04.04.1955
Neðri deild: 69. fundur, 74. löggjafarþing.
Sjá dálk 1309 í B-deild Alþingistíðinda. (1698)

132. mál, jarðræktarlög

Frsm. (Jón Pálmason):

Herra forseti. Eins og að líkum lætur, var þessi till. hv. 8. landsk. (BergS) rædd í landbn. Hér er um að ræða talsvert stóra till. og ekki gott að segja um, hve mikil útgjöld hún hefði í för með sér. Það er lagt til, að til skjólbelta sé lagt fram 1800 kr. á hektara, sem þýðir nokkuð yfir 6000 kr. með öllum uppbótum. Það er nú ekki tekið fram í till. að vísu, hvort þetta á að miðast við landið, sem skjólbeltin ná um, eða eingöngu við það, sem skjólbeltin taka yfir. Þetta er nú út af fyrir sig. N. hefði að sjálfsögðu getað breytt þessu með upphæðina. En það er annað, sem gerir það að verkum, að n. sá sér ekki fært að mæla með till., og það er það, að þetta mál er á tilraunastigi og alls ekki samkomulag um það meðal skógræktarmanna, hvaða trjátegundir sé heppilegast að taka í þessu skyni. Meðan svo er, vill n. ekki mæla með því, að lagðar séu fram stórar upphæðir í þessu skyni, enda þótt hún játi það og viðurkenni, að hér er um athyglisverða till. að ræða, sem vel getur komið til greina að taka upp, þegar komin er frekari reynsla á það meðal þeirra manna, sem mest hafa með þessi mál að gera, hver sé heppilegasta leiðin í þessu efni. Enda þótt það hafi verið gert á tilraunastöð eins og á Sámsstöðum, þar sem ekki þarf neitt sérstaklega að spara peningana að gera þetta, og það hafi reynzt þar að sumu leyti sæmilega vel, þá er mjög mikið öðru máli að gegna meðal almennings úti um landið, og n. telur nauðsynlegt, að þetta mál sé athugað betur, áður en ákvörðun er tekin um það, hvernig það skuli afgreitt.