11.11.1954
Neðri deild: 16. fundur, 74. löggjafarþing.
Sjá dálk 75 í B-deild Alþingistíðinda. (197)

12. mál, yfirstjórn mála á varnarsvæðunum o. fl.

Frsm. minni hl. (Gylfi Þ. Gíslason):

Herra forseti. Svo sem fram kom í ræðu hv. frsm. meiri hl., klofnaði n. um afstöðu sína til málsins. Við hv. 9. landsk. þm. urðum í minni hl. í n. og leggjum til aðallega, að frv. sé fellt, en til vara flytjum við brtt. á þskj. 138, sem ég mun víkja lítillega að hér á eftir.

Af þeim sköttum, sem íslenzka ríkið innheimtir nú af borgurunum, má telja söluskattinn óvinsælastan allra og að flestu leyti líka óréttlátastan, einkum og sér í lagi, þegar uppruni hans er hafður í huga.

Það er hv. þm. kunnara en frá þurfi að segja, að þegar söluskatturinn var fyrst lögleiddur á Alþingi 1948, var það gert í sambandi við viðleitni þáverandi ríkisstj. til þess að koma í veg fyrir gengisfall íslenzku krónunnar. Þá var talið óhjákvæmilegt, að íslenzkur almenningur tæki á sig byrðar í einhverju formi til þess að létta undir með útflutningsatvinnuvegunum. Mönnum var sagt, að annaðhvort yrði að lækka gengi krónunnar og almenningur þannig að sætta sig við hækkað vöruverð, sem auðvitað jafngilti rýrnandi lífskjörum, eða þá hann yrði að taka á sig greiðslu nýrra skattgjalda, sem rynnu til ríkissjóðs og hann mundi síðan nota til greiðslu útflutningsuppbóta til atvinnuveganna.

Af mörgum ástæðum var síðari leiðin talin heppilegri, þ.e. sú að innheimta skatta til ríkissjóðs, sem síðan skyldi útdeilt til útflutningsatvinnuveganna, og tel ég, að sú ákvörðun hafi verið rétt. En að þessum ráðstöfunum varð þó skammgóður vermir, því að eins og alþjóð er kunnugt var tveim árum síðar gengi krónunnar fellt og almenningur varð að taka á sig byrðar vegna útflutningsatvinnuveganna, eða var sagt, að hann yrði að taka á sig byrðar vegna útflutningsatvinnuveganna í gengislækkunarforminu.

Eðlilegast hefði þá auðvitað verið, að fyrri byrðum yrði af honum létt að öllu eða a.m.k., einhverju leyti, þ.e. þeim byrðum, sem hann hafði verið látinn taka á sig tveim árum áður í skattgjaldsforminu. Það var þó ekki gert, heldur voru þær byrðar, sem á höfðu verið lagðar til þess að afstýra gengislækkun, framlengdar áfram, — og ekki nóg með þetta, þrem árum síðar, þ.e. 1951, var enn stóraukið á þessar byrðar með lögleiðingu bátagjaldeyrisfyrirkomulagsins. Þessar byrðar hafa siðan enn verið að aukast með svo að segja hverju ári í því formi, að bátagjaldeyriskerfið hefur sífellt verið aukið.

Það, sem fyrst og fremst er ranglátt við söluskattinn, er, að hann leggst hlutfallslega jafnt á allar þær vörur, sem hann er innheimtur af, hvort sem þær eru nauðsynjavörur eða algerar óhófsvörur. Það, sem um tollana má þó segja í þessu sambandi, er, að þeir eru misháir eftir því, um hvers konar vörur er að ræða. Nær enginn slíkur greinarmunur er gerður um söluskattinn. Hann leggst algerlega jafnt á allt það, sem hann er á annað borð innheimtur af, en það eru flestar vörur.

