18.03.1955
Neðri deild: 61. fundur, 74. löggjafarþing.
Sjá dálk 255 í C-deild Alþingistíðinda. (2237)
171. mál, landkynning og ferðamál
Gylfi Þ. Gíslason:
Herra forseti. Hv. 7. þm. Reykv. fannst það skjóta nokkuð skökku við, að ég vildi viðhalda hér því, sem hann kallar einokun Ferðaskrifstofu ríkisins til landkynningar og fyrirgreiðslu erlendra ferðamanna, þegar slík einokun þekkist ekki í nágrannalöndum, t. d. í Noregi, þar sem flokksmenn mínir færu nú með hreint meirihlutavald á löggjafarsamkomunni. Þessu atriði hafði ég raunar þegar svarað í ræðu minni áðan. Ég benti á, að aðstæður væru mjög ólíkar í hinum ýmsu löndum til þess að veita erlendum ferðamönnum sómasamlega fyrirgreiðslu. Móttaka ferðamanna er í Noregi ævagamall atvinnuvegur og raunar einn af helztu atvinnuvegum þjóðarinnar. Norðmenn standa þar á gömlum merg og hafa í þeim efnum mikla reynslu og langa fortíð að baki. Sama er að segja um Svisslendinga og ýmsar aðrar þær þjóðir, sem hann nefndi, þar sem móttaka erlendra ferðamanna er þýðingarmikill atvinnuvegur, sem byggzt hefur upp smám saman og á sér langa þróun að baki. Í þessum löndum eru mikil og góð skilyrði til þess að veita hinum erlendu ferðamönnum góða fyrirgreiðslu. Þar er ekki hætta á því, að í sambandi við landkynningarstarfið verði stundað gróðabrall með lélega þjónustu. Hér gegnir allt öðru máli. Við höfðum enga reynslu í þessum efnum, þegar gildandi löggjöf var sett árið 1936. Hér varð að byggja allt frá grunni, og enn eru skilyrðin til þess að veita ferðamönnum viðtöku því miður mjög bágborin. Það er þetta, sem veldur hinum mikla aðstöðumun okkar og Norðmanna í þessum efnum. Það eru einmitt hin ófullkomnu skilyrði til þess að veita hér erlendum ferðamönnum sómasamlegar viðtökur, sem gera það sérstaklega varhugavert að láta mörg einkafyrirtæki fást við þessa starfsemi og efna til harðvítugrar samkeppni þeirra á milli um að fá hingað erlenda ferðamenn, sem svo ef til vill er ekki hægt að veita sómasamlega fyrirgreiðslu, þannig að landkynningin, sem af því hlytist, yrði ekki góð, heldur slæm. Það er þessi munur, sem ég tel fyrst og fremst valda því. að það sé enn sem komið er a. m. k. eðlilegt, að þessi starfsemi sé hér á einni hendi og þá í hendi hins opinbera, jafnvel þó að svo geti verið erlendis, að því sé engin hætta samfara, að einkafyrirtæki fáist við þessi mál.
Þá hef ég gefið skýringu á þessu atriði, sem hann beindi til mín fyrirspurn um, en ég gæti svarað með því að beina öðrum fyrirspurnum til hans. Úr því að hann og flokkur hans má ekki til þess hugsa að hafa einokun í sambandi við fyrirgreiðslu erlendra ferðamanna og landkynningu, hvers vegna getur hann og flokkur hans þá hugsað sér að hafa einokun á öðrum sviðum, sem þó eru miklu mikilvægari þjóðarbúskapnum en þetta? Svo að ég nefni einhver dæmi og beri aftur saman við Noreg, eins og hann gerði: Eins og kunnugt er, hefur ákveðið fyrirtæki hér, S. Í. F., einokun á útflutningi saltfisks samkvæmt lögum, og hvenær sem því er hreyft, að tímabært sé að afnema einokunina, ris flokkur hv. 7. þm. Reykv. öndverður gegn því og telur einokunina alveg sjálfsagða. Slík einokun er ekki til í Noregi. Vilji hann sækja allar fyrirmyndir sínar til Noregs, hví vill hann þá ekki einnig fara að dæmi Norðmanna um að leyfa frjálsan útflutning á saltfiski? Ég hefði gaman af að fá að heyra skýringarnar á þessu, fyrst hann beindi fyrirspurn til mín um það, hvers vegna ég vildi hafa einokun á landkynningarstarfi hér, fyrst það væri ekki í Noregi. Ég hefði gaman af að heyra, þó að í stuttu máli væri, skýringarnar á þessu.