21.10.1954
Neðri deild: 7. fundur, 74. löggjafarþing.
Sjá dálk 122 í C-deild Alþingistíðinda. (2100)

49. mál, áburðarverksmiðja

Flm. (Einar Olgeirsson):

Herra forseti. Þetta frv., sem hér liggur fyrir á þskj. 55, er flutt til þess að reyna að laga nokkra galla, sem í ljós hafa komið á lögunum um áburðarverksmiðju. Frv. fer fram á, að núverandi 13. gr. laganna sé felld niður og inn komi önnur gr., þar sem ákvæði til bráðabirgða ákveði, að hlutabréf annarra hluthafa en ríkissjóðs skuli innleyst af ríkissjóði á nafnverði að viðbættum 6% ársvöxtum af upphæðinni, frá því að þau voru keypt.

Ég býst við, að öllum hv. þm. sé kunnugt um, hvernig á því stendur, að þessir gallar hafa reynzt á lögunum um áburðarverksmiðju. Eins og lögin eru nú, þá stendur í 3. gr. laganna, með leyfi hæstv. forseta:

„Verksmiðjan er sjálfseignarstofnun, er lýtur sérstakri stjórn. Verksmiðjuna má hvorki selja né veðsetja, nema heimild sé veitt til þess af Alþingi.“

Og þessi 3. gr. stendur að öllu leyti óhögguð. Hins vegar var við síðustu meðferð frv. um áburðarverksmiðjuna, sem varð að lögum 1949, bætt inn 13. gr. í þau lög. Upprunalega, þegar frv. um áburðarverksmiðju var lagt fyrir, var gert ráð fyrir, að verksmiðjan væri ríkisverksmiðja. Frá því í upphafi að yfirleitt var talað um að stofnsetja áburðarverksmiðju hér á Íslandi — og ég býst við að einhverjar fyrstu till. um það hafi komið fram í sambandi við tillögur skipulagsnefndar atvinnumála eða hinnar svokölluðu Rauðku 1934–35, — þá var alltaf gert ráð fyrir, að ríkið eitt yrði eigandi áburðarverksmiðjunnar. Svo var einnig í því frv., sem ríkisstj. lagði fyrir 1949. En í meðferðinni á Alþ. gerist það við síðustu umræðuna í Ed., að bætt er inn í frv. 13. gr., þar sem ákveðið er, að áburðarverksmiðjan skuli rekin sem hlutafélag, svo framarlega sem einstakir aðilar fáist til að leggja fram 4 millj. kr. sem hlutafé. Í 13. gr. stendur greinilega, að áburðarverksmiðjan skuli rekin sem hlutafélag. Og 13. gr. gerir aðeins ráð fyrir þar með breytingum á 2. gr. laganna og svo að nokkru leyti á 4. gr. laganna, sem snertir stjórn verksmiðjunnar. En það eru ekki gerðar neinar ráðstafanir í 13. gr., sem breyta ákvæði 3. gr., sem sé að verksmiðjan sé sjálfseignarstofnun. Hins vegar gerist það nokkru eftir að lögin um áburðarverksmiðju hafa verið samþykkt, að einstakir ráðh. hér á Alþingi fara að gefa þá yfirlýsingu, að áburðarverksmiðjan sé eign þessa hlutafélags, þótt það standi skýrum orðum í 13. gr. laganna, að áburðarverksmiðjan skuli aðeins rekin sem hlutafélag, að þetta sé aðeins rekstrarhlutafélag, en ekki eignarhlutafélag. Þessar yfirlýsingar nokkurra hæstv. ráðherra stangast þess vegna á við lögin. En eins og yfirlýsingar ráðherra yfirleitt hafa þær það mikið gildi, að það er alveg nauðsynlegt .að sem fyrst verði úr því skorið, hvort hér á að vera rétthærra, lögin eins og þau mæla fyrir í 3. gr. eða þessar yfirlýsingar ráðherranna, sem nú hafa verið nokkuð oft endurteknar, að áburðarverksmiðjan sé eign hlutafélagsins.

Það hefur áður verið gerð svo greinilega grein fyrir því, hvað það mundi þýða, ef litið væri á, að áburðarverksmiðjan væri eign hlutafélagsins, að ég ætla ekki að eyða mörgum orðum um það, aðeins minna hv. þm. á, að auk þessara 4 millj. kr., sem þessir einstöku hluthafar hafa lagt fram, hefur ríkið lagt fram 6 millj. kr. sem hlutafé og þar að auki lánað allt það fé, sem til áburðarverksmiðjunnar þarf, sem mun vera — ja, líklega milli 110 og 120 milljónir króna. Það er þess vegna alveg nauðsynlegt, að það séu tekin af öll tvímæli um eign áburðarverksmiðjunnar, því að því lengur sem þetta óskýra ástand, sem nú er, er látið standa, því erfiðara verður það upp á málarekstur allan í framtíðinni og upp á breytingu á þessu.

