07.02.1955
Neðri deild: 41. fundur, 74. löggjafarþing.
Sjá dálk 223 í C-deild Alþingistíðinda. (2203)
126. mál, atvinna við siglingar
Flm.. (Karl Guðjónsson):
Frv. þetta er flutt að tilhlutan Vélstjórafélags Vestmannaeyja og eftir áskorun síðasta Alþýðusambandsþings, en efni þess er það, að öllum skipum skuli vera skylt að hafa tvo vélstjóra, og er það fyrst og fremst öryggismál sjómanna, sem hér er um að ræða.
Í núgildandi lögum er svo sagt um vélbáta, sem stunda róðra þannig, að þeir koma að landi daglega, að þeim skuli heimilt að hafa aðeins einn vélstjóra. ef skipstjóri hefur vélstjóraréttindi, Þetta ákvæði er nokkuð til þess að draga úr öryggi sjófarenda, og þykir mér líklegt, að Alþ. vilji gera sitt í hvívetna til þess, að öryggismálum sjómanna verði sem bezt fyrir komið.
Ég legg til, að þessu frv. verði að lokinni þessari umr. vísað til 2. umr. og hv. sjútvn.