04.11.1954
Efri deild: 11. fundur, 74. löggjafarþing.
Sjá dálk 1327 í B-deild Alþingistíðinda. (1725)

80. mál, meðferð ölvaðra manna og drykkjusjúkra

Flm. (Gísli Jónsson):

Herra forseti. Ég hef borið fram hér á þskj. 108 frv. til l. um breyt. á l. nr. 55 frá 1940, um meðferð ölvaðra manna og drykkjusjúkra. Áður en ég geri grein fyrir breyt., vil ég leyfa mér að fara nokkrum almennum orðum þetta vandamál þjóðarinnar, meðferð ölvaðra manna og áfengismálin í heild.

Það leikur ekki á tveim tungum, að áfengismálin í landinu eru eitt meðal erfiðustu viðfangsefna þjóðarinnar. Nægir í þessu sambandi að benda á hin mjög athyglisverðu ummæli, sem hæstv. dómsmrh. hafði hér nýlega í þessari hv. d., er hann ræddi um frv. til l. um breyt. á hegningarlögunum, sem upplýstu, að meginhluti lögbrota þann tíma, sem hann hefði farið með dómsmálin, stafaði beint eða óbeint frá ölvun. Hér væri í raun og veru ekki um glæpahneigð manna að ræða, heldur ættu sér hér stað yfirtroðslur laga hjá mönnum,sem vegna ölvunar hefðu ekki vald yfir sjálfum sér eða gerðum sínum. Þegar þeir kæmust til sín sjálfs og vissu um það böl, sem þeir hefðu valdið í ölæði, væri þeim þetta oftast sjálfum óbærilegt. Hér getur oft verið um að ræða tjón, sem ekki verður bætt, svo sem meiðslí eða dauðsföll, sem menn hefðu ekki valdið allsgáðir og vildu mikið til vinna að ekki hefðu skeð.

Meðan menn eru algáðir, er þeim ljóst, að margt af því, sem þeim verður á að fremja í ölæði, er hin freklegustu lagabrot, sem þeim dytti aldrei í hug að fremja án ölæðis og mundi enda hrylla við að vera á nokkurn hátt við riðnir. Þessum sömu mönnum er það einnig ljóst, að þeir kunna að valda slíkum lagabrotum, í hvert sinn sem þeir eru ölvaðir, og að þeim finnst það mjög alvarlegt að fremja þau, þótt svo standi á. En þrátt fyrir þetta hafa þeir ekki siðferðislegan þrótt til þess að halda sér frá þeim nautnalyfjum, sem koma þeim í þetta ósjálfræðisástand.

Allir þeir, sem einhver kynni hafa haft af ofdrykkjumönnum, vita, hversu margir þeirra geta verið meinlausir og indælir menn og góðir borgarar algáðir, en undir áhrifum víns ruddar og ofbeldisseggir og hreinir vesalingar andlega og líkamlega, þegar af þeim er runnið.

Allt staðfestir þetta ummæli hæstv. dómsmrh., að hér er ekki um glæpahneigð að ræða, þótt þessum mönnum verði á að yfirtroða lögin. Hér eru lögbrotin ekki beinlínis framin að yfirlögðu ráði, heldur er hér um að ræða veiklun, sem maðurinn fær ekki við ráðið og þjóðfélaginu ber skylda til sjálfs sín vegna að hjálpa honum til þess að yfirvinna. En höfuðskilyrðið til þess að ná þar nokkrum árangri er að fara ekki með ölvaðan mann sem afbrotamann, heldur sem sjúkling.

Samkv. 1. gr. gildandi laga um meðferð ölvaðra manna og drykkjusjúkra skal flytja þá menn, sem teknir eru höndum sakir ölvunar, í fangaklefa lögreglunnar, og það er fyrst eftir að þeim hefur verið haldið þar hæfilega langan tíma og rannsókn hefur farið fram af lækni, að þeir skulu fluttir í sjúkrahús, ef ástæða þykir til, þ.e., ef rannsókn leiðir í ljós, að um drykkjusýki er að ræða. Þessi ákvæði eru hvort tveggja í senn skaðleg fyrir þjóðfélagið og mennina og ómannúðleg, og því geri ég till. til breyt. á þeirri gr. laganna.

Samkv. 1. gr. frv. skal þessu breytt þann veg, að slíka menn skal flytja beint í sjúkrahús, sem til þess eru gerð, og þar skal þegar láta fara fram skoðun á ásigkomulagi sjúklingsins. Í þessu ákvæði liggur meginbreytingin í meðferð ölvaðra manna. Nái þessi breyting fram að ganga, er því takmarki náð, sem ég tel höfuðatriði í þessu máli, að afbrotastimpluninni er létt af, fangelsun þeirra hætt, en flutningur í sjúkrahús tekinn upp í staðinn og þeir látnir fá þar meðferð eins og hverjir aðrir sjúklingar, allt eftir eðli sjúkdómsins og ástandi aðila.

