10.03.1955
Efri deild: 56. fundur, 74. löggjafarþing.
Sjá dálk 1206 í B-deild Alþingistíðinda. (1532)
129. mál, Brunabótafélag Íslands
Frsm. meiri hl. (Guðmundur Í. Guðmundsson):
Herra forseti. Það er alveg rétt, sem hv. þm. S-Þ. benti á, að greinargerð sú, sem meiri hluti n. lét fylgja með áliti sínu í þessu máli, er mjög stutt og gat ekki styttri verið. En það stafar af því, að þetta mál kemur frá milliþn., sem lætur fylgja frv. mjög ýtarlega og skilmerkilega greinargerð. Hefði átt að fara að skrifa langt og ýtarlegt mál um þetta, þá hefði það raunar ekki getað annað orðið en endurtekning á því, sem sagt er í greinargerð meiri hl. milliþn., en meiri hluti allshn. lýsir því yfir í nál. sínu, að hann sé samþykkur till. meiri hlutans. Því hefði lengra nál. ekki orðið annað en endurtekning á því, sem þegar var fram komið í málinu.
Þá ræddi hv. þm. S-Þ. um það, að sú staðreynd, að brunatryggingariðgjöldin hafa verið nokkuð lækkuð nú upp á síðkastið, sýndi, að þau hafi verið of há áður og að illa hafi verið á málunum haldið af hálfu Brunabótafélagsins. Ég held, að þessi hv. þm. hefði átt að hugsa sig um dálítið betur, áður en hann fullyrti, að lækkun iðgjalda hlyti að þýða það, að þau hefðu verið of há áður. Ég veit ekki, hvað hann er kunnugur tryggingamálum og ákvörðun tryggingariðgjalda. En ég er sannfærður um, að et hann hefði spurzt fyrir um þetta hjá tryggingarfélagi, sem ég veit að hann hefur nokkurn aðgang að, þ.e. Samvinnutryggingum, þá hefði það félag getað skýrt honum frá reynslu sinni í þessum efnum, sem er að niðurstöðu til talsvert önnur en það, sem hv. þm. fullyrti um þetta.
Það gerðist fyrir nokkru, að Samvinnutryggingar stórlækkuðu iðgjöldin á bílatryggingunum. Það varð til þess, að önnur tryggingarfélög lækkuðu þessi iðgjöld hjá sér líka. Af þessu hefði maður átt að draga þá ályktun, ef maður vill vera í samræmi við það, sem hv. þm. S-Þ. sagði, að bílatryggingariðgjöldin hafi áður verið of há. Máske hann hafi dregið þá ályktun? En hvernig fór? Þegar nokkur tími var umliðinn, neyddist þetta tryggingarfélag, Samvinnutryggingar, til að fara til hinna tryggingarfélaganna, sem bílatryggingarnar tóku, og segja við þau: Ja, því miður, iðgjöldin hafa verið allt of lág, sem við höfum boðið upp á, við ráðum ekki við þetta. Það er allt saman að stranda hjá okkur. Viljið þið nú ekki gera það fyrir okkur að hjálpa okkur út úr vandræðunum með því að vera samtaka um að hækka iðgjöldin á ný? — Og þetta var gert. Félögin urðu sammála um þetta. Það, sem gerðist, þegar Samvinnutryggingar voru að lækka sína bílatryggingu, var ekkert annað en það, að það var verið að bjóða óeðlilega lágt tryggingariðgjald til þess að geta náð tryggingum frá öðrum félögum, sem siðan leiddi til hækkunar á eftir. Og mér er ekki grunlaust um, að það kapphlaup, sem nú er á ferðinni um brunatryggingariðgjöldin, sé e.t.v. eitthvað í þessa átt, en slíkt mun koma í ljós, þótt síðar verði.
Þá var hv. þm. S-Þ. að reyna að telja upp ágalla, sem hann taldi að væru á frv. af hálfu milliþn., og það er eftirtektarvert, að atriðin, sem hann nefndi, fyrir utan það, sem hann ber fram brtt. um, voru aðeins 5. Ég ætla aðeins að víkja að þeim til þess að sýna fram á, hvílíkur sparðatíningur er hér á ferðinni.
