04.11.1954
Efri deild: 11. fundur, 74. löggjafarþing.
Sjá dálk 53 í C-deild Alþingistíðinda. (2023)
27. mál, útvarpsrekstur ríkisins
Frsm. (Bernharð Stefánsson):
Herra forseti. Efni þessa litla frv. er einungis að heimila, að ráðh. geti falið innheimtumönnum ríkissjóðs innheimtu afnotagjalda fyrir útvarp, auk þess sem heimilt er að fela það póststofum og póstafgreiðslum, ef útvarpið annast það ekki sjálft.
Tilefni þess, að þetta frv. er fram borið, mun vera það, að fjvn. beindi því á sínum tíma til hæstv. ríkisstj. að athuga, hvort ekki væri rétt að taka upp þessa skipan í þeim tilgangi að spara fé með því móti.
Fjhn. hefur athugað frv. og sér ekkert á móti því, að þessi heimild verði veitt. Hins vegar er fjhn. e. t. v. ekki eins trúuð á það og fjvn. var á sinum tíma, að á þessu sparist mjög mikið, og ef svo væri ekki, ef ekki sparaðist fé, sér hún ekki ástæðu til breytingar. Þess vegna er það í trausti þess, að þessi heimild verði því aðeins notuð, að með því sparist fé, sem n. leggur til, að frv. verði samþ. óbreytt.