10.05.1955
Efri deild: 87. fundur, 74. löggjafarþing.
Sjá dálk 1648 í B-deild Alþingistíðinda. (1926)
121. mál, öryggisráðstafanir á vinnustöðum
Forseti (GíslJ):
Út af ummælum hv. 1. þm. N-M. vil ég geta þess, að ég á sæti í n. og gat ekki fylgt meiri hl. og skýrði þá frá því, að það gæfist ekki tími til hvorki að gefa nái. út né ræða svo umfangsmikið mál hér á síðustu stundu. Ef það er ósk hv. meðmn., að málinu sé frestað, þá skal ég verða við þeirri ósk, en ég mun ekki beita forsetavaldi til þess að stöðva málið vegna þess, að ég hef sjálfur klofið n.