10.03.1955
Efri deild: 56. fundur, 74. löggjafarþing.
Sjá dálk 1201 í B-deild Alþingistíðinda. (1530)
129. mál, Brunabótafélag Íslands
Karl Kristjánsson:
Herra forseti. Hér er allstórt mál á ferð, og mig undraði það þess vegna nokkuð, þegar n. sú, sem um það fjallaði fyrir hönd þessarar deildar, skilaði jafnstuttu áliti og hún skilaði, og ekki sízt af því, að mér hafði skilizt, að hæstv. forseti hefði lagt á það nokkra áherzlu við formenn nefnda, að nál. væru sem ýtarlegust.
Það er með frv. þessu, sem fyrir liggur, verið að nýskapa 40 ára stofnun, Brunabótafélag Íslands, sem satt að segja virtist nú vera að daga uppi með þau verkefni, sem því höfðu verið falin. Brunabótafélagið hafði að vísu gert allmikið að því að bæta brunavarnir, og fyrir það á það þakkir skilið. En þar var líka um hagsmunamál fyrir það sem stofnun að ræða. En það hafði vanrækt annan þátt og; steinrunnið í því sambandi; það hafði vanrækt að hugsa fyrir því, að þeir, sem tryggðu hjá því, gætu fengið svo góð kjör sem bezt var hægt að gefa, og þetta hafði félagið getað vanrækt, af því að það hafði við engan haft að keppa í þessum efnum, þar sem húseigendur utan Reykjavíkur voru í þeim álögum að verða að skipta við Brunabótafélagið hvað sem aðrir buðu. Að þetta er rétt, sannast með því, að nú getur Brunabótafélagið boðið, eftir að lögin frá því í fyrra um brunatryggingar utan Reykjavíkur voru fram komin, allt að 35–40% lækkun á iðgjöldum.
Hv. frsm. n. bætti nokkuð úr því, hvað nál. er stutt og segir lítið, en þó virðist mér, að ekki komi í ljós hjá honum, að n. hafi tekið þetta frv. til svo rækilegrar athugunar sem vert hefði verið. Mér virðast á því nokkrir smíðagallar, sem hann virtist ekki sjá eða telja ástæðu til þess að tala um, og sumir þeirra eru allverulegir. Yfirleitt eru þeir verulegustu á þá leið, að mér virðist ekki að sú endurreisn, sem átti að vera hafin í fyrra með löggjöfinni um brunatryggingar utan Reykjavíkur, komist fullkomlega inn í þetta frv., og má líka segja, að n. sú, sem um málið fjallaði samkvæmt lögunum frá í fyrra, hafi ekki komið þeim anda í frv.
Frsm. tók það fram, að það hefði orðið samkomulag um það innan n. að breyta í engu frv., sem Alþ. afgreiddi í fyrra. (GÍG: Nei.) Er það ekki rétt? (GÍG: Að fella það ekki inn í l.) Að fella það ekki inn í og breyta því í engu, það er rétt. En mér virðist, að þetta hafi þó mistekizt, og skal ég koma að því seinna. Hins vegar lagði hann áherzlu á það, að frv. gerði ráð fyrir því, að nú yrði Brunabótafélagið þannig byggt, að þeir, sem tryggja, yrðu þar aðilar í stjórn og gætu þess vegna komið fram eðlilega sínum till. til umbóta og tekið þátt í fyrirsögn um starfsemi félagsins, og í því sambandi vitnar hann til 5. gr., þar sem gert er ráð fyrir því, að að afstöðnum hverjum reglulegum bæjar- og sýslunefndarkosningum kjósi hvert bæjarfélag utan Reykjavíkur og öll sýslufélög landsins einn mann hvert og annan til vara í fulltrúaráð fyrir félagið, og svo er sagt frá því, á hvern hátt þessi kosningarréttur er eða á að vera í framkvæmdinni. En þar sem ætlazt er til, að þetta frv. verði að lögum, sem taki gildi nú þegar á þessu ári, en ekki er nema eitt ár liðið frá því að kosningar fóru fram, þá hefði verið mjög eðlilegt og sjálfsagt að taka fram í lögunum, hvenær skyldi kosið í fyrsta sinn. Nú hlýtur manni að verða spurn, af því að sagt er: „að afstöðnum hverjum reglulegum kosningum“, hvort meiningin sé, að ekki komi til þess, að fulltrúaráð og framkvæmdarstjórn verði skipuð fyrr en næst fara fram reglulegar kosningar, og hvort það er þá gert ráð fyrir því, að hinn ríkisskipaði forstjóri verði einvaldur, eins og hann áður hefur verið, fram að þeim tíma. Þarna finnst mér vanta á, að ákvæðin séu nægilega skýr.