Hv. þm. finnur fyrst að því, að sagt er í 5. gr., að það eigi að kjósa fulltrúaráðið strax að afstöðnum reglulegum bæjar- og sýslunefndarkosningum. Nú segir hann: Þegar lög þessi eru gengin í gildi, þá er ár liðið frá því að þessar reglulegu kosningar fóru fram. Það stendur ekki í frv., hvað á að gera. Á kannske ekki að kjósa neitt, fyrr en reglulegar bæjar- og sýslunefndarkosningar hafa farið fram næst? — En það stendur annað í frv., sem hver einasti maður, sem les það, getur séð og skilið. Í 27. gr. þess stendur: „Lög þessi öðlast þegar gildi.“ Og þetta segir allt, sem segja þarf, þar á meðal það, að framkvæmdarstjórnin og fulltrúaráðið á að taka við stjórn félagsins strax og tími hefur unnizt til að kjósa þau. Lögin taka greinilega fram, að frestur má ekki verða á kosningu fulltrúa af hálfu sveitar- og sýslufélaganna. Það þarf því enginn að vera í neinum vafa um það, og það er hreinn útúrsnúningur hjá þessum hv. þm., þegar hann er að telja sig vera eitthvað að efast um það, hvernig þetta ákvæði verður í framkvæmd.
Þá minntist hv. þm. einnig á 7. gr. frv. Hann segir, að í henni sé sagt, að skylt sé að tryggja allar húseignir í kaupstöðum og kauptúnum, og vegna þess að Reykjavík sé kaupstaður, þá geti það vel tekið til Reykjavíkur líka. En hann tæpti þó á því, sem greinilega kemur fram í frv., að í 8. gr. þess er á það bent, að sérreglur gildi um Reykjavík, auk þess sem sérlög eru til um Reykjavík og allir vita, að lögin um Brunabótafélagið í heild gilda ekki um það. Þetta er af hans hálfu ekkert annað en tilraun til þess að vera að hártoga, gera tortryggilegt og jafnvel snúa út úr.
Þá minntist hv. þm. líka á ákvæði 9. gr. um virðingar og sagði, að virðing kostaði peninga, það gæti veríð erfitt að ná í þá, sem ætti að útnefna, og annað þess háttar. Taldi hann, að milliþn. hefði illa sézt yfir, að hún skyldi ekki hafa gert sérstakar ráðstafanir út af þessu. Ég vil benda þessum hv. þm. á, að á síðasta þingi tók hann þátt í sjálfur að samþ. l. um brunatryggingar utan Reykjavíkur. Þar er gert ráð fyrir, að virðingar fari fram með nákvæmlega sama hætti og hér er ráðgert. Hann fann enga köllun hjá sér til þess að gera neina athugasemd við þetta, bar enga brtt. fram og minntist ekki á neitt. Núna, þegar farið er að leita í frv. að einhverju til þess að finna að, þá er þarna sparð.
Þá minntist hv. þm. á það líka, að sagt er, að eftirlitsmenn brunavarna skuli mæta á fulltrúaráðsfundum hjá Brunabótafélaginu. Og hann talar um það, að það séu eftirlitsmenn í hverju einasta sveitarfélagi og það sé nokkuð mikið að kalla þá menn til þessara funda. Þetta er ekki heldur rétt hjá þessum hv. þm. Eftirlitsmenn brunavarna eru einn eða tveir menn. Það er vegamálastjórinn í Reykjavík og sérstakur starfsmaður hjá Brunabótafélaginu. Þetta eru eftirlitsmenn brunavarna, sem lögin tala um og tilgreindir hafa alla tíð verið í reglugerðum félaganna. Aðrir eftirlitsmenn brunavarna í merkingu laganna eru alls ekki til. Hitt er annað mál, að í sveitarfélögum og sérstaklega kaupstöðum og kauptúnum úti um land hafa sveitarfélögin sérstaka eftirlitsmenn með eldfærum, en það eru ekki eftirlitsmenn brunavarnanna. Hér er því ekki nema um tvo menn að ræða.
Þetta voru atriðin, sem þessi hv. þm. hafði út á frv. að setja, önnur en þau, sem hann hefur borið fram brtt. í sambandi við.
Í sambandi við brtt. vil ég aðeins undirstrika það, að hér er ekki verið að koma aftan að neinum og hér er ekki verið að taka neinn rétt af neinum, sem hann áður hafði, vegna þess að um síðustu áramót skrifaði Brunabótafélag Íslands öllum sveitarstjórnum á Íslandi ýtarlegt bréf, skýrði frá þessu frv., varaði við því, að til þess mætti koma, að það gæti orðið að lögum, og þess vegna var skorað á sveitarstjórnirnar, ef þær vildu segja upp hjá Brunabótafélaginu eða ef þær vildu semja á ný, að gera það strax og láta það ekki dragast, svo að lögin kæmu þeim í koll síðar. Allar sveitarstjórnir á Íslandi hafa því fengið ekki aðeins viðvörun um þetta, heldur beina hvatningu frá Brunabótafélaginu sjálfu til þess að gæta sín, segja upp strax og semja, et þær vildu vera lausar. — Meira hef ég ekki að segja.