02.05.1955
Efri deild: 77. fundur, 74. löggjafarþing.
Sjá dálk 1572 í B-deild Alþingistíðinda. (1826)
162. mál, síldarverksmiðjur ríkisins
Frsm. (Bernharð Stefánsson):
Herra forseti. Þetta frv. er flutt af hv. þm. Siglf. og 4. landsk. þm., sem kosinn er af Siglfirðingum, ásamt þriðja þingmanninum, og hefur nú komið hingað frá hv. Nd. og fjhn. haft það til meðferðar. Efni frv. er ekki annað en það, að til viðbótar því, að síldarverksmiðjur ríkisins skuli greiða 1/2% af brúttó-verði seldra afurða ár hvert til bæjarsjóðs, þar sem þær eru starfræktar, komi, að þetta gjald skuli þó aldrei vera minna til bæjarsjóðs Siglufjarðar frá ríkisverksmiðjunum þar en 100 þús. kr., meðan ekki er lokið endurskoðun á löggjöfinni um tekjur bæjar- og sveitarfélaga.
Ég veit, að allir hv. þm. hér í þessari hv. d. eru það kunnugir, að þeir vita ástæðurnar til þess, að þetta frv. er fram komið og að nauðsyn er á því eða þá einhverju öðru í þess stað. Siglufjarðarkaupstaður er byggður upp að mestu leyti á síldveiðum, síldarverkun og þar á meðal á síldarverksmiðjurekstri. Og eftir að lögin komu um það, að síldarverksmiðjur ríkisins skyldu greiða 1/2% af brúttó-andvirði seldra afurða til þess bæjarfélags, þar sem þær væru starfræktar, hafði bæjarsjóður Siglufjarðar drjúgar tekjur af þessu fyrri árin. En eins og allir vita, hafa verið mörg síldarleysisár nú undanfarið, sem hafa komið mjög hart niður á Siglufirði á allan hátt, m.a. að því leyti, að mjög lítið hefur verið um starfrækslu síldarverksmiðjanna þar, og þá meðfram fyrir það, að það lítið sem hefur aflazt af síld, þá hefur það verið á þeim slóðum, að síldin hefur frekar verið lögð upp annars staðar en á Siglufirði. Það er því alveg tvímælalaust, að Siglufjarðarkaupstaður þarf á þessum tekjum að halda, sem frv. gerir ráð fyrir. Hitt er svo annað mál, hvort það er að öllu leyti rétt, að síldarverksmiðjurnar á staðnum, sem hafa ekki fengið nema sáralitla síld til vinnslu og þar af leiðandi haft tiltölulega litlar tekjur undanfarin ár, eigi að greiða þetta gjald. En það er nú svo, að það kemur nokkuð í sama stað niður, hvort síldarverksmiðjurnar taka á sig þennan bagga eða ríkið hjálpar Siglufjarðarkaupstað á annan hátt, því að síldarverksmiðjurnar eru eign ríkisins, og í öðru lagi er það, og það er aðalatriðið að því er þetta frv. snertir, að bæjarfélag getur tæplega sleppt svo umfangsmiklum verksmiðjum sem síldarverksmiðjurnar á Siglufirði eru við útsvar, eða ekki mundi það vera, ef þær væru í einstaklingsrekstri.
Fjhn. hefur því orðið sammála um það, að þessu athuguðu, að mæla með því, að frv. verði samþ. óbreytt.