Þá segir í 6. gr. frá því, að eftirlitsmenn brunavarna skuli mæta á fulltrúaráðsfundum og gefa skýrslu um störf sín.
Það má segja, að fulltrúaráð það, sem gert er ráð fyrir í 5. gr. að starfi í félaginu og 6. gr. ákveður svo hvenær skuli halda fundi, sé ekki svo mikill mannsöfnuður, að ekki sé sambærilegur tilkostnaður hjá öðrum félagssamtökum í landinu með því að halda fulltrúaráðsfundi. En mér er spurn: Hvað er átt við með „eftirlitsmönnum brunavarna“? Nú veit ég ekki betur en að úti um allt land í bæjarfélögunum séu brunamálanefndir og fulltrúar, sem kallaðir eru eftirlitsmenn með brunavörnum. Rétt tel ég þess vegna, að það hefði komið fram í lögunum, hverjir þessir eftirlitsmenn eru, því að hópurinn gæti orðið nokkuð stór, sem mæta skyldi og gefa skýrslur, ef allir þeir, sem bera nafnið eftirlitsmenn brunavarna og vinna munu í þágu þessa félagsskapar vegna brunavarnanna, eiga að halda fund með fulltrúaráðinu.
Þá er 7. gr., sem ákveður skyldu til trygginga hjá félaginu og vitnar til 20. gr., sem ég kem að seinna, þar sem ákveðið er um það nánar, hvernig hægt er að losna við þessa skyldu. Hér í 7. gr. segir, að allar húseignir í kaupstöðum og kauptúnum skuli tryggðar. En nú er það ekki tilætlunin, að skylda hvíli á Reykjavík að tryggja í þessu félagi, því að hún hefur sín sérstöku lög. Hins vegar er Reykjavík kaupstaður. Mér virðist því, að þarna sé kvisthlaup hjá þeim, sem smíðuðu, og til frekari sönnunar því vil ég benda á það, að þessi grein, sem er mjög nærri því að vera orðuð eins og greinin í Brunabótafélagslögunum, sem nú gilda, og fjallar um sama efni, tekur það einmitt fram, að ákvæðin um skylduna gildi þó ekki um húseignir í Reykjavíkurkaupstað. Það má segja, að annars staðar í l. megi finna, að ekki sé átt við Reykjavík, vegna þess að þar er talað um, að heimilt sé að hafa viðskipti við Reykjavík, en þetta finnst mér vera ónákvæmni og óþarfa ónákvæmni, af því að fyrirmyndin hafði þessa nákvæmni.
Þá er 9. greinin. Þar segir, að vátryggingarupphæð húsa ákveðist með virðingargerð. Þegar talað er um virðingargerð, þá er ekkert frekar út í það farið, en venjan hefur verið hjá Brunabótafélagi Íslands að hafa trúnaðarmenn til þess að framkvæma þessar virðingargerðir. En í lögunum um brunatryggingar utan Reykjavíkur frá í fyrra er svo fyrir mælt í 3. gr., að dómkvaddir menn skuli framkvæma virðingargerðirnar. Nú er það svo, að það kostar nokkuð að fá menn dómkvadda. Það kostar gjald, sem sá, sem dómkveður, innheimtir, 25 kr. fyrir mann. Hér er nm það að ræða vitanlega að dómkveðja 2 menn, en það kostar þann, sem tryggir, 50 kr., auk þess sem menn eru víða þannig settir, að það er nokkur fyrirhöfn að ná til sýslumanns til að fá hann til að dómkveðja. Mér virðist, að úr því að verið var að endurskoða þessi lög svona rækilega, þá hefði það átt um leið að takast til athugunar að gera mönnum þetta einfaldara og ódýrara en þessi löggjöf frá í fyrra ákveður, því að ég hugsa, að við setningu hennar hafi þess ekki verið gætt, hvað þetta er fyrirhafnarsamt og dýrt. Nú má gera ráð fyrir, að stundum semji ekki um mat, og þá getur orðið tvöföld dómkvaðning. Mér finnst, að sú n., sem fjallaði um endurskoðunina samkv. 5. gr. laganna frá í fyrra, hefði átt að taka þetta upp til lagfæringar, og ég teldi nú mjög æskilegt, að n. sú, sem fjallar um málið hér í d., athugaði þetta og annað það, sem ég er nú að benda á.
