25.10.1954
Neðri deild: 8. fundur, 74. löggjafarþing.
Sjá dálk 144 í C-deild Alþingistíðinda. (2127)
56. mál, smíði togara innanlands
Flm. (Karl Guðjónsson):
Herra forseti. Frv., sem hér liggur fyrir, er að efni til á þá lund, að ef það yrði að lögum, þá yrði ríkisstj. þar með falið að gera ráðstafanir til þess, að togarafloti Íslendinga yrði aukinn um 10 skip, þannig að 8 yrðu smíðuð erlendis og hraðað smíði þeirra, svo að þau kæmu til landsins á árinu 1956 og 1957, en tvö skip yrðu smíðuð innanlands, og er það hugsað sem fast árlegt verkefni íslenzkra skipasmíðastöðva. Til þess að standa straum af þessum framkvæmdum er ríkisstj. gefin heimild til þess að taka lán, allt að 60 millj. kr. Enn fremur væri ríkisstj. með frv., ef að lögum yrði, gefinn kostur á því að ráðstafa skipunum eftir því, sem hentugast þætti, selja þau félögum, einstaklingum, bæjarfélögum, eða að ríkissjóður ræki skipin sjálfur, eins og komið hafa fram raddir um að nauðsyn beri til.
Um íslenzka togaraflotann er það að segja, að fyrir rúmum 20 árum var íslenzki togaraflotinn nálægt 40 skip. Þau skip öfluðu mikillar bjargar í íslenzka þjóðarbúið. En á árunum eftir 1930 var viðhald og aukning togaraflotans vanrækt eins og fleira í þeirri fjárhagskreppu, sem þá reið yfir íslenzku þjóðina og raunar margar fleiri þjóðir. Það var því svo komið á árabilinu frá 1934 og fram að síðustu heimsstyrjöld, að togarafloti Íslendinga fór sífellt minnkandi og hrörnandi. Á þeim árum voru þó gerð út að staðaldri 36 eða 37 botnvörpuskip héðan af Íslandi, en á stríðsárunum fækkaði þessum skipum nokkuð. Bæði urðu þau fyrir skakkaföllum af völdum styrjaldarinnar og gengu úr sér af ýmsum ástæðum. Eftir styrjöldina horfum við Íslendingar upp á það, að íslenzki togaraflotinn er þegar orðinn óeðlilega lítill, kominn niður í um það bil 30 skip, og þar að auki svo úreltur, að vart má telja, að möguleiki hafi verið til þess að reka þau skip síðan, þó að nokkur þeirra hafi öðru hverju verið gerð út allt fram undir síðustu tíma.
Það varð því fljótlega eitt af verkefnum íslenzka ríkisins, þegar upp rofaði eftir styrjöldina, að endurnýja og endurskapa íslenzka togaraflotann. Nýsköpunarstjórnin gerði ráðstafanir til þess, að keypt voru inn til landsins 33 botnvörpuskip af fullkominni tegund, og sigldu þau inn í hafnir landsins á árunum 1947 og 1948. En þessar togarasmíðar voru vart miklu meira en það, sem til þurfti hið allra nauðsynlegasta að endurnýja flotann. Síðar gekkst ríkisstj. fyrir því, að smíðuð voru tíu skip til viðbótar, og var þá náð nokkurn veginn sömu tölu togara og hér voru í rekstri fyrir 25 árum. En þetta er samt óeðlilega lág tala.
Nú eru til 43 íslenzk botnvörpuskip af fullkomnum gerðum, og er u þau í rekstri, nema þegar íslenzka ríkisvaldið kreppir svo utan að fjárhag útgerðarinnar, að skipin geta ekki lengur sinnt sínu hlutverki og þeim er lagt.
Á s.l. þingi fluttum við flm. þessa frv. einmitt sams konar frv. Það fékk þá heldur daufar undirtektir. Því var vísað til hv. fjhn. þessarar d. og kom aldrei út úr þeirri n. aftur. En nú hefur það skeð, að ýmislegt hefur breytzt í rekstri skipanna, og ég hygg, að ekki sé of mikið fullyrt, þótt sagt sé, að ólíkt meiri skilningur muni nú vera fyrir hendi hér á Alþingi um það, að rekstur togara verður að vera einn aðalatvinnuvegur íslenzku þjóðarinnar. Ég vitna í því sambandi í þær umr., sem fram fóru hér í Sþ. s. l. föstudag, þar sem það kom greinilega fram, að fjölmörg byggðarlög víðs vegar á landinu binda einmitt sínar stærstu atvinnuvonir við rekstur togara. Þó er það alkunna, að á þessu hausti hefur verið mjög mikil atvinna í landinu einmitt í sambandi við rekstur togaraflotans, sem aftur tók til starfa á s. l. sumri eftir að hafa legið í kreppuástandi frá því í vor. Ég vil sömuleiðis benda á, að það er margfalt meiri ástæða fyrir Íslendinga nú en oft áður að leggja áherzlu á það að reka togaraútgerð og auka togaraútgerð sína.
