28.04.1955
Neðri deild: 80. fundur, 74. löggjafarþing.
Sjá dálk 1352 í B-deild Alþingistíðinda. (1751)

80. mál, meðferð ölvaðra manna og drykkjusjúkra

Jóhann Hafstein:

Herra forseti. Ég vil nú byrja á því að biðja hv. þdm. velvirðingar á því að eyða dýrmætum tíma þeirra í það að standa í svona málþófi við hv. 1. landsk. Það er líkara því sem hér séu menn að hlusta á skólapilta á málfundi tala. En hann er þó kunnur að því að hafa þá hæfileika til að bera, að það hlýtur að verða að rekja slíkan málflutning til þeirra orsaka, að hv. þm. hafi heldur umfangslitla þekkingu á því máli, sem hann er að tala um, og það skín raunar svo í gegnum allan hans málflutning, að þeir, sem á hann hlusta, komast ekki hjá því að taka eftir því. Hann telur, að mín skýrsla eða ræða hafi sannað, að bæjarstjórnin hafi brugðizt öllum skyldum sínum í þessu máli, og rétt þegar hann er búinn að sleppa því orðinu, þá er hann að tala um áfengisvarnastöð, sem bæjarstjórnin reki. Nú, eitthvað skilst mér, að það sé þó að reka áfengisvarnastöð, en bæjarstjórnin á að hafa brugðizt öllum skyldum sínum. Hv. þm. segir: Sjúkrahúsdeildin fyrir sjúklinga til bráðabirgða átti ekki að vera á Kleppi, og þess vegna hefur það ekki getað strandað á neinum ágreiningi við heilbrigðisstjórnina, hvar átti að setja þá sjúkradeild, sem við erum hér um að ræða, fyrir drykkjusjúklinga til bráðabirgða. — En bæjarstjórnin hafði hug á því og vildi byggja þessa sjúkrahúsdeild við ríkisspítalana, annaðhvort Klepp eða landsspítalann. Vitaskuld gat bæjarstjórnin ekki, eins og ég hef sagt áður, farið upp á landsspítalalóð, þar sem hún vildi byggja, og byrjað að byggja nema með samþykki heilbrigðisstjórnarinnar, og hún gat ekki heldur farið inn á Klepp og byrjað að byggja við spítalann á Kleppi nema með samþykki heilbrigðisstjórnarinnar, en ágreiningurinn þarna á milli varð til þess að þetta strandaði. Sérfræðingar bæjarstjórnarinnar í læknisfræðum, sakadómari og lögreglustjóri lögðu til, að þessi deild yrði byggð við landsspítalann, og bæjarstjórn Rvíkur óskaði eftir því. Um það varð ekki samkomulag við heilbrigðisstjórnina.

Ég vitnaði í álit sérfræðinga frá 1952 í þessum málum, og hv. þm. segir: Ja, fulltrúar bæjarstjórnarinnar hér á þingi hefðu átt að koma með breyt. á lögum á grundvelli þessa álits. — En hvað hafa fulltrúar bæjarstjórnarinnar gert? Borgarstjóri bar fram á þingi 1952 og 1953 frv., sem þá var samþ. og leiddi til þess, að ríkisvaldið eitt skyldi hafa með höndum byggingu drykkjumannahælis fyrir þá, sem þyrftu að vera þar til langdvalar. Þá voru fyrir hendi 3 millj. kr. af hagnaði áfengisverzlunarinnar í gæzluvistarsjóði, og hvað var eðlilegra en að þessi sjóður yrði notaður til hagnýtra framkvæmda vegna drykkjusjúklinganna? Borgarstjóri lagði til, að þetta yrði gert, og með því gat ríkið farið sínar götur og fékk eigin skyldur og þurfti ekki við aðra að kljást í þessu efni. Þessa lagabreytingu bar borgarstjóri fram, og hún hefur verið samþ. Með þeirri lagabreytingu, sem hér er lögð til, færist öll skyldan yfir á ríkið, og það getur farið sínar götur varðandi sjúkrahúsdeildir fyrir þá sjúklinga, sem aðeins eiga að vera til skamms tíma á sjúkrahúsum, en bæjarstjórnin hefur líka fyrir sitt leyti, án þess að standa á grundvelli löggjafarinnar, farið sínar götur í samræmi við það sérfræðingaálit, sem hún fékk 1952. Hún kom upp á grundvelli þess álits þeirri áfengisvarnastöð, sem nú hefur verið rekin hér undanfarin ár í Reykjavík og gert áreiðanlega mörgum mikið gagn og minnkað böl margra, sem áður voru þjáðir af áfengisbölinu. Og það er rangt hjá hv. þm., að bæjarstjórnin hafi ekkert gert í því að útvega þessari áfengisvarnastöð sjúkrarúm, en önnur till. sérfræðinganefndarinnar var það, að séð yrði fyrir sjúkrarúmum handa þeim drykkjusjúklingum, sem sjúkrahúsmeðferðar þarfnast. M.ö.o., bæjaryfirvöldin hafa álitið, að það væri æskilegri leið að koma sjúklingunum fyrir á hinum ýmsu spítölum borgarinnar en að byggja sérstaka sjúkradeild, og bæjarstjórnin hefur fyrir sítt leyti látið í té sjúkrarúm á þeim sjúkrahúsum, sem hún hefur yfir að ráða, bæði á farsóttahúsinu og Hvítabandinu, og borgað kostnað af sjúkrarúmum, sem á öðrum spítölum hafa verið fengin handa þessum drykkjusjúklingum.

Allt það, sem hv. þm. sagði í þessu efni, byggist þess vegna á vanþekkingu og fær ekki staðizt. Eftir að sérfræðingar þeir, sem Reykjavíkurbær kvaddi til á sínum tíma, töldu 1952, að heppileg lausn fengist ekki innan ramma gildandi laga, hafa fyrirsvarsmenn bæjarstjórnar Reykjavíkur bæði beitt sér fyrir því að breyta gildandi lögum í þessu efni og skapað annan vettvang utan ramma gildandi laga, sem ég hef gert grein fyrir áður og sýnt fram á, hver er. Þrátt fyrir þetta stendur hv. 1. landsk. upp og segir: Bæjarstjórnin hefur brugðizt öllum sínum skyldum, bæjarstjórnin hefur ekkert gert. — En þegar því orðinu er sleppt, fer hann að tala um aðgerðir bæjarstjórnar í því efni. Hitt er svo annað mál, að bæjarstjórnin hefði viljað geta gert miklu meira, en það hefur, eins og ég sagði, fram að þessu strandað á ágreiningi milli heilbrigðisstjórnarinnar og bæjaryfirvalda, og fyrir þeim ágreiningi hef ég fært skýr rök.

Það, sem virðist vera mest áberandi í þessu máli í sambandi við málflutning hv. 1. landsk., er það, að enda þótt honum sé sýnt fram á rökin, sannanirnar fyrir því, að það, sem hann er að fara með, sé rangt, þá þurfi hann samt sem áður, eins og sumir eru haldnir af, alltaf að hafa síðasta orðið, og geri ég þess vegna ráð fyrir því, að honum sé orðið brátt að tala enn þá einu sinni í þessu máli og sennilega til að halda sömu firrunni fram og áður.