Þá kem ég að 20. greininni, og ég hef leyft mér að flytja við hana óbeint lítils háttar brtt. með því að leggja til, að tekið verði upp bráðabirgðaákvæði, en hún segir um það, hvað til þarf að geta losnað úr viðskiptum við Brunabótafélag Íslands. Lögin um brunatryggingar utan Reykjavíkur frá í fyrra segja í 1. gr., sem hljóðar þannig, með leyfi hæstv. forseta:
„Bæjar- og sveitarstjórnum utan Reykjavíkur er heimilt frá 15. október 1955 að semja við eitt vátryggingarfélag eða fleiri um brunatryggingar á þeim húseignum í umdæmi sínu, sem tryggingarskyldar eru samkv. 2. gr.“
M.ö.o. er með þessum lögum fólkið utan Reykjavíkur leyst úr þeim álögum að vera skuldbundið til að skipta við Brunabótafélag Íslands eins og áður og getur farið út í frjálsar tryggingar, þ.e.a.s. þó í hópum bæjarfélaga og hreppsfélaga, en engin fyrirvaraskylda lögð á herðar. Nú skal ég viðurkenna það, að það getur verið óhentugt fyrir þau félög, sem starfa að brunatryggingum, að enginn sé fyrirvarinn, og það mun vera alveg rétt, sem hv. frsm. sagði áðan, að brunatryggingarfélög yfirleitt hafa slíkan fyrirvara. En mér finnst það nokkuð langt gengið, ári eftir að þessi lög eru út gefin og á því tímabili, þegar breytingarnar eru að verða og menn eru að ákveða sig um það, hvort þeir halda áfram viðskiptum við Brunabótafélagið eða ganga í viðskipti við önnur félög um þessi efni, og einnig, þegar ekki hefur sýnt verið fram að þessu, hvernig Brunabótafélagið hið nýja muni verða uppbyggt, að upphefja gersamlega möguleikana á því að geta slítið viðskiptunum á næsta hausti, ef ekki er búið að gera það, áður en þetta frv. verður að lögum, sem hér er á ferðinni, því að með ákvæðum 20. gr. frv. er skyldan gerð 6 mánaða fyrirvari, en auk þess 2 mánaða umræðutími, svo að í raun og veru er þarna um að ræða 8 mánaða fyrirvara, sem er útilokaður nú, miðað við árið 1955. Við skulum segja, að 6 mánaða fyrirvari sé eðlilegur, en ég sé ekki, að það sé nokkur ástæða til þess að hafa fyrirvarann tvöfaldan. Ég sé ekki, og ég veit ekki, hvar fyrirmyndir um slíkt er að finna. Jú, einhver hefur sagt, að fyrirmyndin muni vera til í varnarmálasamningnum. Hv. frsm. benti ekki á neina hliðstæðu í því efni; hann minntist aðeins á það, að 6 mánaða fyrirvari mundi tíðkast í frjálsum samningum. Ég sé ekki betur en þegar verið er að gera ráð fyrir 2 mánaða umræðutíma, þá sé verið enn að gera mönnum sem örðugast að geta slitið viðskiptum við Brunabótafélag Íslands og skapa félaginu aðstöðu til þess að halda mönnum í þessum viðskiptum, og það rökstyð ég með því, að úr því að það þarf að ræða við Brunabótafélagið í 2 mánuði, áður en leyfilegt er að segja upp, sem á þó að vera með 6 mánaða fyrirvara, þá er í raun og veru verið að tryggja félaginu það að geta gengið að hvaða boði sem er úr öðrum stað, ef því þóknast, og svona regla mundi leiða það af sér, að aðrir með frjálsum tryggingum mundu gefast upp á því að bjóða á móti því félagi, sem alltaf getur tekið lægsta boði. Með þessu ákvæði virðist mér það alveg ljóst, að n. hefur ekki tekizt að gæða þetta frv. þeim frelsisanda, sem talað var um að ætti að leiða inn í þessi mál hér í fyrra og kom ljóst fram að menn þóttust vilja í sambandi við setningu laganna um brunatryggingar utan Reykjavíkur.
