10.05.1955
Efri deild: 87. fundur, 74. löggjafarþing.
Sjá dálk 1647 í B-deild Alþingistíðinda. (1925)

121. mál, öryggisráðstafanir á vinnustöðum

Páll Zóphóníasson:

Herra forseti. Þó að ég sé með lagafrv., sem hér er um ræða, eins og það liggur fyrir, og hafi skrifað undir nál., þá vil ég leyfa mér að vekja athygli á því, að hér er um að ræða nýja meðferð mála á þingi. Ég minnist þess ekki þessi ár, sem ég hef átt þar sæti, að það hafi verið afgr. frá þinginu lög, sem hafa verið í nefnd, nema það hafi komið nál. frá báðum aðilum, hafi nefnd klofnað. Hér fær maður einungis að sjá aðra hlið málsins. Maður veit ekkert, hvað minni hl. leggur til málanna að neinu leyti, og þetta er mjög óvenjuleg málsmeðferð. (Dómsmrh.: Vita nefndarmenn það ekki einu sinni sinni?) Nefndarmenn, jú.

Ég tala hér sem þingmaður, en ekki fyrir nefndina. — Ég er þess vegna ákaflega efinn í, að það eigi að gefa þetta fordæmi, að afgreiða lög frá Alþ. án þess að heyra álit minni og meiri hl., þegar n. er klofin, og ég vil leyfa mér að vekja athygli á því. Ég tel það nokkuð hættulegt fordæmi og sýna nokkra tilhneigingu til einræðis.