22.04.1955
Neðri deild: 76. fundur, 74. löggjafarþing.
Sjá dálk 1339 í B-deild Alþingistíðinda. (1743)
80. mál, meðferð ölvaðra manna og drykkjusjúkra
Jóhann Hafstein:
Herra forseti. Mér fór eins og hæstv. viðskmrh., að ég tók ekki eftir fyrri hlutanum af ræðu hv. 1. landsk. þm., en það var þó ekki vegna þess, að ég væri ekki viðstaddur, en þessi hv. þm. er svo sítalandi, að ég segi ekki símalandi hér í d., að maður hrekkur ekki upp við það, þó að hann kveðji sér hljóðs.
Þegar hv. þm. fór að sletta úr klaufunum í garð Reykjavíkurkaupstaðar og vita afstöðu bæjarstjórnarinnar til þess að koma upp hæli fyrir drykkjusjúka menn, þá lagði ég nokkuð við hlustirnar. Ég hygg, að hægt sé að sanna það, að allar þær fullyrðingar, sem hv. þm. fór með, séu staðlausir stafir og fái ekki staðizt.
Það er sannast að segja mjög löng og næsta flókin saga að rekja afstöðu bæjarstjórnar Reykjavíkur og tilraunir bæjarstjórnarinnar til þess að koma upp hæli yfir drykkjusjúka menn, og hef ég því miður ekki á reiðum höndum nú við þetta tækifæri nægjanlegar staðreyndir til þess að geta rakið hana, en við erum hér með þetta mál til 2. umr., og mun ég reyna að sjá til þess, að það komi hér í ljós við 3. umr. málsins, hvað þessi hv. þm. hefur haft mikið til síns máls — eða öllu heldur lítið eða ekkert. Sannast að segja hafa æ ofan í æ rekið sig á áætlanir og ráðagerðir Reykjavíkurbæjar mjög mismunandi skoðanir sérfróðra manna um það, hvernig haga bæri þessum málum, og oft og einatt rekið sig beinlínis á sjálfa heilbrigðismálastjórnina með landlækni í broddi fylkingar. Ég minnist þess m.a., þegar till. voru uppi um það frá þessum hv. aðilum að vilja koma slíku hæli drykkjusjúkra manna fyrir hér í Engey, að þá þótti bæjarstjórninni ekki ráð, að þessir menn hefðu ljósadýrðina frá Reykjavík fyrir augunum daglega, og réttara væri að skipa þessum málum með nokkru meira ráði og af meiri skynsemi en þar kom fram. Og enn bendi ég á það, sem liggur nú fyrir frá heilbrigðismálastjórninni, áætlanir og till. um að byggja hæll fyrir drykkjusjúka menn á Kleppslóðinni, og skal ég út af fyrir sig ekki fetta frekar fingur út í það, en segja þó og láta það koma hér fram, að um það hafa verið mjög skiptar skoðanir hjá mönnum, sem kvaddir hafa verið ráða um það, þegar Reykjavíkurbær fjallaði um þessi mál. Landlæknir og yfirlæknirinn á Kleppi töldu rétt að koma slíkri deild upp í sambandi við Kleppsspítalann, en bæði sakadómarinn í Reykjavík og lögreglustjórinn, sem kvaddir voru álits af bæjarstjórn Reykjavíkur, voru því andvígir á sínum tíma og töldu marga annmarka á því og vildu fyrir sitt leyti, að slíkri deild yrði komið upp við landsspítalann. Þetta nefni ég aðeins sem eitt af fáum dæmum um það, hvernig oft hafa rekizt á skoðanir manna, sem til hafa verið kvaddir í þessum efnum, og ég mun gera nánari gangskör að því, að það komi fram hér í hv. þd., hver afstaða Reykjavíkurbæjar hefur verið í þessu máli.