26.11.1954
Neðri deild: 23. fundur, 74. löggjafarþing.
Sjá dálk 221 í C-deild Alþingistíðinda. (2199)

110. mál, áburðarverksmiðja

Flm., (Bergur Sigurbjörnsson):

Herra forseti. Á þskj. 191 endurflytjum við þm. Þjóðvfl. frv. til l. um breyt. á l. um áburðarverksmiðju. Í frv. okkar er það lagt til, að lögunum um áburðarverksmiðju verði breytt á þann veg, að sérsamtök bænda verði aðilar að hlutafélagi því, sem rekur áburðarverksmiðjuna, í stað þess að nú eru það nokkrir eignamenn hér í höfuðstaðnum, sem hafa fengið þessa heimild lögum samkvæmt. Er lagt til í frv., að hlutabréf annarra en ríkissjóðs verði endurkeypt af ríkissjóði og framseld sérsamtökum bænda með þeim kjörum, sem um getur í frv.

Frv. þetta fluttum við á þingi í fyrra, og sé ég því ekki ástæðu til þess að orðlengja um það, enda nokkur grein gerð fyrir málinu í grg., sem frv. fylgir.

Mér þykir þó rétt að taka það fram, að þegar þetta frv. var flutt hér á síðasta þingi, þá var því vísað til hv. landbn. og lá það mánuðum saman hjá n. En nokkrum dögum áður en þingi var slitið, barst álit frá hv. landbn. um málið, en málið var aldrei útrætt hér í d. Í þessu nál., sem allir hv. þm., er sæti áttu í landbn. í fyrra, undirrita, er svo að orði komizt, að það sé í athugun, að bændur eða samtök bænda verði aðilar að áburðarverksmiðjunni, eins og lagt var til í frv., og því leggi n. til, að frv. verði vísað frá.

Af þessu nál., sem prentað var á þskj. 523 á síðasta þingi, verður ekki annað skilið en að n. hafi litið svo á, að það væri í sjálfu sér eðlilegt, að það mál væri athugað og eftir því leitað, að bændur yrðu aðilar að áburðarverksmiðjunni, þ. e. a. s., að n. virðist hafa verið á sömu skoðun að þessu leyti og við flm. frv. Hins vegar dregur n. þá merkilegu ályktun af þessari skoðun, að vegna þess að hún sé flm. frv. sammála í meginatriðum, skuli frv. vísað frá.

Nú er það augljóst mál, að eigi að fara þá leið að heimila bændum eða samtökum þeirra að eignast hlutabréf í áburðarverksmiðjunni, þá verður að vera til þess lagaheimild. Öðruvísi er ómögulegt að ná árangri í því máli. Og það er ekki við því að búast, að það sé vel tekið undir það af samtökum bænda eða bændum almennt, þegar leitað er eftir stuðningi þeirra eða vilja þeirra til að kaupa hlutabréf í áburðarverksmiðjunni, en jafnframt lagt til á Alþ., að breytingum á áburðarverksmiðjulögunum, sem ganga í þá átt að heimila það, sé vísað frá. Ef árangur á að nást í því að fá samtök bænda og bændur til að kaupa hlutabréf áburðarverksmiðjunnar, þá verður að sjálfsögðu fyrst að fá 1agaheimild til þess.

Um vilja bænda og samtaka þeirra í þessu efni þarf ekki að efast og ekki heldur að fjölyrða. Hann hefur greinilega komið fram í fjölda samþykkta, sem bændur hafa gert, bæði á búnaðarþingi, aðalfundi Stéttarsambands bænda og í einstökum búnaðarfélögum. En af því, sem ég hef sagt hér um þetta mál, leyfi ég mér að vænta þess, að málið fái nú öllu skjótari afgreiðslu en í fyrra og betur rökstudda hjá þeirri n., sem því verður væntanlega vísað til.

Ég legg svo til, að að lokinni þessari umr. verði málinu vísað til hv. landbn.