11.11.1954
Neðri deild: 16. fundur, 74. löggjafarþing.
Sjá dálk 72 í B-deild Alþingistíðinda. (177)

12. mál, yfirstjórn mála á varnarsvæðunum o. fl.

Utanrrh. (Kristinn Guðmundsson):

Herra forseti. Ég held, að fsp. hv. 2. þm. Reykv. byggist á misskilningi. málið er mjög skýrt. Þegar lögreglustjóri var settur á Keflavíkurflugvelli, þá var það skýrt tekið fram, áð hans lögsagnarumdæmi væri Keflavíkurflugvöllur og önnur landssvæði, sem herinn hefði fengið til afnota á hverjum tíma og væru í eign ríkisins. Skilgreiningin er því alveg skýr. Hitt skal játað, að landamerkin eru ekki skýr, af því að þau breytast eftir því, hvaða landssvæði varnarliðið fær til umráða.

Landssvæði annars staðar á landinu, eins og t.d. radarstöðvarnar, falla einnig undir þetta. Ákæruvald fyrir afbrot, sem þar eru framin, heyrir undir mig. Aftur á móti er valdsvið lögreglustjórans á Keflavíkurflugvelli miðað við varnarsvæði á Reykjanesi, Keflavíkurflugvöll og önnur svæði þar.

Hv. deild er kunnugt, af hverju brbl. voru gefin út um þetta efni. Ástæðan var sú, að hæstiréttur leit þannig á, að ákvæði forsetaúrskurðar um skiptingu mála á milli ráðherranna væri ekki nægileg heimíld, nema ákveðið væri með lögum. Vald forseta til þess að skipta málum á milli ráðherra var því ekki talið öruggt, nema því aðeins að það væri ákveðið með lögum, og því eru þessi lög til komin. En það, að málinu var svo flýtt, eins og hv. 4. landsk. deildi á að gert hefði verið, var af því, að máli var vísað frá hæstarétti, og þótti ekki þægilegt að láta vísa fleiri málum frá vegna formsatriða.