Fyrr á árum var næstum einasti markaðurinn, sem slík skip leituðu á, tombólumarkaðurinn í Englandi, þar sem auk veiðiáhættunnar, sem jafnan fylgir slíkri útgerð, var tekin sú áhætta, að jafnvel ágætir farmar yrðu ekki að neinu verulegu verðmæti, þegar þeir komu á sinn erlenda markað, sökum þess, að sá markaður var svo ótryggur eins og við öll könnumst við. Togarasölurnar bæði í Þýzkalandi og Englandi hafa stundum gefið gott verð fyrir fiskinn, en oft hefur fiskverðið líka verið langt fyrir neðan það, sem vit var í að láta fiskinn fyrir.
Það er sömuleiðis óhagkvæmt fyrir Íslendinga að flytja mikið af fiskafurðunum burt úr landi óunnið. Það er allra tíma reynsla fyrir því, að þær þjóðir, sem selja frá sér afurðir sínar óunnar, sæta jafnan verri kjörum en þær, sem fullvinna vörur úr sínum afurðum og selja í fullunnu ástandi. Á síðustu árum hefur sem betur fer lokazt fyrir íslenzkar fisksölur í Englandi. Ég segi: sem betur fer, sökum þess að einmitt þetta viðskiptastríð Englendinga hefur orðið til þess að kenna íslenzkum stjórnarvöldum það, sem þau virtust ekki geta lært með öðru móti, þ. e. að verka íslenzkar fiskafurðir til hlítar innanlands, eins og nú er að mestu gert. Það er réttlætanlegt að selja einhvern hluta af íslenzku togaraframleiðslunni sem ísfisk úr landi, en við höfum nú fengið þá reynslu og vitum það nú, að megnið af íslenzku sjávarafurðunum verður að vinna í landinu, aflann verður að verka í landinu sjálfu og selja hann út sem fullunna vöru. Á síðustu árum hefur af þessum ástæðum verið hlúð betur að fiskverkuninni á okkar landi en áður tíðkaðist. Það hafa verið reist ný hraðfrystihús, afkastageta margra þeirra eldri hefur verið aukin, og þá hefur sömuleiðis verið leitazt við að fá upp nokkru meiri fjölbreytni í framleiðsluna en áður var. Nefni ég þar sérstaklega til skreiðarverkun, sem lítið eða ekki tíðkaðist hér á landi þangað til á allra síðustu árum.
Ef við athugum svo lítillega, hvað það er af verðmætum, sem einn togari skilar íslenzka þjóðarbúinu, þegar búið er að fullverka afla hans og selja hann út sem freðfisk eða sem skreið eða sem verkaðan saltfisk, þá kemur í ljós, að verðmæti framleiðslu meðaltogara lætur nærri að nema 1 millj. og 50 þús. kr. á mánuði. Það þýðir, að ef við miðum við það, að íslenzkum togara sé haldið úti til veiða í 11 mánuði ársins, eins og mun mega teljast nokkuð hæfilegt að reikna með, því að ævinlega týnist einhver tími til standsetninga á skipunum, þá skilar togari um það bil 11½ millj. kr. í erlendum gjaldeyri, og eru þá meðtalin þau verðmæti, sem skapast við vinnslu aflans í landi. Við sjáum það, að slík framleiðsla er svo stórkostleg, að við eigum, eins og nú standa sakir, ekki völ á hagkvæmari atvinnuvegum fyrir íslenzku þjóðina.
Tekjur ríkisins af rekstri togaraflotans munu nema eitthvað á annað hundrað milljónum króna, ef bara eru reiknaðir innflutningstollar þeir, sem ríkið fær af þeim vörum, sem greiddar eru með aflaverðmæti togaraflotans. Ég hef fyrir mér um þessar tölur grein Björns Thors í Morgunblaðinu frá 21. okt. s. l., þar sem hann reiknar einmitt með því, að íslenzki togaraflotinn skili ríkissjóði sem nemur 315 þús. kr. á mánuði á skip í tollgreiðslur af vörum, sem keyptar eru fyrir verðmæti aflans, og reiknar hann þar með, að vörurnar séu tollaðar um 30%, sem mun vera nálægt meðaltolli. Vænti ég þá, að ekki sé hægt að saka mig um, að ég sæki rök mín endilega til minna skjólstæðinga, enda hygg ég að hér sé um að ræða tölur og upphæðir, sem menn greini ekki á um yfirleitt. Sömuleiðis hygg ég, að menn greini ekki á um það, ef þeir tala í fullri alvöru, að rekstur togaraflota er íslenzku þjóðinni fullkomin lífsnauðsyn nú á Tímum.