Mér mun seint líða úr minni atvik, sem skeði fyrir nærri 30 árum. Ungur, vel metinn borgari í ágætri stöðu, sem átti glæsilega konu og tvö indæl börn, varð fyrir hreina slysni handtekinn ölvaður og fluttur í fangaklefa á Skólavörðustíg, þar sem hann var geymdur til hádegis næsta dags. Áður en hann var gefinn frjáls, hafði hann sent eftir mér, og ég gleymi aldrei þeirri sorg, sem brennd var í sál hans út af þessu óhappi. Honum fannst beinlínis, að þessi smán, að vera settur í fangaklefa, mundi loða við sig allan aldur og verða óbrúandi bil milli sín og fjölskyldunnar, og þó hafði hann ekki framið neitt afbrot, ekki orðið neinum að meini, aðeins orðið það á að verða ofurölvi á almannafæri. Þegar hann fylgdist með mér út úr fangelsinu, var eins og þung byrði hvíldi á herðum hans, og ég þekkti hann aldrei fyrir sama mann aftur. Hann lézt á bezta skeiði ævi sinnar, og mér er vel ljóst, að þetta atvík átti ekki svo lítinn þátt í því, hve ævi hans varð stutt.

Ég mun einnig lengi minnast sumra þeirra unglinga, sem ég hef kynnzt og gist hafa af sömu ástæðum í lögreglukjallaranum. Enginn þeirra kom þaðan sami maður aftur. Allir, hver og einn einasti, höfðu glatað þar einhverjum hluta af því, sem þeir áttu bezt í sálu sinni.

Ég veit, að þeir munu margir, er minnast þess atviks, sem skeði fyrir eigi allmörgum árum, að ölvaður maður meðvitundarlaus var fluttur af götunni að nóttu til í fangageymslu og honum ekkert sinnt þar fyrr en næsta dag, að þess varð vart, að hann lá án meðvitundar. Af skoðun, sem ekki fór fram fyrr en að áliðnum degi, kom í ljós, að höfuðkúpan var brotin. Hefðu þau fyrirmæli verið í gildi, sem ég legg til að verði lögtekin nú, þ.e. að flytja slíkan mann beint í sjúkrahús til læknisskoðunar, má vera, að því lífi hefði verið bjargað. Hitt er víst, að þótt svo hefði ekki verið, hefði enginn þurft að ásaka sig eða bera kinnroða fyrir meðferðina á manninum.

Ég hygg, að þessi dæmi, sem ég hef bent hér á og eru aðeins lítið brot af langri sorgarsögu þessara manna, séu nægileg til þess, að hv. þm. geti fallizt á nauðsynina til breytingar þeirrar, sem hér er lagt til að gerð verði á 1. gr. laganna.

Ég minntist hér áðan á umr., sem fram fóru um frv. til l. um breyt. á einum kafla hegningarlaganna. Einhver sú merkasta breyting, sem gerð er þar, er frestun á ákæru á afbrotamenn, þegar sýnt er, að það mundi verða líklegt til, að þeir haldi ekki lengra inn á glæpabrautina, ef ákærunni yrði frestað. En sé þessi stefna rétt, sem þar er mörkuð, og um það efast víst enginn, sem eitthvað hefur kynnt sér þessi mál, hversu miklu réttari er þá ekki sú stefna, sem hér er lagt til að mörkuð verði, að hverfa frá því að líta á ölvaða menn sem afbrotamenn og haga meðferð á þeim þann veg, en skoða þá sem sjúklinga og gera tilraun til þess að lækna þá af þeim sjúkdómi, ef unnt er?

Þegar n. sú, sem ráðh. skipaði á þessu ári til þess að undirbúa gæzluvistarhæli fyrir drykkjusjúklinga, sem vitað var að mundu þurfa langrar hælisvistar, allt samkv. fyrirmælum 8. gr. l. og þeim breyt., sem gerðar voru síðar á þeirri gr., hafði lokið störfum og látið í té álit sitt um það atriði, sem henni var falið að hafa með höndum, lét hún fylgja því áliti sínu svo hljóðandi lokaorð, með leyfi hæstv. forseta. Hún segir svo:

„Þótt það sé ekki í verkahring n. að gera till. um annað eða meira en það, sem snertir 8. gr. l., sbr. þó l. frá 17. des. 1953, þykir henni þó rétt að benda á, að hún lítur svo á, að brýna nauðsyn beri til að koma upp þeim sjúkradeildum, sem 1.–5. gr. l. frá 1949 gera ráð fyrir, þar sem ljóst er, að sú starfsemi, sem þar er gert ráð fyrir að tekin verði upp, er meginskilyrði fyrir því að fyrirbyggja langvarandi drykkjusýki og minnka á þann hátt eða jafnvel útiloka þörfina fyrir hæli handa sjúklingum, sem þyrftu að dvelja um langan tíma á slíkum stofnunum.“

