25.11.1954
Neðri deild: 22. fundur, 74. löggjafarþing.
Sjá dálk 68 í B-deild Alþingistíðinda. (160)
82. mál, stækkun lögsagnarumdæmis Akureyrarkaupstaðar
Frsm. (Páll Þorsteinsson):
Herra forseti. Frv. það, sem hér liggur fyrir, um stækkun lögsagnarumdæmis Akureyrarkaupstaðar, er flutt af hæstv. félmrh. og borið fram í samráði við bæjarstjórn Akureyrarkaupstaðar og hreppsnefnd Glæsibæjarhrepps.
Heilbr.- og félmn. hefur tekið þetta frv. til athugunar, og mælir n. með því, að það verði samþ. En n. leggur til, að smávægilegar breytingar verði gerðar á frv., þær sem prentaðar eru á þskj. 202. Fyrri brtt. er aðeins leiðrétting á prentvillu, sem slæðzt hefur í frv. En um síðari brtt. er það að segja, að athygli var vakin á því við 1. umr. málsins af hv. þm. Ak., að betur færi á að breyta orðalagi í 3. gr. frv. á þann hátt, sem n. leggur nú til, að í staðinn fyrir orðin „bætur fyrir tekjurýrnun Glæsibæjarhrepps“ komi: eigna- og skuldaskipti. B-liður í brtt. er aðeins afleiðing af þeirri orðalagsbreytingu, sem ég var nú að lýsa.
Þess skal getið, að tveir nm. voru fjarstaddir, þegar málið var afgr. í n., og hafa þeir af þeim ástæðum ekki skrifað undir nál.