03.05.1955
Efri deild: 78. fundur, 74. löggjafarþing.
Sjá dálk 1595 í B-deild Alþingistíðinda. (1853)
193. mál, vegalög
Frsm. (Sigurður Ó. Ólafsson):
Herra forseti. Ég skal nú ekki tefja tímann mikið með langrí ræðu. Ég vil þakka þessum hv. tveim þm., sem hafa hér talað og víkið heldur góðu að störfum n., þakka þeim fyrir það. En á ræðum þeirra sjáum við það, sem okkur var ljóst áður í samvinnunefndinni, að það voru ekki allir ánægðir með þessa úrlausn og þóttust ekki hafa fengið allt það, sem þeir vildu. Þó er þar nokkuð öðru máli að gegna með hv. 1. þm. Eyf., þar sem honum var trúlega ekki kunnugt um þessar óskir heiman úr héraði, þegar málið var til meðferðar, og fékk þær ekki í hendur fyrr en svo seint, að langt var komið afgreiðslu málsins og það meira að segja hafði náð samþykki í hv. Nd. En vegna fsp. hans um það, hvort n. hefði tekið þetta fyrir, vil ég geta þess, að hann fékk mér þetta undirskriftaskjal um leið og ég fór á samvinnunefndarfundinn síðasta. Ég sýndi formanni nefndarinnar, sem er formaður samgmn. Nd., þm. N-Ísf., undirskriftaskjalið, og hann segir, að sér sé kunnugt um þetta, Magnús Jónsson, þ.e.a.s. hv. 2. þm. Eyf., hafi einnig sýnt sér það. Hv. 2. þm. Eyf. var þarna líka staddur á fundinum, og að þessu svari fengnu hjá form. n. áleit ég, að það væri ekki þörf á frekari aðgerðum frá minni hendi viðvíkjandi þessu á fundinum. Ég lét þetta samtal við hann nægja og tók það svo, að hv. 2. þm. Eyf. hefði átt tal við hann um þetta, um leið og hann sýndi honum þetta skjal. Ég vildi taka þetta fram út af fsp. hv. þm. og biðja hann afsökunar, að mér skyldi hafa láðst að gera það í framsöguræðu.
Almennar umræður, sem hafa komið fram hjá þessum hv. þm. um þetta mál, held ég, að ég fari nú ekki að fara mikið út i. Ég veit, að ákvæðið viðvíkjandi nýbýlavegunum er eingöngu tekið inn í lögin með það fyrir augum að létta á nýbýlafénu, en ef þetta yrði þannig í framkvæmdinni, að vegirnir yrðu ekki gerðir, eða seinna en nú er, þá væri alls ekki orðið við þeirri hugsun, sem að baki þessu ákvæði feist. Þó að þetta hafi nú verið sett þannig inn í lögin, að það sé bundið við sérstaka fjárveitingu, geri ég ráð fyrir því, að vegamálastjóri, sem undirbjó þetta og tók þessa till. upp í frv., úr till., sem hafði verið flutt í Nd., hafi ekki orðað þetta svo til að spilla fyrir því, að nýbýlavegir yrðu lagðir, heldur til þess að létta á nýbýlasjóði hvað vegagerðir þessar snertir, því að vitanlega verða vegirnir að koma um leið og skipulagt er nýbýlahverfi til þess að komast um hverfið með byggingarefni og annað slíkt. Ég vænti þess, að upptaka þessara vega í þjóðvegatölu verði þessu málefni til góðs, en ekki þvert á móti.
Þá er það með nöfn á vegunum. Hv. 1. þm. N-M. er allra manna kunnugastur og virðist þekkja hvern veg á öllu landinu og veit, hvernig þeir liggja og hvar, og það er ekkert óeðlilegt, þó að hann finni eitt og annað að nöfnum veganna. Það, sem hann tók fram t.d. um Árnessýslu, er alveg rétt, að þarna liggur þjóðvegurinn við túnið á Sandlæk, en líka sunnan Laxár, en þegar upp fyrir Sandlæk kemur, færist vegurinn vitanlega nær bökkum Laxár, og á því svæði liggur hann sem sagt meðfram ánni, þangað til hann kemur að brúnni og fer yfir hana. En það er rétt, að þetta á við Hrunamannahreppsveginn, en Gnúpverjahreppsvegurinn kemur af þessum vegi við túnið á Sandlæk líka. Þar eru vegamótin. En þetta mætti náttúrlega lengi tala um, og það var tekið töluvert mikið upp úr þessum till. hv. þm. einmitt núna, og við skulum vænta þess, að næst þegar vegalög verða opnuð, ef þessi ná samþykki núna, þá verði gert meira að lagfæringum í þessa átt, því að vitanlega er engum þægð í því, að það séu villandi nöfn á vegunum eða staðsetningu þeirra og t.d. að segja „að vegi“ í staðinn fyrir „á veg“ o.s.frv.
Hv. 1. þm. N-M. minntist líka á, að ýmsum héruðum væri mismunað í þjóðvegum. Ég skal ekki þræta fyrir, að svo geti verið, og vil sízt taka fyrir það. En það eru fleiri aðilar en samgöngumálanefndirnar, sem að þessu vinna. Samgöngumálanefndirnar vinna vitanlega að því, að vegir séu teknir í þjóðvegatöln, en síðan kemur fjárveitingavaldið til, sem skammtar fé í þessa vegi. Það eru dæmi til þess, að héruð, sem hafa átt nokkuð mikið af þjóðvegum ólögðum, hafa fengið minni tillög í sína vegi frá þeirri skömmtun, sem á sér stað í hv. fjvn., heldur en önnur héruð, sem ekki áttu neina þjóðvegi ógerða. Þarna er líka vald, sem ekki liggur minna á að kynni sér þessi mál til hlítar en samgöngumálanefndirnar, þó að vitanlega sé nauðsynlegt fyrir báða aðila að gera það.
Ég vil svo endurtaka þá ósk mína, að frv. verði samþ. eins og það liggur fyrir á þskj. 661, og vona, að hv. 1. þm. Eyf. geri sig að þessu leyti ánægðan með að fylgja því, þar sem ég hef gefið honum upplýsingar um það, að ég lá ekki á máli hans í samvn., heldur átti tal um það við form. hennar.