14.10.1954
Efri deild: 4. fundur, 74. löggjafarþing.
Sjá dálk 53 í C-deild Alþingistíðinda. (2021)
27. mál, útvarpsrekstur ríkisins
Dómsmrh. (Bjarni Benediktsson):
Herra forseti. Þetta litla frv. er nánast flutt að tilhlutun fjvn. Hún beindi því til menntmrn. á s. l. vetri, að íhugað yrði að koma á nýrri innheimtuaðferð við afnotagjöld útvarpsins, — innheimtuaðferð, sem hún telur að mundi geta sparað stórfé. Við athugun ráðuneytisins kom tvennt í ljós. Annað var það, að að l. óbreyttum var ekki hægt að taka upp þá breytingu á innheimtunni, sem fjvn. lagði til, og í öðru lagi, að forráðamenn útvarpsins, útvarpsstjóri sjálfur, a. m. k. að nokkru, og hans aðstoðarmenn um innheimtuna, mjög eindregið ráða frá þessari nýju aðferð og telja betra að halda því fyrirkomulagi óbreyttu, sem nú er. Þó skilst mér, að viðurkennt sé af öllum, að einhverjum sparnaði mundi verða hægt að ná með því að breyta um aðferðina. Og hvernig sem menn líta á þau rök, sem þarna hafa verið færð með og á móti, er enginn efi á því, að betra er að hafa um þetta frjálsar hendur en að vera bundinn við ákveðna aðferð, enda þá verra að semja við aðila um innheimtuna, ef útvarpið hefur hana ekki sjálft með höndum. og því taldi ég undir öllum kringumstæðum rétt að flytja þetta frv. Svo er hægt að athuga það nánar, bæði af þeirri þn., sem fær málið til meðferðar, og af forráðamönnum útvarpsins, hvort eigi að breyta hér til eða ekki, þegar búið er að fá lagaheimildina til breytingarinnar, ef hún verður talin ráðleg.
Ég legg til, að málið gangi til 2. umr. að þessari umr. lokinni, og sýnist eðlilegast, að málið fari til fjhn. Þetta er í raun og veru ekkert annað en fjármál, og af þeim n., sem hér starfa, finnst mér eðlilegast, að fjhn. taki það til íhugunar.