Í þessari n. áttu sæti tveir læknar, sem báðir höfðu haft mikil afskipti af áfengismálum og voru þeim því þaulkunnugir, lögreglustjóri, sem þekkti betur en flestir aðrir áhrif fangelsa á mennina, guðfræðiprófessor, sem jafnframt var sálfræðingur og stórtemplar, og svo ég, sem flyt þetta frv., sem hér er til umr. Má geta nærri, hvort allir þessir menn hefðu einróma lagt til og lagt svo mikla áherzlu einmitt á þetta atriði, að koma þyrfti upp sem allra fyrst sjúkrahúsunum, sem ákveðin eru í 1. kafla l., ef þess væri ekki mikil þörf, í sambandi við þá baráttu, sem hér er háð gegn voða ölvunarinnar.

Með því að reynsla hefur sýnt, að þessi sjúkrahús verða ekki byggð af þeim aðilum, sem l. óbreytt leggja þær kvaðir á herðar, er óhjákvæmilegt að gera á þessu þær breytingar, sem ég legg til með frv. þessu, enda er engin sanngirni í því, að bæjar- eða sveitarsjóðunum, sem engar tekjur hafa af áfengissölunni, en margvísleg útgjöld og erfiðleika vegna þess ástands, sem hún beinlínis leiðir yfir landið, skuli gert skylt að taka verulegan þátt í kostnaði, sem af þessum málum leiðir. Gæzluvistarsjóði ber því einum að leggja fram fé til þessarar starfsemi, á sama hátt og viðurkennt var, að hann einn skyldi leggja fram fé til framkvæmda samkv. 8. gr. l., enda komst þá fyrst skriður á þau mál um að koma þar á einhverjum umbótum, þegar þessari gr. l. hafði verið breytt í það horf, sem hún er nú í. Gæzluvistarsjóður hefur sem stendur yfir að ráða um 3 millj. kr. Að vísu liggur fyrir að koma hér upp í Reykjavík upptökudeild fyrir drykkjusjúka menn, þar sem þeir verða að dvelja, áður en þeir eru sendir á hæli til langdvalar, en bæði er það, að engan veginn er óeðlilegt, að sjúkrahús það, sem hér um ræðir, yrði sambyggt með þeirri byggingu og gæti þá e.t.v. verið til afnota fyrir Reykjavík og nágrenni hennar, og þá einnig hitt, að byggja mætti það, ef henta þætti, í sambandi við þau sjúkrahús, sem fyrir eru, svo sem heilsuverndarstöðina, landsspítalann eða önnur þau sjúkrahús, sem fyrir eru í landinu. Þetta þyrfti ekki að hafa mjög mikinn aukakostnað í för með sér. Þá er það og vitað, að gæzluvistarsjóði eru með l. tryggðar allverulegar tekjur árlega, og eins og ég hef tekið fram, á hann vitanlega að bera kostnaðinn af þessum málum öllum. Kostnaður við að koma upp sjúkradeildum við önnur sjúkrahús ætti ekki heldur að verða tiltakanlega mikill, sé það gert í sambandi við þau sjúkrahús, sem fyrir eru á hverjum stað, enda þörfin mjög mismunandi eftir því, hversu staðirnir eru fjölmennir. Gæzluvistarsjóði ætti því engan veginn að vera það ofvaxið.

Með ákvæði 2. gr. frv. er beinlínis miðað við það, að slíkum sjúkrahúsum verði komið upp og að sá háttur verði upp tekinn að hætta að flytja ölvaða menn í fangaklefa. Með þessari breyt. er ætlazt til, að aðilar fái hjúkrun og rannsókn þegar á fyrsta stigi. Sýni það sig, að hér sé aðeins um að ræða óhappaatvik vegna ofdrykkju, er sjálfsagt, að aðili sé látinn laus að lokinni rannsókn og að hlynnt sé að honum eftir þörfum, meðan hann dvelur á húsinu, en að hann greiði allan kostnað af veru sinni þar, rannsókn og flutningum, en sé þó jafnframt gert ljóst, hversu óviðeigandi og hættulegt það geti verið, að slíkt endurtaki sig. Einkum er þetta mjög nauðsynlegt, þegar um er að ræða' unglinga, sem eru að byrja á þessari braut. Mundi það verða miklu áhrifaríkara og frekar til góðs árangurs en fangavistin, eins og nú er sú meðferð, sem þeim er látin þar í té.

Hins vegar er sjálfsagt og rétt að skoða ítrekaða handtöku fyrir ölvun drykkjusjúkra manna sem drykkjusýki og haga rannsókn og meðferð á þeim mönnum í samræmi við það, og við þetta eru mínar till. í frv. miðaðar.

