18.10.1954
Efri deild: 5. fundur, 74. löggjafarþing.
Sjá dálk 23 í B-deild Alþingistíðinda. (18)

11. mál, tollskrá o.fl.

Karl Kristjánsson:

Herra forseti. Ég skal verða við þeim tilmælum að gera lítils háttar grein fyrir afstöðu fjhn. til þessa máls í fjarveru frsm.

Raunar ber nál., sem prentað er á þskj. 41, greinilega með sér afstöðu n. Í frv. er gert ráð fyrir, að enn verði látin gilda ákvæði um tolla árið 1955, sem gilt hafa í meginatriðum — líklega í samfleytt átta ár eða nálægt því — sem bráðabirgðaákvæði frá ári til árs. Meiri hl. fjhn. gerir engar brtt. við frv., en leggur til, að það verði samþ. óbreytt, en hv. 4. þm. Reykv. er mótfallinn ákvæðinu um 45% verðtollsálag og gerir sjálfsagt við þessa umr. grein fyrir ástæðum sínum fyrir þeirri afstöðu.

Það er nú létt að vera á móti álögum, ef ekki þarf að bera ábyrgð á því, að tekjur nægi fyrir útgjöldum, en meiri hl. nefndarinnar, sem hefur þá ábyrgð .á herðum, sér ekki, að hjá þessari tekjuöflun verði komizt, enda álagið sízt ósanngjarnara nú en það hefur verið að undanförnu.