26.10.1954
Neðri deild: 9. fundur, 74. löggjafarþing.
Sjá dálk 155 í C-deild Alþingistíðinda. (2136)
64. mál, byggingasjóður kauptúna
Flm. (Gísli Guðmundsson):
Herra forseti. Frv. það, sem hér liggur fyrir um byggingarsjóð kauptúna, er að mestu samhljóða samnefndu frv., sem flutt var á síðasta Alþ. af sömu flm., en þeir voru þá og eru nú auk mín hv. 2. þm. N-M. (HÁ) og hv. þm. V-Ísf. (EirÞ).
Gert er ráð fyrir því í frv., að byggingarsjóðurinn fái að láni úr ríkissjóði 10 millj. kr. á tveimur árum, sem verði stofnfé hans, og að ríkislánið endurgreiðist með ríkisframlögum á 25 árum. Enn fremur er gert ráð fyrir, að byggingarsjóðurinn afli sér starfsfjár með lántökum á ríkisábyrgð, sbr. 9. gr. frv. Í þriðja lagi er í frv. gert ráð fyrir þeim möguleika, að kauptún þau eða þorp, sem lögin taka til, leggi sjóðnum til nokkurt fé gegn jafnháu aukaframlagi úr ríkissjóði. Er í frv. heimild fyrir félmrn. til að leggja slíka kvöð á alla kauptúnahreppa, ef 2/3 hreppanna eru því samþykkir, enda fari framlagið ekki fram úr tilteknu hámarki, miðað við álögð útsvör í hlutaðeigandi hreppum. Samkv. frv. er sjóðurinn í vörzlu félmrn. Gert er ráð fyrir, að það annist bókhald hans og fjárreiður samkv. fyrirmælum sjóðsstjórnar, en skrifstofustjóri ráðuneytisins á sæti í sjóðsstjórninni sem formaður ásamt tveim mönnum þingkjörnum. En ákvæði um stjórn sjóðsins eru í 3. gr. frv. Gert er ráð fyrir, að vaxtakjör séu hin sömu og í lánadeild smáíbúða á hverjum tíma, en lánstími lengri en hann er þar nú og lánin hærri. Starfssvið sjóðsins er í frv. takmarkað við kauptún eða þorp, sem hafa 1000 íbúa eða færri. Ég vil vekja athygli á því, að með því að takmarka starfssvið sjóðsins við kauptún eða þorp, sem hafa 1000 íbúa eða færri, er auðvitað ekki á neinn hátt gengið á hlut hinna fjölmennari staða, þar sem hér er um nýja lánastarfsemi að ræða og kaupstaðirnir hafa að sjálfsögðu sama aðgang og nú að hinum eldri byggingarlánastofnunum, sem þeir raunar hafa setið mestmegnis að hingað til. Má þó svo fara, að kauptúnin eða þorpin leituðu, er þessi sjóður hefur verið stofnaður, minna en áður til þeirra stofnana, sem fyrir eru, ef þau hefðu fengið sinn sérstaka byggingarsjóð, og væri það þá hinum fjölmennari stöðum í hag.
Við höfum ekki séð ástæðu til að setja í frv. nákvæmar reglur um upphæð lána, stærð íbúða, sem lánað er út á, o. s. frv., og teljum réttara, að þær reglur verði settar síðar af sjóðsstjórn eða ráðuneyti og farið þá eftir ástæðum sjóðsins og reynslu, sem smátt og smátt mundi fást af þessu nýmæli.
Meginhugsun okkar flm. við flutning þessa máls er sú, að það sé heppilegt og raunar þjóðfélagsleg nauðsyn að koma upp sérstakri byggingarlánastofnun fyrir kauptúnin eða þorpin í landinu. Alþ. hefur fyrir löngu viðurkennt nauðsyn sveitanna á því að hafa slíka stofnun út af fyrir sig, og mun ekki verða frá því horfið, á meðan hið mikilsverða hlutverk þeirra í þjóðlífi og þjóðarbúskap er viðurkennt og metið af ríkisvaldinu.
Í grg. frv. höfum við flm. reynt að færa fram nokkur rök fyrir því, að svipað sjónarmið þurfi að koma til greina varðandi hin dreifðu og fámennu þorp landsins. Þar er m. a. á það bent, að þorpin hafi lengst af borið skarðan hlut frá borði við úthlutun lánsfjár til íbúðabygginga frá hinum eldri stofnunum, og eru til þess ýmsar ástæður og enn óbreyttar. Á þessu hefur að vísu orðið mikilsverð breyting þau þrjú ár s. l. sem smáíbúðadeildin hefur starfað. Eigi að síður teljum við vandkvæði á því fyrir þorpin að eiga að nota sömu lánsstofnun í þessu skyni og hinir fjölmennari staðir, þ. á m. höfuðstaðurinn. Jafnframt er í grg. nokkuð rætt um húsnæðisástand þorpanna og séraðstöðu þeirra í því efni og bent á ýmislegt annað í sögu þeirra og þróun síðustu áratugina, sem á ber að líta í sambandi við nauðsyn þessa máls. Fer ég ekki nánar út í það að þessu sinni, en vísa til grg. um það.