Eins og grg. frv. ber með sér, þá kom til hæstv. ráðh, frá félagi áhugasamra manna um áfengisvarnir bréf þess efnis, að hann beitti sér fyrir því, að l. um meðferð ölvaðra manna yrði breytt svo sem fram kemur í 4. gr. frv. Er bréf þetta dagsett 27. f.m. og hljóðar svo, með leyfi hæstv. forseta:

„Með tilvísun til viðtals við yður, herra ráðherra, sendist yður hér með frv. til 4. um breyt. á l. um meðferð ölvaðra manna og drykkjusjúkra frá 1949. En frv. þetta ásamt grg. hef ég tekið saman, ef vera mætti, að þér vilduð annaðhvort flytja það eða hlutast til um, að það yrði flutt á yfirstandandi Alþingi.

Frvgr. sjálfa hef ég rætt við áfengisvarnaráðunaut ríkisstj., herra Brynleif Tobíasson, og landlækni, herra Vilmund Jónsson, og hafa þeir báðir tjáð sig meðmælta því og fylgjandi, að heimild til þess að styrkja frjálst framtak á þessu sviði yrði bætt inn í l. En fari svo, að þér sjáið yður ekki fært að eiga þátt í flutningi frv., þætti mér vænt um, að þér létuð mig vita það, því að þá mundi ég verða að hlutast til um, að það yrði flutt af þingmönnum.

Virðingarfyllst,

Jónas Guðmundsson.

Til heilbrigðismálaráðherra Ingólfs Jónssonar.“

Fylgdi þessu bréfi ýtarleg grg., sem prentuð er á bls. 3 og 4 á þskj. 108.

Ráðh. sendi mér þessi gögn og fór þess á leit, að ég tæki þetta atriði upp í frv., þar sem ég hefði í undirbúningi breytingar á l. Ræddi ég þá jafnframt við hann um þær breyt., sem ég hef verið að undirbúa, og hefur hann fallizt á, að rétt sé og nauðsynlegt, að þær nái fram að ganga.

Þá ræddi ég einnig um þessar breyt. allar við áfengisvarnaráðunaut, einnig Kristján Þorvarðsson lækni, sem nú vinnur að áfengisvarnastöðinni hér í Reykjavík, og við Jónas Guðmundsson, sem allir eru sammála um, að nauðsynlegt væri að koma þessum breyt. á. Hins vegar lögðu þessir aðilar einnig allmikla áherzlu á, að 8. gr. l. yrði einnig breytt í það horf, að þessi mál yrðu að öllu leyti slitin úr tengslum við geðveikrahælið, þar sem slík tengsl torvelduðu mjög umbótastarfið. Ég hef í frv. því, sem hér ræðir um, ekki gert um það till., m.a. vegna þess, að mér er kunnugt um, að um þær till. eru skiptar skoðanir hér á Alþ., og ég vildi á þessu stigi málsins forðast allt það, sem gæti torveldað að koma á þeim umbótum, sem mest eru aðkallandi í þessu máli.

Ég lagði til á sínum tíma, að sérstökum áfengisvarnalækni yrðu falin öll þessi mál, einnig störf áfengisvarnaráðunauts. Sú till fékk ekki fylgi þingsins. Ég tel, að þetta hafi verið misráðið, að hverfa ekki að því ráði, en einmitt vegna þess, að það var ekki gert þá, verður miklu erfiðara að koma þeirri skipan á málið nú, eftir að búið er að skipa málunum á þann veg, sem gert hefur verið. Sýnist þeirri nefnd, sem þetta mál fær væntanlega til meðferðar, að rétt væri einnig að gera þessa breyt. á 8. gr. l., er siður en svo, að ég sé því andvígur, svo fremi að slíkt ákvæði torveldi ekki framgang málsins.

Um ákvæði 4. gr. frv. vildi ég aðeins segja það, að ég tel alveg sjálfsagt að gefa ráðh. þá heimild, sem þar er farið fram á.

Ég legg að síðustu til, að frv. verði að lokinni þessari umræðu vísað til 2. umr. og hv. heilbr.- og félmn., og vænti þess, að n. hraði afgreiðslu málsins svo sem unnt er og leggi til, að frv. verði samþ., svo og að hv. d. fallist á þá till. Ég tel að sjálfsögðu eðlilegt, að þetta frv. verði sent til umsagnar landlæknis, sem hefur ekki haft tækifæri til að athuga þær till., sem ég ber fram í 1.–3. gr. Ég tel ekki, að það þurfi út af fyrir sig að tefja mjög afgreiðslu málsins, en ég vænti þess hins vegar, að hv. form. n. taki þetta mál fyrir svo fljótt sem unnt er og hraði afgreiðslu þess í nefndinni.