18.02.1955
Neðri deild: 49. fundur, 74. löggjafarþing.
Sjá dálk 1256 í B-deild Alþingistíðinda. (1627)

127. mál, leigubifreiðar í kaupstöðum

Einar Ingimundarson:

Herra forseti. Ég vil aðeins láta þess getið, að brtt. sú, sem við hv. 4. landsk. þm. flytjum á þskj. 361 um, að heimildin til takmörkunar á fjölda leigubifreiða verði einnig látin ná til Siglufjarðar, er flutt samkvæmt beiðni samtaka atvinnubílstjóra á staðnum. Telja þeir, að slík heimild mundi stuðla að því að auka atvinnulegt öryggi þeirra og verða þeim að öðru leyti til framdráttar.