08.02.1955
Neðri deild: 42. fundur, 74. löggjafarþing.
Sjá dálk 225 í C-deild Alþingistíðinda. (2209)
134. mál, tekjuskattur og eignarskattur
Flm. (Karl Guðjónsson):
Herra forseti. Það er háttur flestra menningarþjóða nútímans að tryggja þegna sína gegn of mikilli vinnu, en öll reynsla sannar, að óhóflega langur vinnutími tefur fyrir allri menningarlegri framþróun. Víða um heim mun vera litið á það sem sjálfsagt atriði í heilbrigðisþjónustu hins opinbera að hafa hemil á því, hve langan vinnudag þegnar þjóðfélagsins eru látnir vinna. Hjá okkur hagar því svo til á ýmsan hátt, að erfitt er, eins og nú standa sakir, að leggja bann við yfirvinnu eða hefta hana að verulegu leyti. Einkum á þetta við um framleiðslustörfin, framleiðslustörf sjávarútvegsins þó alveg sérstaklega.
Það er augljóst mál, að ef ströng takmörk væru sett á vinnutíma manna í verstöðvum landsins á þeim árstíma, þegar mest berst að af afla, þá mundi það að sjálfsögðu verða til þess að minnka framleiðsluna, en það er óæskilegt, að framleiðslan minnki frá því, sem er. Hitt er jafnsjálfsagt, að þjóðfélagið sjái það í einhverju við þá menn, sem leggja mjög hart að sér með vinnu til þess að framleiða verðmæti fyrir þjóðfélagið, — verðmæti, sem þjóðfélagið má ekki án vera. En því er alls ekki þannig farið á okkar landi. Ríkisvaldið hefur með lagaboði séð svo um, að í opinbera þegnskyldu er tekinn óhóflega stór hluti af þeim vinnulaunum, sem greidd eru fyrir yfirvinnu. Þess vegna er hér lagt til í þessu frv., að sú vernd, sem þjóðfélagið veiti mönnum gegn of mikilli vinnu, verði fyrst og fremst að svo komnu máli fólgin í því, að tekjur þær, sem menn afla sér með yfirvinnu í þjónustu útflutningsframleiðslunnar, verði undanþegnar tekjuskatti. Verður að líta svo á, að með því væri þeim mönnum, sem hart leggja að sér á vissum árstímum, gert mögulegra að bæta sér upp þá óhóflega miklu vinnu, sem þeir skila þjóðfélaginu þegar mest á liggur, með því, að þeir gætu frekar vegna batnandi efnahags tekið sér frí á öðrum árstímum.
Þetta frv. miðar sem sagt að því, að þjóðfélagið viðurkenni, að um þegnskyldu, þjóðfélaginu holla, sé að ræða, þegar menn vinna langtímum saman, kannske svo mikið á einum sólarhring, að jafngildi tveimur vinnudögum annarra manna, — að þjóðfélagið sjái þetta við menn í því að fella niður skatta af slíkri yfirvinnu.
Ég vil einnig taka fram, að það frv., sem er hér næst á dagskránni á eftir þessu frv., til l. um breyt. á l. um útsvör, er nákvæmlega hliðstætt því frv., sem hér er til umræðu, og liggja sömu rök til grundvallar flutningi þess. Mun ég af þeirri ástæðu ekki gera sérstaklega grein fyrir því frv., heldur vitna til þeirrar grg. og til þeirrar framsögu, sem hér hefur verið flutt um þetta frv. Ég legg að lokum til, að þeim frv. tveim verði að lokinni 1. umr. vísað til hv. fjhn. og 2. umr.