Þá vil ég koma að þeim þætti frv., sem lýtur að því, að farið er inn á nokkuð nýja braut, þar sem gert er ráð fyrir, að tvö af þeim tíu skipum, sem frv. fjallar um, verði smíðuð innanlands. Það liggur nú fyrir, að stálskipssmíðar eru hafnar hér innanlands, og það virðist ekkert vera, sem mælir gegn því, að þær haldi áfram og þær taki eðlilegri framþróun, og þó að enn sé ekki hafin smíði stórra stálskipa, þá liggja fyrir yfirlýsingar þeirra manna, sem bezt þekkja til íslenzks járniðnaðar, að ekki séu nein sérstök vandkvæði á því að smíða togara hér innanlands. Það þykir hins vegar varlegast að ætla ekki þessum unga skipasmíðaiðnaði meiri verkefni en hæfilegt er í upphafi, og því er ekki gert ráð fyrir smíði neina tveggja skipanna hér innanlands, að ólíklegt má telja, að íslenzkar skipasmíðastöðvar séu þess umkomnar á byrjunarstigi að afkasta svo örri aukningu á togaraflota Íslendinga sem greinilega er fullkomin þörf á nú. Hins vegar vil ég benda á það, að ef íslenzki togaraflotinn verður um það bil 50 skip í framtíðinni, — og minni álít ég að hann vart megi vera, — þá verður að reikna með því, að endurnýjun flotans krefjist þess, að smíðuð séu a. m. k. tvö ný skip árlega, þar sem óvarlegt er að reikna með, að meðalaldur slíkra skipa verði miklu meira en 25 ár. Það liggur þess vegna fyrir, að við verðum framvegis, þegar fiskiskipaflotinn er orðinn það stór, að sjá fyrir viðhaldi flotans með minnst tveim nýsmíðuðum skipum á ári.
Þá má geta þess, að slík nýsmíði togara innanlands mundi hafa í för með sér verulega atvinnuaukningu í iðnaði, ekki einasta í skipasmiðaiðnaðinum, heldur líka í fjölmörgum öðrum iðngreinum, svo sem húsa- og húsgagnasmíði, á ég þar við innréttingar skipanna. Sömuleiðis mundi þetta skapa mikil verkefni fyrir pípulagningamenn, því að í hverju slíku skipi er geysimikið um rörlagnir, og fleiri greinar iðnaðar mundu fá verkefni við sitt hæfi með smíði togara hér innanlands.
Ég vil einnig geta þess, að hér fyrir þessari hv. d. liggur nú frv. um togaraútgerð ríkisins til atvinnujöfnunar, og virðist það frv. eiga allmikinn hljómgrunn a. m. k. í fjórum þingflokkum, ef til vill í öllum þingflokkunum, og mundi það að vissu marki gera samþykkt þessa frv. nauðsynlega, ef ákveðið væri, að ríkið tæki að sér togaraútgerð til atvinnujöfnunar. En ég vil ekki einskorða íslenzkan togararekstur við það að bjarga þeim byggðarlögum, sem verst er ástatt um atvinnulega. Ég vil ekki heldur gera lítið úr því. Við þurfum vissulega hvort tveggja að gera, að sjá fyrir atvinnuþörf þeirra byggðarlaga, sem rýrasta hafa atvinnu, með því að senda þangað togara eða láta gera þaðan út togara, eftir því sem við verður komið, en við verðum einnig að leggja kapp á rekstur togara upp á þann allra hagfelldasta máta, sem hugsazt getur, og gera togara út beinlínis til þess að afla íslenzku þjóðinni tekna, — gera þá út þaðan, sem hagkvæmast er, og láta þá skila þeim beztu afköstum, sem fáanleg eru. Og við verðum þá líka að vera við því búin, að fólkið í landinu verði að einhverju leyti að flytja sig til, eftir því sem framvinda tímanna krefst þess, að við högum okkar atvinnuvegum. En hvernig sem á er litið, þá er aukning togaraflotans nú eitt af brýnustu atvinnu- og fjárhagsmálum íslenzku þjóðarinnar, og vil ég leggja áherzlu á, að frv. þetta verði nú tekið til rækilegrar meðferðar.
Þetta mál er allt í senn, fjárhagsmál, sjávarútvegsmál og iðnaðarmál. Ég leyfi mér þó að gera það að till. minni að þessari umr. lokinni, að frv. verði vísað til hv. fjhn., enda þótt ég verði að geta þess að mér finnst sú n. fara furðu rólega af stað, þar sem nú er um það bil hálfur mánuður liðinn frá því er hún var kosin og enn hefur n. ekki verið kölluð saman. En í von um það, að vinnubrögð hennar verði þeim mun hressilegri, þegar hún tekur til starfa, þá leyfi ég mér að óska þess, að frv. verði að þessari umr. lokinni vísað til hv. fjhn.