11.11.1954
Neðri deild: 16. fundur, 74. löggjafarþing.
Sjá dálk 70 í B-deild Alþingistíðinda. (174)

12. mál, yfirstjórn mála á varnarsvæðunum o. fl.

Frsm. (Einar Ingimundarson):

Herra forseti. Allshn. hefur athugað frv. það, sem hér liggur fyrir.

Frv. er borið fram af ríkisstj. til staðfestingar á brbl. frá 2. júlí 1954 og er þess efnis, að enda þótt ýmsir málaflokkar hafi með lögum verið lagðir til vissra ráðh., sé það ekki því til fyrirstöðu, að þau sömu mál heyri undir ráðh. þann, sem fer með varnarmálin ef farið er með þau á Keflavíkurflugvelli eða öðrum þeim landssvæðum, sem varnarliðið hefur til afnota. Er tekið fram, að slík heimild gildi um dómsmál að því er varðar brot, sem framin eru á varnarsvæðunum. — Allshn. hefur athugað frv., eins og ég sagði áður, og mælir með því, að það verði samþ. óbreytt. Einn nm., hv. 4. landsk. þm., skrifaði þó undir nál. með fyrirvara, og annar nm., hv. þm. Dal., var fjarstaddur, þegar málið var afgr. í nefndinni.