04.11.1954
Neðri deild: 12. fundur, 74. löggjafarþing.
Sjá dálk 187 í C-deild Alþingistíðinda. (2160)

75. mál, iðnlánasjóður

Flm. (Jónas Rafnar):

Herra forseti. Ég held það gæti nú einhvers misskilnings hjá hv. 5. landsk. þm. Iðnlánasjóður hefur samkv. l. frá 1946 lánað bæði til iðju og iðnaðar. Sjóðurinn hefur bæði lánað handverksmönnum og einnig lánað iðjufyrirtækjum. Þetta frv. breytir í engu þessum ákvæðum. 1. gr. frv. er algerlega eins orðuð og grein laganna frá 1946, nema að því leyti, að framlagið hækkar um 300 þús. Það er því ekki um neina breytingu að ræða í þá áttina, að það sé verið að taka einhvern rétt frá iðnaðarmönnum. Það er síður en svo, það er verið að auka þeirra möguleika til vaxandi lána, þar sem hér er till. um það, að framlagið verði hækkað upp í 600 þús. — Mér láðist að óska eftir því áðan við hæstv. forseta, að hann vísaði málinu til hv. iðnn. að lokinni þessari umr.