14.10.1954
Neðri deild: 4. fundur, 74. löggjafarþing.
Sjá dálk 66 í C-deild Alþingistíðinda. (2058)
23. mál, orlof
Flm. (Eggert Þorsteinsson):
Herra forseti. Ég hef leyft mér að flytja hér á ný í þessari hv. þd. frv. á þskj. 23 um lengingu orlofsréttarins úr tveim vikum í þrjár og tilsvarandi hækkun orlofsfjárins. Á síðasta Alþ. flutti ég einnig samhljóða frv., en það fékk þá ekki endanlega afgreiðslu þingsins. Hv. heilbr.- og félmn. afgreiddi þá málið, en klofnaði í afstöðunni til þess. Minni hl. n., hv. 1. landsk., lagði til, að frv. yrði samþykkt, en álit meiri hl. varð ekki birt, enda komið þá hart nærri þinglokum og sýnt, að þingmeirihluti stjórnarflokkanna hafði ekki áhuga á málinu.
Við flutning frv. þá gerði ég allýtarlega grein fyrir gangi orlofsmálanna frá öndverðu og afskipta Alþýðuflokksmanna af þeim og tel því óþarft að endurtaka það allt nú. Þó verður ekki hjá því komizt að endurtaka nokkuð af því, sem þá var sagt. Eins og í grg. fyrir frv. segir, fluttu þrír af þm. Alþfl. á Alþingi 1952 þáltill. um endurskoðun orlofslöggjafarinnar frá 26. febr. 1943, m. a. með það fyrir augum að lengja orlofsréttinn úr tveim vikum í þrjár. Enn fremur var gert ráð fyrir athugun á hentugum og ódýrum orlofsferðum, innanlands og utan. Þáltill. þessi hlaut ekki afgreiðslu þingsins, og ber að harma, að slík rannsókn skyldi ekki fara fram.
Flm. þessa frv. telur höfuðnauðsyn á í fyrsta lagi, að orlofsrétturinn verði færður úr tveim vikum í þrjár og að b-liður 1. gr. laganna verði felldur niður. En þar er m. a. gert ráð fyrir, að hlutarsjómenn njóti ekki að fullu þeirra hlunninda, sem lögin veita öðrum launþegum. Nú hafa þessi mál skipazt þannig við lausn hinnar langvinnu vinnudeilu í des. 1952, að fallizt var í samkomulaginu milli verkalýðsfélaganna og vinnuveitenda á hækkun orlofsfjár og lengingu á orlofsrétti launþega úr 4% í 5%. Þrátt fyrir þennan árangur er vitað af samþykktum fjölmargra verkalýðsfélaga, að þau munu ekki linna baráttunni fyrir framgangi þessara réttinda, fyrr en þeim árangri er náð, sem telja verður eðlilegan og sjálfsagðan með tilliti til þeirrar þróunar, sem átt hefur sér stað, t. d. á Norðurlöndum, en þar hefur nú víðast verið lengdur orlofsrétturinn úr tveim vikum í þrjár og tilsvarandi hækkun orlofsfjárins. Fullnægjandi réttindi í lögum þessum telja verkalýðsfélögin ekki tryggð fyrr en í fyrsta lagi orlofsrétturinn hefur verið hækkaður samkv. frv. þessu, í öðru lagi jafnframt hitt, að þessi mál verði ekki samningsatriði milli vinnuþega og vinnuveitenda hverju sinni, heldur verði gerðar tilsvarandi breytingar á orlofslöggjöfinni, og þá jafnframt í þriðja lagi, að lögin nái til allra launþega.
Það er því í senn eðlileg og sjálfsögð þróun þessara mála í nágrannalöndunum og sanngirniskröfur launþegasamtakanna, sem gera það nauðsynlegt, að Alþingi samþykki frv. þetta, um leið og Alþingi afstýrði því, að frekari deilur yrðu um þessi réttlætismál. Má þó ljóst vera, að framangreindar breytingar eru ekki einhlítar til úrbóta í þessum málum, og með það í huga er 4. gr. frv. sett hér og bráðabirgðaákvæði hennar um, að athugaðir verði möguleikar á því, að launafólk geti hagnýtt sér orlofsféð og hvíldartíma á sem heilladrýgstan hátt.
Ég vil geta þess, að innan samtaka þeirra 26 þúsund karla og kvenna, sem mynda hin íslenzku verkalýðssamtök, er enginn ágreiningur um framgang þessa máls. Það sýna ljóslega samþykktir undanfarinna Alþýðusambandsþinga og einstakra verkalýðsfélaga. Ég vildi svo að lokum mega óska þess, að frv. verði vísað til hv. heilbr.- og félmn. og 2. umr. og að afgreiðslu málsins yrði hraðað svo sem unnt er, a. m. k. að sagan frá síðasta þingi endurtaki sig ekki í sömu mynd.