11.03.1955
Efri deild: 57. fundur, 74. löggjafarþing.
Sjá dálk 1212 í B-deild Alþingistíðinda. (1537)

129. mál, Brunabótafélag Íslands

Frsm. minni hl. (Hermann Jónasson):

Herra forseti. Þessi eina brtt., sem liggur hér fyrir, er ekki mikil að vöxtum og breytir ekki ýkja miklu, þó að hún verði samþ. En eins og ég sagði í gær, þá tel ég það vera fullreynt af umræðunum á síðasta ári, sem voru mjög ýtarlegar hér í þessari hv. d. og jafnframt í Nd., að það er ætlunin að knýja þetta mál fram eins og það liggur fyrir, og kom raunar greinilega fram í umr. og þó greinilegar við atkvgr. um þá till., sem hv. þm. S-Þ. flutti hér í gær, en var felld. Sú till. var þó að mínu áliti greinilega til mikilla bóta á frv. eins og það liggur fyrir.

Ég skal þess vegna ekki fara inn á almennar umr. um þetta mál, þó að oft sé viðhafður sá siður að fylgja eftir deilum um mál eins og þessi alveg til síðustu umr. og e.t.v. í báðum deildum. En brtt., sem hér liggur fyrir, er, eins og hún ber með sér, við 20. gr. og er um það, að orðin „um samninga innan tveggja mánaða frá því, að ósk kom fram um endurskoðun eða breytingar á tryggingarkjörum“ falla niður, og verður þá málsgr. þannig, ef mín brtt. er samþ.: „Náist ekki samkomulag, er hlutaðeigandi bæjar- eða sveitarfélagi heimilt að segja sig úr Brunabótafélagi Íslands með 6 mánaða fyrirvara, miðað við 15. okt. ár hvert “

Hér er gerð tilraun til þess að nema í burtu eitt af því, sem er allt að því niðurlægjandi fyrir þá, sem hafa tryggt hjá Brunabótafélagi Íslands, að vera, eins og frv. reynir nú alls staðar að koma áleiðis, bundnir á þennan klafa og þurfa endilega að standa í samningum í tvo mánuði um það, hvort þeir eigi að fá að losa sig við tryggingar eða ekki. Þetta er í mínum augum prófsteinn á það, hvort það er meiningin að knýja þetta fram í þessu formi, sem frv. er yfirleitt. Ég sé ekki, hvaða þýðingu það hefur, að bæjarfélög þurfi að standa í því þrotlaust í tvo mánuði að losa sig, og svo þegar þau eru búin að gera þá tilraun, þá þurfa þau að segja upp eftir allt saman með sex mánaða fyrirvara. Þessi gr. hygg ég að sýni betur en flest annað tilganginn og þá stefnu, sem kemur fram í frv. yfirleitt, að reyna að koma í veg fyrir það með öllu hugsanlegu móti, að bæjarfélög hreyfi sig, að bæjarfélög segi upp tryggingasamningum við Brunabótafélag Íslands. — Ja, ég sagði nú áðan, að ég ætlaði ekki að fara inn á almennar umræður um þetta atriði, en er nú raunverulega aðeins byrjaður á því og skal nema staðar hér. — En mér virðist, að það sé ekki óeðlilegt að fella a.m.k. þessi orð niður, því að ég sé, ekki, hvaða þýðingu það hefur að setja slíkt í lög. Þetta er, eins og einhver sagði, miklu meira en lagt er í það að tala á milli hjóna, þegar þau ætla að skilja. Það á að standa í heila tvo mánuði þófið um það, hvort bæjarfélög tryggi áfram hjá Brunabótafélagi Íslands, áður en kemur til sex mánaða uppsagnarfrestsins. — Ég skal svo ekki segja fleira um þetta.