08.11.1954
Neðri deild: 14. fundur, 74. löggjafarþing.
Sjá dálk 198 í C-deild Alþingistíðinda. (2169)
81. mál, útsvör
Pétur Ottesen:
Eins og hv. 1. flm. þessa frv. tók fram, þá mun þetta nú vera í þriðja eða fjórða skipti, sem flutt hefur verið frv., sem felur í sér ákvæði um að raska mjög þeim grundvelli, sem núverandi útsvarslöggjöf er byggð á, því að aðalgrundvöllur útsvarslöggjafarinnar er, að það skuli aðeins leggja útsvar á gjaldþegn þar, sem hann á lögheimili. Undantekningar eru þó frá þessari reglu, ef hann hefur heimilisfasta atvinnustofnun annars staðar eða útibú, sem starfrækt er allt árið, eða hann hefur jörð eða jarðarafnot í öðru sveitarfélagi, þá er hægt að leggja á það þar, og hafi hann lögheimili á fleiri stöðum en einum, — en allt er þetta bundið við fastan atvinnurekstur allt árið. Í öðrum tilfellum, þegar menn reka atvinnu um stundarsakir annars staðar, í hvaða formi sem það er, á heimilissveitin álögurétt á þann atvinnurekstur með sama hætti og þann, sem rekinn er í lögheimilissveit gjaldþegnsins. Hins vegar er, þegar atvinna er rekin utan heimilissveitar, eins og hér greinir, að nokkru verulegu leyti, heimild til þess að skipta útsvarinu á milli heimilissveitar og þeirrar sveitar, þar sem atvinnan fer fram.
Framkvæmd útsvarslöggjafarinnar að undanförnu, áður en þessu var breytt, hafði sýnt það, að svo mikill eltingarleikur var orðinn í útsvarsálagningu á menn, sem ráku atvinnu sína, þó að ekki væri nema skamman tíma, annars staðar en í heimilissveit, að það var komið í gersamlegt óefni, og í mörgum tilfellum var það orðið svo, að það var búið að leggja svo mikil og þung útsvör á þann atvinnurekstur, sem rekinn hafði verið utan heimilissveitarinnar, að það var ekkert eftir til þess að leggja á hjá manninum í heimilissveit, af því að svo nærri honum hafði verið gengið í útsvarsálagningu utan heimilissveitarinnar, enda er náttúrlega ekki hægt að samrýma það því meginákvæði útsvarslaganna, að leggja skuli á eftir efnum og ástæðum. Það er ekki hægt að samrýma það við það, að lagt sé á manninn á mörgum stöðum, því að yfirleitt liggja ekki fyrir skýrslur um eignir og afkomu þessara manna nema í heimilissveitinni. Þess vegna er það að sjálfsögðu alveg í fyllsta samræmi við þetta höfuðákvæði útsvarslaganna að leggja á eftir efnum og ástæðum, að heimilissveitin hafi álöguréttinn. Hitt gat svo í ýmsum tilfellum verið sanngjarnt, að til þess sveitarfélags, þar sem atvinnan hafði að einhverju leyti verið rekin, gengi hluti af útsvarinu með tilliti til þeirra tekna, sem manninum höfðu fallið í skaut þar. Ef slíkt ákvæði sem það, er í frv. þessu felst, yrði samþykkt, þá mundi verða kippt alveg grundvellinum undan útsvarslöggjöfinni að þessu leyti, því að einmitt þau ákvæði, sem í frv. felast, eru í skiptingarákvæðum 9. gr. núverandi útsvarslaga. Og það er víst í mjög mörgum tilfellum, sem útsvörum er skipt og útsvarið dreifist eðlilega samkvæmt því, sem ætlazt er til í útsvarslögunum. Það er mjög einkennilegt, ef einhver undantekningarákvæði eru um þetta norður á Siglufirði, þar sem þetta er framkvæmt víða annars staðar og það án allra árekstra á milli þeirra aðila, sem þar eiga hlut að máli. Ég held þess vegna, að það sé einhver ódugnaður eða sinnuleysi hjá yfirvöldunum á Siglufirði, ef þau hafa ekki getað hagnýtt sér þetta ákvæði alveg eins og önnur sveitarfélög í landinu hafa gert. Hitt er svo vitað, að á undanförnum árum hefur síldarsöltun eða annað, sem að síldveiðum lýtur, verið svo rýr atvinnuvegur sökum þess mikla aflabrests, sem verið hefur á síld að undanförnu, að það getur vel verið, að þetta hafi verið svo lítill og óverulegur þáttur í atvinnurekstri á Siglufirði, að yfirvöldunum þar hafi ekki þótt taka því að fara að leita eftir skiptingu á þessu.
Það er vitanlegt, að ef ákvæði þau, sem í frv. þessu felast, væru tekin upp aftur, þá mundi heimilissveitin, eins og áður var, verða gersamlega svipt því að geta lagt nokkuð á að því er þetta snertir eða á afkomu þess manns, sem eitthvað á undir þessum atvinnuvegi. Það mundi verða hirt í því sveitarfélagi, þar sem atvinnan fer fram, eða sjálfsagt farið alveg á fremstu nöf í því að nota þessar aðstæður. Og það voru mörg dæmi til þess áður og þau voru alþekkt, á meðan þetta ákvæði var í lögum, að þar var gengið svo freklega í álagningu, eins og ég áður lýsti, að ekkert var eftir fyrir heimilissveitina til þess að leggja á.
Nú er það svo um síldarverkun og síldarsöltun, að náttúrlega er ekki eins og það sveitarfélag, þar sem þessi atvinna er rekin, njóti ekki nokkurs góðs af henni og því fólki, sem þar vinnur, því að vitanlega eykur það verzlun og viðskipti, eins og gerist og gengur, og er þannig til uppbyggingar því sveitarfélagi, á meðan þessi atvinnurekstur stendur yfir.
Ég skal svo ekki hafa fleiri orð um þetta. Ég vil aðeins vara hv. þd. við því að breyta grundvelli útsvarslöggjafarinnar að þessu leyti, því að það mundi að sjálfsögðu leiða af sér, að hliðstæðar kröfur yrðu bornar fram annars staðar, og ef yrði orðið við þessu, þá væri ekki heldur gott að standa á móti sams konar eða hliðstæðum kröfum annars staðar frá. Afleiðing af því yrði ekki önnur en sú, sem alkunnugt var áður, að þetta lenti allt saman í öngþveiti og vandræðum. Yrði þá að sjálfsögðu að fara að byggja það upp að nýju og stemma á að ósi. Þess vegna held ég, að þar sem þetta er stutt af svo mikilli reynslu eins og á þessu var fengin áður, þá sé ákaflega varhugavert að fara að taka þetta atriði úr hér. Það er búið að flytja þetta mál á undanförnum þremur eða fjórum þingum, og Alþingi hefur ekki talið gerlegt að leggja út í slíkar breytingar og fara að búa til slíka bláþræði í löggjöfinni eins og gert væri með því að taka slík ákvæði inn í útsvarslögin.
Ég vildi með þessum orðum vekja athygli þeirrar n., sem fær þetta mál og mun vera allshn., og þá hv. þd. allrar um leið.