22.11.1954
Neðri deild: 21. fundur, 74. löggjafarþing.
Sjá dálk 132 í C-deild Alþingistíðinda. (2111)
51. mál, menntun kennara
Jónas Rafnar:
Herra forseti. Það er nú ekki langt mál, sem ég ætla að flytja að þessu sinni. Ég ætla aðeins að leyfa mér að gera nokkrar athugasemdir við ræðu hv. 3. þm. Reykv. (KS).
Þingmenn hafa nú fengið nokkuð merkilegt plagg frá stjórn húsmæðrakennaraskólans, og ég geri ráð fyrir því, að það sé enginn hissa á því, þó að sú ágæta stjórn mæli gegn því, að skólinn sé fluttur úr Rvík. Stjórnarmeðlimir skólans eru allir búsettir Reykvíkingar, og yfirleitt mun sá skilningur vera nokkuð mikið ríkjandi hér í bænum, að hér séu allir hlutir bezt komnir og ef einhver stofnun hafi hér tekið til starfa, þá sé hreinn voði að flytja hana út fyrir höfuðstaðinn
Það er nú ekki ástæða til þess að fara út í efni þessa bréfs. Ég vildi þó leyfa mér að benda aðeins á nokkur atriði.
Því er haldið fram í þessu bréfi, að það verði ákaflega erfitt að fá fullnægjandi kennarafjölda á Akureyri til þess að sinna störfum við húsmæðrakennaraskólann. Þessi fullyrðing er algerlega út í bláinn, og ég vil leyfa mér að segja, að hún sé byggð á fullkomnum misskilningi. Á Akureyri eru ekki síður góðir kennarar en hér í bænum, og ég vil í því sambandi sérstaklega minna á kennara menntaskólans. Þá höfum við í bænum ágæta lækna, sem ég er sannfærður um að séu færir um að kenna næringarefnafræði, sem mér skilst að forstöðumaður skólans leggi mjög mikla áherzlu á. Einnig er ágætur kennari á Akureyri í efnafræði.
Annars er það dálítið undarlegt, að það virðist vera lögð einhver sérstök áherzla á það, að húsmæðrakennaraskólinn þurfi betri kennara en aðrir skólar á landinu. Mér finnst þetta nokkuð undarleg skoðun, og mér finnst það nokkuð undarleg röksemdafærsla hjá hv. skólanefnd að leggja á það mjög mikla áherzlu, að kennarar skólans geti haft aðgang að söfnum háskólans. Ef þessi skoðun væri á rökum reist, þá sé ég ekki annað en að við verðum að flytja allar okkar menntastofnanir hingað til Rvíkur. Ef sú skoðun er einnig á rökum reist, að nemendur húsmæðrakennaraskólans þurfi endilega að hafa aðstöðu til þess að sinna leiklistarlífi, sækja þjóðleikhús hér í Rvík, þá má einnig segja það, að full ástæða sé til þess, að menntaskólinn á Laugarvatni og menntaskólinn á Akureyri séu einnig fluttir hingað til Reykjavíkur, til þess að nemendur þeirra geti búið hérna í Reykjavíkursælunni og notið allra þeirra miklu hlunninda, sem höfuðborgin hefur að bjóða fram yfir landsbyggðina.
Eins og ég tók fram í byrjun, þá ætla ég ekki að fara ýtarlega út í þetta mál. Það hefur verið gert nokkrum sinnum áður. En ég vildi þó aðeins í sambandi við þá fullyrðingu hv. 3. þm. Reykv., að húsmæðraskólahúsið á Akureyri væri ekki hentugt, upplýsa það, að fjvn. Alþingis var fyrir skömmu norður á Akureyri og gafst þá einmitt tækifæri til þess að skoða þetta ágæta hús, og ég þori að fullyrða það, og ég fer ekki með neinar fjarstæður, að hverjum einasta fjárveitingarnefndarmanni leizt þannig á húsið, að þeir töldu, að þetta væri einmitt mjög hentugur staður fyrir húsmæðrakennaraskólann. Það er hrein fjarstæða hjá hv. þm. að halda því fram, að einhvern sérstakan kostnað muni leiða af því að breyta húsinu. Húsið er á allan hátt mjög fullkomið, enda nýbyggt, og ég leyfi mér að fullyrða, að það muni kosta sáralitla peninga að gera þær breytingar, sem nauðsynlegar kunna að verða.
Hv. þm. hélt því fram áðan, að húsmæðrakennaraskólinn þyrfti ekki nema á litlu húsi að halda, mér skildist ef til vill ekki á stærra húsnæði að halda en meðalfjölskylda þyrfti hér í bænum. Ég man nú ekki betur en að það sé tekið fram í lögunum um húsmæðrakennaraskólann, að þegar húsmæðrakennaraskólinn fái eigið húsnæði, þá eigi að byggja heimavist við skólann. Verði byggt yfir húsmæðrakennaraskólann, þá leiðir það af sjálfu sér, að um leið verður byggð heimavist fyrir skólann. Nemendur skólans eru núna í vetur, að því er mig minnir, 12 að tölu, og enginn getur vitað, hve margir þeir kunna að verða síðar meir, svo að það hlýtur að vera öllum hv. þm. ljóst, að verði farið út í að byggja yfir húsmæðrakennaraskólann hér í bænum, þá muni það kosta mjög verulegar upphæðir, og ég vil leyfa mér að segja, að sú fullyrðing, að þarna sé um lítinn, óverulegan kostnað að ræða, er algerlega út í bláinn og því miður sett fram í blekkingarskyni.
En svo er að sjálfsögðu sú hlið á þessu máli, hvort þm. vilja almennt fara út í það að byggja yfir þennan skóla, á sama tíma sem hægt er að flytja skólann á annan stað með tiltölulega litlum kostnaði og meðan ekki er búið að byggja yfir kennaraskólann hér og hjúkrunarkvennaskóla, — hvort þm. vilja yfirleitt taka upp þá stefnu að sýna fullkomið ábyrgðarleysi í þessum málum, þegar ljóst liggur fyrir, að við erum þegar búnir að byggja það marga skóla í þessu landi, að þeir standa margir hverjir ónotaðir, en eftir er að byggja þá skóla, sem brýnust þörf er fyrir, og á ég þar sérstaklega við kennaraskólann og hjúkrunarkvennaskólann.