25.02.1955
Efri deild: 52. fundur, 74. löggjafarþing.
Sjá dálk 34 í C-deild Alþingistíðinda. (1989)
99. mál, tekjuskattur og eignarskattur
Gísli Jónsson:
Ég er efnislega samþykkur því, að þessar tekjur ættu að vera undanþegnar skatti, og hef borið fram um það tillögur í mþn. í skattamálum, þótt það hafi ekki enn náð fram að ganga. Og eingöngu vegna þess, að ég tel ekki rétt, að málið sé afgreitt á meðan mþn. starfar að endurskoðun skattalaganna, segi ég já við rökstuddu dagskránni.