18.10.1954
Efri deild: 5. fundur, 74. löggjafarþing.
Sjá dálk 24 í B-deild Alþingistíðinda. (21)

11. mál, tollskrá o.fl.

Karl Kristjánsson:

Herra forseti. Hv. 4. þm. Reykv. hefur nú gert grein fyrir afstöðu sinni til málsins og borið fram brtt. Þessari brtt. hreyfði hann að vísu ekki í fjhn., en tjáði sig andvigan verðtollsálaginu. Verðtollsákvæðin munu fyrst hafa verið samþ. 1946, fyrir árið 1947, og voru þá á þá leið, að viðaukinn var ákveðinn 65%. Af grg. fyrir því frv., sem ákvæðin voru í, má ráða, að viðaukinn var settur til þess og miðaður við það að standa straum af dýrtíðarráðstöfunum, niðurgreiðslum og þvílíku, sem fyrir höndum lá 1947, og ákvæðin voru fi5% hækkun. Þessi ákvæði voru óbreytt, þar til gengisfellingin gekk í gildi, en þá var prósentan lækkuð niður í 45, eins og hún hefur verið síðan.

Þegar maður athugar fjárlögin 1947, það ár sem tollaukinn gekk fyrst í gildi, þá sést, að mikil breyting hefur orðið síðan. Heildarniðurstaða fjárlaganna mun þá hafa verið um 200 millj. Nú er hún áætluð samkv. frv. fyrir 1955 nálega 500 millj. Þess vegna liggur ljóst fyrir, að ekki hefur þörfin frá því sjónarmiði minnkað fyrir tekjur handa ríkissjóði, enda er verðtollurinn nú áætlaður fyrir næsta ár 138 millj. eða rúmlega 1/4 hluti af tekjum þeim, sem ríkissjóðnum eru áætlaðar. Það er því, et ætti að fella niður þennan viðanka eða lækka hann til verulegra muna, eins og hv. 4. þm. Reykv. leggur til, höggvið stórt skarð í tekjur ríkissjóðsins.

Athugi maður, hvað áætlað var 1947 til dýrtíðarráðstafana eða niðurfærslu, þá voru það 35 millj., en fyrir árið 1955 eru samkv. fjárlögunum áætlaðar til þessara hluta nálega 50 millj. Hið beina verkefni, sem viðaukanum var ætlað upphaflega, er því enn við lýði engu siður en fyrr, og beri maður saman gjaldaliði ríkissjóðsins samkv. fjárlögunum 1947 og fjárlagafrv. nú, þá kemur viðast hvar hið sama út. Almannatryggingunum var t.d. ætlað 1947 að fá 19 millj. úr ríkissjóði nú þarf að ætla þeim nálega 47 milljónir. Þess vegna er það, að ég fyrir mitt leyti tel ekki grundvöll fyrir þeirri lækkun, sem hv. 4. þm. Reykv. leggur til. á þessum tekjulið, og ég hygg, að ég megi segja hið sama fyrir aðra fjhn.-menn, sem með frv. mæla, þótt till. kæmi ekki fram innan fjhn. Ég hygg, að mér sé óhætt að fullyrða, að meiri hl. n. leggi til, að till. verði felld.