Ég býst við, að að ýmsu leyti sé einmitt eins og nú standa sakir heppilegt tækifæri til þess að fá þessa breytingu fram. Ég gat þess á síðasta þingi, að það mundi máske verða mjög erfitt, svo framarlega sem áburðarverksmiðjan undireins gengi ákaflega vel og gæfi mikinn gróða, að fá þessu breytt. Það mundi ef til vill vera léttara, ef eitthvað gæfi á bátinn. Og að einhverju leyti, þótt vonandi að litlu leyti sé, er eitthvað í ólagi með áburðarverksmiðjuna núna. Það væri mjög æskilegt, að þeir hæstv. ráðh., sem með þetta hafa að gera og þetta þekkja, gæfu hér á Alþ. upplýsingar um, hvernig það er, — a. m. k. hefur nokkuð verið fullyrt, að áburðurinn væri of finn, of smá duftkornin, og svo mikið er víst, að nokkuð miklar birgðir hafa safnazt fyrir. Það væri mjög æskilegt að fá að vita, hvernig rekstrarafkoma áburðarverksmiðjunnar hefur verið, það sem af er. Það hefur jafnvel heyrzt, að að einhverju leyti mundi þurfa að skipta um nokkuð af þeim vélum, sem starfræktar eru í sambandi við endanlegan frágang og gerð kornanna, þannig að áburðarverksmiðjan þurfi að leggja í nokkurn nýjan, aukinn kostnað í slíku sambandi. Hins vegar munu nokkrar kvartanir hafa komið frá bændum um, að þeim þætti áburðurinn varla nógu nothæfur í því ástandi, sem hann nú er. Þá liggur ákaflega nærri að spyrja: Hvernig er þá með þær birgðir, sem þegar eru til og ég býst við að ríkisstofnanir vafalaust hafi lánað út á? Eru þær að öllu leyti fullgild vara? Og að svo miklu leyti sem einhver hluti — lítill hluti vonandi — af vélasamstæðunni væri ekki sá rétti eða hæfilegi, en það þurfi að breyta þarna um, — hver tekur þann skell á sig? Ef að venju fer um hlutafélög, þá mundi það fyrst og fremst lenda á hlutafélagi, ef um slíkt væri að ræða, og er máske meiningin. En þá er viðbúið, að hægara yrði en ella, ef svo væri, að fá viðunandi samninga við núverandi hluthafa, sem ella þætti þeir máske órétti beittir, um, að ríkið yfirtæki þeirra hlutabréf. Ég held þess vegna, að það væri að öllu leyti heppilegur tími að fá fram fullgildingu laganna um áburðarverksmiðju — fá því komið í gegn, að þau séu í gildi, og fá það efasama ástand, sem skapazt hefur sumpart út af 13. gr., sem stangast við lögin, og sumpart út af þeim yfirlýsingum hæstv. ráðherra, sem stangast við lögin, út úr heiminum.

Það hefði verið mjög æskilegt, ef hæstv. ríkisstj. áliti sig hafa nú þegar aðstöðu til þess og þekkingu, að fá upplýsingar um þetta, sem kvartað hefur verið um viðvíkjandi áburðarverksmiðjunni. Það kann nú vel að vera, að hæstv. ríkisstj. hafi ekki þegar rannsakað það nægilega vel eða fengið þær upplýsingar, þannig að hún væri ekki viðbúin að gefa þær nú, en ég mundi mjög óska þess, að hv, fjhn., sem ég mundi leggja til að þessu frv. væri vísað til, athugaði þessi mál og reyndi að fá upplýsingar um, hvernig þessi mál standa, því að vissulega kemur það Alþ. við. Þessi stofnun er sköpuð af Alþ., og það er ekki hægt að ráðstafa þessari stofnun á neinn hátt án leyfis Alþingis. Alþ. kýs sjálft meiri hl. stjórnarinnar, svo að það er ekki óeðlilegt, að Alþ. fylgist nokkuð með, hvernig gengur um rekstur þessa fyrirtækis, sem er stærsta fyrirtækið, sem íslenzka ríkið enn þá hefur lagt l.

Hv. þingmenn hafa áður nokkuð fylgzt með þessu máli, því að það hefur verið flutt nokkrum sinnum, ýmist í þessari mynd, sem hér liggur fyrir, eða á annan hátt hér á þingi, svo að málið er orðið hv. þingmönnum nokkuð kunnugt. Ég sé þess vegna ekki ástæðu að svo komnu til þess að orðlengja frekar um það. Ég vil aðeins minna á, að það kom greinilega í ljós strax frá upphafi, þegar þessi breyting var gerð, og strax á fyrstu þingunum þar á eftir, að það var ekki aðeins skoðun Sósfl., að það væri rangt að farið með þær yfirlýsingar, sem gefnar voru um, að verksmiðjan væri eign hlutafélagsins, — sú hin sama skoðun kom einnig fram hjá Alþfl. hér í d. og hans fulltrúum, bæði í fjhn. og hjá þeim, sem þátt tóku í umræðunum. Ég vil þess vegna leyfa mér að vona, að nú á þessu þingi takist að fá þessi lagafyrirmæli gerð alveg ótvíræð og þetta mikla og nytsama fyrirtæki gert að ótvíræðri eign ríkisins, eins og það hefur alltaf átt að vera samkv, tilgangi og fyrirmælum þeirra frv., sem lögð hafa verið hér fyrir, og raunverulega einnig samkv. fyrirmælum þeirra laga, sem nú gilda um :þetta, þó að þau fyrirmæli hafi nokkuð verið dregin í efa.

Ég vil svo leyfa mér að óska þess, að að lokinni þessari umr. verði málinu vísað til 2. umr. og hv. fjhn.