Fram að þessu hafa það verið höfuðrök ríkisstjórna, að ekki væri hægt af fjárhagsástæðum að afnema söluskattinn. Nú vill svo til, að hæstv. fjmrh. lét í té í framsöguræðu sinni fyrir fjárlagafrv. prýðileg rök fyrir því, að nú væri unnt að losna við þennan óvinsæla skatt og fella hann algerlega niður. Í ræðu sinni komst hæstv. fjmrh. svo að orði, að gera mætti ráð fyrir því, að tekjur ríkissjóðs á þessu ári mundu fara um 106–107 millj. kr. fram úr áætlun. Ýmis önnur ummæli hans hnigu og í þá átt, að næsta ár yrði vonandi ekki síðra, svo að þá ætti að mega gera ráð fyrir því, ef sömu reglum hefur verið fylgt við samningu fjárlaga fyrir næsta ár og síðasta ár, að tekjur ríkissjóðs færu ekki minna fram úr áætlun á því ári heldur en þær gera á þessu ári, samkv. upplýsingum hæstv. ráðherra; og ef það reynist svo, að tekjur ríkissjóðs muni fara á næsta ári á annað hundrað millj. kr. fram úr áætlun, þá er söluskatturinn óþarfur. Þá er ekkert vit í því að innheimta skattgjöld af almenningi í þeim mæli, sem gert er ráð fyrir, og þá er sjálfsagt að fella niður þau skattgjöldin, sem eru óréttlátust og ósanngjörnust, sem er söluskatturinn. Á þessum grundvelli flytjum við hv. 9. landsk. þm. þá tili. okkar að fella þetta frv. algerlega, hætta innheimtu söluskattsins.

Þegar þetta mál var rætt í n., tók meiri hl. hennar hins vegar í engu undir þessa afstöðu, og mátti af afstöðu hans ráða, að það væri vilji stjórnarflokkanna að knýja frv. fram, þ.e. láta halda áfram að innheimta söluskattinn. Þess vegna er það, sem við höfum leyft okkur að flytja sem eins konar varatill. brtt. á þskj. 138, en þær eru í aðalatriðum um það, að fjórðungur söluskattsins skuli renna til bæjar- og sveitarfélaga, ef hann á að innheimtast á annað borð.

Það þarf ekki um það að orðlengja, að fjárhagsmál bæjar- og sveitarfélaganna eru enn í hinu mesta öngþveiti. Þeim hefur ekki verið séð sómasamlega fyrir tekjustofnum, þannig að þau geti staðið undir þeim útgjöldum, sem þeim er lögum samkvæmt og eðli málsins skylt að standa undir. Þetta hefur margoft verið viðurkennt hér á hinu háa Alþingi og af ríkisstjórninni sjálfri. Það hefur í mörg ár verið viðurkennt, að brýna nauðsyn bæri til þess að sjá bæjar- og sveitarfélögum fyrir nýjum tekjustofnum. Það var eitt af verketnum þeirrar skattalaganefndar, sem skipuð var fyrir þremur eða fjórum árum, að endurskoða skattalögin einmitt hvað það snertir að sjá bæjar- og sveitarfélögum fyrir auknum tekjustofnum. Það fór fram nokkur endurskoðun á skattalöggjöfinni á síðasta þingi, en að nær engu leyti var hún endurskoðuð að því er snertir tekjumöguleika bæjar- og sveitarfélaga. Það mál er því enn algerlega óleyst, þótt til mikillar vansæmdar sé. Sökum þess ríkir í þeim málum, sums staðar að minnsta kosti, allt að því öngþveiti, sem bæjar- og sveitarfélögum verður ekki um kennt, heldur þeim aðbúnaði að fjármálum þeirra, sem þeim er séð fyrir af hálfu ríkisvaldsins. Það ber því brýna nauðsyn til þess og er raunar margjátað áður hér á Alþingi, að sjá þurfi sveitarfélögunum fyrir ríflegum tekjustofnum, og þá virðist liggja beinast við, að nokkur hluti söluskattsins, sem einmitt er innheimtur í hinum ýmsu sveitarfélögum, renni í þeirra sjóð, en ekki í sjóð ríkisins. Till. um þetta hafa áður verið hér uppi og stundum legið mjög nærri, að þær yrðu samþykktar. Gerum við flm. okkur því nokkra von um, að svo gæti farið að þessu sinni, að till yrði samþykkt, og væri þá vissulega miklu réttlætismáli fram hrundið fyrir sveitarfélögin í landinu.

Væntum við þess, að hv. d. taki þessum till. með velvild, sömu velvild og hún hefur stundum áður sýnt — og þó heldur meiri — til þess að framgangur málsins sé tryggður.