Til þess að lagfæra þetta lítils háttar fyrir árið í ár, hef ég leyft mér að flytja brtt. á þskj. 436 um það, að aftan við 27. gr. komi ákvæði til bráðabirgða um það, að þrátt fyrir ákvæðin í 20. gr. skuli þó þær úrsagnir gilda, sem koma fram 3 mánuðum fyrir 15. okt. 1955. Þetta þýðir það eftir þeim skilningi, sem ég legg í mína till., að þau sveitarfélög, sem ætla að ganga úr Brunabótafélagi Íslands, þurfa að hefja um það viðræður fyrir 15. maí, en segja upp fyrir 15. júli. Það álít ég að sé alveg nægilegur fyrirvari fyrir Brunabótafélag Íslands. Ætti það í raun og veru að vera nægilegur fyrirvari ár hvert, en fyrst og fremst nægilegur fyrirvari á því ári, þegar Brunabótafélagið hefur samkv. lögunum frá í fyrra um brunatryggingar getað búizt við því að missa viðskiptin án fyrirvara, annars en að uppsagnir væru komnar fyrir 45. október.
Ég vænti þess nú, að hv. þingmenn telji sanngjarnt, þó að þeim sé annt um Brunabótafélagið og viðskipti þess, að vera með þessari brtt., því að hún er áreiðanlega ekki ósanngjörn. Og minna finnst mér ekki vera hægt að gera fyrir þá menn, sem talið var í fyrra að verið væri að leysa úr álögum, þ.e.a.s. skylduviðskiptum við félag, sem ekki hafði sinnt því fullkomlega að gefa þau beztu kjör, sem sýnilegt er nú orðið að það telur sér fært að bjóða.
Ýmislegt er það fleira, sem mætti minnast á um galla á þessu frv. T.d. virðist mér það vera líkt sagarfari á smiðinu, að sums staðar er talað um stjórnir bæjar- eða sveitarfélaga og sums staðar um stjórn bæjar- og hreppsfélaga. Það er alveg rétt að tala um stjórn bæjar- og hreppsfélaga, en það er rangt að tala um stjórn bæjarog sveitarfélaga, vegna þess að bæjarfélögin eru líka sveitarfélög. Sveitarfélög er heitið yfir félögin, bæði hreppa og bæi. Mér finnst, að nefnd, sem hefur endurskoðað lög og ratað á að komast rétt að orði sums staðar, hefði gjarnan mátt samræma þetta.
En svo er mér enn spurn. Nú er þetta félag tryggjenda: Hver á félagið? Hvers eru eignir þess? Eftir því sem maður getur lesið út úr frv. sums staðar, þá virtist liggja beint fyrir að ætla, að þeir, sem eru í félaginu hverju sinni, séu í raun og veru eigendur þess; þegar þeir ganga úr félaginu, hætta þeir að vera meðeigendur og missa réttinn til eignanna. En hvers vegna ekki að láta þetta koma hreint fram í lögum um sjálfstætt félag? Væri ekki hægt að hugsa sér það, að þetta félag, sem er nú verið að gera á þennan hátt „sjálfstætt og frjálst“ félag sveitarfélaganna, yrði einhvern tíma lagt niður? Það hendir stundum félög. Og gæti þá ekki farið vel á því, ef lögin eiga að vera heilsteypt, að láta vera ákvæði um, hvernig þá skyldi með fara og hverjir yrðu þá erfingjar þess? Ég hygg það vera í lögum félaga yfirleitt.
Ég þykist hafa leitt rök að því, að þetta frv. er með mörgum göllum, og þess vegna vildi ég fyrir mitt leyti líka mega óska þess, að sú n., sem hefur málið til meðferðar hér í d., tæki það á ný til athugunar og lagaði það, sem auðveldast er að laga og telja má líklegt að samkomulag verði um, þó að ágreiningur sé um hin stærri atriði.