Íbúar landsins eru nú milli 150 og 160 þús. Fæddir umfram dána voru á árinu sem leið rúml. 3200 og fólksfjölgunin á því ári nálega 22 af þúsund. Fólksfjölgunin síðustu tíu árin hefur verið að jafnaði nálega þriðjungi meiri hlutfallslega en hún var næstu 20 árin á undan, svo að ekki sé lengra farið. Hún hefur verið nú síðasta áratuginn um 20 af þúsund á móti 10–14 af þúsund, eins og hún var næstu 20 árin á undan. Það hefur verið reiknað út af fróðum mönnum, að með jafnmikilli fólksfjölgun hlutfallslega á næstu 46 árum verði íbúatala landsins um 300 þús. um næstu aldamót. Með öðrum orðum: Á þeim 46 árum, sem eftir eru af öldinni, mun þjóðinni fjölga um nálega helming, ef reynslan verður í samræmi við þessa útreikninga. Og nú er ástæða til að spyrja: Hvar verða heimili þeirra 140–150 þús. Íslendinga, sem við bætast á þessum 46 árum? Hvar verða þau reist á landinu þessi 20–30 þús. nýju heimili, sem helmingur aldamótaþjóðarinnar stofnar í landinu? Verða þessi 20–30 þús. heimili svo til öll reist á litlum bletti á suðvesturhorni landsins eða einhverjum öðrum litlum bletti, þar sem blind rás viðburðanna stöðvar strauminn. Reynsla þessarar aldar bendir til þess, að svo geti farið, ef ekki er að gert.
Þegar á þetta er litið, er það sannarlega engin furða, þó að margir séu um þessar mundir farnir að leiða hugann að nauðsyn þess að efla jafnvægi í byggð landsins. Þær ráðstafanir, sem gerðar hafa verið af hálfu þjóðfélagsins til eflingar landbúnaði, ræktun, endurbygging sveitabæjanna, nýbýlin o. s. frv., þetta miðar allt í jafnvægisáttina, það sem það nær. Það nær bara of skammt, því miður. Miðað við það, sem í vændum virðist vera um fólksfjölgunina, ætti þjóðfélagið að vera við því búið að fjölga sveitaheimilunum um a. m. k. helming á næstu 46 árum. En er það við því búið? Ég skal ekki ræða það að þessu sinni, en ég vil segja annað, því að það stendur í beinu sambandi við það mál, sem hér er til umræðu. Ef þjóðfélagið vill í alvöru vinna að jafnvægi í byggð landsins, þá er full ástæða til að gefa sérstakan gaum að sjávarþorpunum og hinum nýju sveitakauptúnum líka. Þessi þorp eða kauptún, eins og þau eru oftast nefnd til aðgreiningar frá kaupstöðunum eða bæjunum, eru nú rúmlega 50 talsins, flest við sjó, en þó nokkur fjarri sjó, sem hafa risið upp síðustu árin á samgönguleiðum. Íbúar þessara rúmlega 50 þorpa eru nú samtals 18–19 þús., og grg. með þessu frv. fylgir skrá um íbúatöluna, sundurliðuð eftir þorpum, samkv. bráðabirgðaskýrslum hagstofunnar um manntal 1953.
Nokkur þessara þorpa eru í vexti, en þau eru fá. Sum eru minnkandi, flest standa í stað. Þar er m. ö. o. að þessu leyti svipað ástand og í sveitum. En eigi að stöðva strauminn, eigi að vinna að jafnvægi í byggðinni, verður að stefna að því, að verulegur hluti af fólksfjölguninni staðnæmist einmitt í þessum 50 dreifðu og nú fámennu þorpum. Og þorpunum þarf að fjölga. Hér þarf að leggja hönd að verki.
Það má a. m. k. ekki láta það viðgangast lengur, að fólk eigi örðugra með að fá að láni fjármuni til að byggja yfir sig á þessum stöðum en þar, sem fjölmennið er mest; þvert á móti. Og það er sú hugsun, sem fyrir okkur flm. vakir. Ef menn vilja vinna að jafnvægi, sýnist okkur það hreint engin goðgá að halda því fram, að frá þjóðfélagsins hálfu eigi að hvetja alveg sérstaklega til íbúðabygginga í þorpunum. Frv., sem hér liggur fyrir, er spor í þá átt.
Það getur verið, að okkur flm. þessa frv. hafi ekki tekizt að finna hina heppilegustu leið. Hér er um frumsmíð að ræða; þó að málið hafi verið flutt á tveim þingum áður, er það enn lagt fram í svipuðu sniði og áður. Við erum fúsir til viðræðna um breytingar, sem til bóta mega verða. Við hefðum að ýmsu leyti viljað ganga lengra til hagræðis fyrir þá, sem þessara ráðstafana ættu að njóta, en gert er í þessu frv., þótt við höfum ekki talið það ráðlegt .að svo stöddu. Fyrst og fremst þarf að okkar áliti hin sérstaka byggingarlánastofnun þorpanna að komast á fót. Þá mun sýna sig, hver vaxtarmáttur slíkrar stofnunar verður og hvert hlutverk hún hefur að rækja. Og þá er hægt að ræða nánar um ýmislegt, sem nú kann að þykja af vanefnum til stofnað með flutningi þessa máls.
En að lokum vildi ég segja þetta, þessu máli til stuðnings: Fólkinu, sem á heima í þessum 50 dreifðu þorpum landsins, mundi verða það mikil hvatning í lífsbaráttunni, ef það fyndi vott slíkrar viðurkenningar af hálfu þjóðfélagsins sem í þessu frv. felst, ef það yrði að lögum, — vott viðurkenningar á því, að þær 18–19 þús., sem í þorpunum búa nú, standi ásamt sveitunum vörð um jafnvægið í byggð landsins og hafi sérstöku þjóðfélagslegu og menningarlegu hlutverki að gegna.
Ég skal svo ekki hafa þessa framsögu lengri. Ég vil f. h. okkar flm. leyfa mér að leggja til, að frv. verði að lokinni þessari umr. vísað til 2. umr. og hv. félmn., þar sem ég ætla, að það hafi verið áður, og vil ég mega vænta þess, að málið verði þar í góðum höndum.