og annarra búsafurða. Hvers vegna var þetta gert? Var það til þess að styðja frelsi einstaklingsins? Var það ekki vegna þess, að hagsmunum bændanna var talið betur borgið með því, að þeir kæmu saman sem heild, en ekki hver einn út af fyrir sig? Nú vil ég spyrja þessa hv. menn, sem fyrir frelsinu berjast: Vilja þeir falla frá því, sem þá var ákveðið, eða vilja þeir viðurkenna sama rétt handa brunatryggjendum nú og bændum þá?